Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1989, Page 5
FIMMTUDAGUR 18. MAl 1989.
5
Fréttir
Gunnars Gunn-
arssonar minnst
í dag er þess minnst að eitt hundr-
að ár eru nú liðin frá fæðingu Gunn-
ars Gunnarssonar skálds. Af því til-
efni verður flutt sérstök hátíðardag-
skrá í Þjóðleikhúsinu og hefst hún
klukkan 17.30.
Á hátíðardagskránni munu þau
Svavar Gestsson menntamálaráð-
herra og Steinunn Sigurðardóttir,
varaformaður Rithöfundasambands
íslands, flytja ávörp. Sveinn Skorri
Höskuldsson prófessor flytur erindi
um skáldskap Gunnars. Fluttur
verður leiklestur úr Svartfugli og
lesið verður úr Fjallkirkjunni. Þá
verða lesin ljóð um Gunnar Gunn-
arsson eftir Guðmund Böðvarsson
og Hannes Pétursson og Gunnar
Kvaran leikur einleik á selló.
Gunnar Gunnarsson fæddist á Val-
þjófsstað í Fljótsdal fyrir réttum
hundrað árum. Eftir að hann fluttist
til íslands að nýju byggði hann hús
að Skriðuklaustri. íbúar á Austurl-
andi minnast Gunnars með því að
helga minningu hans mörg dag-
skráratriði á menningarhátið sem
þeir halda í sumar. Menningarhátíð-
in hefst á morgun, 19. maí, og stend-
ur til 20. ágúst. -HV
STAÐGREIÐSLA 1989
Sautján dagar í komu páfa:
NÁMSMANNA-
SKATTKORT
Breytt fyrirkomulag
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Páfi sótti fast
að komast á
Þingvelli
- öryggisverðir lítt hrifhir
„Við í kaþólska söfnuðinum höfð-
um viðrað þá hugmynd að páfi færi
á Þingvelli meðan á heimsókn hans
stæði. Á fundi með öryggisvörðum
var þeirri hugmynd strax hafnað. En
þegar páfi frétti af henni urðu örygg-
isverðir að lúta í lægra haldi. Páfi
hafði mjög mikinn áhuga á að koma
á Þingvelli og sótti mjög fast að kom-
ast þangað,“ sagði Ólafur Torfason,
sérstakur blaðafulltrúi vegna hing-
aðkomu páfa, í samtali við DV.
Öryggisins vegna fer páfi aldrei
lengri vegalengdir nema í þyrlu eða
flugvél. Hraus öryggisvörðum hugur
við þeirri hugmynd að þurfa að
vemda páfa á óbyggðu svæði, í bíl á
leiðinni til Þingvalla og meðan á
samkirkjulegri athöfn þar stæði. Af
öryggisástæðum þótti þyrla ekki
vænleg til flutninga þar sem langt
væri til næsta sjúkrahúss ef eitthvað
bæri út af.
„Það er alveg nýtt að páfi ferðist
svona vegalengd í bíl. Það hefur ekki
gerst áður. Öryggisverðir hafa
áhyggjur af takmörkuðum áhuga
páfa á öryggismálum. Þaö á ekki síst
við íslenska öryggisverði sem virðast
setja strangari kröfur en erlendir
starfsbræður þeirra."
- En því þessi áhugi páfa á Þing-
völlum?
„Meginsástæðumar em að þar
varð kristintakan fyrir tæpum þús-
und ámm og þar var alþingi staðsett
til forna. Auk þess mun páfi hafa
lagt þannig út af jarðfræðinni að
þama séu mörk gamla og nýja
heimsins, mörk Evrópu og Amer-
' íku.“ ,hlh
HVERJIR EIGA RÉTT
Á NÁMSMANNA-
SKATTKORTI?
Rétt á námsmannaskattkorti árið
1989 eiga þeir námsmenn, fæddir
1973 eða fyrr, sem stundað hafa
nám á vormisseri og nýtt hafa lítið
sem ekkert af persónuafslætti sín-
um á þeim tíma og ekki flutt hann
til maka.
BREYTT ÚTGÁFU-
FYRIRKOMULAG
Sú breyting hefur verið gerð að
í ár þarf ekki að sækja sérstak-
lega um námsmannaskattkort
nema í undantekningartilvik-
um. Ríkisskattstjóri mun á grund-
velli upplýsingafráskólum um það
hverjir teljast námsmenn og frá
launagreiðendum um nýtingu
persónuafsláttar þeirra gefa út
námsmannaskattkort og senda til
þeirra sem rétt eiga á þeim í byrjun
júní nk.
Námsmenn við erlenda
skóla þurfa hins vegar að sækja
sérstaklega um námsmanna-
skattkorttil ríkisskattstjóra.
Páfi mun taka þátt i samkirkjulegri athöfn á Þingvöllum. Hefur veriö búin til aðkeyrsla að miklum palli þar sem
páfi, kardínálar, biskup og prestar munu vera á meðan athöfninni stendur. Áhorfendur munu eiga að vera í brekk-
unni fyrir ofan. Á myndinni er aðkeyrslan sem ekki er varanleg. Undir henni er plast þannig að aðkeyrslunni
verður ekið burtu eftir á. DV-mynd Brynjar Gauti
Útgáfu námsmannaskatt-
korta annast staðgreiðsludeild
ríkisskattstjóra, Skúlagötu 57,150
Reykjavík. Sími 91 -623300.
BREYTIUR GILDISTÍMI
Gildistíma námsmannaskatt-
kortsins hefur verið breytt. Nú er
heimilt að nota námsmannaskatt-
kortið frá útgáfudegi til og með 31.
desember1989 í stað júní, júlí og
ágúst eins og áður.
Athugið að námsmanna-
skattkort gefin út á árinu 1988
eru ekki lengur í gildi.
BREYTT MEÐFERÐ
PERSÓNUAFSLÁTTAR
Á námsmannaskattkorti 1989
kemur fram heildarfjárhæð per-
sónuafsláttar sem kortið veitir rétt
til en ekki mánaðarleg fjárhæð
eins og áður. Við ákvörðun stað-
greiðslu korthafa ber launagreið-
anda að draga þennan afslátt frá
eftir þörfum þar til hann er upp-
urinn, samhliða persónuafslætti
námsmanns samkvæmt aðal-
skattkorti og skattkorti maka hans
ef þau eru afhent honum.
600 mil|jónir
sjá sunnu-
dagsmessu
Það lætur nærri að 600 milljónir
manna sjái síðustu tíu mínúturnar
af sunnudagsmessu páfa á Landa-
kotstúninu 4. júní. Þá flytur páfi ang-
elusbæn sem hann mun leggja mikið
upp úr og biðja fyrir heimsbyggð-
inni. Verður bænunum sjónvarpað
beint um gervihnött til hins kaþólska
heims eins og gerist fyrir hádegi á
hverjum sunnudegi. Mun messunni
verða útvarpað og sjónvarpað beint
hérlendis.
Vegna ferðaáætlunar páfa verða
íslendingar eina Norðurlandaþjóðin
sem fær að njóta sunnudagsmessu.
Mun það hafa vakið einhverja
gremju meðal kaþólsku safnaðanna
annars staðar á Norðurlöndum.
-hlh