Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1989, Síða 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1989.
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1989.
17
fþróttir
Frétta-
stúfar
_____Lyall hættur
f""™/""* Nú er komið að tíma-
I I m<^tum b)á enska
| /r> | knattspyrnuliðinu
* West Ham. John Ly-
all, sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri liðsins síöustu
15 árín. mun láta af störfum í
þessum mánuöi er samningur
hans rennur út. Enginn fram-
kvæmdastjóri í ensku knatt-
spymunni hefur verið lengur
hjá sama félaginu. Líklegir til
að taka viö starfi framkvæmda-
stjóra hjá West Ham, sem féll
i 2. deild á síðasta tímabili, em
þeir Billy Bonds og Trevor Bro-
oking, sem léku með liðinu um
árabil, og núverandi fram-
kvæmdastjóri 2. deildar liðsins
Boumemouth, Harry Red-
knapp.
Careca og Maradona
áfram hjá Napoli
Brasilíumaöurinn Careca hefur
skrifað undir nýjan samning hjá
ítalska félaginu Napoli og gildir
samningurinn til 1993. Careea
varð annar markahæstur í ít-
ölsku knattspymunni á síðasta
keppnistímabili og skoraði 19
mörk. Hann kom til Napoli 1987
frá Sao Paulo. Fréttir hafa verið
á kreiki þess efnis aö Maradona
væri á förum frá Napoli til Mar-
seille í Frakklandi en slíkt á ekki
við rök að styðjast Maradona
sagöi i gærkvöldi. „Það er ekki
rétt aö ég sé á fömm frá Napoli.
Ég hef verið i sambandi við
franska liðið og þakkaö þeim
áhugann. En ég er og verð leik-
maður Napoli.“ Þá má geta þess
að þjálfari Napoli hefur ákveðið
að vera áfram með lið Napoli
íslandsmótið í knattspyrnu:
Mínir menn í
draumheimum
- sagði Ian Ross eftir jafntefli KR og Fylkis, 2-2
„Þetta var mjög góður leikur og ég
er virkilega ánægður með strákana.
Við áttum á brattann að sækja í
seinni hálfleik en strákarnir börðust
vel og uppskáru eftir því,“ sagði
Marteinn Geirsson, þjálfari Fylkis-
manna, eftir að lið hans hafði gert
jafntefli við KR-inga, 2-2, í fjörugum
og spennandi leik í Kaplaskjóli í
gærkvöldi.
Nýliðar Fylkis komu enn á óvart
með góðum leik og áttu meira skOið
en jafntefli í gærkvöldi. Það voru þó
KR-ingar sem fengu óskabyrjun þeg-
ar Pétur Pétursson skoraði strax á
5. mínútu eftir fallega sókn. Sæbjörn
Guömundsson gaf fyrir og Björn
Rafnsson skallaði fyrir fætur Péturs
sem þrumaði upp í þaknetið. Þrátt
fyrir ágætar sóknir Fylkismanna
næsta hálftímann gekk hvorki né rak
hjá þeim upp við mark KR-inga. Það
voru hins vegar vesturbæingar sem
bættu öðru marki við á 41. mínútu
þegar Bjöm Rafnsson fékk stungu-
sendingú inn fyrir vörn Fylkis-
manna og skoraði framhjá Guð-
mundi Baldurssyni, markverði Fylk-
is.,
Árbæingar komu ákveðnir til leiks
í síöari hálfleik og strax á fyrstu
mínútu náöu þeir að skora og
minnka muninn í 1-2. Baldur
Bjarnason skaut föstu skoti með
vinstri fæti í bláhornið án þess að
Kristján Finnbogason ætti mögu-
leika á að verja. Markið virkaði eins
og vítamínsprauta fyrir Fylkismenn
sem náðu síðan að jafna metin 7 mín-
útum síðar. Öm Valdimarsson
komst inn fyrir vörn KR en var felld-
ur og Ágúst Guðmundsson, ágætur
dómari leiksins, dæmdi vítaspyrnu.
Valur ...3 2 1 0 3-0 7
KA ...3 1 2 0 3-1 5
Fylkir ...3 1 1 1 4
FH ...3 1 1 1 2-2 4
KR ...3 1 1 1 4-5 4
Fram ...3 1 1 1 3-A 4
Þór ...3 1 1 1 2-3 4
Víkingur... ...3 1 0 2 2-2 3
Akranes.... ...3 1 0 2 3-5 3
Keflavík ...3 0 2 1 2-3 2
Hilmar Sighvatsson skoraði við mik-
inn fögnuð Árbæinga. Það sem eftir
var leiksins sóttu Fylkismenn meira
og voru oft aðgangsharðir upp við
mark KR-inga. Kristján varði í tví-
gang vel, fyrst frá Hilmari og í síðara
skiptið frá Erni Valdimarssyni sem
hafði leikið inn í vítateiginn. KR-
ingar náðu einstaka skyndisóknum
án þess þó að skapa sér virkileg tæk-
ifæri.
„Það var alger óþarfi að tapa tveim-
ur stigum á þennan hátt. Það er ekki
nóg að leika vel í 45 mínútur. Leik-
menn mínir vom í draumheimum
allan seinni hálfleikinn,“ sagði Ian
Ross, þjálfari KR, eftir leikinn.
Nýliðar Fylkis virðast ætla að
spjara sig vel í 1. deild og ef marka
má þennan leik gæti liðið náð langt
í sumar. Baldur Bjarnason og Hilmar
Sigvatsson voru bestu menn liðsins
en liðsheildin var annars mjög sterk.
Hjá KR-ingum var Rúnar Kristins-
son í stóru hlutverki að vanda. Liðið
náði ekki nógu vel saman og vörnin
var mjög mistæk á köflum. Kristján
átti ágætan leik í markinu og bjarg-
aði hði sínu í seinni hálfleik.
Dómari: Ágúst Guðmundsson.......**
Maður leiksins: Baldur Bjarnason,
Fylki. -RR
Stórátak hjá FH-ingum
Framkvæmdir við hið nýja
íþróttahús FH-inga í Hafnarfirði
ganga mjög veL Fyrsta skófiu-
stungan var tekin 11. febrúar sl.
og er áætlaö að húsið verði fok-
helt í ágúst í sumar. 15. febrúar
á næsta ári mun húsið verða af-
hent eigendum. Húsið er 44x44
metrar að stærð og mun það taka
2.20(1-2.400 áhorfendur. Heildar-
kostnaöur við byggingu hússins
er áætlaður um 130-140 mihjónir
og greiðir Hafnaríjarðarbær 80%
af verðinu en FH 20%. FH þarf
því að greiða rúmlega 30 mhljónir
af kostnaöi og hafa FH-ingar af
því tilefhi efnt til svokahaös
stórátaks FH-inga á meöal stuðn-
ingsmanna félagsins. Opnaður
hefur verið sérstakur innláns-
reikningur númer 220 í Útvegs-
bankanum í Hafiiarfirði og geta
velunnarar félagsins lagt framlög
th byggingarinnar inn á reikn-
inginn.
Gísli íslandsmeistari
í tugþrautinni
Gísh Sigurðsson, UMSS, varð um
síðustu helgi íslandsmeistari i
tugþraut. Hann hlaut 6.743 stig. í
öðru sæti varð Unnar Vhþjálms-
son, UÍA, með 6.626 stig og Olafur
Guömundsson, HSK, þriöji með
6.207 stig.
I sjöþraut kvenna varð Birgitta
Guöjónsdóttir, HSK, íslands-
meistari meö 4.486 stig. Önnur
varð Berglind Bjarnadóttir,
UMSS, með 4.323 stig og þriðja
Þuríöur Ingvarsdóttir, HSK, með
4.113 stig.
• Einnig var keppt í lengri
hlaupum. Sveit FH varð meistari
í 4x800 m boðhlaupi (8:19,2), sveit
ÍR varð íslandsmeistari í 3x800 m
boðhlaupi kvenna (7:51,7), og
sveit FH í 4x1500 m boðhlaupi
karla (1729,3). Martha Emstdótt-
ir, ÍR, varð íslandsmeistari í 5.000
m hlaupi kvenna (16552) og Már
Hermannsson, UMFK, í 10.000 m
hlaupi karla (31:47,7).
Grótta lagði Þróttara
- storsigur Hvergerðinga a Vikverja 1 3. deildinni 1 gærkvöldi
Gróttumenn komu á óvart í gær-
kvöldi þegar þeir lögðu Þróttara að
vehi í suðvesturriðh 3. deildarinnar
í knattspymu. Þeim tókst að sigra,
0-1, í miklum baráttuleik á gerv-
igrasinu í Laugardal og skoraði Karl
Sæberg sigurmarkið þegar 10 mínút-
ur vom hðnar af síöari hálfleik.
• Nýhðamir úr Hveragerði gerðu
það líka heldur betur gott þegar þeir
fengu Víkverja í heimsókn og sigr-
uðu, 6-0, eftir að staðan hafði verið
1-0 í hálfleik. Ólafur Jósefsson skor-
aöi 3 mörk, Jóhannes Björnsson 2 og
Arnar Gestsson innsiglaði stórsigur-
inn með fallegu skahamarki í lokin.
• Grindvíkingar sigruðu Leikni í
Grindavík, 4-2, eftir 3-1 í hálfleik.
Einar Ásbjöm Ölafsson, Páll Bjöms-
son og Guðlaugur Jónsson skomöu
I "~W* I 3.deild
Grindavík .... 2 2 0 0 8-2 6
Grótta......2 2 0 0 5-3 6
Hveragerði...2 10 16-1 3
Þróttur, R..2 1 0 1 3-í 3
Afturelding..2 10 16-53
BÍ...........2 10 12-2 3
Leiknir.R....2 10 13-4 3
ÍK...........2 10 1 2-4 3
Reynir.S.....2 0 0 2 1-5 0
Víkverji.....2 0 0 2 0-9 0
fyrir heimamenn sem einnig fengu
sjálfsmark í bónus. Baldur Baldurs-
son og Jóhann Viðarsson svömðu
fyrir Breiðhyltinga. Grindvíkingar
voru mun sterkari og hefðu getað
bætt við fleiri mörkum.
• ÍK sigraði BÍ örugglega í Kópa-
vogi, 2-0. Júhus Þorfinnsson og Óm-
ar Jóhannsson skoruðu mörkin, sitt
í hvorum hálfleik. ÍK átti auk þess
þrjú skot í markstangir ísfirðinga og
góð færi sem ekki nýttust.
• Afturelding vann Reyni frá
Sandgerði, 3-1, í Mosfehsbæ. Arnar
Óskarsson kom Reyni yfir í fyrri
hálfleik en í þeim síðari svöruðu Ól-
afur Grétarsson, Þór Hinriksson og
Samúel Grytvik fyrir heimaliðiö.
-ÆMK/RR/VS
Atli Már enn
í efsta sætinu
íslendingar náðu ágætum árangri
í gær á heimsmeistaramóti unglinga
í snóker sem stendur yfir þessa dag-
ana í Hafnarfirði.
Ásgeir Guðbjartsson vann Ástral-
íumanninn Wayne Turpin, 4-3, í A-
riðli og Amar Richardsson vann 4-2
sigur á Said Karim frá Frakklandi í
C-riðlinum. Þá vann Eðvarð Matthí-
asson ömggan sigur á Raymond Van
Herpen í D-riðh. Ath Már Bjamason
tapaði nokkuð óvænt fyrir Alain De
Cock frá Belgíu. Ath Már er eini ís-
lendingurinn sem á möguleika á aö
komast í 8 hða úrshtin en tveir sph-
arar komast upp úr hverjum riðh.
Ath Már er í efsta sæti ásamt þremur
öðmm spilurum og á eftir tvo inn-
byrðisleiki við efstu menn, Bretana
Gary Hih og Lee Grant.
Hinir íslensku spharamir töpuðu
allir sínum leikjum. Hahdór Sverris-
son tapaði, 0-4, fyrir John Read,
Ragnar Ómarsson steinlá fyrir Wim
Andries með sömu stigatölu. Kristj-
án Finnsson tapaði, 04, fyrir Bretan-
um Sean Lynskey en Jóhannes B.
Jóhannsson náði einum vinningi af
Gary Hhl en tapaði að lokum, 1-4.
Þess má geta að Hih þessi setti met-
skor gegn Gunnari Ingasyni í fyrra-
dag og setti þá 147 stig sem er ótrúleg-
ur árangur.
Mótið heldur áfram á morgun og
stendur yfir fram á laugardag.
-RR
• Bretinn Gary Hill setti metskor í
Hafnarfiröi.
• Björn Rafnsson sendir knöttinn framhjá Guðmundi Baldurssyni, markveröi Fylkismanna, og kemur KR-ingum 2-0 yfir
gegn nýliðunum. En það dugði ekki til sigurs þvi að Árbæingar náðu að jafna. DV-mynd Brynjar Gauti
________________________________fþróttir
Ásgeir Sigurvinsson væntanlega með gegn Austurríki:
„Hef mikla trú á
því að ég komi“
- meiðslin eru varla til staðar lengur, segir Ásgeir
„Ég hef mikla trú á því að ég komi
í landsleikinn gegn Austurríkis-
mönnum 14. júní. Forráðamenn
Stuttgart vita af þessum leik og þeir
standa ekki í vegi fyrir því að ég fari
heim í leikinn. Meiðslin, sem hijáð
hafa mig undanfamar vikur, eru
varla th staðar lengur. Ég lagaðist
mikið í fríinu sem kom í síðustu
viku,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson,
leikmaður með Stuttgart, í samtali
við DV í gær.
Ásgeir lék með Stuttgart um helg-
ina gegn Leverkusen og átti þokka-
legan leik. Tveimur umferðum er
ólokið í vestur-þýsku úrvalsdeildinni
og hefur Stuttgart góöa möguleika á
að trggja sér sæti í UEFA-keppninni.
Ef Stuttgart vinnur báða þá leiki er
sá möguleiki fyrir hendi. Um næstu
„Ég er ahur að koma th og er hóf-
lega bjartsýnn á að geta leikið gegn
FH-ingum á fimmtudagskvöldið,“
sagði Ragnar Margeirsson, landshðs-
maður úr Fram, í samtali við DV í
gærkvöldi.
Ragnar meiddist á æfingu fyrir leik
Fram við KA fyrir skömmu og missti
af honum, sem og leik Fram og ÍBK
á sunnudágskvöldið. Th stóð að hann
færi í meðferö th læknis í Múnchen
á morgun, þess hins sama og hefur
stundað Arnór Guðjohnsen og fleiri
helgi leikur Stuttgart gegn Mönchen-
gladbach á heimavelh og síðasti leik-
ur hðsins verður á útivelli gegn
Bremen 17. júní.
Ásgeir sagði ennfremur að KSÍ
væri búið að senda bréf til Stuttgart,
þar sem þess væri óskað að hann
léki fyrir Islands hönd gegn Austur-
ríki í Reykjavík 14. júní. KSÍ hefur
reyndar sent bréf sama eðhs th félaga
í Evrópu sem hafa íslenska atvinnu-
menn á sínum snærum.
Það eru þeir Sigurður Grétarsson,
Luzem, og Guömundur Torfason,
Rapid Vín. Arnór Guðjohnsen getur
ekki komið í leikinn vegna meiðsla.
Gunnar Gíslason og Ágúst Már Jóns-
son hjá Hácken koma örugglega í
leikinn og það sama er að segja um
Ólaf Þórðarson hjá Brann.
íslenska atvinnumenn í knattspyrnu
með góðum árangri.
Hætti við að fara
í meðferð í Munchen
„Ég var búinn að fá tíma hjá hon-
um á miðvikudag en hætti við að
fara þar sem mér fannst ég vera á
góðum batavegi. Þetta er tognun í
vöðvafestingum neðst í lærinu og á
að geta lagast á fáum dögum,“ sagði
Ragnar Margeirsson.
-VS
Úrslitin í Moskvu
stórkostleg
„Úrshtin í leiknum gegn Sovét-
mönnum í Moskvu voru stórkostleg.
Úrslitin auka möguleika okkar á að
hreppa annað sætið í riðhnum. Það
er samt óvarlegt að vera með of mikla
bjartsýni í þessu sambandi, það kann
ekki góðri lukku að stýra. Það hefur
oft orðið okkur að falli að vera með
stór plön þegar vel gengur. Leikur-
inn gegn Austurríki verður geysilega
erfiður og við verðum aö leika af
skynsemi. Það skiptir miklu að veðr-
ið verði gott á leikdag og áhorfendur
fjölmenni á leikinn. Ef þessir hlutir
ganga upp gæti þetta orðið virkilega
gaman,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson í
samtali við DV.
-JKS
Sigurður
með besta
kast í ár
Sigurður Matthiasson, UMSE,
hlaut silfurverðlaun á háskóla-
meistararaótinu í Bricham Young
í Utah í Bandaríkjunum á dögun-
ura. Sigurður kastaði 77,70 raetra
sem er besti árangur íslendings í
greininni í ár.
Patrick Bodin frá Svíþjóð kast-
aði 77,82 metra og sigraði í grein-
inni. Patrick þessi er æfingafélagi
Einars Vhhjálmssonar í Austin í
Texas og hefur kastað lengst 8228
metra á þessu ári en það er einn
besti árangurinn í heiminum í ár.
ól. Unnst.
Ragnar er á
góðum batavegi
- leikur líklega gegn FH á fimmtudag
Yfirburðir
hjá ÚKari
tilfar Jónsson, GK, vann mikinn yfir-
burðasigur á 4. stigamóti Golfsambands
Islands sem fram fór um helgina. Mótið
fór fram í Grafarholti og lék Úlfar á 228
höggum. í öðru sæti varð Sigurður Péturs-
son, GR, á 233 höggum og Hannes Eyvinds-
son, GR, varö þriðji á 233 höggum.
Staöan í stigakeppninni er nú þannig að
Ragnar Ólafsson, GR, er enn efstur með
216 stig. í öðru sæti er Siguröur Sigurös-
son, GS, meö 197 stig og þriöji er Hannes
Eyvindsson, GR, með 197 stig.
• Um helgina var einnig á dagskrá
stigamót hjá konum. Þar sigraði Þórdís
Geirsdóttir, GK, á 253 höggum. Önnur
varö Karen Sævarsdóttir, GS, á 264 högg*
um og Alda Siguröardóttir, GK, varð
þriðja á 264 höggum. Staðan í stigakeppn-
inni er þannig aö efst er Þórdís Geirs-
dóttir meö 67 stig, Karen Sævarsdóttir er
önnur með 58 stig og Alda Sigurðardóttir
þriðja með 42 stig.
Aðalgeir og Helgi unnu
Helgi Þórisson, GS, varð sigurvegari í
keppni án forgjafar á opnu unglingamóti
hjá Goliklúbbi Suöurnesja um helgina.
Helgi lék á 79 höggum. í keppni með för-
gjöf sigraði Aðalgeir Jónsson, GS, á 68
höggum nettó.
• Þess má aö lokum geta að 14 ára kylf-
ingur, Ríkharður Ibsen, GS, vann það
frækilegaa afrek á dögunum aö fara holu
í höggi á 8. braut vallarins í Leim.
-SK
&**£l'***
LUKKUPOTTUR VERALDAR, DV 0G BYLGJUNNAR
LUKKUSDILL NR. 6
VINNINGUR: TVEGGJA VIKNA DVÖL Á CASTILLO DE VIGIA
Á COSTA DEL SOL MEÐ FERÐAMIÐSTÖÐINNI VERÖLD
Hlustaðu á Bylgjuna í dag, FERÐALÖGIN koma í þessari röð:
1. ÉG SÁ ÞIG SNEMMA DAGS - RÍÓ TRÍÓ
2. CHERISH - MADONNA
3. VÍMAN - MANNAKORN
Ég heyrði ferðalögin leikin í ofangreindri röð
áBylgjunni, FM 98,9 í dag kl. _______________
Nafn:_______________________________________________
Heimilisfang: _______________________________ Sími:
Vinsamlega látið seðilinn minn í Lukkupott-
inn 1989 svo ég fái tækifæri til að vinna tveggja
vikna dvöl á Castillo de Vigia á Costa del
Sol að verðmæti kr. 65.550,- í Veraldarferð
þann 19. september næstkomandi.
FERflAMIflSTÖfllN
Póstleggðu seðilinn strax í dag.
Merktu umslagið:
LUKKUPOTTURÍNN 1989
SN0RRABRAUT54
105 REYKJAVÍK