Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1989, Qupperneq 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1989.
Viðskipti____________________________________________dv
Sambandið og kaupfélögin töpuðu 2,2 miUjörðum:
„Þurfum að tefla hraðskák
ef takast á að leysa vandann“
- KRON heimtar aukinn markaðsbúskap
Þungbúinn forstjóri, Guöjón B. Olafsson, á aðalfundi Sambandsins í gær.
DV-mynd Hanna
Um 2,2 milljarða tap Sambandsins
og kaupfélaganna á síðasta ári og
síminnkandi eigið fé hvíldi eins og
vofa yfir einhverjum sögulegasta
aðalafundi Sambandsins í áraraðir
sem hófst í nýjum aðalstöðvum fyrir-
tækisins við Kirkjusand í gær. Mörg
stór orð voru látin falla. Fulltrúar
KRON eru langflestir á aðalfundin-
um og raunar atkvæöamiklir í ræð-
upúlti hka. Þröstur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri KRON, sagði að Sam-
bandið og kaupfélögin þyrftu að tefla
hraðskák á næstu misserum ef tak-
ast ætti að leysa vandann. í ræðum
KRON-manna kom krafa um aukinn
markaðsbúskap Samvinnuhreyfing-
arinnar. „Það er spurning hvort við
eigum ekki að stíga skrefið til fulls
og taka upp markaöskerfið,“ sagði
Þröstur. Ljóst er líka að skoðanaá-
greiningur er á mfili svonefndra
neytendafélga og framleiðslufélaga.
Aðalfundi Sambandsins lýkur í dag.
Leggja niður deildir sem tapa
Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sam-
bandsins, sagði í ræðu sinni: „Greini-
legt er að ekki gengur lengur að
halda áfram starfsemi sem ekki hef-
ur rekstrargrundvöll. Fjármagni fyr-
irtækis verður ekki eytt nema einu
sinni. Nú verður að koma til mark-
vissari samstæðari barátta fyrir
sanngjörnum starfsgrundvelli. Jafn-
framt ber að herða aöhaldsaðgerðir
í rekstri og minnka skuldir eins mik-
ið og hratt og mögulegt er. Þess vegna
komumst við ekki hjá því að selja
eignir, jafnvel eignir sem eru okkur
kærar og sem við gjarnan vildum
hafa áfram í okkar eigu.En skuldim-
ar verða að minnka og eina leiðin til
þess er að selja þær eignir sem ekki
skila nægilegum arði eða þær eignir
sem gera það kleift að minnka fjár-
magnskostnaðarbyröina að því
marki að hún verði viðráöanleg.“
Sambandiö skili arði
Guðjón sagði enn fremur: „Sam-
vinnufélög heíðu ekki átt að taka þá
áhættu að annast slátmn án þess að
hafa tryggingu fyrir því að rekstrar-
og fjárhagsgrundvöllur væri tryggð-
ur. Einnig hefðu samvinnufélög ekki
átt aö selja vöm og þjónustu tii fé-
lagsmanna sinna undir kostnaðar-
verði, eða halda áfram útgerð og fisk-
vinnslu með fyrirsjáanlegum halla.
Samvinnuhreyfmgin hefur það
markmið að stuðla að velferð félags-
manna á sem flestum sviöum. For-
sendur þess aö slíkt sé mögulegt er
að fyrirtæki samvinnumanna skili
arði. Annars er verið að eyöa af eigin
fé hreyfingar sem samvinnumenn í
landinu hafa byggt upp á heilli öld.“
Tap Sambandsins af reglulegri
starfsemi var rúmur milljarður á síð-
asta ári. En auk þess var tap af
óreglulegri starfsemi upp á um 134
milljónir. Þar er mesta tapið vegna
afskrifaöra viðskiptakrafna. Niður-
staðan er því tap upp á um 1.156
milljónir króna. Af þessu tapi nemur
fjármagnskostnaður um 837 milljón-
um króna.
Verslunardeild tapaði 352
milljónum
Af einstökum deildum Sambands-
ins áttu verslunardeild, iðnaðardeild
og skipadeild bágt, fyrir utan auövit-
að fjárhagsdeildina. Tap verslunar-
deildar var 352 milljónir króna, iðn-
aðardeildar um 228 milljónir, skipa-
deildar um 140 milljónir og fjárhags-
deildar um 435 mfiljónir króna. Sjáv-
arafurðadeild var rekin með 4 millj-
óna króna hagnaði og búvörudeildin
með 9 milljóna króna hagnaði.
Staðan er ekki síður slæm hjá
kaupfélögunum. Þar nam tapið um
1.057 miUjónum króna. Rekstur
þeirra skUaði 343 mUljóna króna
hagnaði fyrir fjármagnskostnað sem
nam um 1.405 mUljónum króna og
því fór sem fór. Það fer ekki á miUi
mála að mörg kaupfélög beriast nú
heiftarlega upp á líf og dauða.
KEA og KRON ósammála
Eftir hádegið í gær fóru fram fjör-
ugar umræður um skýrslu stjórnar-
formanns og stjómar. Þessar um-
ræður báru líka vott um misjafnt
hugarfar fuUtrúa kaupfélaganna til
Sambandsins og hvað gera ætti í
stöðunni. Ljóst er að KRON er orðiö
stærsta kaupfélagið eftir sameining-
una við Kaupfélag Hafnfirðinga.
KRON er því meö flesta fuUtrúa á
aðalfundinum. En KRON er neyt-
endakaupfélag. Félag sem þarf að
beriast hatrammri baráttu á mat-
vælamarkaðnum á höfuðborgar-
svæðinu við aörar verslanir, sérstak-
lega þó matvælarisann Hagkaup. Þvi
er raunar haldið fram að hvergi sé
baráttan eins hörö í samkeppni hér-
lendis og á matvælamarkaðnum á
höfuðborgarsvæðinu. KRON-veriar,
eins og Þröstur Ólafsson fram-
kvæmdastjóri KRON nefndi þá
KRON-menn i gær, leggja því alla
áherslu á að gera hagstæð innkaup
tíl að geta lækkað vöruverðið, dregið
tU sín viðskipti og haft hagnaö þegar
upp er staðið.
KRON við meira frelsi
Athyghsvert var aö heyra á fundin-
um í gær hvað fuUtrúar KRON börð-
ust hart fyrir markaðsbúskapnum
og eins hvað sumir þeirra lofuðu
Guðjón B. Ólafsson, núverandi for-
stjóra, sem foringja. Óneitanlega
varð það til þess að sögumar í við-
skiptalífmu að undafömu um að
Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri
KRON, verði kjörinn nýr stjómar-
formaður á aðalfundinum í dag,
fengu byr undir báða vængi. Það
verður spennandi sfjómarformanns-
kjörið en Ólafur Sverrisson, fyrmm
kaupfélagsstjóri í Borgamesi, gegnir
nú stjómarformennsku. Ólafur tók
við af Val Arnþórssyni síðastliðinn
vetur.
í umræðunum eftir hádegið í gær
tók Sigurður Kristjánsson, kaupfé-
lagsstjóri Kaupfélags Ámesinga,
fyrstur tU máls. Hann kvað skulda-
bagga margra kaupfélaga vera þann-
ig að hann teldi mjög óvíst að þau
næðu landi í rekstrinum og lifðu af.
Sigurður var harðorður og kvað sum
kaupfélög hafa gleymt félagslegum
skyldum sínum og stefndu þess í stað
að stundargróða. Hér má skjóta því
inn í að Þröstur Ólafsson, stjórnar-
formaður KRON, tók þessi orö Sig-
urðar tU sín og svaraði Sigurði síðar.
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
„Samvinnuviðrini“
Sigurður sagði enn fremur að besta
hjálpin fyrir kaupfélögin væri að eiga
aðild að sterku Sambandi. Kvað Sig-
urður aö bUið á milii Sambandsins
og kaupfélaganna væri að breikka.
Þetta kæmi vel fram í því að dóttur-
fyrirtæki Sambandsins væru úr
sambandi við kaupfélögin. Hann
nefndi sem dæmi aö Kaupfélag Ár-
nesinga, sem tekið hefði viö kaup-
félaginu í Vestmannaeyjum, heföi
ekki fengið til sín umboðsmennsku
fyrir Samvinnutryggingar og Essó
og hefði hann heimildir fyrir því að
það væri talið miöur af þessum fyrir-
tækjum aö kaupfélagið hefði það.
Loks fjaUaði Sigurður um. Alafoss
hf. og Váttryggingafélag íslands hf.
„Þessi fyrirtæki eru samvinnuviðr-
ini. Það versta við þessi fyrirtæki er
að samvinnumenn hafa ekki lengur
á þeim vald. Undrast ég að slíkir
hlutir skulu hafa getað gerst.“
„Viðbrenndur samvinnu-
vellingur“
Enn var heitt í Siguröi og sagði
hann að samvinnuhreyfingin yrði að
vera sterk og samstæð en ekki ein-
hvers konar vellingur sem væri bæði
viðbrenndur og útþynntur. „Sam-
bandið verður að vera með kaup-
félögunum en ekki á móti þeim,“
sagði Sigurður.
Þröstur Ólafsson, stjómarformað-
ur KRON, kom í pontu á eftir Sig-
urði. Þröstur sagði að þessi aðalfund-
ur Sambandsins væri sögulegur og
mikilvægur og að með honum væri
mjög vel fylgst af hálfu almennings.
Þurfum að tefla hraðskák
„Almenningur fylgist með því
hvort við höfum skynjað timans kall
og stokkað spilin upp. Við höfum
ekki mikinn tíma aflögu. Við þurfum
að tefla hraðskák nærstu misseri ef
takast á að leysa vandann,“ sagði
Þröstur.
Og áfram: „Annars óttast ég meira
skelfdegan halla kaupfélaganna
fremur en Sambandsins. Ef kaup-
félögin hverfa þá hverfur Sambandið
af sjálfu sér.“
Þröstur sagði síðan að nú dygðu
engin töfrabrögð í stöðunni. Aðeins
markvissar aðgerðir og þrotlaus
vinna dygðu til að leysa vandann.
„Og umfram allt þarf stefnan að vera
skýr sem menn vinna eftir.“
Þröstur minntist næst á verslunar-
deild Sambandsins, stærstu heild-
sölu landsins, en öll stærstu kaup-
félögin kaupa talsvert framhjá þess-
ari deild af öðrum heildsölum sem
bjóða lægra verö. Hann var ómyrkur
í máh. „Það er þrýstingur á að kaup-
félögin skipti við verslunardeildina
þó það sé ekki hagkvæmt. En þeir
sem beijast í verslunarrkestri telja
það ekki skammtímagróða þó að
skipt sé við aðra en verslunardeild-
ina til að ná hagstæðari innkaup-
um.“
Verslunardeildin lögð niður?
Næstu orð Þrastar voru athyghs-
verð og gætu bent til róttækra að-
gerða samvinnumanna en svo virðist
sem þeim finnist flestum sjálfum að
deildin sé léleg. Þröstm- spurði fund-
inn nefnilega hvort ekki væri rétt að
leggja verslunardeildina niður og
stofna félag stærstu kaupfélaganna
sem setti hagkvæm innkaup á odd-
inn til að ná niöur vöruverði í sam-
vinnuverslunum og myndu minni
kaupfélög njóta góðs af þessum inn-
kaupum. Fleiri ræðumenn, eins og
KEÁ-maöurinn Jóhannes Geir, voru
sammála þessari hugmynd.
Loks ræddi Þröstur efnahagsvanda
ríkisstjómarinnar og sagði stefnu
þessarar ríkisstjórnar komna í blind-
götu og að almenningur væri óán-
ægður. Hann taldi ímynd Sambands-
ins slæma og aö of margir settu
samasemmerki á milh Sambandsins
og efnahagsvandans. „Þess vegna
þarf Sambandið að hlusta á fólkið.
Samvinnuhreyfingin getur ekki ver-
ið án fólksins en fólkið getur verið
án Sambandsins."
Áróður gegnlandbúnaði
hættulegri en áður
Jóhannes Geir Sigurgeirsson, fuh-
trúi KEA, ræddi nokkuð skipulags-
breytingar innan Sambandsins og
kvað nauðsynlegt að rekstrareining-
amar yrðu sjálfstæðar með sér-
stakan fjárhag og bæru fulla ábyrgð
á rekstrinum. Þá vék hann að harðn-
andi áróðri fyrir fijálsum innflutn-
ingi á landbúnaðarvörum. „Þetta er
spuming um það hvort leggja eigi
innlenda framleiöslu niður,“ sagöi
Jóhannes og taldi áróðurinn fyrir
frjálsum innflutningi landbúnaðar-
vara verða oröinn hættulegri en áð-
ur. Því má skjóta hér inn í að KRON
er eitt þeirra félaga sem flutt hefur
inn ódýrt smjörhki að undanfömu.
Haukur Helgason, fulltrúi KRON,
kom næstur upp á eftir Jóhannesi
Geir, bónda og KEA-manni að norð-
an. Haukur kvað samvinnuhreyfing-
una verða að nota markaðsbúskap
th að ná árangri og vinna sig út úr
vandanum. „Krafa almennings er
ódýr matur." Þá sagði Haukur með
miklum tilþrifum að hann styddi
Guðjón B. Olafsson ahra manna best
tíl að stýra Sambandinu út úr núver-
andi fjárhagserfiðleikum.
Virðulegir, hálaunaðir
og veiða stórlaxa
KRON-fulltrúi steig næst í pontu.
Það var Þórunn Klemensdóttir. Þess
má geta að hún er eiginkona Þrastar
Ólafssonar. Hún tók á innanhúss-
vanda Sambandsins og minntist á
valdabaráttu virðulegra karla. Allir
skyldu sneiðina. „Þetta em virðuleg-
ir karlar, hálaunaðir og sem aka um
á tvíbreiðum hmosínum, veiða stór-
laxa, karpa um há laun sem þeir
hafa samið um og talast aðallega við
í gegnum bréfalúgur."
Þetta er greinhega spennandi aðal-
fundur. -JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 14-16 Vb.Sp
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 14-18 Vb
6 mán. uppsögn 15-20 Vb
12mán. uppsögn 16-16,5 Ab
18mán. uppsögn 32 Ib
Tékkareikningar, alm. 3-9 Sp
Sértékkareikningar 4-16 Vb.Ab,-
Innlán verðtryggð Sp
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1-2 Vb
6mán. uppsögn 2-3 Allir
Innlán meðsérkjörum 27-35 nema Úb Ab
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalir 8,25-9 Ab
Sterlingspund 11,5-12 Sb.Ab
Vestur-þýsk mörk 5,25-6 Sb
Danskar krónur 7.5-8 Ib.Bb,-
ÚTLÁNSVEXTIR (%) Sp lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv.) 28-30,5 Lb.Úb
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 27,5-33 Lb
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) 31,5-35 Lb
Utlán verðtryggö
. Skuldabréf 7.25-9.25 Lb.Bb
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 27.5-33 Lb.Úb
SDR 10-10,25 Allir
Bandaríkjadalir 11,25-11,5 nema Úb Allir
Sterlingspund 14,5 nema Úb Allir
Vestur-þýsk mork 8,25-8,5 Úb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 38,4
MEÐALVEXTIR
óverðtr. maí 89 27,6
Verðtr. maí 89 7.9
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala júni 2475 stig
Byggingavísitala júni 453stig
Byggingavísitalajúni 141.6stig
Húsaleiguvísitala 1,25%hækkun l.aprll
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóöa
Einingabréf 1 3,858
Einingabréf 2 2.145
Einingabréf 3 2,537
Skammtímabréf 1,330
Lífeyrisbréf 1,940
Gengisbréf 1,741
Kjarabréf 3,870
Markbréf 2.054
Tekjubréf 1.711
Skyndibréf 1,176
Fjölþjóðabréf 1.268
Sjóðsbréf 1 1.857
Sjóðsbréf 2 1.528
Sjóðsbréf 3 1,314
Sjóðsbréf 4 1.095
Vaxtasjóðsbréf 1.3140
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv
Sjóvá-Almennar hf. 278 kr.
Eimskip 348 kr.
Flugleiðir 171 kr.
Hampiöjan 154 kr.
Hlutabréfasjóður 127 kr.
Iðnaðarbankinn 156 kr.
Skagstrendingur hf. 200 kr.
Útvegsbankinn hf. 135 kr.
Verslunarbankinn 143 kr.
Tollvörugeymslan hf. 106 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavixlum
og við-skiptaskuldabréfum, útgefnum af
þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaup-
gengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnu-
banki kaupa viðskiptavíxla gegn 31%
ársvöxtum og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast i DV á fimmtudögum.