Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Blaðsíða 44
56
LAUGARDAGUR 1. JTJLÍ 1989.
Smáauglýsingar - Sími 27022
BOar til sölu
Fréttir
Mazda 626 LX '83 til sölu, sjálfskipt,
dráttarkrókur. Góður bíll. Ath skipti
á Lödu Sport ’85-’87. Uppl. í síma
24868.
Honda Civic CRX ’89 til sölu, stór-.
skemmtilegur hvítur sportari, skipti á
ódýrari nýlegum japönskum bíl. Uppl.
í síma 75363.
Pontiac Trans-Am ’83 til sölu, toppbíll,
með öllum mögulegum aukabúnaði,
verð 850 þús., skipti möguleg á ódýr-
ari bíl. Uppl. í síma 37246.
'••'**> ituii: . (
Dodge Ram ’80 til sölu, ekinn 80.000
km, 27.000 km á nýrri Nissan dísilvél,
5 gíra, 4 drifa, sve&ipláss fyrir 5, vask-
ur, eldavél, topplúga, skoðaður ’89, til
greina koma skipti á minni jeppa,
sjálfsk., eða Benz 190 sjálfsk. Úppl. í
síma 91-44107.
Ýmislegt
Honda XR 600R 1987 til sölu, ekinn ca
300 km. Verð kr. 360 þús. Uppl. hjá
Bílatorgi, Nóatúni 2, sími 621033.
Honda Magna 700 ’86 til sölu, hjólið
er nýinnflutt, ekið 7000 mílur, sérlega
fallegt og vel méð farið. Skipti á bíl
möguleg. Uppl. í sima 91-623114.
Þjónusta
-m~
HESTALEIGA
STABLES - HORSE RENT
Hestaleigan í Reykjakoti ofan við
Hveragerði. Stuttar ferðir og dags-
ferðir. Opið kl. 10-19. Pantið tíma í
síma 98-34462.
Gröfuþjónusta, sími 985-25007.
Til leigu í öll verk Cat. 428 traktors-
grafa. Höfum einnig vörubíl. Leitið
tilboða. Kvöldsími 91-670260 og
641557.
Hafírðu
% smakkað vín
- láttu þér þá ALDREI
detta í hug
að keyra!
IUMFERÐAR
Iráð
Fáskrúösfl öröur:
BORGARNESI 21.-23. JÚU’89
Dagskrá:
Föstudagur 21. júlí
08.00 Fjórgangur unglinga
09.15 Fjórgangur fullorðinna
12.30 Matarhlé
13.00 Fjórgangur barna
14.15 Fimmgangur unglinga
15.00 Fimmgangur fullorðinna
19.00 150 m skeið, fyrri sprettur
Laugardagur 22. júlí
08.00 Hlýðniæfingar A
09.00 Hlýðniæfingar B
10.00 Tölt unglinga
11.30 Tölt barna
12.30 Matarhlé
13.00 Tölt fullorðinna
17.30 Gæðingaskeið
20.30 Dagskrárlok
Sunnudagur 23. júlí
09.00 Hindrunarstökk, forkeppni og
úrslit
10.00 Fimmgangur unglinga, úrslit
10.30 Fimmgangur fullorðinna, úrsl. B
11.00 Fimmgangur fullorðinna, úrsl. A
11.30 Fjórgangur barna, úrslit
12.00 Fjórgangur unglinga, úrslit
12.30 Matarhlé
13.00 Ávörp
13.30 Fjórgangur fullorðinna, úrslit B
14.00 Fjórgangur fullorðinna, úrslit A
14.30 150 m skeið, seinni sprettur
16.00 Tölt barna, úrslit
16.30 Tölt unglinga, úrslit
17.00 Tölt fullorðinna, úrslit B
17.30 Tölt fullorðinna, úrslit A
18.00 Verðlaunaafhending
19.00 Mótsslit
Dansleikur verður í Hótel Borgamesi
föstudags- og laugardagskvöld.
Skráning fer fram dagana 20. júní-10.
júlí í símum 93-71760, 93-71749 og
93-71530. Ath. það þarf enga lágmarks-
punkta til skráningar. Skráningar-
gjöld: 1.200 fyrsta skráning hjá full-
orðnum og síðan 500 næstu skráning-
ar. í unglingaflokki er greitt eitt gjald
kr. 900.1 barnaflokki eru engin gjöld.
Vel heppnuð M-hátíð
Ægir Kristinssan, DV, Fáskrúðsfirði:
M-hátíð á Fáskrúðsfirði 16.-18. júní
var fjölbreytt og skemmtileg. Hátíðin
var sett í Skrúð 16. júní með flutn-
ingi dagskrár er nefnd var Lög og
ljóð í flutningi Leikfélags- og Tónlist-
arfélags Fljótsdalshéraðs. Félagar úr
Sögufélagi Fáskrúðsflarðar fluttu
kafla úr sögu Fáskrúðsfjarðar.
Skrúðganga var frá ráðhúsi og á
skólavöll þar sem ýmislegt var til
skemmtunar. Ræðu dagsins flutti
Þröstur Sigurðsson sveitarstjóri. Um
kvöldið var svo dansleikur í Skrúð
fyrir yngra fólkið og síðar um kvöld-
ið fyrir það eldra. Þar lék hljómsveit-
in Rómeó frá Húsavík, alveg þrumu-
hljómsveit.
18. júní var svo dagskrá í Skrúð.
Þar komu fram m.a. hjónin Elín Ósk
Óskarsdóttir og Kjartan Ólafsson
sem simgu bæði einsöng og dúetta
við undirleik Ólafs Vignis Alberts-
sonar og Berglind Agnarsdóttir söng
við undirleik Árna ísleifs. Frænd-
umir og nágrannamir á Vattarnesi,
Baldur og Daníel, fluttu gamanmál
og ættu að gera meira að því. Lista-
fólkinu var öllu vel tekið. Kynnir
kvöldsins var Magnús Stefánsson.
Þröstur Sigurðsson sveitarstjóri.
DV-mynd Ægir
Bændur á Skaga bjartsýnir
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkroki:
„Það lítur bara út fyrir þokkalega
uppskeru hjá okkur hérna á Skagan-
um, tún virðast lítið kahn, allténd
mun minna en búist var við. Hins
vegar er ljóst að sláttur hefst 1 seinna
lagi þetta árið,“ sagði Ásgrímur Ás-
grímsson, bóndi á Mallandi, í sam-
tali við DV. Ásgrímur sagði að seint
hefði gróið í vor en sauðburðartíð
verið þokkaleg. Síðustu dagana hefði
síðan gróður tekið vel við sér.
Að sögn Ásgríms gengu grásleppu-
veiðar vel hjá Skagabændum og ver-
tíðin hefði getað orðið góð ef markað-
ur hefði leyft meiri veiði. Sölutregð-
an á hrognum gerði það að verkum
að menn stunduðu veiðar ekki eins
grimmt og drógu fyrr upp en ella.
Vinabæjamót á Egilsstööum:
Uppbyggingin kom á óvart
Norrænt vinabæjamót var haldið
á Egilsstöðum dagana 23.-26. júní.
Gestir voru 69 frá Sorö í Danmörku,
Suolathi í Finnlandi, Skara í Svíþjóð
og Eiðsvelli í Noregi.
Gestum var sýndur bærinn og
umhverfi hans. Þeir fóru á Seyðis-
ljörð, skoðuðu iðnsýninguna á Egils-
stöðum, málverk austfirskra lista-
manna í Feflaskóla, sumir fóru á
hestbak og aðrir í útsýnisflug. Ekki
var líkamlegu næringunni gleymt,
KHB og Brúnás héldu þeim veislu,
einnig Norræna félagið svo og Egils-
staðabær. Flest kom þeim á óvart hér
sem fyrir bar. Þaö var kalt þessa
daga og snjóaði í fjöll. Frændur okk-
ar, sem komnir voru úr 30 stiga hita,
höfðu fæstir upplifað svo kalda Jóns-
messu, en í því sambandi var rifjað
upp að fyrir tíu árum gerðist það
sama á vinabæjamóti á Eiðsvelli, það
snjóaði þar í júní og þóttu fim mikil.
Þá voru þeir dolfallnir yfir að svo
fámennt landsvæði gæti sett upp svo
glæsilega atvinnusýningu sem raun
er á. Hin hraða uppbygging Egils-
staöa var þeim og undnmarefni.
Fréttamaður hitti að máli Erhng
Engström og frú, ellilífeyrisþega frá
Finnskir þátttakendur að fara í útreiðatúr.
DV-mynd Sigrún
Sorö. Engström lét í ljós mikla
ánægju með móttöku og dagskrá hér
en lét þess einnig getið að það vant-
aði yngra fólk í Norrænu félögin og
svona ferðalög. Einnig þyrfti að gefa
hinum almenna borgara færi á að
taka þátt í ferðunum en leggja minni
áherslu á bæjarstjómarmenn. Marg-
ir gestanna vora hér í hringferð um
landið og héldu suður fyrir í rútu að
lokinni góðri dvöl á Héraði.
Ólafsvík:
Mót í sjóstangaveiði
- búist viö um eitt hundrað keppendum
„Það hefur staðið lengi til að halda
sjóstangaveiðimót hér í Ólafsvík. Við
höfum góða aðstöðu til shks hér og
í Breiðafirðinum er hægt að fá marg-
ar tegundir af fiski,“ segir Sigurður
Amfjörð, hótelstjóri og mótshaldari.
„Mótið veröur haldið 22.-23. júní í
tengslum við menningarhátíð sem
haldin verður hér á staðnum.
Viö vonumst eftir 80-90 keppend-
um þar af vonumst við eftir nokkmm
erlendum þátttakendum því ferða-
skrifstofumar hafa sýnt mótinu mik-
inn áhuga.
Heimamenn hafa einnig verið mjög
áhugasamir um mótið og eru tilbúnir
að lána báta sína í keppnina.
Við vonumst til að sjóstangaveiði-
mót geti orðiö árlegur viðburður hér
og við höfum hug á að stofna sérs-
takt sjóstangaveiðifélag Snæfelhnga
í kjölfar mótsins.
A mótinu verður keppt um farand-
bikar sem Viöskiptaþjónustan gef-
ur.“
-J.Mar