Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1989, Page 11
LAUGAEDAGUR 13. MAÍ 1989!
11
Breiðsíðan
Styrmir Geir Sævarsson lætur sig ekki muna um að fara aftur á bak á ein-
hjólinu.
listamenn
á einhjóli
Styrmir Geir Sævarsson og Guð-
bjartur Kjartansson eru ungir Breið-
hyltingar sem hafa markað ótvíræð
spor í íslenskri hjólhestamenningu.
Þeir hafa á undanförnum mánuðum
æft af kappi þá erfiðu list að sitja á
einhjóli sem er enginn barnaleikur
og ekki á færi nema færustu fjöl-
leikahúsmanna.
Strákarnir voru ekki í neinum
vandræðum - þeir bökkuðu, stóðu
kyrrir og hjóluðu í alls kyns kráku-
stígum og þar fram eftir götunum.
Hér eru á ferð upprennandi
skemmtikraftar, svo mikil er færni
þeirra.
Strákarnir sögðu að það hefði tekið
margar vikur að komast einungis á
bak eftir það varð þrautin þyngri að
halda jafnvæginu. „Það er hægt aö
gera ótrúlegustu hluti á þessum hjól-
um og við ætlum að halda áfram á
fullum krafti," sagði Guðbjartur.
Félagi hans var sama sinnis og bætti
við: „Við komum til með að bæta
okkur til muna á næstunni."
Hér býðst tilvalið tækifæri fyrir þá
sem ætla að halda útiskemmtanir í
sumar. Sjón er sögu ríkari.
-Hdór
Guðbjarti fannst fyrst.til að byrja með eriitt að vera i kyrrstöðu en nú hefur
hann náð þeirri jatnvægislist. DV-mynd Hdór
Viltu taka þátt í nýsköpun
íslensks landbúnaðar?
Almennt búfræðinám
Viltu læra um
Ferðaþjónustu • Fiskeldi • Loðdýrarækt • Skógrækt
Kanínurækt eða gömlu góðu heíðbundnu kvikfjárræktina?
Bændaskólinn á Hvanneyri er nútíma skóli, þar sem færustu
búvísindamenn fylgjast með öllum nýjungum í landbúnaði
og miðla þeim til nemenda, sem vilja takast á við heillandi verkefni.
Þar er frábær aðstaða á heimavist.
Auk hefðbundinnar búnaðarfræðslu eru 12 valfóg:
Alifugla- og svínarækt • Ferðaþjónusta • Fiskeldi
Hrossarækt • Kartöílu- og grænmetisrækt • Loðdýrarækt
Nautgriparækt • Rekstrarhagfræði • Sauðfjárrækt
Skógrækt • Vélfræði • Vinnuvélarog verktækni.
Búfræðinám tekur 2 ár (4 annir) en fólk með stúdentspróf
eða hliðstæða menntun getur lokið því á einu ári.
Helstu inntökuskilyrði eru að umsækjendur haíi lokið almennu
grunnskólaprófi og að þeir hafi öðlast nokkra reynslu
í landbúnaðarstörfum.
Háskólanám í búvísindum
Innritun stendur nú yfir í Búvísindadeild Bændaskólans á Hvanneyri,
sem er kennslu- og rannsóknastofnun á háskólastigi.
Skilyrði til inntöku eru að viðkomandi hafi lokið almennu búfræðinámi
sem
Auk alhliða undirstöðumenntunar í búvísindum gefst kostur á sérhæfingu.
Nemendur kjósa valgreinar síðustu tvö árin og skrifa aðalritgerð
um eigin rannsóknaverkefni.
Námið tekur 3 ár og telst 90 námseiningar (BS 90). Árlegur kennslutími við
Búvísindadeild er 34 vikur á tímabilinu frá 15. september til 15. júní.
Nemendur geta búið á nemendagörðum en eiga kost á fæði í mötuneyti
námsmánna og aðrir háskólanemar.
fyrir 10. júní.
Nánari upplýsingar 1 síma 93-70000.
Skólastjóri.