Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1989.
45
Landslið íslands í bridge 1989: Talið frá vinstri, standandi: Sigurður B.
ÞorsteinSson fararstjóri, Guðmundur P. Arnarson, Jónas P. Erlingsson,
Þorlákur Jónsson, Valur Sigurðsson, Aðalsteinn Jörgensen. Sitjandi: Ragn-
ar Magnússon og Hjalti Elíasson, fyrirliði og þjálfari.
(Ljósm. Sverrir Vilhelmsson)
Evrópumót í bridge
hefst í Turku í
Firmlandi á morgun
Evrópumót í bridge hefst í Turku
í Finnlandi á morgun og er íslensk
sveit meðal þátttakenda í opna
flokknum.
í landsliði okkar eru eftirtaldir
spilarar: Aðalsteinn Jörgensen,
Ragnar Magnússon, Guðmundur P.
Amarson, Þoriákur Jónsson, Jónas
P. Erlingsson og Valur Sigurðsson.
Fyrirliði án spilamennsku er Hjalti
Elíasson sem jafnframt hefir annast
þjálfún liðsins. Fararstjóri er Sigurð-
ur B. Þorsteinsson. Tuttugu og fimm
sveitir taka þátt í opna flokknum og
daglega verða spilaðir tveir 32 spila
leikir.
Bridge
að draga í fyrstu leikjunum en von-
andi gengur liðinu vel.
í gegnum árin hefir íslandi yfirleitt
gengið vel gegn V-Þjóðveijum og við
skulum skoða spil frá leik þjóðanna
á ólympíumótinu í Monte Carlo 1976.
S/A-V
* DG9753
V A1087
♦ 962
+ -
* 10
V KG2
♦ AD10743
+ 865
V 4
♦ K85
4* DG109742
♦ AK62
V D9653
♦ G
+ AK3
ísak Sigurðsson
Tveir nýliðar eru í liðinu að þessu
sinni, Jónas og Ragnar. Ragnar og
Aðalsteinn eru nýbakaðir Islands-
meistarar í tvímenningskeppni og
því vel samspilaðir. Jónas er hins
vegar að byrja að spila við Val og því
einhver óvissa með frammistöðu
þeirra. Guðmundur og Þorlákur eru
því kjölfesta liðsins og vonandi að
þeir standi undir nafni.
Fyrsti leikur íslands verður við
V-Þjóðveija á sunnudaginn kl. 10.30
og um kvöldið spilar liðið við lands-
hð Sovétríkjanna. Sovétríkin eru að
spila í fyrsta sinn á Evrópumóti en
enginn skyldi vanmeta sovéska
bjöminn. Það hefir sýnt sig að Sovét-
menn eru yfirleitt í fremstu röð í
hvaða íþrótt sem þeir keppa. Næsta
dag er spilað við Holland og ítalíu,
báðar bridgeþjóðir í fremstu röð. Á
þriðja degi eru írar og Tékkar á dag-
skrá.
Það verður því við ramman reip
í opna salnum sátu n-s Schroeder og
Auhagen en a-v Ásmundur Pálsson og
Hjalti Elíasson:
Suður Vestur Norður Austur
1H 1S 2T pass
2 G pass 4 H Allirpass
Útspilið var spaðadrottning. Það eru
nokkrar leiðir til þess að vinna fjögur
hjörtu en Auhagen fann enga. Hann fór
út í það að trompa tvisvar spaða i blind-
um með háspilunum og vestur fékk síðan
fjóra slagi á tromp. þessi leið gengur ef
trompin eru 3-2. Einn niður og 50 til ís-
lands.
í lokaða salnum tók ekki betra við. Þar
sátu n-s Guðmundur Pétursson og Karl
Sigurhjartarson en a-v Spletttosser og
Hausler:
Suður Vestur Norður Austur
1L ÍS 2 T 3 L
dobl 3 S pass pass
dobl pass pass pass
Vömin gaf engin grið og Hausler fékk
aðeins sína augljósu funm slagi. Það voru
1100 í viðbót til íslands sem græddi 15
impa á spilinu.
Vonandi gefa Þjóðvetjamir höggstað á
sér á morgun.
FERÐAFOLK /
MuniB oS spenno belrin í btlnum
09 björgunarvestin í bótnum.
Stuðningur við
íþróttafólkið
ávaxtast ríkulega
Spjótkastarinn Einar Vilhjáims-
son, íþróttamaður ársins, hefur
staðið sig með ágætum á fyrstu
mótum sumarsins. Að vísu hreppti
hann mótbyr á heimsleikunum í
Helsinki nú í vikunni en það áfaU
herðir án efa þennan snjaUa
íþróttamann í baráttunni.
Besta kast Einars í ár er 80,50
metrar og framganga hans á mót-
um í Frakklandi og Sviss í vikunni
lofa umtalsverðu um stærri afrek
í sumar.
FeriU Einars í sinni grein hefur
verið öðrum hvatning á svipaðan
hátt og afrek fóður hans, Vilhjálms
Einarssonar, oUu því að ungir pUt-
ar reyndu ótæpUega fyrir sér í þrí-
stökki. GUti þá einu þótt gatan
væri kappvöUurinn. Lét ungviðið
jafnvel ekki deigan síga hverju
sinni fyrr en komið var undir rauð-
an morgun.
í Kjölfar Einars hafa þeir Sigurð-
ur Einarsson og nafni hans Matthí-
asson siglt fram í kastíjósið í spjót-
kastgreininni og skordr báða Utið
tU að komast í fremstu röð.
Þessi þrenning gefur tilefni tU að
ætla að viss hefð sé að mótast hér
heima í spjótkasti.
Ánægjulegt væri ef slíkt gengi
eftir en fáar íþróttagreinar nútím-
ans eru jafhtengdar menningar-
sögu okkar íslendinga og þessi
tignarlega íþrótt.
Á hinn bóginn verður að horfa í
að aðstaða til að stunda þessa grein,
og raunar aöra þætti öjálsra
í{>rótta, hefur verið bág hér heima
hin síðustu ár. ValbjamarvöUur í
Laugardal þótti góður fyrir fáein-
um árum en tímans tönn hefur far-
ið ómUdUega meö þessa aðstööu
íslenskra fijálsíþróttamanna.
Ef Utiö er tíl þess aðbúnaðar sem
íslenskir frjálsíþróttamenn hafa
lifaö viö um langt skeið er árangur
þeirra ótrúlegur.
íslendingar eiga enn Norður-
landamethafa í 400 metra hlaupi,
Odd Sigurðsson.
Kúluvarparinn Pétur Guð-
mundsson hefur tekið sífeUdum
framförum og kann hann að ógna
íslandsmeti Strandamannsins
sterka, Hreins HaUdórssonar.
Þá hefur Vésteini Hafsteinssyni
gengið vel í vor þótt ekki hafi hann
sýnt sitt rétta andUt í Helsinki á
dögunum.
Vésteinn hefur engu að síður
skipað sér á bekk með fremstu
mönnum heims í sinni grein,
kringlukasti.
íslandsmet hans, sem sett var á
dögunum, er afar glæsUegt og gefur
fyrirheit um lengri köst í nánustu
framtíð.
Bjart er því framundan og raunar
má vænta að fleira fólk sláist í
þennan hóp afreksmanna okkar á
næstunni.
Byltingí
Mosfellsbæ
í Mosfellsbæ er verið að reisa
glæsUegt íþróttamannvirki sem
veröur brátt reiðubúið fyrir æfing-
ar og keppni.
Er sá vöUur á flestan máta sam-
bærilegur viö þá sem bestir teljast
í nágrannalöndum okkar.
Mannvirki þetta á eflaust eftir að
fæða af sér spjaUa íþróttamenn
sem munu gera garðinn frægan er
fram Uða stundir.
Jákvæðurpóll
Fáir vekja jafimnkla athygU á þjóö
sinni og þeir íþróttamenn sem
skara fram úr.
íslenskir íþróttamenn hafá borið
hróður íslands víöa með afreks-
verkum sínum og verður slík aug-
lýsing aldrei metin tíl fjár.
HQýtur framganga okkar bestu
manna nú að teljast jákvæður póU
á tímum sem fjöldasamtök reyna
markvisst að spUla mörkuðum ís-
lendinga erlendis.
í þessari viku varð Einar VU-
hjálmsson hlutskarpastur í tveim-
ur stórmótum í Evrópu. Frá árinu
1984 hefur íslenska karlalandshðið
í handknattleik hreppt 6. sæti.á
ólympíuleikum og í heimsmeist-
aramóti, unnið forheimsmeistara-
keppni í íþróttinni og hreppt brons-
verðlaun á einu stærsta fjölþjóða-
móti sem háð er, Júgóslaviubik-
amum. Hér er aðeins fátt eitt nefnt.
Að styðja
íþróttafólk
Fyrir skömmu var háður lands-
leikur í knattspymu í Laugardal.
Af því tUefni var hér staddur
gríðarlegur fiöldi erlendra frétta-
manna. Átti undirritaður tal við
franskan sjónvarpsmann sem kom
hingað gagngert tíl að afla frétta
af leiknum. Taldi hann stöðuna,
sem þá var upp komin í knatt-
spymuheiminum, sérstæða í meira
lagi.
Islendingar áttu þá, og eiga raun-
ar enn, góða von um að komast í
úrslit heimsmeistaramótsins í
fyrsta sinn.
Það er skoðun þess sem þetta rit-
ar að allur stuðningur við íslenskt
íþróttafólk ávaxtist ríkulega. Ýmis
fyrirtæki og einstaklingar hafa
enda séð sér hag í því á síðustu
ámm að styrkja íþróttalífið.
íþróttafólk okkar vekur enda at-
hygli á íslenskri menningu og öðr-
um þáttum sem varða þjóðarhag
með afreksverkum sínum, bæði
hér heima og erlendis. Fram hjá
því veröur ekki litið hvort sem
menn heillast af íþróttum eða láta
þær fára hjá garöi.
Jón öm Guðbjartsson
Einar Vilhjálmsson er einn þeirra íslensku íþróttamanna sem hefur látið verulega að sér kveða á erlendum
vettvangi. Hann vann tvö fjölþjóðamót í sinni grein í þessari viku. DV-mynd Eiríkur