Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1989, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1989, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1989. 17 Nýjar plötur Langi Seli og Skuggamir: Breiðholtsbúgí og fleiri Hljómsveit með sérstöðu Langi Seli og Skuggarnir er að mörgu leyti eftirtektarverð hljóm- sveit. Liðsmenn hennar eru til dæmis í show business og hefðu þar af leiðandi kannski átt meira erindi í Eurovisionkeppnina en sumir aðrir. Keppnin snýst nú einu sinni um show business. Ég nefni þetta bara ef einhver hefur ef til vill ekki veitt því athygli. Og hljóm- sveitin markar sér sérstöðu á inn- anlandsmarkaðinum að öðru leyti. Grundvallartónlistarstefnan er rockabilly. Stefna sém hljómsveitir hér hafa að mestu leyti látið í friði, að minnsta kosti hin síðari ár. Langi Seli og Skuggarnir voru á dögunum að senda frá sér íjögurra laga plötu, aðra í röðinni. Sú fyrsta kom út í fyrra og var tveggja laga. Nýja platan er fjögurra laga og hljómsveitin hefur gefið fyrirheit um að sú næsta verði í fullri lengd. Bráðsmelliö lag af fyrri plötunni hefur aðallega haldið nafni Langa Sela og Skuiganna á lofti hingaö til. Kontinentalinn sem bæði hefur verið leikinn í útvarpi og sjón- varpi. Og nú er Breiðholtsbúgi af nýju plötunni að taka við. Þokka- legasti smellur þótt ekki slái hann Kontinentalnum við. Stíllinn er skemmtilega letilegur hálf lan- deyðulegur og textinn ekta borgar- rómantík. Þó svo að lagið Kane grípi undirvitundina ekki jafnfljótt og Breiðholtsbúgí er útsetningin á laginu hugvitsamlegri og meira í það lagt. Sögumaður er á flótta undan Morgan Kane. Yfirbragðið er westrænt og ákveðin dramatík í uppbyggingunni. Forspilið er þó fulllangt fyrir minn smekk. Hin lögin tvö á plötunni standa Kane og Breiðholtsbúgí nokkuð að baki. Haldið suður er leikinn lagstúfur og Hálfur heimur byggir á kunnug- legu stefi sem Falcon frá Bíldudal notaði hér um árið. Langi Seli og Skuggarnir háfa sýnt á sér skemmtilegar hhðar á sínum tveimur fyrstu plötum. Þeir eru mátulega hráir og kæruleysislegir. Ætli þeir sér að vinna með upp- tökustjóra á næstu plötu þeirri stóru vona ég bara að þeir sneiði hjá öllum þeim piltum sem vilja fága og fullkomna alla skapaða hluti. Rockabillýið á að vera dálítið hráttogafslappað. ÁT. J LATTU SOLARORKUN , ‘V. VINNA FYRIR ÞIG! O c Fáðu þér sólarrafhlöðu í: SUMARBÚSTAÐINN, SKEMMTIBÁTINN OG FL. OG FL. Auðveldar í uppsetningu og algjörlega viðhaldsfríar. HLEÐSLA: 50 wött. ° "V Við bjóðum óhemju orkumiklar sólarrafhlöður. Tengdu þær við rafgeymi og þú hefur ávallt næga orku fyrir ljós, sjónvarp, vatnsdælu, ísskáp og fleira. ♦ Orkumestu sólarrafhlöOurnar. * Ödýrustu sólarrafhlööurnar. (mv.orku.) # Besti fáanlegi stjórnbúnaöurinn. BÍLDSHÖFDA 12 — SÍMI 91 - 68 00 10 DAGVIST BARNA FORSTÖÐUMAÐUR Dagheimilið Laugaborg óskar eftir forstöðumanni frá og með 1. ágúst nk. Fóstrumenntun áskilin. Umsóknarfrestur er til 5. júní. Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri Dagvist- ar barna í síma 27277. Betra verð! Megrunar og hollustupanna Einkaumboð á Islandi: BELIS-heilsuvörur hf. Pósthólf 94, 270 Mosfellsbæ Pöntunarsími: 667580 Póstverslun Opið virka daga kl. 9-18. S'msvari tekur við pöntunum allan sólarhringinn Pöntunarsími 667580 Samkort Fáanlegt í 15 litum Fæst í málningar- og byggingavöruverslunum um land allt. HÚMÁ UKKA YFIR RYBIB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.