Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1989, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1989.
11
Utlönd
Jaruzelski, leiðtogi Póllands, greiðir atkvæði með lögum er heimila starfsemi rómversk-kaþólsku kirkjunnar í
landinu. Símamynd Reuter
Kirkjan lög-
leidd í Póllandi
Pólsk yflrvöld, fyrst stjórnvalda í
A-Evrópu, samþykktu í gær lög er
veita rómversk-kaþólsku kirkjunni
heimild til að starfa í landinu í fyrsta
sinn síðan kommúnistar komust til
valda árið 1944. Fulltrúar kirkjunnar
sögðu í gær að fullt stjómmálasam-
band milli pólsku kirkjunnar og Vat-
ikansins yrði líklega tekið upp í
haust.
Nú munu skólar og sjúkrahús á
vegum kirkjunnar taka til starfa á
ný í fyrsta sinn síðan starfsemi
þeirra var bönnuð eftir valdatöku
kommúnista í Póllandi. Árið 1950, á
hápunti stalínismans, var kristni-
fræðikennsla í skólum lögð niður,
ríkið lagði hald á eignir kirkjunnar
og hundruð presta voru handtekin.
Á sjötta áratugnum reis kirkjan upp
gegn valdi kommúnista í Póllandi og
á meðan á baráttu Samstöðu, hinna
óháöu verkalýðssamtaka, fyrir lö-
gleiöingu stóð studdi kirkjan ætíð
samtökin. Kirkjan átti drjúgan þátt
í þeim samningi sem Samstaða og
yfirvöld gerðu með sér nýlega og
veitir samtökunum heimild til að
bjóða fram til þings.
Tveir þingmenn pólska þingsins
greiddu atkvæði gegn nýju lögunum
en 12 sátu hjá. Rúmlega 300 þing-
menn studdu lögin, þar á meðal
Jaruzelski, leiðtogi Póllands.
Reuter
Kótir krakkaY
hoppa í Lottó skóiti
...líka fullorðnir
Bátafólkið sigli
til Vesturlanda
Reiður þingmaður í Hong Kong,
þar sem nú eru rúmiega þijátíu þús-
und víetnamskir flóttamenn, hefur
hvatt til þess að siglt verði með báta-
fólkið til Bretlands og Bandaríkj-
anna. Sagði þingmaðurinn að yfir-
völd í Hong Kong ættu að leigja skip
til þess að sigla með fólkið. Sjá ætti
því fyrir helstu nauðsynjum og smá-
bátum sem það gæti sjálft stýrt í land.
Harðar umræður urðu um flótta-
mannavandann í þinginu í Hong
Kong í gær en þá bættust fjögur
hundruð fimmtíu og níu flóttamenn
í hóp þeirra sem fyrir var.
Yfirvöld í Hong Kong hófu fyrir ári
að kanna mál hvers Víetnama fyrir
sig til að ganga úr skugga um hvort
þeir væru að flýja efnahagsvandann
heima fyrir eða hvort þeir væru
raunveruiegir pólítískir flóttamenn.
Hingað til hefur mál fimmtán hundr-
uð verið kannað og hafa níutíu pró-
sent verið úrskurðaðir sem ólöglegir
flóttamenn. Reuter
Ungur drengur frá Vietnam biður
eftir mat í flóttamannabúðum í Hong
Kong. Símamynd Reuter
LOTTÓ SKÓRNIR FÁST í EFTIRTÖLDUM VERSLUNUM:
Útilíf, Glæsibæ Músík og sport, Hafnarfirði
Sportval, Laugavegi/Kringlunni Akrasport, Akranesi
Sportbúðin, Völvufelli/Laugavegi Sportbúðin, Akureyri
Fell, Mosfellsbæ Sportbúð Óskars, Keflavík
H búðin, Garðabæ Blómsturvellir, Hellissandi
Hólasport, Hólagarði
E.G. heildverslun, sími 68 76 85.