Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1989, Page 6
6
FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1989.
Viðskipti___________________________________
Erlendir markaðir:
Dollarinn er óstöðvandi
Dollarinn er óstöðvandi á erlend-
um gjaldeyrismörkuðum og styrkist
hann daglega. Á íslandi hefur verö
dollarans því hækkað síðustu daga
eins og annars staðar.
Dollarinn kostaði 53,56 krónur síð-
astliðinn þriðjudag^ Daginn eftir var
gengi krónunnar fellt um 1,5 prósent
og hækkaði dollarinn þá í 54,36 krón-
ur. Síðan hefur hann hækkað í verði
á hveijum degi, smátt og smátt. í gær
var dollarinn kominn í 55,13 krónur.
Þegar gengi krónunnar var fellt um
1,5 prósent í síðustu viku fékk Seðla-
bankinn jafnhliða heimild til að fella
gengi krónunnar eftir hentugleikum
um 2,25 prósent til viðbótar. Þótt
krónan sígi hratt þessa dagana er
enn ekki farið að nota þessa heimild.
Á alþjóðagjaldeyrismörkuðum var
dollarinn skráður 1,9587 þýsk mörk
í gær. Fyrir mánuði var hann á 1,8595
þýsk mörk og fyrir tveimur mánuð-
um, 17. mars, var hann á 1,8680 þýsk
mörk. Gagnvart sterlingspundinu
var dollarinn í gær skráður á 1,7515
sterlingspund.
Sterk staða dollarans sýnir að
menn hafa meiri trú á bandarísku
efnahagslífi en áður. Atvinnuleysi
hefur aldrei verið eins lítið í langan
tíma, tölur um óhagstæðan við-
skiptajöfnuð eru að lækka. Á sama
tíma er verðbólga að vaxa í Evrópu.
í Englandi gætir aukinnar verðbólgu
og raunar viðskiptahalla líka. Þetta
styrkir dollarann.
Á olíumarkaðnum í Rotterdam
mjakast verð á bensíni niður frá því
það lækkaði verulega í síðustu viku.
Verðið á þó enn langt í land með að
vera það sama og fyrir hækkunina í
vor. Aðalástæða fyrir hærra olíverði
er minni framleiðsla Opec og ann-
arra olíuframleiðsluríkja.
-JGH
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn
Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri
og 65 ára og eldri. 65 ára og eldri geta losað
innstæður sínar með 3ja mánaða fyrirvara.
Reikningarnir eru verðtryggðir og með 7% raun-
vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 7,5%
raunvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyris-
sjóöum eða almannatryggingum. Innstæðureru
óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextir eru
15,5% og ársávöxtun 15,5%.
Sérbók. Nafnvextir 26% en vísitölusaman-
burður tvisvar á ári.
Búnaðarbankinn
Gullbók er óbundin með 27% nafnvöxtum
og 28,8% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu, eða
ávöxtun verðtryggðs reiknings með 3,5% vöxt-
um reynist hún betri.
Metbók er með hvert innlegg bundið í 18
mánuöi á 28% nafnvöxtum og 30 ársávöxtun,
eða ávöxtun verðtryggðs reiknings með 3,5%
vöxtum reynist hún betri. Hvert innlegg er laust
að 18 mánuöum liðnum.
Iðnaðarbankinn
Bónusreikningur er óverðtryggður reikningur
með 23,5-25% nafnvöxtum, eftir þrepum, sem
gera 24,9-26,5% ársávöxtun. Verðtivggð bón-
uskjör eru 3-4,5% eftir þrepum. Borin eru sam-
an verðtryggð og óverötryggð kjör og gilda þau
sem hærri eru. Reikningurinn er alltaf laus.
18 mánaöa bundinn reikningur er með 26%
Inafnvöxtum og 26% ársávöxtun.
Landsbankinn
Kjörbók er óbundin með 27% nafnvöxtum
og 28,8% ársávöxtun. Eftir 16 mánuði, í öðru
þrepi, greiðast 28,4% nafnvextir af óhreyfðum j
hluta innstæðunnar sem gefa 30,4% ársávöxt-''
un. Eftir 24 mánuöi, í þriðja þrepi, greiðast 29%
nafnvextir sem gefa 31,1% ársávöxtun. Á
þriggja mánaða fresti er gerður samanburður
við verðtryggöan reikning og gildir hærri ávöxt-
unin.
Samvinnubankinn
Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti
á hvert innlegg. Fyrstu 3 mánuðina eru vextirn-
ir 14%, næstu 3 mánuði 26%, eftir 6 mánuði
27% og eftir 24 mánuði 28% og gerir það 29%
ársávöxtun. Sé ávöxtun betri á 6 mánaða verð-
tryggðum reikningum gildir hún um hávaxta-
reikninginn.
Hávaxtabók er óbundin bók sem ber 27%
nafnvexti og 28,8% ársávöxtun á óhreyfðri inn-
stæðu. Ef ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reikn-
ings reynist betri gildir hún. Útttektargjald reikn-
ast ekki af uppfærðum vöxtum síðustu 12 mán-
aða.
Útvegsbankinn
Ábót breyttist um áramótin. Nú er ekki lengur
mánaðarlegur samanburður. Ábótarreikningur
ber 27% nafnvexti sem gefa 28,8% ávöxtun.
Samanburður er gerður við verötryggða reikn-
inga. Raunvextir eftir þrepum eru frá 3,5-5%.
Sérstök Spariábót ber 4,5 prósent raunvexti
strax.
Verslunarbankinn
Kaskóreikningur. Innstæða sem er óhreyfð
í heilan ársfjórðung ber 27% nafnvexti sem
gefa 28,8% ársávöxtun, eða nýtur kjara 6 mán-
aða verötryggðs reiknings. Sú ávöxtun sem er
hærri gildir.
RentubókRentubókin er bundin til 18 mán-
aða. Hún ber 26,0% nafnvexti. Ávöxtunin er
borin reglulega saman við verðtryggða reikn-
inga.
Sparisjóðir
Trompbók er óbundinn reikningur með ekk-
ert úttektargjald. Grunnvextir eru 24,5%. Sam-
anburöur er gerður við verðtryggöan reikning.
Óhreyfð innstæða fær 1% vaxtaauka eftir 12
mánuöi.
öryggisbók sparisjóðanna er bundin í 12
mánuði. Vextir eru 26% upp að 500 þúsund
krónum, eða 4% raunvextir. Yfir 500 þúsund
krónum eru vextirnir 27,%, eða 4,5% raunvext-
ir. Yfir einni milljón króna eru 28% vextir, eða
5% raunvextir.
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 14-15 Vb,Ab,- Sp.Lb
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 14-17 Vb
6mán. uppsögn 15-19 Vb
12mán. uppsögn 15-16,5 Ab
18mán. uppsögn 32 Ib
Tékkareikningar, alm. 3-8 Vb,lb,- Ab.Sp,- Lb
Sértékkareikningar 4-17 Vb
Innlan verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1-2 Vb
6mán.uppsögn 2-3 Allir nema Úb
Innlán með sérkjörum 23,5-35 Ab
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 8,75-9 lb,V- b,Ab,S-
Sterlingspund 11,75-12 Sb.Ab,- lb,Vb,- Bb
Vestur-þýsk mörk 4,75-5,5 Ab
Danskar krónur 6,75-7,5 lb,Bb,- Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv-) 27-28,5 Lb.Bb
Viðskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi
Almennskuldabréf 27,5-31,25 Lb.Úb
ViÖskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 29,5-32,5 Úb.Lb
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 7,25-9,25 Lb.Bb
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 25-29,5 Lb
SDR 9,75-10 Lb
Bandaríkjadalir 11,75 Allir
Sterlingspund 14,5-14,75 Sb
Vestur-þýsk mórk 7.75 Allir nema Sb
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 33,6
MEÐALVEXTIR
Överötr. mai 89 27,6
Verötr. maí 89 7,9
VlSITÖLUR
Lánskjaravisitala maí 2433 stig
Byggingavísitalamaí 445 stig
Byggingavísitala maí 139 stig
Húsaleiguvísitala 1,25% hækkun 1. aprll
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 3,823
Einingabréf 2 2,128
Einingabréf 3 2,508
Skammtímabréf 1,319
Lifeyrisbréf 1,922
Gengisbréf 1,722
Kjarabréf 3,805
Markbréf 2,019
Tekjubréf 1,683
Skyndibréf 1,157
Fjölþjóöabréf 1,268
Sjóðsbréf 1 1,832
Sjóðsbréf 2 1,509
Sjóðsbréf 3 1,295
Sjóösbréf 4 1,081
Vaxtasjóösbréf 1,2798
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 278 kr.
Eimskip 342 kr.
Flugleiðir 164 kr.
Hampiðjan 162 kr.
Hlutabréfasjóður 124 kr.
lönaðarbankinn 155 kr.
Skagstrendingur hf. 247 kr.
Útvegsbankinn hf. 134 kr.
Verslunarbankinn 138 kr.
Tollvörugeymslan hf. 105 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum
og við-skiptaskuldabréfum, útgefnum af
þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaup-
gengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnu-
banki kaupa viðskiptavíxla gegn 31%
ársvöxtum og nokkrir sparisj. 30,5%.
jan. feb. mars apríl maí
■'PTMMMMMMMMMM'
jan.feb. mars apríl maí
DV
Verð á erlendum
mörkuðum
Bensín og olía
Rotterdaœ, fob.
Bensín, venjulegt,....236$ tonnið,
eða um........9,9 ísl. kr. lítrinn
Verð í síðustu viku
Um................243$ tonnið
Bensín, súper,....253$ tonnið,
eða um........10,5 ísl. kr. litrhm
Verð í síðustu viku
Um............................267$ tonnið
Gasolía............149$ tonniö,
eöa um........7,0 ísl. kr. lítrinn
Verö í siðustu viku
Um............................145$ tonnið
Svartolía......................99$ tonnið,
eða um........5,0 ísl. kr. htrinn
Verð í síðustu viku
Um.............................97$ tonnið
Hráolía
Um................17,60$ tunnan,
eða um........970 ísl, kr. tunnan
Verð í síðustu viku
Um...................17,20$ tunnan
Gull
London
Ura...........................375$ únsan,
eöa um.....20.673 isl. kr. únsan
Verð í síðustu viku
Um.............................378 únsan
Ál
London
Um............2.330 dollar tonnið,
eða um.....126.659 ísl. kr. tonnið
Verð í síðustu viku
Um.............2.330 dollar tonnið
un
Sydney, Ástralíu
Um............10,5 dollarar kílóið,
eða um.........579 ísl. kr. kílóið
Verð í síðustu viku
Um............10 dollarar kílóið
Bómull
New York
Um............69 cent pundið,
eöa um..........83 ísl. kr. kílóið
Verð i síðustu viku
Um............68 cent pundið
Hrásykur
London
Um............310 dollarar tonnið,
eöa um......17.090 ísl. kr. tonnið
Verð í síðustu viku
Um............306- dollarar tonnið
Sojamjöl
Chicago
Um............230 dollarar tonnið,
eða um......12.680 ísl. kr. tonnið
Verð i síðustu viku
Urn...........227 dollarar tonniö
Kaffibaunir
London
Um............118 cent pundið,
eða um........143 ísl. kr. kílóið
Verð í síðustu viku
Um............117 cent pundið
Verð á íslenskum
vörum erlendis
Refaskinn
K.höfn., mai
Blárefur...........185 d. kr.
Skuggarefur........176 d. kr.
Silfurrefur........409 d. kr.
BlueFrost..........351 d. kr.
Minkaskinn
K.höfn, maí
Svartminkur........147 d. kr.
Brúnminkur.........167 d. kr.
Grásleppuhrogn
Um.....1.100 þýsk mörk tunnan
Kfslljám
Um.......1.096 dollarar tonnið
Loðnumjöl
Um.........630 dollarar tonnið
Loðnulýsi
Um.........230 dollarar tonnið