Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Blaðsíða 19
~ ■ • - ■' - -■ - -■ - • LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1989. 19 Fréttir Hvar lenda flestir stóru lottóvinningamir? Akureyringar happadijúgir Spenningur fyrir lottóútdrætti er sjáifsagt mismunandi á heimilum landsins á laugardagskvöldum. Ein- staka heimili kaupir einn miða á margra mánaða fresti á meðan önn- ur fjárfesta í miðum fyrir þúsundir og liggja síðan fyrir fram skjáinn þegar tölumar birtast. Hvað sem því líður má búast við að áhuginn sé minni áð sumri en vetri þegar fólk nýtur sín frekar úti í náttúrunni en fyrir framan sjónvarp. Hundruð manna hafa engu að síður orðið milljónamæringar á laugar- dagskvöldum og einhver bætist lik- lega í þann hóp í kvöld. íslensk getspá hefur útdeilt 364.816.516 millj- ónum frá upphafi og er þar engin smáupphæð á ferðinni. En skyldi þessi eftirsóknarverði fyrsti vinningur koma oftar upp á einum stað en öðrum. Helgarblaðið óskaði eftir því við íslenska getspá að fá yfirlit yfir þá staði þar sem fyrsti vinningur hefði komið upp. Það var auðsótt mál en listinn varð lengri en talið var. Á þessum lista kemur fram að á tveimur sölustöðum hefur fyrsti vinningur komið upp níu sinnum og eru þeir um leið með flesta fyrstu vinninga. Nætursalan á Akureyri er annar þessara sigursælu staða og ef aðrir lottósölustaðir þar í bæ eru taldir með má áætla að Akureyring- ar hafi þénað vel á lottóspileríi. Heppnir fyrir norðan. Skalli, Hraunbæ 102, er í sama sæti með niu vinninga. Árbæingar eru því jafnvinningsglaðir og Akur- eyringar. Hins vegar eru Norðfirð- ingar mun heppnari en tveir fyrr- nefndu staðirnir ef miðað er við mannljölda því í Shellskálanum á Neskaupstað hefur fyrsti vinningur komið sjö sinnum upp. Sælgætis- og Videóhöllin í Garðabæ hefur jafn- marga vinninga. Söluturninn Stiga- hlíð 45 í Reykjavík er happadrýgstur fyrir utan Árbæinn með átta fyrstu vinninga. Söluturninn Tuminn í Hafnarfirði |( Þú vflt ekki missa / -» þann stóra - / (. ekki ökuskirteiiiið heldur!, Hvert sumar er margt fólk í sumarleyfi tekið ölvað við stýrið. mÍUMFERÐAR WrAð og Friðarhöfn í Vestmannaeyjum hafa báðir sex fyrstu vinninga. Á Sauðárkróki hefur fimm sinnum komið upp fyrsti vinningur og er það allmikið í ekki stærri bæ. Nokkrir htlir staðir úti á landi hafa fengið fjóra fyrstu vinninga: Hveragerði, Garður, Akranes, Höfn í Homafirði og Selfoss. Á Siglufirði hefur þrisvar komið upp fyrsti vinningur. Þá má geta þess að tvisvar hafa komið upp fyrstu vinningar á Flúðum og í Vík auk annarra staða á landinu. Og loks hafa Grímseyingar einu sinni verið þeir heppnu. Það er greinilegt að sumir sölustað- ir eru happadrýgri en aðrir ef marka Innihurðir Fyrir þá sem sætta sig ekki við neitt nema það besta. Vandaðar hurðir úr eik, beyki, mahóní og hvítlakkaðar. innréttingar Skeifan 7 - Reykjavik - Simar 83913 31113 má hversu oft fyrsti vinningur kem- ur þar upp. Nokkrir sölustaðir í Reykjavík hafa sex vinninga en mannfiöldinn hér sunnanlands er líka ívið meiri. Þeir sem alltaf eru að reyna að fá þann stóra í lottóinu ættu kannski að kynna sér hvort sumir sölustaðir séu happadrýgri en aðrir en svo virðist vera. BREYTTUR PERSÓNUAFSLÁ TTUR FRÁ IJÚLÍ PERSÓNUAFSLÁTTUR VERÐUR 19.419 KR. Á MÁNUÐI SJÓMANNAAFSLÁTTUR VERÐUR 535 KR. Á DAG Þann 1. júlí nk. hækkar persónu- afsláttur í 19.419 kr. á mánuði og sjó- mannaafsláttur í 535 kr. á dag. Hækk- unin nemur8.84%. Hækkunin nær ekki til launa- greiðslna vegna júní og hefur ekki í för með sér að ný skattkort verði gefin út til þeirra sem þegar hafa fengið skattkort. Ekki skal breyta upphæð per- sónuafsláttar launamanns þegar um er að ræða: • Persónuafslátt samkvæmt náms- mannaskattkorti 1989. • Persónuafslátt samkvæmt skatt- korti með uppsöfnuðum persónu- afslætti 1989. Ónýttur uppsafnaður persónu- afsláttur sem myndast hefur á tímabil- inu 1. janúar til 30. júní 1989 og sem verður millifærður síðar hækkar ekki. Á sama hátt gildir hækkun sjó- mannaafsláttar ekki um millifærslu á uppsöfnuðum ónýttum sjómanna- afslætti sem myndast hefur á tímabil- inu 1. janúar til 30. júní 1989. Launagreiðendurmunið að hœkka persónuafsláft vegnajúiíiauna. RSK . RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.