Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 1. JÚLl 1989. 25 """........ ' ......................." .......... j ■. : ■ . ' ■: : ■ :. ■'■": : Í'í ' 'jVí'' . ■ - - • -0; < kvæmdastjóri myndarinnar. Hún sagöi að meö stærstu hlutverkin í myndinni færu þau Rúrik Haralds- son, Margrét Ólafsdóttir, Lilja Þóris- dóttir og lílil, átta ára hnáta, Klara íris, sem er að leika í sinni annarri kvikmynd. Klara íris fór með stórt hlutverk í kvikmynd Hrafns Gunn- laugssonar, í skugga hrafnsins. Hrafn uppgötvaði hana á leikskóla borgarinnar en í sama skóla var dótt- ir Hrafns í gæslu. Að sögn Marínar er Klara litla fædd leikkona. „Hún er alveg frá- bær. Klara getur breytt andliti sínu eins og handritið gerir ráð fyrir án þess að hafa nokkuð fyrir því. Hún á auðvelt með að hlæja eða gráta hvenær sem þörf er,“ sagði Marín. Aðstandendur myndarinnar hafa unnið við Reykjanesvita í þrjár vikur en útiatriðum er lokið. Inniatriði verða tekin upp í stúdíói á næst- unni. „Við höfum fengið mjög góðar viðtökur hjá öllum sem við höfum þurft að leita til. Má þar nefna Vita- og hafnamálaskrifstofuna, Óskar Aðalstein rithöfund og konu hans, sem hér búa, og marga fleiri. Grind- víkingar hafa verið okkur mjög hjálplegir en við höfum dvalið mikið í verbúð í Grindavík á meðan upp- tökumar hafa staðið yfir. Það er mun þægilegra að vera nálægt staðnum því tökur fara fram á öllum tímum sólarhringsins. Auk þess er ódýrara að vera með tækin sem næst staðn- um,“ sagði Marin. Hún viðurkenndi að það gæti verið erfitt að vera svo mikið að heiman en bætti við að vinnan væri mjög skemmtileg. Spennandi verðlaunasaga Steinbam er byggt á sögu eftir Vil- borgu Einarsdóttur og Kristján Frið- riksson. Marín sagði að sagan væri spennandi og áhugaverð. „Sagan á að gerast langt frá öllum manna- byggðum. Ung kona kemur á staðinn í þeim tilgangi að skrifa handrit sem er einnig lokaverkefni hennar í skóla. Konan er fráskilin og á barn sem hún skilur eftir heima. Á þess- um eyöistað búa systkini og ósjálf- rátt flækist unga konan inn í sögu þeirra sem henni finnst mun merki- legri en sú saga sem hún upphaflega ætlaði að skrifa. Þessi unga kona sem leikin er af Lilju Þórisdóttur, er einnig að ghma við innri baráttu, sérstaklega í sam- bandi við dóttur sína. Saga systkin- anna er mjög dramatísk og hér ger- Þyrla Landhelgisgæslunnar var í nýju hlutverki í vikunni er hún sinnti mikilvægu atriði í sjónvarpsmynd sem nú er verið að vinna að. Eins og sjá má var það erfitt fyrir nærstadda þegar þyrlan hóf sig á loft. ast hlutir sem ég ætla ekki að segja frá en em mjög spennandi. Myndin verður klukkustundar löng,“ sagði Marín. Létgabbast af leikmynd Atriðið sem tekið var upp á mið- vikudag er lokaatriði myndarinnar. „Dóttir ungu konunnar, sem komin er á staðinn, slasast og þyrlan er komin til að sækja hana.“ sagði Mar- ín og ákvað að halda öðrum sögu- þræði leyndum. Sjónvarpsmenn hafa verið mjög heppnir með veður þessar þrjár vik- ur. Að sögn Marínar er eins og þau hafi gert pantanir þvi rignt hefur á réttum stöðum og sólskin verið þegar Klara Iris leikur stórt hlutverk í Steinbarni. Hún er aðeins átta ára gömul en þó er þetta í annað skipti sem hún leikur í kvikmynd. DV-myndir Brynjar Gauti engum hefði dottið í hug að skrifa handrit að kvikmynd sem gerðist á þessum stað. „Nokkur tími leið síðan frá því hugmyndin kom upp og þang- að tíl við byijuðum að skrifa,“ sagði Vilborg. Þegar Sjónvarpið efndi til samkeppni um sjónvarpshandrit sendu þau handritið inn og unnu tíl verðlauna. Þau Vilborg og Krislján fengu síðan styrk til að fullvinna handritið ásamt níu öðrum. Stein- barn var síðan sent í samkeppni um sjónvarpshandrit evrópskra sjón- varpsstöðva þar sem það hlaut viður- kenningu. Toppfólk í öllum störfum Þau Vilborg og Kristján voru í fyrsta skipti viðstödd upptökur á myndinni á miðvikudag og létu htið fara fyrir sér. „Hér er toppfólk í öh- um störfum sem við treystum vel tíl að gera þessa mynd,“ sagði VUborg. „Mér finnst skemmtilegt að fylgjast með þessu því leikmyndin er nánast alveg eins og við höfðum hugsað okkur.“ Klara íris, 8 ára, haföi í nógu að snúast í lokaatriðinu. Hún var „slös- uð“ á höfði og þurfti alloft að láta flytja sig í sjúkraflugi. Atriði sem einu sinni birtíst á skjánum í ein- hveijar sekúndur tekur nefnflega heUan dag í upptökum. Klara sagðist hvorki finna fyrir hræðslu né þreytu. Hún sagðist ekkert vita af hverju hún væri að leika í þessari mynd en fynd- ist það gaman. „Hlutverkið er skemmtUegt,“ sagði þessi Utla hnáta sem líklegast á eftir að heiUa áhorf- endur Sjónvarps um jóhn. -ELA ■ ■ , PH : Leikmynd sjónvarpsmyndarinnar er listavel gerð. Gamla „steinhúsið“ á myndinni gæti hafa staðið á þessum stað i áratugi en er einungis tilbúin leikmynd. Vegfarendur létu þó blekkjast. það hefur átt við. Starfsfólkið er mjög útitekið og leynir sér ekki að góða veðrið hefur sýnt sig oftar en rign- ingin. Fimmtán starfsmenn frá sjónvarp- inu vinna að gerð myndarinnar en leikarar eru átta. Leikstjóri er EgiU Eðvarðsson en Jón Þórisson hefur gert skemmtilegar og eðhlegar leik- myndir á svæðinu. Má geta þess að hús systkinanna í myndinni er gam- alt steinhús sem nú hefur verið reist undir Reykjanesvita. Þó húsið sé ein- ungis úr timbri og holt að innan htur það út eins og gamalt steinhús sem staðið hefur á staðnum í áratugi. Svo eðhlega htur húsið út að sumir hafa látið blekkjast og á Marín sögu af því: „Hingað kom kona sem sagðist hafa komið hér oft sem barn. Hún benti á húsið og sagðist muna svo vel eftír þegar gömlu vitavarðar- hjónin bjuggu í þessu gamla húsi.“ Sjónvarpsmenn gátu ekki varist brosi en slepptu því að segja konunni sannleikann. Lögreglubíll frá Selfossi Tvö önnur hús hafa verið byggð á staðnum sem notuð eru sem leik- mynd. En við gamla steinhúsið hefur verið komið gömlum jeppa og í ná- grenninu er skreiðarhjallur. Lög- reglubíll var fenginn að láni hjá lög- reglunni á Selfossi því aðrir slíkir eru ekki fáanlegir. Að sögn Marínar hafa allir verið mjög hjálplegir í leit þeirra að leikmunum. Vilborg Einarsdóttir og Kristján Friðriksson, höfundar Steinbarns, segjast hafa fengið hugmyndina að verkinu er þau voru eitt sinn stödd við Reykjanesvita. „Kristjáni varð að orði hvað það væri skrýtíð að Egill Eðvarðsson, leikstjóri Steinbarns, hafði i miklu að snúast og fylgdist af athygli með öllu því sem kvikmyndatökumaðurinn tók upp á þar til gerð- um skjá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.