Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1989. Jóhann Karl Spánarkonungur: Ábyrgðarfullur en látlaus - spænsku konungshjónin koma til íslands á miðvikudag Flutti tíu ára til Spánar Jóhann Karl er fæddur 5. janúar 1938 í Róm. Fyrstu árin bjó fjölskyld- an í Róm. Árið 1942 flutti fjölskyldan til Sviss þar sem prinsinn hóf skóla- göngu sína. Jóhann Karl var tíu ára gamall þegar hann kom í fyrsta skipti til Spánar. Faöir hans ákvað að senda hann þangað til að prinsinn missti ekki samband við fósturjörð og þegna. Jóhann Karl var í fóstri hjá frændfólki sínu. Hann hélt áfram skólagöngu sinni í Madrid en frá ára- mótum 1950 bjó hann í Miramar höll í San Sebastian. Þar gekk hann í skóla í tvö ár en flutti síðan aftur til Madrid. Áður en langt var um hðið var prinsinn fluttur aftur til San Se- bastian þar sem hann hélt áfram námi sínu. Jóhann Karl gegndi herþjónustu og komst fljótlega upp metorðastig- ann. Árið 1960 sneri hann sér að há- skólanámi í Madrid. Hann las sögu Spánar, bókmenntir, heimspeki og lög með meiru. Jóhann Karl er vel menntaður en auk námsins gerði hann sér far um að kynnast högum fólks í sínu eigin landi og ferðaðist vítt og breitt um Spán samtímis nám- inu. Tilnefndur konungur 1969 22. júh 1969 tilnefndi Franco Jó- hann Karl af Bourbon væntanlegan konung Spánar. Daginn eftir sór prinsinn, þá 31 árs, Franco hollustu- eið sem væntanlegur eftirmaður hans. Konungssinnar á Spáni töldu þó að konungstignin ætti að falla í skaut Juans, fóður Jóhanns Karls, en annar hópur taldi Hugo Carlos, systkinabam við Jóhann Karl, rétt- borinn til konungs. Franco hafði hins vegar lengi gefið til kynna að hann teldi Jóhann Karl heppilegasta kon- ungsefnið. Jóhann Karl var dáður af þjóð sinni en þó var gerð tílraun th valdaráns í febrúar 1987. Adolfo Suarez forsæt- isráðherra hafði þá nýsagt af sér og stjómarkreppa hafði verið í landinu. Hópur þjóðvarðhða undir forystu Antonio Tejera hertók þingið, Cort- es, í Madrid. Þingmenn og nýkjörinn forsætisráðherra var hafður í haldi heha nótt en valdaránsthraunin mis- tókst. Er Jóhann Karl sagður hafa gengið rösklega th verks og með festu og lagni komið á lögum og reglu á nýjan leik. Treysti hann stöðu sína meira en nokkm sinni eftir það. Valdatilrauninni á Spáni var sjón- varpað frá byrjun th enda og gat al- menningur í landinu fylgst með hverri hreyfingu innan veggja þing- hússins. Sjónvarpsmenn höfðu verið í þinginu th að senda beint út frá umræðum sem þar áttu að vera. íþróttaunnandi Jóhann Karl Spánarkonungur hef- ur mjög gott orð á sér. Hann er sagð- ur ábyrgðarmikih en látlaus. Hann er mjög hávaxinn, 192 sm á hæð, og um áttatíu khó. Jóhann Karl er mik- hl íþróttamaður og stundar reglulega margar íþróttagreinar. Hann er mik- hl skíðamaður og fer konungsfjöl- skyldan oft th Sviss á skíði. Auk þess þykir hann góður siglingamaður. Konungurinn er mikill málamað- ur. Hann talar reiprennandi fyrir utan spænskuna, frönsku, ensku, portúgölsku og ítölsku. Þá getur hann vel bjargað sér á þýsku og grísku. Konungurinn er sagður sýna mikla háttprýði í samskiptum við fólk og þegar haim gengur um götur, hvort sem það er heima fyrir eða í öðrum löndum, tekur hann gjaman í hendur vegfarenda. Hann er vin- gjamlegur og sýnir áhuga á því sem fyrir augu ber hvar sem er. Hlustar á klassíska tónlist íþróttimar em þó aðaláhugamálið. Konungur fer oft í reiðtúra, á veiðar, syndir og jafnvel fer í flug en hann hefur flugmannsréttindi. Konungur- inn hefur keppt í sighngum og hefur hlotið marga vinninga. Á meðan hann var ennþá prins gerði hann morgunleikfimi hvem dag og stund- aði bæði júdó og karate. Hann reykir vindla en drekkur ekki áfengi. Þá hefur konungur mikinn áhuga á ljós- myndun og les mikið, sérstaklega sögulegar bækur. Konungurinn hefur áhuga á klass- ískri tónUst, t.d. eftir Beethoven og Tchaikovsky. Einnig segist hann hlusta á nútímatónUst. Konungs- hjónin eyða talsverðum tíma fyrir framan sjónvarp. Kvæntist prinsessu frá Grikklandi Þaö var 14. maí 1962 sem Jóhann Karl gekk að eiga Soffiu prinsessu, dóttur Pauls fyrrum Grikkjakon- ungs og Fredericku drottningar. Soffia fæddist 2. nóvember 1938. Ætt- metra fyrir utan Madrid. Höllin var byggð árið 1636 af konunglegum arkitekt og þjónaði þá sem skjól fyrir konunglega veiðimenn. HöUin er ákaflega glæsileg og ekki síður um- hverfi hennar. í hölUnni voru oft frumsýningar, t.d. á óperettum, en þar innanhúss var leikhús á sautj- ándu öld. HölUn, sem her nafnið The Palacio de La Zarzuela, er opinber bústaður konungshjónanna. Þau eiga einnig höU í Palma á Mallorca þar sem þau dveljast oft að sumrinu. Vigdís Finnbogadóttir fór í opin- bera heimsókn til Spánar í septemb- er 1985. Jóhann Karl sýndi Vigdísi m.a. merkustu Ustaverk spænsku þjóðarinnar í Prado safninu þar sem má finna mörg verk Goya. Þá skoð- aði forsetinn Ustiðnaðarstofnunina í Madrid og E1 Escorial klausturhöll- ina. Vigdís þáði kvöldverð spænsku konungshjónanna í höll þeirra en sjálf bjó hún í E1 Pardo hölhnni sem áður var bústaður Francos einræðis- herra. Flugvél spænsku konungshjón- anna lendir hér á landi kl. 11 á mið- vikudagsmorgun. Halda þau beint að Hótel Sögu þar sem gestirnir búa meðan á dvöl þeirra stendur. Kon- ungshjónin snæða hádegisverð með forseta íslands aö Bessastöðum. Síð- degis verður fundur utanríkisráð- herra Spánar og íslands í Ráðherra- bústaðnum. Um kvöldið varður boð forseta íslands til heiðurs konungs- hjónunum í Súlnasal Hótel Sögu. Á fimmtudagsmorgni verður flogið tíl Vestmannaeyja þar sem'farið verður í Hraðfrystistöð Vestmanna- eyja og þaðan verður haldið niður aö höfn. Skoðunarferð veröur um “Heimaey áður en haldið verður á ný til Reykjavíkur. Hádegisverðarboð verður á Kjarvalsstöðum í boði borg- arstjóra og skoðuð verður sýning á verkum Jóhannesar Kjarval. Þá verður Stofnun Árna Magnússonar heimsótt. Spænsku konungshjónin taka á móti þegnum sínum búsettum hér á landi síðdegis á Hótel Sögu en um kvöldið verða þau með boð til heiðurs forseta íslands á Hótel Loft- leiðum. Að morgni föstudags verður ekið til Nesjavalla þar sem hitaveitu- mannvirki verða skoöuð. Þaðan verður haldið til Þingvalla þar sem þjóðgarðsvörður segir frá sögu stað- arins. Forsætisráðherrahjónin bjóða til hádegisverðar í Valhöll en brott- för konungshjónanna frá Keflavík- urflugvelli er ráðgerð kl. 16. Með spænsku konungshjónunum kemur fjölmennt fylgdarlið og á sjötta tug spænskra blaöamanna. -ELA Jóhann Karl, konungur Spánar, og eiginkona hans, Soffia drottning, eru væntanleg í opinbera heimsókn til íslands þann 5. júlí nk. Forseti ís- lands, frú Vigdís Finnbogadóttir, fór í opinbera heimsókn til Spánar árið 1985 og endurgeldur hún nú heim- boðið. Jóhann Karl er af gamalli konungs- ætt á Spáni en hann tók viö völdum af Franco einræðisherra árið 1975 er sá síðamefndi var nýlátinn. Franco valdi sjálfur Jóhann Karl sem eftir- mann sinn og gekk um leið framhjá foður Jóhanns Karls, Juan. Francisco Franco var einræðis- herra Spánar í fjörutíu ár. Við lát hans var sögulegt tímabil Spánar á enda. Spánn varð aftur að konungs- ríki er Jóhann Karl, sonarsonur síð- asta konungs Spánar, var krýndur konungur með mikilli viðhöfn. Fran- co taldi að Jóhann Karl myndi við- halda fasísku einræði á Spáni. Spænsku konungshjónin, Jóhann Karl og Soffía, veifa til mannfjöldans eftir að Jóhann Karl hafði tekið við sem konungur eftir lát Francos einræðisherr- a árið 1975. Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, við komuna til Spánar í september 1985 í fylgd með Jóhanni Karli Spánarkonungi. Vigdís heilsar upp á spænsku konungsfjölskylduna, Soffíu drottningu og Christinu prinsessu. Það er konungurinn sem kynnir þær. artré hennar her marga konunga víða um Evrópu. Bróðir hennar er Konstantín, fyrrum konungur Grikklands. Soffia er elst af þremur bræðrum og einni systur. Brúðkaup þeirra Jóhanns Karls og Soffiu fór fram í Aþenu og meira en hálf milljón manna flykktist út á götur borgarinnar til að heiðra brúð- hjónin. Til brúðkaupsins var boðið 137 kongum og drottningum frá ólík- um löndum. Soffia og Jóhann Karl eiga þrjú böm. Elena er elst, fædd 20. desemb- er 1963, Christina fæddist 21. júní 1964 og Féhpe fæddist 30. janúar 1968. Faðir hans hefur gert einkasoninn að ríkiserfingja. Þegar Fehpe var skírður vom foreldrar Jóhanns Karls guðforeldrar en þau komu til Spánar af því tilefni eftir 31 árs fjar- vem. Líknarstörf áhugamál drottning- ar Soffía heldur nánum vinskap við margt kóngafólk. Til dæmis em þær góðar vinkonur, Soffía og Sylvia Svíadrottning. Þær hittast reglulega en báðar hafa þær líknarstörf að að- aláhugamáli. Geta má þess til gam- Soffía Spánardrottning og Silvía Svíadrottning eru miklar vinkonur. ans að Soffía hefur þann siö að ganga aldrei með hatt á höfði. Soffía og Jóhann Karl búa í glæsi- legri höll sem stendur um fimm kíló-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.