Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1989, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1989.
KENNARA
HÁSKÓLL
ÍSLANDS
NÁM FYRIR
STJÓRNENDUR SKÓLA
I febrúar 1990 hefst öðru sinni framhaldsnám í Kenn-
araháskóla íslands fyrir skólastjóra og yfirkennara við
grunn- og framhaldsskóla sem hlotið hafa a.m.k.
þriggja ára starfsreynslu. Námið er skipulagt sem
þrjú 5 eininga námskeið og tekur u.þ.b. eitt og hálft
ár. Hvert námskeið hefst með tveggja vikna vinnu í
Kennaraháskóla íslands. Síðan tekur við fjarkennsla.
Teknir verða 25 þátttakendur í námið. Umsóknar-
frestur er til 30. júní.
Nánari upplýsingar ásamt umsóknareyðublöðum fást
á skrifstofu skólans, Stakkahlíð, 105 Reykjavík, sími:
91 -688700.
Rektor
Utlönd
Um milljón Kinverjar tóku þátt í mótmælunum í gær. I morgun héldu mótmælin áfram. Símamynd Reuter
Þú gefur okkur upp:
Nafn þitt og heimilisfang,
slma, nafnnúmer og
gildistíma og númer
greiöslukorts.
•
Hámark kortáúttektar
I slma kr. 5.000,-
•
SMÁAUGLÝSINGADEILD
ÞVERHOLTI 11
SÍMI 27022
FORELDRAR
7-12 ára barna!
Innritun stendur yfir á
Sumardvalarheimilið að
Kjarnholtum Biskupstungum.
Reiðnámskeið, íþrótta og leikjanámskeið,
sveitastörf, skoðunarferðir, sund,
kvöldvökur og margt fleira.
5 ára farsæl reynsla og hundruð
ánægðra barna eru okkar meðmæli.
Öll tilskilin leyfi.
Varist ótrygga ævintýramennsku við val
á dvalarstað fyrir ykkar börn.
1. 28. maí- 3. Júní (1 vika)
ATHI Nokkur pláss laus á þetta spennandi vornámskeið.
Sauðburður og vorkoman í sveitinni eru engu lík!
2. 4. Júní -10. júní (1 vika) - FULLT
3.11. Júní - 17.Júní (1 vika) - NOKKUR PLÁSS LAUS
4.18. Júní - 24. Júnf (1 vika) -FULLT
5. 25. Júní - 7. Júlí (2 vikur) - NOKKUR PLÁSS LAUS
6. 9. Júlf - 21. Júlf (2 vikur) - NOKKUR PLÁSS LAUS
7. 23. Júlí - 4. ágúst (2 vikur) - NOKKUR PLÁSS LAUS
8. 7. ágúst - 13. ágúst (1 vika) - NOKKUR PLÁSS LAUS
9.13. ágúst - 19. ágúst (ungl. námsk.) - NOKKUR PLÁSS LAUS
10. 20. ágúst - 26. ágúst (ungl. námsk.) - NOKKUR PLÁSS LAUS
Innritun og upplýsingar á skrifstofu SH
verktaka, Stapahrauni 4, Hafnarfirði.
Sími: 652221
Viðræðuslit í Kína
sjónvarpað.
Zhao Ziyang, leiðtogi kommúnista-
flokksins, og þrír aðrir háttsettir
embættismenn urðu að láta sér lynda
að hlusta á langa ræðu sem einn
námsmannanna á sjúkrahúsinu hélt.
Sagði hann að fjarstæða væri að
halda því fram að námsmennirnir
vildu steypa stjóm landsins. „Okkar
markmið er að þyggja upp virðingu
fyrir kommúnistaflokknum meðal
fólksins en það er einna mikilvæg-
ast,“ sagði hann.
Fyrir utan heimsóknina í sjúkra-
húsið í morgun og fund Li og fulltrúa
námsmanna í Alþýðuhöllinni hafa
mótmælendur og yfirvöld ekki ræðst
við. Hundruð þúsunda námsmanna
hafa síðustu daga tekið þátt í mestu
mótmælum í landinu í 40 ár eða frá
því að kommúnistar tóku völdin. Á
Tiananmentorgi í morgun hópuðust
hundruð þúsunda Kínverja saman
og í Shanghai, þar sem Gorbatsjov
Sovétleiðtogi er á ferð, komu um 30
þúsund námsmenn og verkamenn
saman til að vekja athygli á kröfum
um aukið lýðræði.
Mótmælin beinast nú æ meir að
Deng Xiaoping, hinum 84 ára leiðtoga
Kína, en hann hefur ekkert látið hafa
eftir sér um mótmælin.
Gorbatsjov Sovétleiðtogi, sem
staddur er í Kína vegna leiðtogafund-
ar Kína og Sovétríkjanna, heldur
heimídag. Reuter
Margir námsmenn í Kína hafa verið í hungurverkfalli á sjötta dag. Sumir
eru illa haldnir þar sem þeir hafa hvorki neytt matar né vatns. Símamynd Reuter
í morgun fengu námsmenn í Kína,
sem staöiö hafa fyrir mótmælum í
mánuö, loks einni kröfu sinni fram-
gengt Ld Peng forsætisráðherra og
fulltrúar námsmanna funduðu í Al-
þýöuhöllinni í Peking snemma í
morgun en samkvæmt upplýsingum
fféttamanna í Kína slitnaöi upp úr
viðræðunum eftir um klukkustund-
arlangan fund. Ástæðan fyrir shtun-
um er sögð sú að Li hafnaði kröfu
námsmanna um að viðræðunum
yrði sjónvarpað.
Þá ræddu fjórir háttsettir leiðtogar
kínverska kommúnistaflokksins við
nokkra námsmenn sem verið hafa í
hungurverkfalli á sjötta dag. Viðræð-
umar fóm fram við sjúkrarúm
námsmannanna á spítala í Peking í
morgun. Þeim var bæði útvarpað og
ÆvintýriMikkamúsar,semflest um heiminn um útbreiöslu þýddra verið þýddar 284 sinnum. Verk
íslensk börn og fullorðnir þekkja, ritverka. rússneska byltingarraannsins Len-
eru gefin út á fleiri tungumálum í upplýsingariti um þýdd verk, íns komu út í 276 útgáfum og
en Biblían, verk breska spennu- sera gefið er út á vegum UNESCO, spennubækur Christies 262. Bibl-
sagnahöfundarins Agöthu Christie Menningarmálastofnunar Samein- ían hefur verið þýdd 219 sinnum.
eða verk Leníns. Þetta kom fram í uðu þjóðanna, segir aö árið 1983 Reuter
könnun sem gerð var víðs vegar haflsögurumMikkamúsogfélaga
Noriega fordæmdur
Noriega hershöfðingi, leiötogi Pa-
nama, heldur lýðræði i Panama og
rómönsku Ameríku föngnu sam-
kvæmt þessari teikningu Luries.
Teikning Lurie
Samtök Ameríkuríkja (OAS) sam-
þykktu í gær með meirihluta
greiddra atkvæða ályktun þar sem
Noriega hershöfðingi í Panama er
fordæmdur fyrir að hunsa eðlilega
framkvæmd kosninga í forseta- og
þingkosningunum sem haldnar voru
þann 7. maí. Þann 10. maí síðastlið-
inn ógilti kosningastjóm í Panama
niðurstöður kosninganna og brutust
þá út blóðug mótmæli í landinu.
Sökum ástandsins í Panama í kjöl-
far kosninganna kölluðu samtökin,
sem í er 31 ríki, til neyðarfundar ut-
anríkisráðherra aðildarríkjanna og
var hann haldinn í Washington í
gær. Fundarmenn komu sér saman
um að senda þrjá fulltrúa til Panama
til að leita leiða til að tryggja að völd
kæmust í hendur réttra manna og
aðyilji fólksins í landinu yrði virtur.
Ályktun fundarins var harðorðari
en tfllaga sem komið hafði fram fyrr
um daginn en í henni var Noriega
ekki nefndur á nafn. I tillögunni, sem
samþykkt var, segir að aðgerðir
Noriegas í kjölfar kosninganna geti
haft alvarlegar afleiðingar í fór með
sér og leitt til vaxandi ofbeldis í
landinu sem ógnað geti lífi íbúanna.
Fulltrúar Bandaríkjanna kváðust
ánægðir með niðurstöðu fundarins,
sérstaklega þar sem ábyrgð ástands-
ins í Panama var lögð Noriega á
herðar.
Samtökin funda á ný 6. júní en þá
munu fulltrúarnir, sem fara til Pa-
nama, kynna niðurstöður ferðar
sinnar.
í Panama var í gær boðað til sólar-
hrings allsherjarverkfalls. Sam-
kvæmt fréttum var þátttaka misjöfn,
frá engri upp í níutíu prósent. Um-
ferð á götum úti var að mestu með
eðlilegum hætti og strætisvagnar og
opinber farartæki voru starfandi.
Reuter