Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1989, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1989.
Fréttir
Fjármálaráðuneytið kannar seinni samninga ríkisins:
Metur hækkanir mun
minni en DV og ASÍ
Fjármálaráðuneytiö sendi frá sér í
gær fréttatilkynningu þar sem út-
reikningar DV á launahækkunum
samkvæmt samningum ýmissa laun-
þegasamtaka, sem birtust í DV fyrir
um tveimur vikum, eru sagðir „væg-
ast sagt mjög viilandi", í þeim séu
„fjölmargar rangfærslur", þeir séu
ekki „í neinu sambandi við raun-
veruleikann", í þeim séu „flestar
samanburðartölur alrangar" og að í
raun sé það „ótrúlegt að svo villandi
útreikningar skub vera birtir og
ályktanir síðan dregnar af þeim“.
Þessum lýsingum á útreikningum
DV fylgja síðan útreikringar fjár-
málaráðuneytisins og útskýringar á
þeim.
Svipaðar niður-.
stöður DV og ASÍ
Eins og sjá má af súluriti, sem fylg-
ir þessari grein, ber nokkuð á milb
niðurstöðu fjármálaráðuneytisins og
DV. Til samanburðar er einnig birt
í súluritinu yfirbt yfir niðurstöður
hagdeildar Alþýðusambandsins á
fjórum af þessum samningum.
Hagdebd ASÍ og DV fá nánast sömu
niðurstöðu úr samningum Banda-
lags háskólamanna og Hins íslenska
kennarafélags. Fjármálaráðuneytið
metur þessa samninga hins vegar til
mun minni hækkana og munar þar
í báðum tiifebum um 2 prósentum.
Ástæða þess bggur sjálfsagt meðal
annars í því sem ritað er neðanmáls
í fréttatilkynningu fjármálaráðu-
neytisins að sérstök ákvæði kjara-
samninga eru undanskibn í mati
ráðuneytisins.
í tilkynningu ráðuneytisins er því
harðlega mótmælt að reikna tíl launa
svokabaðar „stríðsskaðabætur“ sem
háskólamenn í verkfalb fengu. Ráðu-
neytið vib allt eins draga tekjutap
vegna verkfallsins frá launahækk-
unum. DV reiknaði ekki með tekju-
tapinu þar sem fyrir því er engin
hefð. DV reiknaði hins vegar
„stríðsskaðabæturnar" með þar sem
engin hefð er fyrir sbku í öðrum
samningum og því ekki hægt að bta
á þær sem annað en sérstaka launa-
greiðslu án vinnuframlags.
Ráðuneytið metur ASÍ-
samninginn hátt
DV og fjármálaráðuneytið eru
sammála um samning opinberra
starfsmanna en hagdebd ASÍ metur
hann örlítið hærri.
Fjármálaráðuneytiö telur samning
Alþýðusambandsins gefa meiri
hækkun en hagdeUd þeirra samtaka.
Ástæðan fyrir því að DV er með um
0,7 prósent lægra mat á þeim samn-
ingi er rangar upplýsingar sem feng-
ust frá ASÍ þegar útreUcningarnir
voru unnir. Hins vegar bggur ástæð-
an fyrir háu mati fjármálaráðuneyt-
isins sjálfsagt í því að það tekur iðn-
aðarmenn ekki með í útreikning
sinn. Þeir hafa hvað hæst laun félaga
í Alþýðusambandinu og því verða
prósentuhækkanirnar meiri ef þeim
er sleppt þar sem fost krónutölu-
hækkun vegur þyngra á lægri laun.
HagdeUd ASÍ lagði ekki mat á
samninga annarra samtaka launa-
fólks.
Mikiðberá milli
DV og ráðuneytisins
DV metur samninga Kennarasam-
bandsins um 0,6 prösentum hærri en
fjármálaráðuneytið og samning
bankamanna um 2,3 prósent hærri.
Þennan mun er sjálfsagt hægt að
skýra á sama hátt og þann mun sem
var á niðurstöðum varðandi samn-
inga Hins íslenska kennarafélags og
Bandalags háskólamanna; það er að
ekki er reynt af hálfu fjármálaráðu-
neytisins aö meta sérstök ákvæði
samninganna. Þannig er ekki tekið
tiUit tíl afturvirkni samninga banka-
manna og sérstakra lífaldurshækk-
ana hjá kennurum sem samkvæmt
upplýsingum ráöuneytisins snerta
um 15 prósent félagsmanna.
Mestur munur er á mati DV og fjár-
málaráöuneytisins á samningi
Meinatæknafélags íslands. Ráðu-
neytið telur hann fela í sér 10,9 pró-
sent hækkun en DV um 23,7 prósent.
Þessi samningur felur í sér mun
meiri og flóknari flokka- og þrepatU-
færslur en hinir samningarnir. Sam-
ið var um nýjan launastiga en þetta
er fyrsti samningur meinatækna eft-
ir aö þeir yfirgáfu BSRB. DV byggði
sitt mat á upplýsingum frá Meina-
tæknafélagi Islands og öðrum sem til
eiga að þekkja. Ef mat fjármálaráðu-
neytisins er nærri sannleikanum
hafa meinatæknar stórlega ofmetið
þennan fyrsta samning sinn. Það
mun hins vegar ekki koma endan-
lega í ljós fyrr en í byrjun næsta árs
hvað þessi samningur gefur meina-
tæknum í raun.
Sjóðurinn gefur meira
en allar hækkanir BSRB
Fyrir utan að fjármálaráðuneytið
telji útreikninga DV ranga að flestu
leyti segir ráðuneytið þær ályktanir,
sem dregnar voru af þeim, btið betri.
Þær fólust í því að sá rammi, sem
ASÍ og BSRB sömdu eftir, hefði koll-
varpast í þeim samningum sem ríkið
stóð að síðar.
Niðurstöður hagdeUdar ASÍ, sem
birtust um viku eftir frétt DV, falla
að mestu við niðurstöður útreikn-
inga DV. Flestir þeir sem hafa tjáð
sig um samningana eftir að frétt DV
birtist eru sammála blaðinu um að
áherslan hafi verið flutt frá meiri
hækkunum til handa þeim lægst
launuðu. Þess í stað tók ríkið til við
að semja um prósentuhækkanir sem
gefa hinum hærra launuðu fleiri
krónur, um meiri flokkahækkanir til
tekjuhærri heUdarsamtaka, um ýmis
sérákvæði og breikkaði bUið milli
lægra launaðra og þeirra sem hærri
hafa launin; eins og til dæmis í samn-
ingi meinatækna. Þar fengu yfir-
meinatæknar tvo flokka umfram
venjulega hækkun til annarra.
TU að gefa hugmynd um vægi sér-
ákvæða benti Sigurður Snævarr,
hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun, á
það í blaðagrein fyrir skömmu að
ákvæði í samningum háskólakenn-
ara um sérstakan rannsóknarsjóð
gæfi hveijum félagsmanni um 50
þúsund á ári að meðaltah í beina
launahækkun. Þetta eitt er meiri
hækkun en venjulegur opinber
starfsmaður fær út úr samningi
BSRB út þetta ár.
-gse
Skipt um hjarta 1 ungum Grmdvíkingi í London:
Aðgerðin virðist
hafa heppnast
- sagði Hörður Helgason, faðir piltsins, í morgun
„Láðan Helga virðist vera í nokk-
uö góðu lagi en hann var reyndar
ekki vaknaöur í morgun eftir aö-
gerðina," sagði Hörður Helgason,
rafvirki úr Grindavík, sem dvelst
nú ásamt konu sinni, Sigurborgu
Ásgeirsdóttur, í London. Þar
gekkst 16 ára sonur þeirra, Helgi
Einar Harðarson, undir hjarta-
skurðaðgerð aðfaranótt mánudags-
ins.
Helgi er annar íslenski hjartaþeg-
inn en sem kunnugt er gekkst
HaUdór Habdórsson undir sams
konar aðgerð í upphafi síðasta árs.
Það var sami læknir, prófessor
Magdi Yacoub, sem framkvæmdi
aðgerðina. Hún var gerð á Bromp-
ton sjúkrahúsinu 1 London. Eftir
nokkra daga er síöan gert ráö fyrir ir er um margt flóknari en sú sem
aðHelgtfariáHarefieldsjúkrahús- gerð var á Habdóri sem fékk ný
ið til endurhæfingar en á því lungu um leið og skipt var um
sjúkrahúsi dvaldist Habdór Hab- hjarta í honum. Þar eð aðeins var
dórsson. skipt um hjarta í Helga þá þarf að
„Þetta viröist hafa heppnast eða framkvæma flóknar tengingar við
maöur vonar það að minnsta lungu. Þá hefur Helgi veriö mjög
kosti," sagöi Hörður. Hann og Sig- veikur að undanfómu eftir að hafa
urborg hafa dvabst í mánuð í Lon- fengiö flesnu og veirusýkitígu sem
don en áður haföi Helgi legið síðan reyndi rpjög á hjartað. Helgi gat því
rétt eftir páska á Landspítalanum. ekki beðið lengur eftir að heppbeg-
„Læknir Helga þar var Magnús ur hjartagjafi gæfist en hann hefur
Karl og hann hefur verið í fubu legiö meðvitundarlaus í öndunar-
sambandi viö þá hér úti.“ og hjartavél síðustu daga fyrir að-
Hörður sagöi aö þau Sigurborg gerö. Aðgerðin var gerð í tveim
gerðu ráð fyrir aö dveljast um sinn áfóngum og tók hún sex tíma.
útí enda má gera ráð fyrir aö end- -SMJ
urhæfmgin taki nokkum tíma.
Aðgerð sú sem Helgi gekkst und-
Halldór Halldórsson hjarta- og lungnaþegi:
Fer fljótlega út til
London og hitti Helga
„Eg frétti af þessu fyrir nokkmm
vikum og hef fylgst með þessu í gegn-
um séra Jón A. Baldvinsson úti í
London. Ég hef nú ekki haft tækifæri
til að hitta Helga en ég mun fljótlega
setja mig í samband viö aöstandend-
ur hans,“ sagði Habdór Halldórsson
hjarta- og lungnaþegi þegar DV haföi
samband við hann í morgun.
„Mér skbst að Helgi hafi fengið vír-
us í hjartað og það stækkað og það
leitt tb þess að hann hafi orðið mbtið
veikur. Þó að Helgi fái aðeins hjarta
þá skbst mér að í aðgerðinni sé meiri
tengingarvinna á milb hjarta og
lungna,“ sagði Habdór en hann fer
út tb London í næsta mánuði í eftir-
bt og sagðist hann ætla að hebsa upp
á Helga og fjölskyldu hans.
- En hvemig skyldi Habdóri vera
innanbrjósts þegar annar íslending-
ur gengur í gegnum slíka aðgerð?
„Eg er bara virkbega ánægður með
að það skub hafa fundist þama líf-
færi á ebeftu stundu og ég er virki-
lega glaður yfir þessu. Þetta sannar
enn einu sinni hvað læknavísindin
Hér er verið að flytja Halldór Hall-
dórsson yfir á Brompton-sjúkrahú-
sið en þangað fer Helgi Einar Harö-
arson eftir nokkra daga.
em komin framalega í dag, að það
skub vera hægt að bjarga þama
mannsbíi,“ sagði Habdór en að-
spurður sagðist hann sjálfur hafa
þaðmjöggott. -SMJ
Hvatt til mjólkurbindindis í þrjá daga
„Mér finnst að nær hefði verið að
fara í bensínverkfab og hætta að
kaupa bensín í þrjá daga,“ sagði Að-
alheiður Bjamfreðsdóttir í samtab
viö DV um þá ákvörðun stjóma ASÍ
og BSRB að hvetja almenning tb
mjólkurbindindis í þrjá daga frá og
með deginum í dag.
Með því að sniðganga mjólk og
mjólkurvörur vilja launþegasamtök-
in hvetja fólk tb að mótmæla hækk-
unum á búvömverði og verðhækk-
unum almennt að undanfómu.
Aðalheiður benti á að þetta kæmi
niður á bændum sem væm ein
launalægsta stétt í landinu og þeim
væm skömmtuð laun af stjómvöld-
um.
„Ef neytendur sýna með þessu
samstöðu er hér um þýðingarmikla
aðgerð að ræða,“ sagði Jóhannes
Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna, í samtah við DV. „Verð
á matvörum er nú orðið hærra en
góðuhófigegnir." .pá