Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1989, Síða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNf 1989.
Utlönd
Mannleg mistök
Margir vagnar járnbrautarlestanna, sem urðu eldi að bráð i lestarslys-
inu mikla í Úralijöllum um helgina, eru illa útleiknir eins og sjá má á
þessari mynd.
Sfmamynd Reuter
Pekingbúar standa andspænis kínverskum hermönnum nálægt Torgi hins himneska friðar i morgun þar sem
þúsundir mótmælenda eru sagðar hafa verið myrtar um helgina. Simamynd Reuter
Sovésk yfirvöld sögöu í gær aö 462 hefðu ýmist látist eða væri saknað
eftir hiö hörmulega lestarslys í Úralfjöllum um helgina. Samkvæmt upp-
lýsingum stjómvalda era um 700 enn á sjúkrahúsi. Þetta era fyrstu opin-
beru tölumar um fjölda fórnarlamba þessa slyss sem talið er annað
versta lestarslys í heiminum. Læknar telja að fjöldi látinna muni ná hátt
í átta hundruð.
Orsök lestarslyssins, sem átti sér staö um 275 kílómetra vestur af borg-
inni Chelyabinsk, er talin vera gasleki í leiðslu nálægt brautarteinunum.
Álitið er að gas hafi lekiö úr leiðslunni og neistar frá lestunum tveimur
valdiö gífurlega öflugri sprengingu. Taliö er að milli 1.200 og 1.300 far-
þegar hafi veriö í lestunum, þar af fjöldi barna á leið í sumarbúöir.
Gorbatsjov Sovétforseti gaf í skyn aö mannleg mistök og gáleysi væru
orsök slyssins.
Óttast að hátt í 300 hafi farist
Björgunarmenn á Sri Lanka grófu upp í morgun fleiri lik fómarlamba
verstu flóða og aurskriða í landinu í fióra áratugi. Samkvæmt upplýsing-
um stjómvalda er talið að 265 hafi látist og óttast er að fjöldi látinna
muni ná 300. Yfirvöld segja að tæplega eitt þúsund hafi særst og þijú
þúsund misst heimili sín.
Þúsundir Sri Lanka-búa hafast nú við í flóttamannabúðum i kjölfar
viövarana sfjómvalda um frekari flóð. Hérað i suðvesturhluta landsins,
sem og miðsvæðis, urðu verst úti þegar gifurleg flóð og aurskriður ruddu
sér braut yfir landiö eftir fjögurra daga monsún-rigningar. Flóðin
skemmdu rafmagns- og símalínur og eyðilögðu brýr og mannvirki.
Fjármagnsskortur í Argentínu
Fjármálalíf í Argentínu hefúr svo til stöðvast að sögn bankamanna
vegna mikils skorts á reiðúfé.
Aðalbanki landsins hefúr takmarkað mjög úttektir. Hagfræðingar segja
að meö þvi að selja hámarksúttekt á dag upp á 115 doliara sé Raúl Alfons-
ín forseti að reyna að draga úr verðbólguhraðanum en búist er við aö
veröbólgan muni mælast 70 prósent í maí.
Margir óttast að fjármagnsskorturinn og háir vextir, 170 prósent á
mánuði, muni leiöa til upplausnar í efnahagskerfinu.
Krefjast framsals sonar Stroessners
Yflrvöld í Paraguay hafa hafið undirbúning framsalskrafna til aö fá
Gustavo Stroessner, son Alfredos Stroessner, fyrrum einræðisherra,
framseldan til Paraguay til að svara til saka fyrir ásakanir um svik og
fjárkúgun.
Gustavo Stroessner fór til Brasilíu ásamt fóður sínum í febrúar síðast-
liönum þegar hinum síðarnefnda var steypt af stóli. í síðustu viku var
Alfredo Stroessner veitt pólitískt hæli í Brasilíu. Engar ákærur hafa ver-
ið lagðar fram á hendur einræðisherranum fyrrverandi.
Páfi f Finnlandi
Jóhannes Páll péfi II. velfir konu bleasun sina i Helsinki I Finnlandi.
Sfmamynd Reuter
í ávarpi sínu fyrir hóp stjómmálamanna og menntamanna í Finn-
landi í gær lofaði Jóhaimes Páll páfi II. Helsinki-sáttmálann, sem undirrit-
aður var af 35 þjóöum, og kvað hann tímamótaverk. En páfi minnti sam-
kunduna einnig á aö í mörgum austantjaldslöndum væri trúfrelsi ekki
iðkaö.
Áður en ávarp páfa hófst flutti hann messu í höfúöborginni. Norður-
landaferð páfa er nú hálfiiuð og mim hann koma til Danmerkur fyrir
hádegi í dag.
Átök innan
hersins
Sjúkraflutningur. Námsmaður þessi var skotinn af kínverskum hermanni
nálægt Torgi hins himneska friðar í gær.
Kínverskir hermenn, sem hikað hafa
við að fara' eftir herlögunum, hafa
lent í átökum við hermenn hliðholla
yfirvöldum, aö því er vestrænir
stjómarerindrekar í Peking sögðu í
morgun.
Kváðust stjórnarerindrekar ekki
geta greint í smáatriðum frá því
hversu margir uppreisnarhermenn-
irnir væru en bardagarnir ættu sér
stað umhverfis hersafnið, um átta
kfiómetra fyrir vestan Torg hins
himneska friðar.
Á sunnudaginn sást lest hundrað
herbfia og brynvarinna bíla brenna
fyrir vestan þann stað þar sem átök-
in í morgun áttu sér stað. Að sögn
kínverskra heimildarmanna höfðu
hermenn yfirgefið farartækin og
skilið dyr þeirra eftir opnar. Þar með
gátu reiöir borgarar kveikt í herbíl-
unum.
Tuttugu mannlausir herbílar sáust
við vegarkant í vesturhluta borgar-
innar og óstaðfestar fréttir herma að
átök milli herdefida hafi átt sér stað
nálægt Nanyuan flugvellinum í suð-
urhluta borgarinnar í gær.
Um tuttugu og fimm skriðdrekar
og brynvarðir bílar vora tfibúnir til
átaka í austurhluta Peking í morgun.
Hermenn kölluðu í gegnum hátalara
tfi útlendinga á nálægum húsþökum
að ef þeir tækju myndir yrðu þeir
skotnir.
í morgun virtist sem dregið hefði
úr átökum milli óbreyttra borgara
og hermanna á strætum Peking en í
nótt mátti heyra skothríö víðsvegar
um borgina. Þúsundir hermanna
gættu enn Torgs hins himneska frið-
ar í morgun og voru það miklu íleiri
hermenn en þurfti tfi að hrinda árás-
um óvopnaðra borgara. Segja stjóm-
arerindrekar að möguleg skýring á
því sé sú að að harölínumennimir,
sem fyrirskipuðu árásina á mótmæl-
endur á laugardaginn, óttist árásir
frá öðram herdeildum.
Orðrómur hefur verið á kreiki um
að Deng leiðtogi sé annaðhvort alvar-
lega veikur eða látinn en embætt-
ismenn hafa ekki vfijað tjá sig um
þær sögusagnir.
Útlendingar í Peking reyna nú að
komast úr borginni og hafa mörg
sendiráð flutt starfsfólk sitt til öragg-
ari staða.
Ókyrrðin úti á landsbyggðinni fór
vaxandi í morgun þegar fréttir fóra
að berast af fjöldamorðunum í Pek-
ing og í sumum borgum bjuggu menn
sig undir að veijast nýjum árásum
hersins. Shanghai, sem er næst-
stærsta borg landsins, var enn lömuð
í morgim vegna vegartálma mótmæl-
enda en ekki sáust nein merki þess
aö herinn væri á leið til árásar. Yfir-
völd lýstu því hins vegar yfir í gær
að námsmenn gætu átt von á harðri
refsingu.
Viðbrögð erlendis hafa verið hörð
og viða hefur verið efnt til mótmæla
viö kínversk sendiráð. Á Kúbu var
hins vegar gagnbyltingarsinnum
kennt um blóðbaðið á Torgi hins
himneska friðar.
Bush Bandaríkjaforseti lýsti því
yfir í gær að hætt yrði vopnasölu tfi
Kína vegna fjöldamoröanna. Hafa
bæði bandarískir þingmenn og kín-
verskir námsmenn lýst yfir ánægju
sinni með þessa ákvörðun forsetans.
Bush sagöi einnig að heimsóknir
bandarískra og kínverskra hemað-
arleiðtoga yrðu lagðar niður um
tíma. Hins vegar lagði forsetinn ekki
til að efnahagslegum refsiaðgerðum
yrði beitt gegn Kína þar sem hann
vfidi ekki skaða kínverskan almenn-
ing. Hann útilokaði þó ekki að gripið
yrði til slíkra aðgerða.
Sovéska þingið fordæmdi í morgun
allar tilraunir utan frá til þess að
þrýsta á Peking vegna blóðbaðsins í
Peking. Sagði þingið að um innan-
landsmálefni Kína væri að ræöa. En
í ályktun, sem meirihluti þingmanna
samþykkti, var sú von látin í ljós að
kínverskum yfirvöldum tækist að
halda áfram á braut póhtískra og
efnahagslegra breytinga.
Reuter
Símamynd Reuter
Fyrir utan kínverska sendiráðiö i
Canberra i Ástralíu baö þessi grát-
andi námsmaður yfirvöld í Kina um
að hætta morðunum á almenningi.
Simamynd Reuter