Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1989, Side 27
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1989.
39
„Ég er ríkur af þjóðerniskennd og hef
áhuga á mannlífi almennt," segir Baldvin
Jónsson. Hann hefur á undanförnum
árum sent utan ófáar fegurðardrottningar
sem náð hafa góðum árangri í alþjóð-
legri fegurðarsamkeppni.
DV-mynd Brynjar Gauti
/
Framtíðar-
paradís í norðri
Baldvin bjó um tveggja ára skeið
í Kanada þar sem hann kynntist
hópi sem lætur sig framtíðarsýn
miklu varða. „Hópurinn hefur haft
mikinn áhuga á því hvernig heims-
munstrið er að breytast. Manngild-
issjónarmið eru orðin meira ríkj-
andi en veraldleg gæði og með því
held ég að sérstaða íslands komi til
með að aukast. Við höfum mann-
gildissjónarmið nær okkur en
margar aðrar þjóðir og veraldleg
gæði eru ekki mjög mikil í svona
litlu landi. Ég sé fyrir mér að ísland
verði lítil framtíðarparadís í mann-
gildismálum, hreinleika og um-
hverfisvernd.
ísland er ekki nema um fjörutíu
ára gamalt viðskiptasamfélag og
við eigum eftir að efla okkar sam-
stöðu. Ekki veit ég t.d. hvaða til-
gangi kjördæmaskipan þjónar og
ég vonast til að við verðum ein þjóð
í einu landi og tökum sameiginleg-
ar ákvarðanir. Aflur þessi áhugi
minn á málum, er varða þjóðina,
er tilkominn vegna áhuga á mann-
lífi almennt.
Ég vil endilega að við kynnum
okkur eins og við erum - það er
þörf fyrir svona land í þessum
mikla ferðaheimi - í heimi þar sem
þess er krafist að mikið prótín sé í
fæði og litil mengun. Þá eru allir
þessir ofnæmissjúkdómar, sem
hafa komið upp vegna rotvarnar-
efna í matvælum, sykursýki er orð-
in algengur sjúkdómur og húðsjúk-
dómar vegna of mikillar sólar eru
að verða mikið vandamál. Vegna
alls þessa sé ég fyrir mér að allt sé
að breytast okkur í hag þannig að
við verðum paradís þeirra sem
vilja hugsa um heilsuna.
Stjórnmálamenn hér á landi velta
því aðallega fyrir sér hvenær skal
fella gengið eða hækka launin og
síðan fella gengið aftur. Þetta er
búið að vera staðnað stjórnkerfi
allt of lengi og mér finnst vanta
kjark til að breyta því.“
í land-
kynningamefnd
í gegnum Fegurðarsamkeppni ís-
lands kynntist Baldvin einum
þekktasta og virtasta markaðsráð-
gjafa Breta sem meðal annars hef-
ur snúið Burtons-verslunarkeðj-
unni frá gjaldþroti í 220 milljón
punda hagnaö á síðasta ári. Þessi
maður kom hingað til lands fyrir
stuttu ásamt lækni í Oxford sem
hefur unnið að markaðsmálum
lækna i Bretlandi. Einnig var með
í fórinni sérfræðingur í kvik-
myndagerð og fjármálum. Baldvin
lagði fyrir þremenningana hug-
myndir sínar að landkynningar-
málum fyrir ísland og bað þá að
gera úttekt á þeim. „Þeir eru að
vinna skýrslu fyrir mig en mér
heyrðist á þeim að hugmyndir mín-
ar gætu vel staðist.
. Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra frétti af Bretunum
og áformum mínum og skipaði upp
úr því ráðgjafanefnd í landkynn-
ingarmálum sem ég á sæti í. Enn-
fremur hitti hann bresku sérfræð-
ingana. Eftir þann ftmd hafði for-
sætisráðherra áhuga á að skoða
málið nánar og hvort hið opinbera
ætti að taka þátt í kynningar- og
markaðsmálum. Ég tel að svo eigi
að vera. íslendingar hafa ekki áttað
sig nógu vel á því hvað markaðs-
mál skipta miklu máli. Það þýðir
ekki endalaust að byggja upp verk-
smiðjur sem framleiða vörur sem
enginn vill kaupa."
Réð Guðna
til Tottenham
Baldvin segist ekki, eins og stað-
an er nú, vilja starfa eingöngu að
landkynningarmálum. Tilboð
streyma til hans frá útlöndum um
að endurskipuleggja fegurðarsam-
keppni eða óskað er eftir honum
sem dómara. Baldvin er gamall
Valsmaður og hefur mikinn áhuga
á knattspyrnu. Guðni Bergsson
fékk t.d. starf sit-t hjá Tottenham í
gegnum Baldvin.
„Ég hef kynnst mörgum knatt-
spyrnumönnum í Bretlandi á
ferðalögum þar og einnig hafa
margir komið hingað til lands í
gegnum Val. Einn vinur minn, sem
rekur fegurðarsamkeppnina á ír-
landi, er einn af hluthöfum í Tott-
enham. Ég hef oft spaugað meö það
við hann að Tottenham geti ekkert
í fótbolta en ég hafi jafnframt
lausnina á því. Ég sagði honum að
það væri leikmaður á íslandi sem
væri kjörinn í bresku knattspyrn-
una. Þetta sagði ég eiginlega bæði
í gríni og alvöru. Þessi kunningi
minn hringdi síðan í mig og sagðist
hafa rætt við framkvæmdastjóra
Tottenham og aö hann vildi ræða
frekar við mig. Ég fór á æfmgu hjá
Tottenham og eftir það var fast-
mælum bundið að Guðni færi utan-
og þeir prófuðu hann. Það sem ég
veit núna er að Guðni hefur staðið
sig mjög vel og er inni á framtíðar-
plani þeirra. Hann á örugglega eftir
að gera mjög góða hluti. Guðni hef-
ur alla burði til að verða einn af
toppmönnum bresku knattspyrn-
unnar.
Ég var einnig beðinn að útvega
tvo menn til Crystal Palace. Það
vildi svo vel til að David Jensen
útvarpsmaður, sem er kvæntur ís-
lenskri konu, er einn af stjórnar-
mönnum Crystal Palace og hann
hafði séð Arnljót Davíðsson og boð-
' ið honum að koma. Hann og Einar
Páll hjá Val hafa báðir æft með Uö-
inu í vetur," sagði Baldvin.
Gerir engum illt
Nú styttist í enn eina fegurðar-
samkeppnina og segja má að þessi
árlegi viðburður sé farinn að vekja
ýmsar vonir með íslendingum um
að þar fmnist enn ein alheims-
drottningin. „í þessum hópi eru
stúlkur sem gætu náð langt,“ sagði
Baldvin um þá keppendur sem taka
þátt í fegurðarsamkeppninni þetta
árið. „Ég er mjög ánægður með
hversu mikil viöbrögð ég hef fengið
frá foreldrum sem hafa sagt mér
að stúlkurnar hafl haft mjög gott
af þátttöku í þessari keppni. Bæði
Hófí og Linda eru stjörnur í augum
ungs fólks. íslendingar eru stoltir
af þeim. Fegurðarsamkeppni. sem
rétt er staðið að, gerir engum illt.“
-ELA