Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1989, Qupperneq 4
4
FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1989.
Fréttir____________________
Vigdís Finnbogadóttir skrifar forystugrein í Naturopa:
Ver stefnuna í
hvalveiðimálum
Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís-
lands, skrifar forystngrein í nýjasta
hefti Naturopa, tímarit Evrópuráðs-
ins um umhverfismál, þar sem hún
ver stefnu íslendinga í hvalveiðimál-
um. í sama hefti er grein eftir Kieran
Mulvaney, framkvæmdastjóra hval-
fnðunarsamtakanna Whale Conser-
vation Society, þar sem íslendingar
eru sakaöir um svik gagnvart sam-
þykktum Alþjóðahvalveiðiráðsins og
að hafa notað herstöðina á Keflavík-
urflugvelli til þess að kúga Banda-
ríkjastjórn til að falla frá viðskipta-
banni á íslenskar vörur vegna hval-
veiða.
í grein sinni segir Vigdís íslendinga
vera sér mjög meðvitaða um nauð-
syn náttúruvemdar. Útfærsla land-
helgi íslands hafi einmitt verið að-
gerð til þess að tryggja hóflega nýt-
ingu á fiskistofnunum kringum
landið. Hún hefði bundið enda á þá
rányrkju sem stunduö var þegar eng-
inn ákveðinn hafi átt og borið ábyrgð
á þessum auðhndum. Þá greinir Vig-
dís frá því að íslendingar séu mjög
Utt háöir hvalveiðum efnahagslega.
Kvóti þeirra nú sé auk þess mjög Ut-
iU. Áætlað sé að kvóti íslendinga á
langreyð sé ekki nema um 1 prósent
af þeim dýrum sem eru í hafinu
kringum ísland. Vigdís segir aö vís-
indaáætlunin sé fyrst og fremst til
þess að afla þekkingar á hvalastofn-
inum og vistkerfinu í hafinu. Þeirrar
þekkingar verði ekki aflað nema með
veiðum sem þó séu ekki nema hluti
af áætluninni. Þekkingaröflun á borð
viö vísindaáætlun íslendinga sé
nauðsynleg - sérstaklega í ljósi þess
að í framtíöinni munu þjóðir heims
leita í æ ríkari mæU til hafsins við
fæðuöflun. í lok greinarinnar beinir
Vigdís síðan athygUnni að mengun
hafsins. Hún segir að þær þjóðir sem
ekki hafa beina efnahagslega hags-
muni af fiskveiðum eða annarri nýt-
ingu sjávarins standi einkum fyrir
mengun sjávarins. Barátta gegn
þessari mengun sé forgangsverkefni
í náttúruvemd en ekki friðun ákveð-
inna dýrategunda án samhengis við
aðra þætti vistkerfisins.
í grein Kieran Mulaney er aöferð-
um íslendinga til þess að tryggja
áframhald hvalveiöa lýst. Þar er full-
yrt að Bandaríkjamenn hafi falUð frá
viðskiptabanni á íslenskar vörur
vegna hótana íslenskra stjómvalda
um aö blanda herstöðinni á Miðnes-
heiði inn í máUÖ. Þá gerir Mulaney
Utið úr þrálátum hótunum íslend-
inga, Norðmanna og Japana um að
segja sig úr Alþjóðahvalveiðiráðinu.
Mulaney segir þessar hótanir mark-
lausar þar sem hafréttarsáttmáh
Sameinuðu þjóðanna skyldi í raun
þessar þjóðir tíl að hafa samráð við
aðrar þjóðir um nýtingu hvalastofns-
ins. Eini vettvangurinn til þess sé
Alþjóðahvalveiðiráðið. -gse
Rlkisstarfsmenn:
633 milljóna króna
oriofsfé seinkaði
Ríkisstarfsmenn uröu fyrir tölu-
verðum óþægindum þar sem orlof
þeirra, sem greiöa átti út á þriðjudag-
inn, var ekki lagt inn á ávísanareikn-
inga fyrr en á þriöjudagskvöld og inn
á sparisjóðsbækur í gærkvöldi.
Að sögn Gunnars Valdimarssonar,
yfirviöskiptafræðings Póstgíróstöðv-
arinnar, mun stöðin tryggja að þetta
komi ekki aftur fyrir, aö fenginni
þessari reynslu. Mikið álag var á
símanum hjá Póstgíróstöðinni vegna
þessara tafa.
Þessar tafir urðu bæði vegna þess
að orlofsféð var ekki lagt inn 1
Reiknistofnun bankanna fyrr en á
þriðjudeginum og eins vegna mann-
legra mistaka. Þar sem bankamir
höfðu ekkert yfirht um innleggiö
fengu þeir ríkisstarfsmenn sem láta
leggja laun sín inn á ávísanahefti
ekki að vita um innleggiö fyrr en í
gær þrátt fyrir aö á yfirhti sem þeir
fengu heim stæði aö orlofið yrði
greitt út á þriöjudaginn. Þessir
starfsmenn tapa þó ekki vöxtum þar
sem innleggið er skráð á þriöjudag-
inn. Vegna mannlegra mistaka gat
tölva Reiknistofnunar ekki lesið af
snældu sem geymdi upplýsingar um
innlegg á sparisjóðsbækur. Það
þurfti því að keyra þessar upplýsing-
ar aftur út af tölvu Póstgíróstöðvar-
innar í gær. Þrátt fyrir aö bankamir
hafi ekki fengiö upplýsingar um
þetta innlegg fyrr en í morgun munu
þeir reikna vexti frá þriðjudeginum
að telja.
Orlof ríkisstarfsmanna er um 633
mihjónir króna. Þetta er einungis
orlof á yfirvinnu þar sem ríkisstarfs-
menn fá greitt orlof vegna dagvinnu
beint frá launaskrifstofu fjármála-
ráöuneytisins.
-gse
Bændur við Laxá telja að ekki fari mikið land undir vatn þó að stíflan verði
hækkuð um 8 metra.
Lausn í sjónmáli í Laxárdeilunni:
Landsvirkjun lætur
keyra laxinn í 4 ár
- fær fyrir vikiö aö hækka stífluna um 8 metra
Landsvirkjun og fuhtrúar landeig-
enda við Laxá hafa gengið frá drög-
um að samkomulagi í deilu þeirra.
Að sögn Hahdórs Jónatanssonar,
forstjóra Landsvirkjunnar, hefur
enn ekki verið undirritað neitt sam-
komulag. Stjóm LandsvirKjunar á
eftir að íjalla um samningsdrögin en
næsti stjómarfundur verður ekki
fym en um næstu mánaðamót.
í samningsdrögunum er gert ráð
fyrir að Landsvirkjun taki að sér
laxaflutninga upp á efra svæði gegn
því að fá að hækka stífluna við Laxá
3 um 8 metra. Með þeirri hækkun
veröur unnt aö auka afkastagetu
virkjunarinnar um íjögur megavött.
Auk þess verður hægt að draga úr
vandamálum vegna íss.
Þaö sem Landsvirkjun gerir fyrir
landeigendur er eftirfarandi: í fyrsta
lagi veröur laxinn fluttur upp á efra
svæöi sem leysir gamla dehu. Laxa-
stiginn, sem nú er, hefur í raun aldr-
ei virkaö og því ætlar Landsvirkjun
að flytja laxinn á bílum. Á þessu
verður fjögra ára reynslutími en þá
er ætlunin að endurskoða flutning-
ana og jafnvel endurbæta gamla
laxastigann.
í öðru lagi ætlar Landsvirkjun að
taka að sér en frekari uppgræðslu í
Krakárbotnum. í þriðja lagi ætlar
Landsvirkjun að greiða árlegt gjald
í fiskræktarsjóð frá 1984 en það nem-
ur um 6,1 milljón króna.
Halldór tók fram aö Náttúmvemd-
arráð hefði ekki gefið leyfi fyrir
flutning á laxi með þessum hætti en
hins vegar hefði ráðiö heimilað
hækkun á stíflunni.
Að sögn Vigfúsar B. Jónssonar,
bónda á Laxamýri og formanns land-
eigendafélagsins, er það ekki mikiö
landsvæöi sem fer undir vatn þó að
stíflan verði hækkuö um 8 metra.
Vigfús sagðist halda aö flestir land-
eigendur væm ánægðir með þau
samkomulagsdrög sem gerð hefðu
verið en enn ætti eftir aö bera þau
undir félagsfund.
-SMJ
í dag mælir Dagfari
Þá hefur þaö veriö staðfest að hiö
opinbera stundar þaö grimmt að
hggja á hleri þegar missaklaust
fólk tekur tal saman í síma. Það
var upplýst á Alþingi aö heinúlaðar
símahleranir væra aUt upp í 32 á
ári eftir því sem HaUdór dóms-
málaráðherra og hvalavinur fuU-
yrti. Fíknó er mjög fíkin í aö hggja
á hleri viö síma borgaranna og hef-
ur eflaust gómaö margt grammið í
ffamhaldi af þeim hlerunum. Ráð-
herra sagði að dómari þyrfd aö
gefa heimUd til hlerana hverju
sinni og þær heimUdir má aðeins
gefa ef öryggi ríkisins er ógnaö eða
grunur leUtur á aö stórkrimmar
leggi á ráðin um frekari afbrot
gegnum síma. Það er hins vegar
með öUu óupplýst hver heimilaöi
Magnúsi Skarphéðinssyni aö hlera
símtal Þorsteins Pálssonar og HaU-
dórs Blöndal ekki aUs fyrir löngu.
Raunar hefur Magnús fuUyrt að
hann hafi ekki kært sig um að
Uggja á hleri en hins vegar ekki
komist hjá því vegna þess að í hvert
sinn sem hann tók upp tóhö heyrð-
ist bara maUð í Steina og Dóra.
Getur hver sem er gert sér þaö í
hugarlund hversu mikU raun það
hefur verið fyrir Magnús aö neyö-
ast til að hlusta á samtahö. Hins
Legið á hleri
vegar gat Magnús þess einnig að
hann hefði grun um að sinn sími
væri hleraöur því í honum mætti
oft heyra torkennUega skraðninga
og óhljóð. En ekki hafði grænfrið-
ungurinn Magnús fyrr lýst yfir
grun um símahlerun en grænfrið-
ungaskelfirinn Magnús Guö-
mundsson gaf út nótu þess efnis
aö hann teldi líklegt að sinn sími
væri hleraöur og krafðist þess aö
máhö yrði rannsakaö. Þaö var gert
en tæknimenn Símans sögðust ekki
finna nein merki um hlerun,
hvorki hjá Magnúsi græna eða
nafna hans græningjaskelfi. Því
síður fundu tæknimenn nokkra
ástæðu fyrir því að Magnús græni
var neyddur til að hlera símtal
íhaldsmanna og vUdu draga í efa
aö þetta væri rétt. En Magnús dró
þá upp úr pússi sínu segulbands-
upptöku af símtalinu fræga og varð
þá ekki komist hjá aö trúa. Verst
að þaö hefur hvergi komiö fram
um hvað þeir Þorsteinn og Halldór
ræddu þama í símaáheym þriöja
manns.
AUar þessar fréttir um að síminn
sé hriplekur hafa oröiö tíl þess að
sumir hafa komið sér upp ákveðnu
dulmáh þá þeir tala í síma, líkt og
í sveitinni hér áöur þar sem allir
lágu á hnunni. í þá daga var dul-
máhð ekki síst notaö þegar þurfti
aö redda brjóstbirtu og var þá
stundum undir hæhnn lagt hvort
viömælandi skildi beiönina rétt eöa
ekki. Það var þó bót í máh að í
sveitinni vissu alhr aö hver sem
var gat hleraö öU símtöl hvenær
sem var. Nú veit hins vegar enginn
hvenær er hleraö og því síöur hver
hlerar hverju sinni. Er þaö Magnús
hvalavinur sem tílneyddur hlerar
í dag og svo Fíknó á morgun og
Rannsóknarlögregla ríkisins þar
næsta dag og svo Halldór Blöndal
daginn þar á eftir? Enginn er leng-
ur óhultur fyrir hinum löngu eyr-
um símahlerara sem virðast hven-
ær sem er hlusta á símtöl annarra
hvort sem þeir vUja eöa ekki. Ýms-
ir era sagðir hafa keypt sér sérstök
tæki í útlöndum og tengt viö síma
sína. Þetta era svona nokkurs kon-
ar hlerarar sem eiga aö finna hvort
veriö er aö hlera viökomandi síma
og ef svo er kviknar rautt ljós og
þá er um að gera að fara að tala í
gátum. Líkt og þegar sjómenn vora
að hringja heim á bátabylgjunni
áöur en farsími var keyptur í skip-
in. Margir lágur á því lúalagi að
hlusta á bátabylgjuna í útvarpinu
og heyrðu þá oft fróöleg símtöl eins
og til dæmis: - Er þetta Gunna? -
Já. - Þetta er Jón. Er ekki afit í
lagi með þetta þú veist? - í lagi með
hvaö segiröu? - Æi þetta þarna um
daginn, manstu? - Nei, ég man
ekki. Við hvað áttu, Jón minn? -
Ég á við þama kvöldið áður en við
fóram út. Þú varst ekki viss eða
þannig og vUdir ekki... en svo...
já þú manst. - Nei, ég man ekki,
Jón. - Láttu ekki svona manneskja.
Ertu búin að missa minnið eða
hvað? Þú, æi þetta þýðir ekki. Ég
tala bara við þig þegar viö komum
í land. - Allt í lagi, Jón minn. Héð-
an er ekkert aö frétta nema ég fór
tU læknis í morgun og hann sagði
að ég væri... nei annars ég segi
þér þetta bara þegar þú kemur.
Svona var þj alaö á bátabylgj unni
og þeir sem lágu á hleri æföust fljótt
í aö geta í eyöumar. Og nú er mað-
ur ekki öraggari í sjálfvirka sím-
anum'en þeir á bátabylgjunni hér
áður fyrr.
Dagfari