Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Síða 32
I
I
í
í
1
44 . LAUGARDAGUR í. JÚLÍ 1989
Heimsbikarmótið í Rotterdam:
Karpov ætlaði sér um of
- tapaði þremur síðustu skákunum og Timman stakk af með sigurlaunin
Jan Timman sigraði á heimsbikarmótinu í Rotterdam eftir að Karpov tapaði þremur síðustu skákunum.
Hollenski stórmeistarinn Jan
Timman sigraði öllum að óvörum
á heimsbikarmótinu í Rotterdam
en lengst af mótinu virtist fyrsta
sætið vera frátekið handa öðrum.
Enginn átti von á því að Anatoly
Karpov myndi tapa tveimur skák-
um í röð undir lokin og þegar hann
svo bætti þriðju skákinni við voru
aðdáendur hans hættir að trúa eig-
in augum. Þetta hefur aldrei áður
gerst á mótaferli heimsmeistarans
fyrrverandi sem er þekktur fyrir
allt annað en glannaskap. En nú
ætlaði hann sér um of. Þrjú jafn-
tefli í lokaumferðunum hefðu
tryggt honum sigurinn en hann
ætlaði að vinna með yfirburðum
og safna héimsbikarstigum um
leið.
Eftir afhroð Karpovs í Rotterdam
verða skákunnendur af úrslita-
glímunni um heimsbikartitilinn í
Skelleftea í Svíþjóð í ágúst. Kasp-
arov hefur forystu í stigakeppninni
og Karpov getur aðeins náð honum
ef hann sigrar í Skelleftea og hlýtur
12,5 vinninga af 15 mögulegum.
Telja veröur afar hæpið að hann
nái svo háu vinningshlutfalli, ekki
síst ef tekið er með í reikninginn
að Kasparov sjálfur verður einnig
meðal-keppenda á mótinu.
Skákir Karpovs í síðustu um-
ferðunum í Rotterdam báru þess
merki að hann sætti sig ekki við
jafntefli. Hann hafði hvítt gegn
Salov og Ljubojevic. Tefldi afar tví-
eggjað afbrigði gegn Saiov og vopn-
in snerust í höndum hans en gegn
Ljubo byggði hann upp sigurvæn-
lega stöðu, sem hrundi skyndilega
eftir fingurbrjót. í lokaskákinni
tefldi hann til vinnings með svörtu
gegn Nunn í spænska leiknum en
gaf frelsingja Englendingsins
lausan tauminn og varð að láta
mann. Tefldi samt lengi áfram með
gjörtapaða stöðu og gaf ekki fyrr
en í 81. leik. Timman vann Seiraw-
an hins vegar auðveldlega í síðustu
umferð og þar með stóð hann einn
uppi sem sigurvegari.
Lokastaðan í Rotterdam varð
þessi:
1. Jan Timman (Hollandi) 10,5 v.
2. Anatoly Karpov (Sovétr.) 9,5 v.
3. Rafael Vaganjan (Sovétr.) 9 v.
4. John Nunn (Englandi) 8,5 v.
5. - 8. John van der Wiel (Holl-
andi), Andrei Sokolov, Jaan
Ehlvest og Valery Salov (allir Sov-
étr.) 8 v.
9. Nigel Short (Englandi) 7,5 v.
10. Yasser Seirawan (Banadr.) 7 v.
11. -13. Nogueiras (Kúbu), Artur
Jusupov (Sovétr.) og Gyula Sax
(Ungverjal.) 6,5 v.
14.-15. Ljubomir Ljubojevic (Júgó-
slavíu) og Lajos Portisch (Ungveij-
al.) 6 v.
16. Jóhann Hjartarson 4,5 v.
Ég hygg að best sé að fara sem
fæstum orðum um frammistöðu
Jóhanns en einhvem veginn tókst
honum að tapa skák eftir skák þrátt
fyrir að eiga oft prýðilegar stöður.
Hann getur huggað sig við það að
nú gefst honum loks stund til hvíld-
ar eftir mikla þolraun síðustu mán-
aða.
Hér er skákin sem tryggði Timm-
an sigurinn á mótinu.
Hvítt: Yasser Seirawan
Svart: Jan Timman
Drottningarindversk vörn
1. d4 RfB 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3
Ba6 5. Da4 Bb7 6. Bg2 c5 7. dxc5
Bxc5 8. 0-6 0-0 9. Rc3 Be7 10. Bf4
Ra611. Hfdl Rc512. Dc2 Dc813. Rb5?
Það er byijendabragur á þessu
riddarastökki. Sjálfsagður leikur
er 13. Hacl og treysta stöðuna.
13. - Rce4 14. Rd6?
Eftír 14. Rc7 Hb8 15. Rb5 Ha8
verður skákin jafntefli en e.t.v. hef-
ur Seirawan ekki litist á 14. - e5!?
15. Bxe5 Rxf2! með skemmtilegum
flækjum.
14. - Rxd6 15. Bxd6 Bxd6 16. Hxd6
Dc5 17. Dd3
Ljóst er að eftir 17. H6dl b5 á
svartur sterkt frumkvæði en engu
að síður var þetta skárri kostur.
17. - Bd5! 18. Da3
Eini leikurinn til að forða skipta-
munstapi en nú fellur peð.
18. - Dxc4 19. Re5 Dxe2 20. Rxd7
1 Eé
1 1 Ö 1 1 A
A 2 i4
£
W A
£ & f AiA
2
ABCDEFGH
20. - Rg4! 21. Hfl Hfc8!
Timman vinnur laglega úr stöð-
unni. Svarið við 22. Bxd5 yrði 22. -
Hcl! og hvítum era allar bjargir
bannaðar. Seirawan gerir nú úr-
slitatilraun til að bjarga taflinu en
þrátt fyrir taugatítring er hönd
Timmans styrk.
Skák
Jón L. Árnason
22. Hxd5 exd5 23. Dd6 Hc2 24. Dxd5
He8 25. h3 Hd2 26. Dg5 Hxd7 27. hxg4
Hdl 28. b4 Hxfl+ 29. Bxfl Dxa2 30.
b5 h6 31. Df5 De6 32. Df4 De4 33. Dc7
Dxg4 34. Dxa7 Dd4 35. Db7 g6 36.
Dc7 Hel 37. Dc8+ Kg7 38. Dc2 Dal
39. Dd3 Hxfl+ 40. Dxfl Dxfl 41.
KxflKfB
og nú gafst Seirawan upp.
íslendingar sigruðu
íslenska unglingalandsliðinu
tókst loks í þriðju tilraun aö sigra
í fjögurra landa keppninni, sem að
þessu sinni fór fram í Málmey í
Svíþjóð. í tvö fyrri skiptín sem
keppnin hefur verið haldin hafa
Svíar orðið hlutskarpastir, eftir
harða keppni við Dani.
Sigur íslensku sveitarinnar ætti
ekki að koma neinum á óvart því
að íslenskir unghngar hafa jafnan
borið höfuð og herðar yfir jafnaldra
sína á hinum Norðurlöndunum.
Samt var því þannig farið nú að
Svíar höfðu á að skipa stigahæstu
sveitínni og hinar voru áþekkar.
Enda fór svo að mjótt var á munun-
um.
Svíar og íslendingar mættust í
fyrstu umferð og höfðu íslendingar
betur, fengu 5,5 v. gegn 4,5 v. Svía.
Kannski nægði þetta til að slá
sænsku sveitina út af laginu. í 2.
umferð unnu íslendingar Norð-
menn stórt, 6,5 v. gegn 3,5 v. og eft-
ir jafntefli við Dani í síðustu um-
ferðinni var sigurinn í höfn. ís-
lenska sveitin hlaut 17 v. af 30
mögulegum, Norðmenn fengu 15
v. og Danir og Svíar fengu 14 v. og
hrepptu Danir þriðja sætið á stig-
um.
Teflt var á tíu borðum. Á sex efstu
tefldu skákmenn fæddir 1969 og
síðar; á fjórum neðri borðunum
tefldu skákmenn fæddir 1973 og
síðar. Árangur íslendinganna varö
þessi:
1. Hannes Hlífar 2 v. (af 3)
2. Þröstur Þórhallsson 1,5 v.
3. Sigurður Daði Sigfússon 1 v.
4. Andri Áss Grétarsson 2 v.
5. Þröstur Árnason 2,5 v.
6. Tómas Björnsson 2 v.
7. Héðinn Steingrímsson 2 v.
8. Snorri Karlsson 0,5 v.
9. Helgi Áss Grétarsson 2,5 v.
10. Ragnar Fjalar Sævarsson 1 v.
Fararsjórar hópsins og liðsstjór-
ar voru Ólafur H. Ólafsson og
Hilmar Thors en Sjóvá-Almennar
veittu sveitinni rausnarlegan styrk
tii fararinnar.
Rétt er að hta á eina ævintýralega
skák úr keppninni, þar sem 1. borðs
maður okkar lendir í kröppum
dansi. Svo fer að hann missir
skiptamun og peð en þó er ekki
einfalt fyrir mótheijann að leiða
taflið til lykta. Svo fer að hann
missir þráðinn, smám saman
hrökklast hann í vöm og loks feliur
hann í laglega gildru.
Hvítt: Rune Djurhuus (Noregi)
Svart: Hannes Hlífar Stefánsson
Norræni leikurinn
1. e4 d5 2. exd5 Rf6 3. d4 Rxd5 4.
c4 Rb6 5. Rf3 g6 6. Be2 Bg7 7. 0-0 0-0
8. Rc3 Bg4 9. h3 Bxf3 10. Bxf3 Rc6
11. c5 Rc4 12. Be2 R4a5 13. d5 Rd4
14. Hbl b6 15. b4 Rb7 16. Ba6 Hb8 17.
Be3 Rf5 18. Rb5 Rxe3 19. fxe3 bxc5
20. Rxa7 Dd6 21. Rc6 c4
Byijunartaflmennska svarts hef-
ur beðið algjört skipbrot og nú
kemst hann ekki hjá því að tapa
liði. Hannes áttaði sig á því of seint
að eftir 21. - cxb4 22. Hxb4! er stað-
an töpuð. Því er ekki um annað að
velja en textaleikinn og freista þess
að flækja taílið.
22. Rxb8 Hxb8 23. Bxc4
Einfaldara er 23. Bxb7 Hxb7 24.
Da4, því að biskup hvíts er mun
lakari í þessari stöðu en riddarinn.
23. - Db6 24. De2 Rd6 25. Bd3 Ha8!
26. Khl Be5 27. Hfcl Ha3! 28. b5? Da7
29. Hc2 Da8! 30. e4 Da7 31. Hc6 Dd4
32. Hdl Kg7
Svartur hefur bætt stöðu sína
mjög í síðustu leikjum en tafl-
mennska hvíts hefur verið stefnu-
laus. Svartur á enn skiptamun og
peði minna en yfirráðin yfir svörtu
reitunum á miðborðinu og góð
staðsetning mannanna vega hátt á
móti. Hvítur getur nú þvingað fram
jafntefli með 33. Ha6 Hc3 34. Hc6
o.s.frv. eða teflt til vinnings með
34. a4!? en áfram teflir hann veikt.
33. Bbl?! Db4 34. Hxc7? Rf5!
Hvítur bjóst kannski við 34. -
Rxe4 35. Dxe4 Dxe4 36. Bxe4 Bxc7
með líklegu jafntefli.
35. Dc4 Rg3+ 36. Kgl Db2 37. Dc2
Dxb5 38. Hxe7??
38. - Bd6!
Hrókurinn er lokaður inni og
hvíta tafliö er tapað. Hins vegar
ekki 38. - Db6+ 39. Df2 Bd4?? 40.
Dxd4 með skák og hvítur vinnur.
39. Hxf7+ Kxf7 40. DÍ2+ Kg8 41.
Df6 Db6 +
Og hvítur gaf.
Gleymdírðu einhverrí gjöí?
Engar áhyggjur - þú fœrð bestu merkin ítískuheiminum, tollfrjálst,
um borð hjá okkur. /