Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Blaðsíða 13
13 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1989. Uppáhaldsmatur á suimudegi sjávarréttasúpa - að hætti Sveins Einarssonar dagskrárstjóra „Þaö veröur aö segjast eins og er aö mínar uppskriftir, sem eru nú reyndar ekkert ógnar margar, eru svolítiö tilviljanakenndar og óvísindalegar enda fæstar úr bók- um,“ sagöi Sveinn Einarsson, dag- skrárstjóri Ríkissjónvarpsins, er viö báöum hann um uppáhalds- uppskrift. Sveinn lét þó tilleiðast aö gefa okkur eina góöa en blaðinu var bent á hann sem sérlega góðan kokk. Sveinn vildi sem minnst út á það gefa en sagði aö sér þætti gott að borða góðan mat. „Ég er nú ekki mikill kokkur og mistekst stundum,“ sagöi hann, „en hins vegar kom mér á óvart hve gaman er aö fást við matseld þegar ég loksins fékkst til þess aö reyna eitthvaö fyrir mér í þeim efn- um. Héma koma sem sagt ábendingar um hvernig setja má saman fiski- súpu. Ef viö værum með fínheit gætum viö kallaö hana Bouillaba- isse Provencale; annars er hún auðvitað íslenks í aöra ættina því hráefnið er allt íslenskt," sagöi Sveinn ennfremur. „í þessa súpu má velja allt eftir því hvað til er hveiju sinni. Ég nota steinbít, skötusel, smálúðu, ýsu, þorsk, ufsa, allt eftir því hvað ég næ í og galdurinn er að sjóða hverja tegund fyrir sig (konu minni finnst það of mikið pottastand). Fyrst er svo sett ólífuolía í pott og sneiddur hvítlaukur og látiö krauma; út í þetta koma svo af- hýddir tómatar. Ýmiss konar kryddi er bætt í, salti, heilum pip- arkornum, lárviöarblööum og ekki síst fennilkryddi (eða kálinu sjálfu ef þaö fæst). Síðan er fiskisoðinu bætt í. Stundum hef ég mikið við, sýð humarhala, hreinsa humarinn úr skehnni, myl hana Og sýð - af því kemur góður kraftur. Súpan er svo látin sjóða drjúga stund, 15-30 mínútur. Síðan er fiskinum bland- að í og síðast rækjum, hörpudiski og humri sem ekki má ofsjóða. Hörpudiskinn sýð ég áður frystan og læt suðuna rétt koma upp. Örlít- ill dreitih af ijóma krýnir þetta sköpunarverk. Þessi óformlega uppskrift verður þá einhvern veginn svona," sagði Sveinn. í súpuna fer 1-2 kg fiskur (t.d. skötuselur, stein- bítur) humarhalar hörpudiskur rækjur ólífuoha hvítlaukur tómatar fennilkál salt pipar rjómi hvítvín Hér 'er sannarlega á ferðinni lysti- leg súpa sem passar einmitt á góð- um dögum eins og verið hafa und- anfarið þegar flestir vilja leggja sér eitthvað létt og hressandi til munns. „Og það er nú það,“ sagði Sveinn Einarsson. Nú er bara að vona að sem flestir spreyti sig á súpunni. -ELA Sveinn Einarsson segist hafa uppgötvað hversu gaman sé að reyna fyrir sér i matseldinni. Hann býður les- endum upp á ijúffenga sjávarréttasúpu, tilvalda nú í góða veðrinu. DV-mynd JAK Virðuleg íslensk Utboð Styrking Djúpvegar, 1989 Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan- greint verk: Lengd vegarkafla 5,9 km. Bergskering, 1.200 m3, fylling 7.200 m3, burð- arlag 16.600 m3. Verki skal lokið 6. nóvember 1989. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á ísafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá óg með 3. júlí 1989. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 17. júlí 1989. Vegamálastjóri ______________________________________J VERÐLÆKKUN Vegna breytinga seljum við sýningar- innréttingar okkar með allt að 40% afslætti. ELDHÚS + BAÐ + SKÁPA. innréttinaar Æ2000 Síðumúla 32, sími 680624 Opið virka dága 9-12.30 og 13.30-18. Opið um helgina laugard. 11-14, sunnud. 13-15. Tjarnargötu 17 - 230 Keflavík, s. 92-12061. Fljót og góð afgreiðsla. Mælum og setjum upp ef óskað er.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.