Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Blaðsíða 24
24
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1989.
MYNDARMÓDEL
Haldin verða námskeið fyrir alla þá sem vilja læra
að myndast vel. Farið verður í öll smáatriði sem tengj-
ast tískuljósmyndun. Hver og einn verður myndaður
og fær tvær stækkaðar myndir í lok námskeiðsins.
Leiðbeinendur verða atvinnuljósmyndari, förðunar-
dama og fyrirsæta. Notaðar verða Christian Dior
snyrtivörur.
Upplýsingar og innritun í síma 22143 milli kl. 6
og 9 á kvöldln.
VARNARLIÐIÐ
SUMARSTÖRF
Varnarliðið óskar §ð ráða eftirtalda iðnaðarmenn til
sumarafleysinga: Trésmiði, bifvélavirkja, bifreiða-
smiði, pípulagningamenn og rafvirkja.
Um er að ræða mismunandi margar stöður í hverri
starfsgrein. Ráðning er í flestum tilfellum til seinni
hluta septembermánaðar en nokkrir möguleikar á
áframhaldandi ráðningu. Krafist er réttinda í viðkom-
andi starfsgrein en ráðning á aðstoðarmönnum með
rétta starfsreynslu kemur til greina.
Hafið samband strax við varnarmálaskrifstofu, ráðn-
ingadeild, Brekkustíg 39, Njarðvík. Sími 92-11973.
Það var mikiö að gerast þegar þyrlan lenti því sækja átti litia „slasaða" stúlku. Hjálparsveit og lögregla voru til
staðar og sömuleiðis kvikmyndagerðarmenn.
Sjónvarpsmyndin Steinbam í vinnslu:
Útboð
Efnisvinnsla á Vesturlandi 1989
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum
í ofangreint verk.
Heildarmagn 27.100 m3. Vinnslustað-
ir eru sex.
Verki skal lokið 15. september 1989.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vega-
gerð ríkisins í Borgarnesi og í Reykja-
vík (aðalgjaldkera) frá og með 4. júlí
1989.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum
fyrir kl. 14.00 þann 17. júlí 1989.
Vegamálastjóri
Alvarlegt
slys við
Reykjanesvita
Æ
m
Menntamálaráðuneytið
Lausar stöður
við framhaldsskóla
Að Menntaskólanum á Akureyri vantar kenn-
ara í íslensku og stærðfræði.
Við Flensborgarskóla í Hafnarfirði er laus til
umsóknar staða aðstoðarskólameistara og
2/3 staða í íþróttum.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist menntamálaráðuneyt-
inu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 12.
júní nk.
Nám á framhaldsskólastigi skólaárið
1989-90
Á vegum menntamálaráðuneytisins er fyrir-
huguð kennsla á framhaldsskólastigi fyrir
nemendur sem hafa þörf fyrir sérkennslu.
Námið fer aðallega fram í formi námskeiða
sem haldin verða á ýmsum stöðum i Reykja-
vík og Reykjanesumdæmi.
Helstu kennslugreinar eru:
Heimilisfræði, lestur, leikræn tjáning, líkams-
þjálfun, mál og tjáning, mynd og hand-
mennt, samfélagsfræði, skrift, stærðfræði,
tónlist.
Upplýsingar um fyrirkomulag námsins verða
veittar í framhaldsskóladeild menntamála-
ráðuneytisins kl. 11.00-19.00 3. og 4. júlí
nk. í síma 26866.
Menntamálaráöuneytiö
- þyrla Landhelgisgæslunnar náöi í átta ára slasað bam
Undir venjulegum kringumstæð-
um er Reykjanesviti og umhverfi
hans rólegur og heillandi staður sem
ungt fólk sækir gjarnan heim á ró-
mantískum kvöldum. Þeir gestir sem
lagt hafa leið sína þangað á undan-
fomum vikum hafa hins vegar mætt
óvenjulegri sjón. Á staðnum hefur
verið byggt upp gamalt „steinhús"
og þar úir nú og grúir af kvikmynda-
gerðarfólki og leikurum sem vinnur
að gerð sjónvarpsmyndarinnar
Steinbam en handritið hlaut verð-
laun í samkeppni sem Sjónvarpið
efndi til árið 1987.
Stórt verkefni
Steinbarn er stærsta verkefnið sem
Ríkissjónvarpið ræðst í á þessu ári
en áætlað er að myndin verði tilbúin
til sýningar um næstu jól. Um miðja
vikuna var verið að taka upp lokaat-
riði myndarinnar en í því kemur
þyrla Landhelgisgæslunnar og slysa-
varnadeildin Þorbjöm frá Grindavík
allmikið við sögu. Það var því mikið
um að vera á þessum annars kyrrl-
áta stað og rólegheitunum .ekki fyrir
að fara.
Þyrlan þurfti alloft aö taka sig á
loft og lenda með tilheyrandi hávaða
og moldaustri yfir tæknihð myndar-
innar. Aðrir reyndu að hlaupa í skjól
en kvikmyndatökumaður, aðstoðar-
maður og leikstjóri urðu að sætta sig
við að sitja nánast á lendingarstaðn-
um til að ná sem bestri mynd. Þolin-
mæðin þrautir vinnur allar varð ein-
hverjuni moldugum að orði.
Höfundar Steinbarns: Vilborg Einarsdóttir og Kristján Friðriksson fylgdust
með upptökunum.
Með mikla
leikhæfileika
Marín Magnúsdóttir er fram-