Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1989, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1989, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1989. Lifsbjörg í norðurhöfum heitir eins konar fræðslumynd fyrir önn- ur lönd og aðrar þjóðir um það að á íslandi búi fákæn eskimóaþjóð sem ekki gæti lifað fjögur hvalfrið- unarár af fyrir kjötskorti ef hún léti beita sig því gjörræði að veiða ekki hvali í fjögur ár, sem sjálft hiö háa Alþingi samþykkti meö einu atkvæði yfir. Samþykkti að leggja niöur allar hvalveiðar þann tíma eftir ósk Alþjóöa hvalveiðiráðsins. Kvikmyndinni virðist vera ætlað að sannfæra aðrar þjóðir um það að hér sé verið að gera út af við fámenna eskimóaþjóð á graslausu útskeri við norðurheimskauts- baug. Aðrirtrúa Ég tók eftir því fljótlega að næst eftir að mynd kom frá íslandi og íslenskt tal þá birtist rétt um leið, án skýringa, mynd af eskimóa! Ég hefði ekki áttað mig á því sem út- lendingur að myndin væri ekki af íslendingi. Fyrst þegar þessi maður birtist á „Oddagleri" sjónvarpsins þá sá ég að þetta var veðraður maður af útivist. Ég var að reyna að gjöra mér grein fyrir því hvort þetta væri ís- lenskur bóndi eða íslenskur sjó- maður en kom ekki manninum vel fyrir mig sem einum af þeim. Þá skýröist myndin allt í einu og mér varð ljóst að maðurinn var esk- imói, „á milli Grænlands köldu kletta". Landslagið gat veriö frá hvoru landinu sem var, íslandi eða Grænlandi. En maöurinn sýndi það glöggt að hann var eskimói. Enginn útlendingur, sem hvorki þekkir ísland né Grænland, gat átt- að sig á því að þessi eskimói væri ekki íslendingur, því engin til- kynning í tali né texta kom um það að kvikmyndin væri komin með Grænlands mynd. Það hlýtur því að vera aðalerindi kvikmyndarinn- ar aö sannfæra aðrar þjóðir um aö íslenska þjóðin sé frumstæð esk- Eskimóakvikmynd um íslendinga Kjallariim Rósa B. Blöndals rithöfundur og kennari svelta vesalings íslensku eskimó- ana í hel. Og tilgangur íslendinga sá stoltlausi vesalingsháttur að Is- land veröi tekið með, ef fákænustu veiðimönnum veraldar skyldi verða leyft að stunda hvalveiðar, ekki til sölu heldur í eigin þágu, vegna kjötleysis. En í reynd lætur íslands stolta þjóð náttúríega ekki banna sér að selja sitt eigið hval- kjöt til Japans. Þjóðerni afsalaö fyrir hvalskurð Á þeim dögum, sem handritadeil- an stóð sem hæst, held ég að ís- lenskir ráðherrar og íslendingar í heild hefðu oröið heiftarlega reiðir ef Danir hefðu gjört fræðslumynd sem verið hefði nákvæmlega eins og þessi, um íslenska eskimóa, „Yfirlýst ánægja margra Islendinga yfir þessari fræðslumynd sýnir best hvernig ráðamönnum vorum hefur tekist að blinda þjóð sína í sambandi við alþjóðlega friðun hvalastofna.“ Kvikmyndinni virðist vera ætlað að sannfæra aðrar þjóðir um það að hér sé verið að gera út af við fámenna eskimóaþjóð á graslausu út- skeri við norðurheimskautsbaug. imóaþjóð. Til hvers hafa ráðamenn íslands áhuga á þeirri blekkingakúnst? Vegna þess að þeir eru komnir í svo mikla sjálfheldu í sinni fomaldar- afstöðu til friðunar á sjóspendýram í útrýmingarhættu að flestir vorir efstu ráðamenn vilja leggjast svo lágt að beita kvikmyndablekkingu, þannig að umheimurinn trúi því að íslenska þjóðin sé nákvæmlega á sama stigi eins og eskimóar á Hellulandi og á öllum ystu út- ströndum veraldar, sem engir aðrir menn geta raunverulega byggt. Og þær þjóðir, sem ekki hafa hugmynd um hlýjan straum, sem umlykur strendur íslands, trúa því eins og nýju netinu að verið sé að brugðið ýmist upp parti af íslandi eða Grænlandi með greinilegri nærmynd af eskimóa og svo af veið- um úti á Grænlands ís, án allra skýringa á því hvað væri græn- lenskt og hvað íslenskt. Yfirlýst ánægja margra íslend- inga yfir þessari fræðslumynd sýn- ir best hvernig ráðamönnum vor- um hefur tekist að blinda þjóð sína í sambandi við alþjóðlega friðun hvalastofna. Það háskalegasta er að þeir telja fólki trú um að þetta sé einhver sjálfstæðisvörn íslend- inga gagnvart gjörræöi Banda- ríkjamanna. Ég þakka Magnúsi Guðmunds- syni ekki þessa sundurlausu, lélega unnu blekkingamynd. Ég þakka honum ekki fyrir eskimóastimpil- inn. Eftirtektarvert að Norðmenn koma þarna hvergi nærri. En kynnu að vilja njóta góðs af. Stór-Danir hlæja Svíar skemmta sér yfir fræðslu- mynd frá íslendingum sjálfum. Norðmenn hirða heiðurinn af öll- um fornhandritum íslendinga. AU- ar menntaðar þjóðir vita að esk- imóar á ritöld íslendinga skildu hvergi eftir nein handrit. Segja má að íslenska þjóðin sé langt komin að afsala sér sínu eigin þjóðerni fyrir hvalskurð. Ég þakka Guðrúnu Helgadóttur alþingismanni fyrir ágæta frammi- stöðu í viðtalinu á eftir. Magnús varð heldur lágreistur þegar hún fór að spyrja hann út í sum atriði myndarinnar. Það var hárrétt sem hún sagði um myndina. Einnig að Alþingi hefði átt að standa við sam- þykki sitt. Engar hvalveiðar í íjög- ur ár. Ég þakka mjög rökfasta frammi- stöðu Þorleifs Einarssonar jarð- fræðings. Hvernig hann skýrði fyr- ir dr. Jakob Jakobssyni blekkingu vísindaveiðanna til þess að smjúga núllið. Þakka einnig hógvær rök Þórs Jakobssonar. Hafi þau öll þakkir fyrir að skýra fyrir þjóð vorri sannleikann í þessu máli. Myndin er óheiðarleg gagnvart grænfriðungum. En ef íslenskir ráðamenn hafa nokkurn skyn- samlegan þjóðarmetnað þá létu þeir stöðva þessa mynd þegar í stað vegna vorrar eigin þjóðar. Rósa B. Blöndals Hugleiðing um meðferð og sjálfsstjórn „í umræðum um vlmuefnamál tyggur þetta fólk allt upp sömu klisjurnar og frasana og vottar þar ekki fyrir miklum fjölbreytileika 1 málflutningi.“ Það er kunnara en frá þurfi að segja að sumu fólki gengur brösulega að stjóma lífi sínu. Hefur í því sam- bandi einkum verið bent á fólk sem orðið hefur fótaskortur í umgengni sinni við áfengi og aðra vímugjafa. Er þó vitað mál að hægt er að hafa góða stjórn á áfengisneyslu, sem og öðrum viðfangsefnum í líf- inu, sé fólk í góðu andlegu og lík- amlegu jafnvægi og hafi ræktað með sér sjálfsstjórn og viljastyrk. IIInauðsyn í sumum tilvikum hafa vankant- ar í sambandi við áfengisneyslu fólks orðið það miklir að það hefur kosið aö leggja hana alveg á hill- una. Hafa sumir framfylgt slíkri ákvörðun sjálfir en aðrir hafa tekið þann kostinn að fara inn á þar til gerðar meðferðarstofnanir og gera þar aðra að sínum andlegu ljós- mæðrum. Telja margir sig hafa fengið góðan „bata“ á þennan hátt. Hins vegar ber þaö ekki vott um mikið sjálfstæði eða viljastyrk að KjaUariim Guðmundur Sigurður Jóhannsson æviskrárritari þurfa að leita sér meðferðar inni á stofnunum til þess aö koma jafn- vægi á eigið lif, enda flokkast sá vafasami heiður undir það sem kallaö er ill nauðsyn. Einnig virðist mér aö „bati“ sá, sem menn fá á svokölluðum með- feröarstofnunum, sé í ófáum tilvik- um ærið dýru verði keyptur á kostnað sjálfstæðis einstaklingsins í hugsun og skoöanamyndun og er ekki flarri lagi að tala megi um heilaþvott í því sambandi. Sumir þeirra, sem verið hafa í meðferð, snúa gersamlega bakinu við sínu fyrra vinafólki vegna þess eins að „það er enn í ruglinu“ og eiga ákaflega bágt með að láta vímugjafana og neytendur þeirra njóta sannmælis. í umræðum um vímuefnamál tyggur þetta fólk allt upp sömu klisjurnar og frasana og vottar þar ekki fyrir miklum fjölbreytileika í málflutningi. Má oft hafa nokkra skemmtan af því að skeggræða við þetta fólk um áfengismál og heyra hvað yfirþvottameistararnir á meðferðarstofnununum hafa lesið inn á símsvarann. Er það nánast undravert hve textinn brenglast lítið í meðfórum margra einstakl- inga. Skuldinni skellt á vímugjafann Það hefur skapast hefð fyrir því í umræðu um vímuefnamál að skella allri skuldinni á vímugjaf- ann þegar neytandanum verður fótaskortur í umgengni sinni við hann (eins og það er nú drengilegt og viturlegt að gera dauða hluti ábyrga fyrir mannlegum mistök- um!). En þeirrar spurningar heyr- ist aldrei spurt hvernig stendur á því í velferðarþjóðfélagi að skóla- kerfið skuli ekki skila fólki þannig út í lífið að það sé andlega sjálf- bjarga og fært um að takast á við almennustu viðfangsefni, svo sem það að stjórna lífi sínu sjálft. Væri lögð nægilega mikil áhersla á mannræktaruppfræðslu í skóla- kerfinu og fjallað rækilega um þætti eins og mannleg samskipti, mannlegt tilfinningalíf og sjálfs- stjórn myndi í fyllingu tímans létta mjög á meðferðarstofnunum, því þá væri vaxin úr grasi kynslóð sem væri þess umkomin aö bjarga sér sjálf. Guðmundur Sigurður Jóhannsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.