Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1989. 47 LífsstQI Flest eru gistihúsin í herrasetrum og kastölum frá 18. og 19. öld, jafnvel eidri i einstaka tilvikum og við húsin eru yfirleitt fallegir og vel hirtir garðar. Bretland: Bók um herragarðshótel Fjölmörgum herragöröum á Eng- landi hefur veriö hreytt í gisthús. Á síðastliðnum tuttugu árum hefur vegur þeirra og virðing farið vaxandi og gestir af fjölmörgum þjóðemum sækja þangað hvíld og ró. Nú hefur - kvennahótel Carol Wright, einn reyndasti ferða- bókahöfundur Bretlands, vahö eitt hundrað gistihús og skrifað um þau bók, „Classic Country House Hot- els“. Flest eru þessi gistihús í herrasetr- um og kastölum frá 18. og 19. öld, jafnvel eldri í einstaka. tilvikum og við húsin eru yfirleitt fallegir og vel hirtir garðar. í formála bókar sinnar segir Carol Wright að það sé nú komið í tísku Tehús í London Óvíða í heiminum er drukkiö jafn- mikið te og í Bretaveldi. Fróðir menn í hinu forna heimsveldi þykjast hafa komist á snoðir um að sérhvern dag drekki hvert mannsbarn yfir tíu ára aldri 3,62 bolla af þessum eðaldrykk. Það þýðir að 183 milljónir bolla hverfa þar í teþyrsta maga daglega eða 70 milljarðar bolla á ári. Fjarska gott meðlæti Staöir þar sem hægt er að fara inn og setjast niöur og fá sér te í ró og næði skipta þúsundum og gæðamun- ur þeirra er eðlilega mikill. Á betri tehúsum er yfirleitt hægt að velja á miRi nokkurra tegunda af tei, svo sem Earl Gray, Darjeeling, Caylons, ensks morgunverðartes og á sumum stöðum er boðið upp á aht að þrjátíu tegundir. Meðlætiö sem boðið er upp á í te- húsum er yfirleitt fjarska gott, gjam- - ný bók an samlokur með tómötum, reyktum laxi, eggjum og majonesi, agúrku og ijómaosti. Litlar kexkökur, sem bornar eru fram með sultu og þeytt- um rjóma, eplakökur, ostakökur og Ferðir svo framvegis. Það er eitt sem víst er að ensk eftirmiðdagstedrykkja er ekki hoh fyrir hnurnar, en hver er að hugsa um það? „ThatTea Book" Nýlega var gefin út í Bretlandi bók sem ber heitið That Tea Book (Parton Press) og er hún rituð af Patricia Rose Cress. Bókin er fáanleg í vel- flestum bókabúðum þar í landi og kostar 4,95 pund eða 445 krónur ís- lenskar. í bókinni er að finna upplýsingar um hvar sé best að fá sér síðdegiste í London, hvort leikin sé tónhst yfir borðujn og hvað tedrykkjan ásamt meðlæti kostar á hveijum stað. í bókinni er fjallað um staði eins og Hotel Ritz, Fortun and Mason, Harrods, Lord Cricket Ground, Vic- toriu og Alberts safnið, auk þess sem fjallaö er um fjöldann allan af óþekktari tehúsum. Tíminn á að stöðvast Þeir sem sækja heim London ættu uhs ekki að láta hjá hða að fá sér hressingu á tehúsi og þá að hafa í huga orð Michael Thomas, yfirþjóns á Browns-hóteh í London, en hann segir að þegar fólk sá sest aö borðum eigi tíminn að stöðvast. Þannig á gott tehús að vera. Staður sem veitir þreyttum hvíld og svöngum maga- fylh. Endurnýja orkuna Að fara á tehús er nokkuð sem er bæði afslappandi og skemmtilegt. Þeir sem eru á ferö í London ættu ekki að láta hjá höa að skrepp aha- vega einu sinni á shkan stað og njóta andrúmslofsins sem er mjög sér- stakt. Þar er oft að finna fjölbreyti- leika mannlífsins í hnotskurn. Hafið bara í huga orð Michael Twomey, framkvæmdastjóra Palm Court á Hotel Ritz í London, en hann segir: Síðdegis, þegar fólk þarf að fara að huga að því að endumýja orkuna, hvað er þá betra en að setjast niður og fá sér boha af góðu tei og eitthvað gott th að narta í. Fyrir áhugasama tehúsaunnendur getur því bók Patriciu Rose Cress, That Tea Book, komið í góðar þarfir. -J.Mar Á betri tehúsum er yfirleitt hægt að velja á milli nokkurra tegunda af tei. að fara í helgardvöl á herragarðs- hótel, halda þar stjómarfundi fyrir- tækja og ekki síður aö stimda leir- dúfnaskyttirí. í hótelum þessum ér hægt að upplifa gamla tíma. Hálandaganga Skosku Hálöndin eru gósenland þeirra sem vílja njóta útivem og fall- egrar náttúru. Skipulagðar göngu- ferðir um þetta svæði eru fjölmargar þar sem leiðsögumaður fer fyrir hópnum og bifreiðir sjá um að feija allan búnað. Eitt fyrirtæki sem býð- ur upp á svona gönguferðir er WÚd- erland Treks. Meðal þeirra ferða sem standa til boða er fjögurra daga ferð um Cairngorm fjöhin, fjögurra daga ferð yfir þvert Skotland, frá Fort Wilham til Dalwhinnie, og sjö daga ferð um Vestur-Hálandaleiðina sem er um 150 km gönguleið frá Glasgow tU Fort William. Helgi á mióöldum Áhugamenn um miðaldir eiga þess kost um miðjan september að eyða einni helgi á þessu uppáhaldstíma- skeiði sínu í Coventry, í heimasveit Shakespeares. Innifahð í helgar- pakkanum er stórmáltíð að hætti miðaldamanna í Coombe klaustrinu, gönguferð um borgina í miðalda- klæðnaði, móttökuathöfn þar sem veittur verður gamaldags mjööur og heimsókn til Stratford-upon-Avon, fæðingarbæjar Shakespeares. Helg- arpakki þessi kostar 85 pund. Karlmönnum bannaður aðgangur Hawerby HaU heitir sérstætt gisti- hús í Lincolnshire á Englandi. Þar eru engir karlmenn. Gárungarnir kaha þetta gamla sveitasetur gjaman Hænsnahúsið (The Hen House). Það er sumarleyf- isstaður, klúbbur og fundarstaður þar sem eingöngu vinna konur. Gistihúsið er hka aðeins ætlað kon- um. Þó er heimUt að drengir upp að 13 ára aldri gisti þar ef þeir koma með mæðrum sínum. Eldri karl- menn geta einungis gist þar ef þeir era með hópi sem tekur allt húsið á leigu. Gisting er almennt í ein- eöa tví- býh en einnig eru nokkur herbergi með þremur rúmum. AUs rúmast 30 gestir og kostar nóttin með kvöld- og morgunverði 25 sterhngspund auk þess sem gestir verða að greiða eins punds árgjald. Hænsnahúsið reynir að veita gest- um sínum jafngóða þjónustu og fín- ustu hótel en í mun afslappaðra umhverfi. Gestir hafa aðgang að bókasafni þar sem finna má bækur, spU, hljómplötur og snældur. Einnig era þar hljóðfærasalur, leikherbergi bama, tennisvöUur og bar, eini staö- urinn þar sem hægt er aö reykja. Námskeiðahald er nokkurt í Hænsnahúsinu. Dagana 24.-28. júh er námskeið í því að eldast með reisn og 14.-18. ágúst verður námskeið í sagnaritun. Hawery House er rétt utan við Grimsby en frá London tekur ferða- lagið þijár klukkustundir með lest. Auglýsing frá Atvinnutryggingarsjóöi útflutningsgreina Vakin er athygli á að umsóknir sem berast sjóðnum eftir 10. júlí nk. verða ekki teknar til umfjöllunar fyrr en eftir 10. september nk. Sömuleiðis er bent á að vegna sumarleyfa verður starfsemi í lágmarki 17. júlí til 7. ágúst nk. Þá er nýjum umsækjendum um lán hjá sjóðnum bent á að með umsóknum er nú nauðsynlegt að fylgi milliuppgjör á þessu ári. VEITINGASALURINN ER ALLTAF OPINN ALLA DAGA - ALLT ÁRIÐ Fyrsta flokks hótel í næsta nágrenni við flugvöllinn. SlMI 92-152E2 HCEFl_A\/ÍK HAFNA.RGOTU 57

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.