Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1989, Síða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1989, Síða 33
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1989. 45 Bridge Bridgesamband islands Sumarbridge 1989: Sumarbridge 1989 hefst næsta þriöjudag, 9. maí, í Sigrúni 9 (húsi Bridgesambandsins). Húsið opnað kl. 17.30. Fimmtudagana 11. og 18. maí verður spilað í sumarbridge að Síðumúla 35, Drangey, húsi Skagfirð- inga. Húsið opnað kl 18.30 þá daga. Að þessum spiladögum loknum fær- ist Sumarbridge alfarið í Sigtún 9. Umsjónarmenn Sumarbridge eru: Ólafur Lárusson, ísak Öm Sigurðs- son, Hermann Lárusson og Jakob Kristinsson. Bikarkeppni Bridgesamband ís- lands 1989 mun hefjast fljótlega í sumar. Náðst hafa samningar við Stöð 2 um að leikir í undanúrshtum og úrsUtum keppninnar verði sýndir í beinni útsendingu. Skráning í keppnina er hafin í síma Bridgesam- bandsins, 689360, og er mönnum bent á að skrá sig svo fljótt sem auðið er. Miðað er við að skráningu í bikar- keppnina ljúki síðari hluta maímán- aðar. Alslemma ’89 BridgedeUd Skagfirðinga, Bridge- samband Reykjavíkur og Ferðaskrif- stofa íslands kynna í samvinnu við Forskot sf. röð opinna stórmóta í bridge sumarið 1989. 1. Reykjavík, 20.-21. maí, Gerðuberg. 2. Kirkjubæjarklaustur, 10.-11. júní, Hótel Edda. 3. Hrafnagil v/Akureyri, 24.-25. júní, Hótel Edda. 4. Reykholt í Borgarfirði, 8.-9. júU, Hótel Edda. 5. ísaflörður, 22.-23. júlí, Hótel Edda. 6. HúnavaUaskóU, 12.-13. ágúst, Hót- el Edda. 7. HaUormsstaður, 26.-27. ágúst, Hótel Edda. 8. Kópavogur, 16.-17. sept., Félags- heimiUð. HeUdarverðlaun fyrir besta saman- lagðan árangur í 4 mótum: 1. verðlaun: kr. 200 þús. á mann (sam- tals kr. 400 þús.) 2. verðlaun: kr. 100 þús. á mann (sam- tals kr. 200 þús.) 3. verðlaun: kr. 50 þús. á mann (sam- tals kr. 100 þús.) 4. verðlaun: kr. 25 þús. á mann (sam- tals kr. 50 þús.) Með fyrirvara um lágmarksþátt- töku. Keppnisgjald á spUara er kr. 4.000. í hveiju móti eru síðan sérstök verð- laun fyrir 3 efstu sætin, að jafnaði um 100 þús. kr. samtals. Að auki er boðið upp á sérstök aukaverðlaun fyrir hæstu skor í einni lotu í ein- hveiju mótanna, utanlandsferð fyrir tvo. Spilað verður um silfurstig í öll- um mótunum. Keppnisstjórar og útreikninga- meistarar verða Ólafur Lárusson, Jakob Kristinsson, Hermann Lárus- son, Kristján Hauksson og Margrét Þórðardóttir. Skráning er hafin á skrifstofu For- skots sf. í síma 91-623326. Merming áætluðum (og framreiknuðum ) byggingarkostnaði áranna 1983-1988 kr. 102.952.950,00. Á sama tíma lagði ríkið kr. 42.400.000,00 til Listskreyt- ingasjóðs. Þá á sjóðurinn inni kr. 60.552.950,00 hjá rikinu. Með öðrum orðum hefur fjárveit- ing ríkisins ekki numið nema sem svarar 2/5 af þeirri upphæð sem lög kveða á um. Slæm nýting Ekki er nema von að myndlistar- menn telji sig nú hlunnfama og vilji að ríkið standi við sitt, eins og komið hefur fram í viðtölum í ýmsum fjöl- miðlum. Óneitanlega virðist það jaðra við sýndarmennsku yfirvalda að setja lög sem þau ætla sér aldrei að standa við. Skýrslur Listskreytingasjóðs leiða einnig í ljós fremur slæma nýtingu á þeim htlu peningum sem til skip- tanna eru. AUt of oft veitir sjóðurinn styrki til kaupa á htlum grafíkmyndum eða einstökum málverkum (stundum eft- ir áhugamenn) fyrir skrifstofur hins opinbera, þar sem þær eru eins og krækiber í helvíti og óaðgengilegar öðmm en starfsmönnum, í stað þess að styrkja nýsköpun sem bæði gerir miklar kröfur til listamanna og setur mark sitt á alfaraleiðir. Því má segja að klásúlan um heim- Ud til kaupa á „áður unnum hsta- verkum og listskreytingum" hafi verið heldur til óþurftar. Maður hefði til dæmis haldið að sjálft fjármálaráöuneytið ætti að geta fjármagnað kaup á hstaverkum í húsakynni sín, í stað þess að seUast eftir framlögum úr Listskreytinga- sjóði, eins og gerst hefur í nokkur skipti. Og hví ætti hið háa utanríkisráðu- neyti aö fá sem svarar 560.000 krón- um (á núvirði) úr þessum sjóði tU að kaupa málverk eftir Jón Stefánsson ? Eru ekki kaup á slíkum málverk- um fremur í verkahring Listasafns íslands? Réttir aðUar ættu að vinda bráðan bug að því að bæta þetta ástand. Annars er eins víst að listamenn láti sig vanta, næst þegar ríkisvaldið telur sig þurfa á þeim að halda. -ai öm Þorsteinsson - myndskreyting í sundlaugarbyggingu endurhæfingar- deildar Borgarspítalans. Framlög ríkisins til Listskreytingasjóðs framreiknuð til núgjldandi verðlags (skv. uppl. Seðlab. ísl. mars 1989) Ár Áætl. bygg- ingarkostn. þús. kr. 1 % áætlaðs byggkostn. kr. Framlag til Listskrsj. kr. Mismunur áætlunar ogframl. kr. 1983 1.538.765 15.387.650 6.200.000 9.187.650 1984 1.634.515 16.345.150 10.800.000 5.545.150 1985 1.529.316 15.293.160 7.400.000 7.893.160 1986 1.368.798 13.687.980 6.400.000 7.287.980 1987 1.892.643 18.926,430 5.600.000 13.326.430 ! 1988 2.331.258 23.312.580 6.000.000 17.312.580 Samtals 102.952.950 42.400.000 60.652.960 | (Útreikningur: Myndhöggvarafélag islands) íþróttapistiU Fótboltinn að hefjast fyrir fullri alvöru íslandsmótið í knattspymu hefst um næstu helgi. Margir knatt- spyrnuáhugamenn bíöa óþreyju- fuúir eftir að flautað verði til leiks. Með setningu íslandsmótsins má segja að sumarið sé gengið í garð. Knattspymumenn hafa síðustu mánuði undirbúið sig af kappi fyrir átökin í sumar og em margir kunn- ugir á þeirri skoðun að knattspym- an verði ef til vill aldrei eins jöfn og spennandi. Á Reykjavíkursvæð- inu og norður á Akureyri hafa stað- ið yfir mót og verður ekki annað sagt en félögin komi nokkuð spr æk undan vetri. Það. er mikið í húfi fyrir íslenska knattspyrnumenn að standa sig þvi knattspyman hefur eignast harðan keppinaut þar sem handknattleikurinn er. Stórtfyrirtæki að reka knattspymudeild Það er ekkert launungarmál aö það er stórt fyrirtæki að reka knatt- spyrnudeild á íslandi í dag. Fjár- hagur knattspyrnudeildar er háður aðsókn áhorfenda. í vikunni lauk Reykjavíkurmótinu og í máli for- manns knattspyrnuráðs Reykja- víkur í mótslok kom fram að að- sóknin hefði alls ekki verið nógu góð. Fyrir nokkrum árum þótti Reykjavíkurmótið með meiri hátt- ar viðburöum. Fjölda fólks dreif að og sérstök stemning var á mótinu. Reykjavíkurmótið er upphitunarmót? í dag er þessi stemning ekki ríkj- andi nema kannski fyrir úrslita- leiknum eins og glögglega kom fram í leik Fram og KR á dögunum. Hin síðari ár hefur komið fram í máli þjálfara Reykjavíkurfélag- anna að þeir hti á mótið sem æf- ingu fyrir stærri átök sumarsins og þar eiga þeir líklega við íslands- mótið. Þegar þessi hugsunarháttur ríkir er ekki von að áhorfendur komi á leikina. Hvers vegna þjálf- arar hta á Reykjavíkurmótið nú sem æfingu er mér hulin ráðgáta en hún býður aðeins hættunni heim. Yfirbyggöir vellir eru lausnin Knattspymutímabil íslenskra knattspyrnumanna er mjög stutt ef við miðum okkur við knatt- spyrnu annars staðar í Evrópu. Þetta gerir knattspyrnumönnum hér á landi erfitt um vik að standa jafnfætis stahbræðrum sínum í Evrópu. Veðurfar á íslandi stjórnar þessum málum alfarið. Sumarið er stutt og fyrr en varir ér haustið skollið á. Menn hafa í mörg ár velt fyrir sér hvað sé til ráða í þessum efnum. Frændur okkar á Norður- löndum hafa fundið lausn á málun- um. Sú lausn á ekki síður heima hér á landi. Svíar riðu á vaðið í byggingu á yfirbyggðum knattspyrnuvöhum sem gerir það að verkum að þeir geta iðkað knattspymu aht áriö. Svíar em, eins og flestir vita, í fremstu röð knattspymumanna og ber árangur félagsliða og landshðs- ins þess glöggt vitni. Danir og Norðmenn hafa hin síðari ár farið að dæmi Svía í þessum efnum. Danskir og norskir knattspymu- menn hafa fagnað komu þessara húsa. Þeir segja að árangurinn af þessum yfirbyggðu húsum muni koma í ljós þegar fram hða stundir. Yfirbyggðir knattspyrnuvellir em einnig víöa í Sovétríkjunum. Not fyrir yfirbyggða knatt- spyrnuvehi eru hvergi eins mikil og á íslandi. Þetta eru hús sem verða aö rísa og það fyrr en seinna. Gervigrasvöllurinn í Laugardal hefur komið í góðar þarfir en í hl- viðri er enginn öfundsverður af að leika þar knattspyrnu. Knatt- spyrnumenn af landsbyggðinni hafa horft öfundaraugum th knatt- spyrnumanna í Reykjavík vegna gervigrasvaharins í Laugardaln- um. Háværar raddir eru nú uppi í stærri byggðum á landsbyggðinni að leggja gervigrasvehi en áður en farið verður út í þær framkvæmdir ætti að hafa yfirbyggingu í huga. Við íslendingar náum aldrei ár- angri á heimsmælikvarða nema við iðkum knattspyrnu meginhluta ársins og th þess að það megi verða þarf kippa þeim málum strax í lið- inn. íslandsmótið aó hefjast íslandsmótið hefst 21. maí. Marg- ir ungir og efnhegir knattspyrnu- menn munu prýða flest liðin þó innan um verði gamlir jaxlar sem gert hafa garðinn frægan í gegnum árin. Ýmis félög hafa dvalið í æf- ingabúðum erlendis við ákjósan- legar aðstæöur en önnur hafa valiö þann kostinn að æfa hér. Víst er að hart verður barist í deildinni, bæði á toppnum og á botninum. Knattspyrnan er vinsælasta íþróttagreinin og er vonandi að áhorfendur láti ekki sitt eftir liggja og fjölmenni á leiki sumarins. íslenska landsliðið stendur í ströngu íslenska landsliðið stendur í ströngu á næstunni. Englendingar leika á Laugardalsvellinum 19. mai vináttulandsleik gegn íslending- um. Englendingar koma hingað til lands með B-lið sitt en Samt eru innan um margir kunnir kappar sem marga knattspyrnuáhuga- menn fýsir að sjá. íslendingar mæta síöan Sovétmönnum í Moskvu i lok mánaðarins í for- keppni heimsmeistarakeppninnar. Sovétmenn hafa forystu í riðlun- um og tryggja sér örugglega sigur. Annað sætið gefur einnig sæti í úrslitakeppninni á Ítalíu og eins og staðan er nú eru allir möguleikar opnir í þeim efnum. Tyrkir, Aust- urríkismenn, Austur-Þjóðverjar og íslendingar eiga möguleika á því sæti. Við íslendingar erum alltaf bjartsýnir og við skulum halda því áfram. Jón Kristján Sigurðsson • Þessi mynd er úr leik Frqm og KR í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins i siðustu viku. KR-ingar báru sigur úr býtum og hrepptu titilinn. Þessum félögum er spáð góðu gengi á íslandsmótinu sem hefst eftir viku. DV-mynd Brynjar Gauti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.