Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1989, Blaðsíða 22
22
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1989.
LEIKFÉLAG AKUREYRAR
Leikarar
Leikfélag Akureyrar auglýsir eftir leikurum leikárið
'89-90, bæði til fastráðningar og í einstök verkefni.
Umsóknir berist formanni leikhúsráðs, Sunnu Borg,
fyrir mánaðamót maí-júní.
------------------------------------.
Útboð
Klæðingar á Norðurlandi
vestra 1989
V
Vegagerð rikisms óskar eftir tilboðum i ofan-
greint verk.
Magntölur:
F.fra burðarlag 20.500 m3
Klæðing 31 8.000 m2
Verki skal að fullu lokið 15. september 1989.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
á Sauðárkróki og i Reykjavík (aðalgjaldkera)
frá og með 16. þ.m.
Skila skal tilboðurri á sömu stöðum fyrir kl.
14.00 þann 29. maí 1989.
Vegamálastjóri
j
KYNNING Á DEILISKIPULAGI
Með vísun í skipulagsreglugerð frá 1. ágúst 1985,
gr. 4.4., er hér með auglýst til kynningar deiliskipulag
að nýju íbúðahverfi úr landi Skógarness sem nefnt
er Furubyggð og Grenibyggó. Uppdrættir verða til
sýnis á bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar í Hlégarði frá
12. maí-9. júní 1989 á skrifstofutíma. Nánari uppl.
um deiliskipulagið veittar á tæknideild virka daga
milli kl. 10 og 12 fyrir hádegi. Athugasemdir við
skipulagið skulu vera skriflegar og berist skrifstofu
Mosfellsbæjar eigi síóar en 12. júní 1989.
Mosfellsbæ 11. maí 1989
Bæjarstjórinn í Mosfellsbæ
skrifstofa Hlégarði
270 Mosfellsbæ, sími 666218 og 666219
ATHUGIÐ!
SMÁAUGLÝSINGADEILD
verður opin um hvítasunnuhelgina
sem hér segir:
OPIÐ
laugardag 13. maí frá kl. 9-14
mánudag 15. maí frá kl. 18-22
LOKAÐ
sunnudag 14. maí, hvítasunnudag
kemur út laugardaginn 13. maí
og síðan þriðjudaginn 16. maí
Síminn er 27022
Hinhliðin
DV
Bjarni Hafþór Helgason segist vera hrifinn af íslenskum landbúnaðarafuröum
Langar að hitta
Michael Jackson
og apann
- segir Bjarni Hafþór Helgason, sjónvarpsstjóri á Norðurlandi
Bjarni Hafþór Helgason er sjón-
varpsstjóri þeirra norðanmanna
auk þess sem hann er aíkastamik-
ill lagahöfundur eins og sást best á
Landslaginu fyrir stuttu. Þar átti
Bjarni Haíþór tvö lög og komst
annað þeirra í vinningssæti. Bjarni
Hafþór samdi lag í keppni sem
haldin var fyrir tvö hundruð ára
afmæli Reykjavíkurborgar og sigr-
aði í þeirri keppni. Ekki hefur
Bjarni ennþá átt lag í Eurovision
en hver veit hvað framtíðin ber í
skauti sér í þeim efnum. Sjónvarps-
stjóri Akureyringa sýnir á sér hina
hliðina aö þessu sinni.
Fullt nafn: Bjarni Hafþór Helga-
son.
Fæðingardagur og ár: 22. ágúst
1957.
Maki: Laufey Sigurðardóttir (Silla).
Börn: Atli 11 ára, Anna 1 árs.
Bifreið: Pajero jeppi árg. ’83 og
Mazda árg ’86.
Starf: Framkvæmdastjóri Samvers
og Eyfirska sjónvarpsfélagsins.
Laun: Ekkert til að skjóta upp flug-
eldum fyrir en ágæt.
Áhugamál: Tónlist, laxveiði og
knattspyrna.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Ég fékk einu sinni
eina tölu og hún var hárrétt.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Mér finnst skemmtilegast aö
semja tónlist ef andinn er yfir mér.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að semja tónlist ef andinn
er ekki yfir mér.
Uppáhaldsmatur. Ég er alæta og
er mjög hrifinn af íslenskum land-
búnaðarafurðum.
Uppáhaldsdrykkur: Það er ískalt
vatn, mjólk og auðvitað allir góðir
áhrifavaldandi drykkir.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Maradona.
Uppáhaldstímarit: Ég sé sjaldan
tímarit og er því hlutlaus.
Fallegasta kona sem þú hefur séð
fyrir utan eiginkonuna? Linda Pét-
ursdóttir og Anna Hafþórsdóttir.
Hlynntur eða andvígur ríkisstjórn-
inni: Ég gef henni séns ennþá.
Hvaða persónu langar þig best að
hitta? Ég held ég segi Michael Jack-
son og apann hans.
Uppáhaldsleikari: Margir en ég er
hrifinn af Ladda.
Uppáhaldsleikkona: Margar en ég
er hrifinn af Eddu Björgvinsdóttur.
Uppáhaldssöngvari: Ég er hlutlaus
en ég syng vel í baði.
Uppáhaldsstjórnmálamaður:
Steingrímur Hermannsson.
Hlynntur eða andvígur hvalveiðum
íslendinga: Ég er hlynntur þeim en
við verðum að gæta þess að þær
hafi ekki áhrif á aðra atvinnustarf-
semi í landinu.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Allt ís-
lenskt efni.
Hlynntur eða andvígur veru varn-
arliðsins hér á landi: Hlutlaus.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Það er mjög sveiflukennt eftir
eigin skapferli.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Margir
góðir en ég held ég nefni Evu Ásr-
únu Albertsdóttur.
Hvort horfir þú meira á Stöð 2 eða
Sjónvarpið? Ég horfi á íslensk efni
á báðum stöðvunum.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ég
kem engum fyrir mig og er því hlut-
laus.
Uppáhaldsskemmtistaður: Samver
og Eyfirska sjónvarpsfélagið.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Þessi er
erfiö. Ég var einu sinni í Þór, þar
áöur í Völsungi og einu sinni var
ég Víkingur en sonur minn er í KA.
Ég segi því Akureyrarfélögin.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Engin smáspurning.
Ég veit ekki hvaö ég á að láta hafa
eftir mér í því en sennilega er það
að minnka á þverveginn.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfri-
inu? Hvaða sumarfríi? Ég vonast
til að komast í laxveiöi og fara með
fjölskylduna í útilegu ef ég fæ eitt-
hvert frí sem ég reikna ekki með.
-ELA