Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1989, Síða 32
F R ÉTT A S KOTIÐ
bé* ^iik jéIB
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hverf fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Frjálst,óháð dagblað
Ritstfórn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Sínr»i 27022 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1989.
Fíkniefnadeildin:
Stóit kókaín-
' mál er til
rannsóknar
- tveir í gæsluvarðhaldi
Fíkniefnadeild lögreglunnar hefur
lagt hald á 430 grömm af kókaíni við
rannsókn á einu umfangsmesta
kókaínmáli sem hér hefur verið upp-
lýst. Tveir menn eru nú í gæsluvarð-
haldi vegna málsins. Tveir aðrir
höfðu verið í gæsluvarðhaldi en þeim
hefur nú verið sleppt.
Áður hafði lögreglan lagt hald á
meira magn í einu máh er Brasilíu-
-^maður var handtekinn á gistihúsi í
Hveragerði. Kókaínið, sem fannst hjá
Brasilíumanninum, var greinilega
ekki ætlað til sölu hér á landi. Það
efni, sem lögreglan hefur nú lagt
hald á, var hins vegar ætlað til sölu
hér. Ekki er vitað hvort þeim sem
handteknir hafa verið tókst að selja
hluta þess efnis sem þeir fluttu til
landsins en grunur leikur á að svo
hafl verið.
Kókaínið, sem lögreglan lagði hald
á, var flutt til landsins frá Bandaríkj-
,jjnum. Þeir sem handteknir hafa ver-
ið vegna málsins hafa ekki áður gerst
sekir um fíkniefnamisferli. Rann-
sókn málsins er á byijunarstigi og
talið er að hún geti leitt til þess hér
sé um mun stærra og umfangsmeira
mál að ræða en nú er vitað.
-sme
Reykjavik:
Braust í bjórbúð
Innbrotstilraun var gerð í bjórbúð-
ina að Stuðlahálsi í nótt. Það var um
klukkan hálffíögur sem neyðarbjalla
fór í gang. Lögreglan, sem er með
aðsetur skammt undan, þusti á stað-
•fctnn. Enginn var sjáanlegur þegar
hún kom á vettvang en búið að
sparka gat á austurvegg hússins.
Greinilegt er aö sá sem þarna var
að verki fór jafnþyrstur af staðnum
oghannkom. -sme
Sleipnir
samdi í nótt
Samningar tókust í vinnudeilu
Sleipnis, félags langferðabifreiða-
stjóra, laust eftir miðnætti í nótt.
Verkfalli félagsins hefur nú verið
•trestað og fundað verður í félaginu í
dag, þar sem samningurinn verður
borinn undir atkvæði félagsmanna.
-HV
LOKI
Ég sem hélt að Ólafur Ragnar
væri í forystu
alþjóðlegra friðarsamtaka!
Gengið írá samningi milli háskólamanna og ríkisins:
í morgun var gengið frá samn- sem nemur um 20 þúsund krónum 1,5 prósent hækkun á laun í janúar
ingirikisins við háskólamenn. Fátt á mann vegna vinnu og bakvakta og maí á næsta ári. Þeir fá 6.500
benti til annars en samningurinn í verkfallinu. Rökstuðningurinn krónaorlofsuppbótísumarogtæp-
yrði undirritaður fyrir hádegi. fyrir þessu er einkinn sá aö starfs- lega 22 þúsund í desemberuppbót
Samningafundir höfðu staðið menn Blóðbankans og dýralæknar Stærsti hluti samningsins fjallar
óslitið í einn sólarhring klukkan settu upp eins konar neyðarbak- síðan um samanburö á kjörum
níu í morgun. Þeir höfðu einkum vaktir ef stórslys yröu. í samkomu- háskólamanna hjá ríkinu og á al-
snúist um laun kennara í sumar lagntufelsthins vegaraöríkissjóö- mennum vinnumarkaði. Sex
og greiösiur fyrir bakvaktir há- ur greiði sömu upphæð á hvem mannanefíidmunmetahvortþessi
skólamanna í verkfallinu. Sam- þannsemvaríverkfalli.Kostnaður samanburöur gefi tilefni til launa-
komulag var gert uni að kennarar ríkisins af þessu er á bilinu 25 til hækkana. Þær munu koma til
fengju sérstaklega greitt fyrir 30milljónir. framkvæmdal.júliáhverjuárifrá
vinnu í sumar sem er umfram það Samningur háskólamanna og og með 1990.
sem þeir eru vanir að vinna á ríkisins gildir til ársloka 1994 en í samningnum er gert ráð fyrir
sumrin. Þeirmunuþvi verðaátvö- er uppsegjanlegur eftir 30. sept- aö stofnaður verði sérstakur 30
fóldum launum ef kennt veröur í ember á næsta ári. Háskólamenn milljón króna sjóöur til aö styrkja
sumar. Þá var samkomulag gert fá svipaðar hækkanir og háskóla- háskólamenn hjá ríkinu til rami-
um að háskólamönnum yrði greitt kennarar á þessu ári. Þeir fá síðan sóknarstarfa og menntunar. -gse
fyrir
þúsund kr,
verkfallið
Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra og Wincie Jóhannsdóttir, formaður Hins islenska kennarafélags, skrifa
í morgun undir samkomulag um skólaslit og launagreiðslur til kennara í sumar, eftir nær sólarhrings samninga-
fund. Bak við þau fara Páll Halldórsson, formaður Bandalags háskólamanna hjá rikinu, og Birgir Björn Sigurjóns-
son, hagfræðingur bandalagsins, yfir samninginn sem var fullfrágenginn í morgun en beið undirritunar.
DV-mynd KAE
Ólafur Ragnar í
striði við NATO
Ólafur Ragnar Grímsson fjármála-
ráðherra stóð í stríði við Atlantshafs-
bandalagið í Borgartúni 6 í morgun.
Til stóð að fjarskiptaráðstefna Atl-
antshafsbandalagsins hæfist þar
klukkan níu í morgun. Fundarher-
bergið hafði verið sérstaklega skoðað
í leit að hlerunarútbúnaði og höfðu
dyr þess verið innsiglaðar. Glugg-
amir á herberginu voru einnig sér-
staklega birgöir. Þegar komið var
fram að fundartíma vildu menn frá
Atlantshafsbandalaginu rýma húsið.
Ólafur Ragnar neitaði því. Þá var
neðri hæð ráðstefnusalanna rýmd og
samningamenn og blaðamenn reknir
upp á efri hæðina. Þegar Ólafur
Ragnar komst að þessu rak hann
fólkið aftur niður. Þá neituðu þeir frá
Atlantshafsbandalaginu að heíja
sinn fund. Þegar Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra var
kominn í málið varð það að sam-
komulagi að Atlantshafsbandalagið
frestaði sínum fundi til klukkan hálf-
tólf. Ef samningamenn ríkis og há-
skólamanna verða ekki farnir út úr
húsinu er hætt við að íslensk stjóm-
völd verði að greiöa Atlantshafs-
bandalaginu 1 milljón króna þar sem
fundarmenn bandalagsins verða þá
að dvelja hér á landi einum degi leng-
urenráðgertvar. -gse
„Torsótt leið
framundan“
„Ef sú vinna, sem ráðgerð er á
næstu þremur til fimm áram, skilar
árangri er enginn vafi á að þetta
verkfall hefur átt rétt á sér,“ sagði
Páll Halldórsson, formaður Banda-
lags háskólamanna í störfum hjá rík-
inu, þegar ljóst var í morgun að fátt
gat komið í veg fyrir að skrifað yrði
undir samninga fyrir hádegi.
„Við förum hér út í tilraun til að
reyna að leiðrétta laun háskóla-
menntaðra ríkisstarfsmanna á
næstu þrem til fimm árum. Það má
segja að þessi áætlun sé nokkuð djörf
þar sem trúnaðartraust milli okkar
og ríkisins hefur ekki verið upp á það
besta. í þessum samningi kemur
fram að það eigi að kanna þann mun
sem er á kjörum háskólamanna hjá
ríkinu og á almennum vinnumarkaði
og það kemur einnig fram að þessi
mismunur eigi að fara til launa-
hækkana. En reynsla okkar af slík-
um samningum er ekki góð og því
hefur mikil vinna farið í að setja
undir alla leka. Þessi samningur
mun engu skila nema við leggjum
mikla vinnu í að fylgja honum eftir
á næstu árum. Við erum ekki komin
að neinum endapunkti heldur sjáum
við torsótta leið framundan,“ sagði
Páll. -gse
Veðrið:
Breytilegar
áttir
Allt útlit er fyrir breytilegar
áttir á landinu. Á sunnanverðu
landinu er útht fyrir sunnanvind
en á norðanverðu landinu virðist
sem norðaustanáttin ætli að sitja
áfram. Stormaðvaranir hafa ver-
ið gefnar út fyrir austurmið og
austurdjúp.
BÚALEIGA
v/FIugvallarveg
91-61-44-00