Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1989. Bítur sök sekan? Fólk varö þrumulostið vfir sögunni um hálsbrotna sjúklinginn, er dó á Borgarspítalanum en fékk áður á sig alkóhólistastimpil og ranga sjúkdómsgreiningu. Þó stunduðu hann, auk aðstoðarlækna, fjöl- margir sérfræðingar spítalans. Þetta minnir á mjólkurduftsmálið Pressan skýrði 30. september sl. frá því að „mistök“ í meðferð þurr- mjólkur á fæðingardeild Landspít- alans leiddu til örkumla og jafnvel dauða þriggja bama. Landlæknir sagði: „Það er alveg augljóst að það var ekki farið að settum reglum.“ Þessi orð merkja aö „mistökin" vora ekki óviðráöanleg, heldur virti starfsfólkið ekki öryggisregl- ur. Samt var enginn látinn sæta ábyrgð. Læknaráð Borgarspítalans álitur alls ekki að um mistök lækna eða annars starfsfólks sé að ræða að þessu sinni. En er ráðið marktækt? Lítum á: Ekki er um ávirðingar eins ákveðins starfsmanns að ræða. Sjúklingurinn lá á tveimur deildum Borgarspítalans og fjöl- margir sérfræðingar hans eru flæktir í málið. Spítalinn rannsak- ar þannig fyrir luktum dyram meint brot sjálfs sín sem stofnun- ar. Það þarf því engan aö undra þó sérfræðingarair sýkni sjálfa sig og birti ekki niðurstöðumar. Þaö er nánast mannlegt. Þessir skipa stjóm læknaráðs Borgarspítalans: Öm Smári Amaldsson geislagrein- ir, formaður, Gizur Gottskálksson, lyf- og hjartalæknir, varaformaður, Guðný Daníelsdóttir, orku- og end- urhæfingarlæknir, Stefán Skafta- son, háls-, nef- og eymálæknir, Sverrir Haraldsson þvagfæra- skurðlæknir, Bjami Hannesson taugaskurðlæknir, Hannes Péturs- son geðlæknir, Gunnar Þ. Jónsson bæklunarskurölæknir, Magnús Jónasson heimilislæknir og Har- aldur Briem smitsjúkdómalæknir. En hvað þá um athugun landlæknis? Hann segir í DV 10. júni:.að fundur hefði verið haldinn með viðkomandi læknum og málið rætt við þá til að komast að því hvað hefði farið úrskeiðis. Við það verð- ur látið sitja og málinu þar með lokið.“ í samráði við aðstandendur. Samt játar landlæknir að um „læknamistök“ sé að ræða. Sam- kvæmt lögum ber honum að hafa eftirlit með starfsemi lækna og sjúkrastofnana. Ef hálfur Borgar- spítalinn er flæktur í dularfullt mistakamál ætti því embættið að láta það til sín taka í nafni sam- félagsins, hvað sem einstökum aö- standanda líður. Hvað fór úrskeið- is? Og af hveiju ber embætti land- læknis og spítalanum ekki saman? „Mistök,“ segir landlæknir í DV10. júní, „alls ekki mistök," segir yfir- læknir Borgarspítalans, Öm Smári Amaldsson, í DV 9. júní. Ólík sjónarmið Og hann telur í DV 9. júní þetta tilvik ósköp venjulegt og ekki rætt af læknum spítalans á „neinn sér- stakan hátt“. Aðstoðarlandlæknir er á öðru máli. Hann segir atburðinn „eins- dæmi“ og opnaöi málið í Lækna- blaðinu til að þaö gæti orðiö lækn- um til umræðna og umhugsunar. Og hann hlýtur að hafa vitað að þá kæmust fjölmiðlar í það. í Morg- unblaðinu 9. júní segir hann að ef ekki sé hægt að tala við lækna í eigin fréttabréfi, án þess að til æs- inga komi, þá „væri verið að ýta undir það sem að hans mati hefði verið tilhneigingin; aö sópa öllum viðkvæmum málum undir teppið". Sigurður Þór Guðjónsson Það er sem aðstoðarlækni hafi hreinlega blöskrað og líta beri á grein hans sem stranga áminningu og viðvörun embættisins til lækna um það aö takmörk séu fyrir öllu. Hann minnir m.a.s. á vaxandi að- hald sem almenningur og fjölmiðl- ar veiti læknum. Þetta sýnist því jafnvel meðvituð tilraun, þó ekki gangi hún langt, til að létta ofurlít- ið leynd og pukri af því sem miður fer í heilbrigðiskerfinu. Það er engu líkara en komi fram átök tveggja andstæðra læknafylkinga. Þeirra er kjósa opnari umræðu, faglega og jafnvel meðal almennings, og hinna sem vilja þögn og aftur þögn. Öm Smári varð greinilega æva- reiður út í aðstoðarlandlækni. Framkvæmdastjóri Borgarspítal- ans, Jóhannes Pálmason, er jafnvel kaþólskari en páfinn og talaði um trúnaðarbrot. Það er nokkuð kald- hæðnisleg umhyggja fyrir sjúklingi sem dó vegna fattleysis hvers sér- fræðingisins á eftir öðmm. Betur að þeir hefðu haldiö vöku sinni eins og aðstoðarlandlæknir segir næst- um beinum orðum í Tímanum 9. júní. Trúnaðarleyndin er auðvitað til vegna hagsmuna sjúklings en ekki læknis. Og þá færist skörin upp í bekkinn þegar hún er greini- lega misnotuð til aö heimta ffið um óþægileg mistakamál, „sópa þeim undir teppið". Ef ræða á meðal lækna, hvað þá almennings, „gæðiheilbrigðisþjón- ustunnar" er óhjákvæmilegt að stundum sé dæmi tekið af einstök- rnn málúm, enda sé nafnleyndar gætt. Það ætti ekki frekar að skaða sjúklinginn en þær óteljandi sjúkrasögur sem læknar segja í sín- um eigin litteratúr. Hvað um ábyrgðina? Aðstoðarlandlæknir vék að mik- ilvægu atriði í Tímanum: Það verði, til þess að koma í veg fyrir svona mistök, að vera „alveg ljóst hver ber ábyrgð á sjúklingnum á meðan hann er innan stofnunarinnar. Að það sé einhver einn læknir sem ber ábyrgð í læknisfræðilegum þætti meðferðarinnar eftir því hvar sjúklingurinn liggur." í lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 59/1983 segir í grein 29:2. „Á svæðis- og deildarsjúkrahúsum skulu vera yfirlæknar sérdeilda, sem bera ábyrgð á lækningum sem þar fara fram. Yfirlæknir hefur eft- irlit með starfsemi deildarinn- ar...“ Sjúklingurinn lá á tveimur deild- um eftir frásögninni í Fréttabréfi lækna að dæma, slysadeild og ein- hverri annarri deild, sem ekki hef- ur verið nefnd. Það era því yfir- læknar þessara deilda sem ábyrgð- ina bera samkvæmt lögunum. Það ætti ekki að vefjast fyrir neinum. En vefjist ábyrgðin samt sem áður fyrir einhveijum, af því að sjúkl- ingurinn lá ekki allan tímann á sömu deild, leysir 29.3 grein heil- brigðislaganna úr þeirri flækju: „Formaður læknaráðs stofnunar- innar skal vera yfirlæknir hennar allrar..Þama kemur þá maður- inn sem hlýtur að vera lagalega ábyrgur fyrir mistökum sem ómögulegt er að rekja til sérstakra deilda. Formaður læknaráðs Borgarspítal- ans og því yfirlæknir allrar stofnun- arinnar er öm Smári Arnaldsson. En það hlýtur að ofbjóða réttlæt- iskennd alþýðu að læknum sé aldr- ei stefnt fyrir lög og dóm vegna meintra pnstaka, jafnvel þó þau kosti mannslíf. Og heilu paragraf- arnir í læknalögum era dauður bókstafur. Allar aðrar stéttir verða að gjalda ávirðinga sinna. Meira að segja forsetar Hæstaréttar. Og þeir sem dirfast að vekja athygh á þessari óhæfu mega búast við að fá á sig stimpil paranoíu og mein- loku! Hvað gerir heilbrigðisráðherra? í DV 9. júní segir Guðmundur Bjamason að sér virðist að „þama hafi orðið alvarleg mistök.“ En ráð- herra býst ekki viö að ráðuneytið hefði forgöngu í einstökum málum. Hvers vegna ekki? Á ekki ráðherra að gæta hagsmuna almennings? Koma ekki sjúklingar þúsundum saman á Borgarspítalann? Segir ekki landlæknir að um „mistök lækna“ sé að ræða? Eiga því ekki viðskiptavinir Borgarspítalans heimtingu á að ráðherra fyrirskipi opinbera rannsókn á þessu tiltekna atviki og starfsháttum stofnunar- innar í heild? Og væri það ekki þinn sómi, Guð- mundur minn Bjamason, að verða fyrsti heilbrigðisráðherra á íslandi er þyrði að bjóða læknaveldinu birginn? Eða ætlarðu að láta þetta „einsdæmi“ falla í þagnar- gleymsku líkt og „einsdæmið“ með þurrmjólkina? Samkvænit lögmál- inu um spillingu valdsins verður þá skammt að bíða hins þriðja „einsdæmis". Og þess langversta sem mun gera þau fyrri að hreint bamalegum smámunum. Sigurður Þór Guðjónsson Finnur þú fímm breytingar? 9 Sem forstjóri fyrirtækisins á ég heimtingu á að vita hvaða lyf það er sem þú þarft aö taka inn. Nafn:........ Heimilisfang: Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þeg- ar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fímm atriði skaltu merkja við þau með krossi á hægri myndinni og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurveg- ara. 1: AIWA vasadiskó með útvarpi að verðmæti kr. 5.880,- 2: AIWA vasaútvarp að verðmæti kr. 4.050,- yerðalaunin koma frá Radióbæ, Ármúla 38, Reykjavík. - Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 9 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík Sigurvegarar fyrir sjöundu getraun reyndust vera: 1) Svanhildur Pálma- dóttir, Brekkustig 31E, 260 Njarðvík. 2) Anna Pálína Árna- dóttir, Heiðarholti 12, 230 Keflavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.