Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1989, Qupperneq 35
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1989.
47
Lífsstfll
Þeir sem greiða fullt
fargiald fá forgang
Flugleiðir:
- nýtt fargjaldakerfi í innanlandsflugi
Sumaráætlun Flugleiða tekur gildi 15. maí næstkomandi. Þá gefst farþegum i innanlandsflugi kostur á að velja á
milli þrenns konar fargjalda en margs konar skilmálar fylgja ódýrari fargjöldunum.
Sumaráætlun innanlandsflugs
Flugleiða tekur gildi 15. maí. Þá
veröa jafnframt teknar upp nýjungar
í fargjaldaskipan innanlandsflugs-
ins. Þessar breytingar eiga að miða
að því að einfaida fargjaldakerfið eft-
ir því sem kostur er. Um leið er ver-
ið að tryggja þeim farþegum, sem
borga fullt fyrir farseöla sína, ákveð-
inn forgang en hinum eru um leið
boðin afsláttarfargjöld. Með þessu
kerfi er verið að taka upp svipaða
stefnu og er viö lýði í innanlands-
flugi í nágrannalöndunum.
Ýmsir skilmálar
fylgja miðunum
í sumaráætluninni verða allar
ferðir litmerktar og gefur hver litur
til kynna hvaða fargjaldaflokkar eiga
við hveiju sinni. Litimir eru blár,
grænn og rauður.
í ferðir, sem merktar eru með blá-
um lit í áætluninni, veröur einungis
selt á fullu fargjaldi. Sem dæmi má
taka að far til Akureyrar báðar leiðir
kostar 8.128 krónur en engar kvaðir
fylgja þeim ferðum.
Ferðir, sem merktar eru með græn-
um lit, eru ætlaðar fólki sem ferðast
á 20 prósent afslætti eða fjölskyldu-
fargjaldi. Fyrir slíka ferð borgar far-
þegi 6.502 krónur ætli hann tfl Akur-
eyrar. Kvaðirnar, sem fylgja þessu
fargjaldi, eru: Dvelja verður á staðn-
um minnst tvær nætur og ekki leng-
ur en mánuð ef nota á miðann til
baka. Um leið og miðinn er bókaður
þarf að greiða hann að fullu og stað-
festa flug aðra leiðina.
Ferðir, sem merktar eru með rauð-
um lit, eru ætlaðar fólki sem ferðast
á rauðu fargjaldi eða með 40% af-
slætti. Til Akureyrar kostar far á
þessum kjörum 4.877 krónur.
Skilmálamir eru að bóka verður
ferðina með minnst tveggja daga fyr-
irvara og greiða hana að fullu. Jafn-
framt verður að bóka ferðir fram og
Ferðir
til baka. Lágmarksdvöl er þrjár næt-
ur og þar af verður ein að vera að-
faranótt sunnudags. Miðinn gildir
lengst einn mánuð.
Unglingar og aldraðir geta fengið
40 prósent afslátt í öllum ferðum en
þeir miðar eru ekki bókunarhæfir.
Þeir geta einnig fengið 40 prósent
afsláttinn með bókanlega miða í
rauðmerktum ferðum.
Forgangsröð
Með þessu kerfi er farþegum, sem
greiða fullt verð, veittur forgangur í
þær ferðir sem mest er sótt í. Hinir
fá á móti meiri afslátt en áður hefur
tíðkast. Með þessu ætla Flugleiðir að
reyna að jafna álag og um leið að að
nýta vélakost félagsins sem best.
Ferðum fjölgar
í hverri viku verða farnar 122 ferð-
ir frá Reykjavík til áætlunarstaða
flugfélagsins úti um land. Sú megin-
breyting hefur orðið á sumaráætlun
félagsins að ferðum til smærri staða
verður fjölgað með því að fljúga til
fleiri en eins staðar í sömu ferð. Þetta
fyrirkomulag var tekið upp í sam-
ræmi við niðurstöður skoöanakönn-
unar sem Flugleiðir gerðu í vetur á
þessum stöðum. Þar kom í ljós að
fólk vildi gjaman fleiri ferðir. Þeir
staðir, sem fá fleiri ferðir í sumará-
ætlun nú, eru Húsavik, Sauðárkrók-
ur og Patreksfjörður. Þetta fyrir-
komulag hefur raunar verið reynt á
flugleiðum til Húsavikur og Sauðár-
króks frá miðjum febrúar og þykir
hafa gefið góða raun.
Dagsferðir
Flugleiðir munu einnig bjóða upp
á svokallaðar dagsferðir í sumar til
Egilsstaða og kostar ferðin 11.500
krónur, til Sauðárkróks kostar ferö-
in 9.900 krónur, til Húsavíkur 10.500,
Vestmannaeyja 5.900, til Akureyrar
9.800 og dagsferð til ísafjarðar kostar
9.400 krónur.
-J.Mar
Laos:
Nú er fáanlegur bæklingur í Bretlandi þar sem gerð er grein fyrir hvernig
best sé fyrir ökumenn að haga sér i umferðinni.
Ekið í Bretlandi
Það veldur ferðalöngum oft óþæg-
indum þegar þeir keyra í Bretlandi
að þar er vinstrihandar umferð en
ekki hægrihandar eins og hér.
Nýlega var gefinn út í Bretlandi
bæklingur sem á að hjálpa ökumönn-
um við aksturinn þar í landi. Bækl-
ingurinn, sem kallast „On the Road
in Great Britain", útskýrir meðal
annars í máli og myndum fram-
úrakstur, hvar megi leggja bifreið og
hvar ekki, reglur sem gilda um
hringtorg og jafnvel er fjallað um
hvemig gangandi vegfarendur eiga
að fara yfir- götu. .........
Einnig er gerð grein fyrir hámarki
alkóhóls í blóði og lögum um ölvun-
arakstur, notkun sætisbelta, hraða-
takmarkanir og fleira og fleira.
Árið 1987 komu 840.000 erlendir
bílar til Bretlands og lentu 1320
þeirra í árekstrum. Raunar var það
29 prósent fækkun frá árinu 1980 en
bresk stjómvöld vilja stuðla að því
með öllum ráðum að fækka slysum
eins og kostur er.
Bæklingurinn er fáanlegur á
ensku, þýsku, frönsku, spænsku og
ítölsku og er hann 32 síður.
................* -J.Mar
Býður ferðamenn velkomna á ný
Á síðasta ári tilkynntu yfirvöld í
Laos að þau myndu á ný leyfa ferða-
mönnum að koma til landsins. Laos
hefur að mestu verið lokaö ferða-
mönnum síðastliöin fjörutíu ár eða á
meðan þrigsa áratuga borgarastyrj-
öld geisaði í landinu og eftir að
kommúnistar tóku við stjómartaum-
unum fyrir 13 ámm.
Með því að opna landið á ný fyrir
ferðamönnum vonast yfirvöld til að
gjaldeyristekjur þjóðarinnar fari
vaxandi.
Það er ríkisferðaskrifstofan í Laos
sem skipuleggur hópferðir fyrir
ferðamenn um landið. Nú er meðal
annars hægt að komast í hópferðir
til Tham Ding-hellanna sem eru
sögufrægir og geyma tugi alls kyns
guðalíkneskja.
Einnig er boðið upp á ferðir til
hinnar fomu höfuðborgar, Luang
Prabang. Borgin var aðsetur lao-
tískra kónga í sex aldir eða til ársins
1977 þegar kónginum Savang Vatt-
hana var steypt af stóli en tveimur
ámm áður höfðu kommúnistar tekið
völdin. Næstu tvö árin var Vatthana
titlaöur sem sérstakur ráðgjafi ríkis-
stjómarinnar en svo var hann ásak-
aður um stuðning við hægrisinnuð
öfl og sendur í endurmenntunarbúð-
ir kommúnista. Ekki alls fyrir löngu
staðfestu svo stjómvöld að yatthana
væri látinn.
Aðstaða fyrir ferðamenn er enn
mjög ófullkomin og kerfið er þungt
í vöfum. Sem dæmi um það má nefna
að farþegar, sem koma til flugvallar-
ins í Vientiana, verða að hírast í flug-
stöðinni á vellinum uns ferð fellur
til Luang Prabang sem er fjórum
sinnum í viku. Raunar stefna stjóm-
völd að fjölgun flugferöa milli þess-
ara staða í framtíðinni. Eina hótelið
í Luang Prabang var byggt á meðan
Frakkar stjórnuðu landinu. Það er
illa farið og úr sér gengið. En sljóm-
völd hyggjast í kjölfar vaxandi ferða-
mannastraums til landsins byggja
ný hótel og reyna að bæta alla að-
stöðu fyrir ferðamenn.
-J.Mar
Stjórnvöld I Laos hafa ákveöið aö leyfa ferðamönnum að koma til landsins
til að reyna að auka gjaldeyristekjurnar.