Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Qupperneq 52

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Qupperneq 52
FM ■ ■“ im d Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað LAUGARDAGUR 1. JÚU 1989. Viðræðum SÍS og Landsbanka slegið á frest —Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans, og Guöjón B. Ólafs- son, forstjóri Sambandsins, ákváðu á fundi sínum í gærmorgun að slá formiegum viðræðum um kaup Landsbankans á hlut Sambandsins í Samvinnubankanum á frest um nokkrar vikur. Rætt hafði verið um að fá þetta mál á hreint nú um mán- aðamótin. „Viö Guðjón ákváðum að slá form- legum viðræðum á frest. Þaö eru ekki aðstæður fyrir formlegum fund- um í bih. Enda tekur það langan tíma aö kaupa banka. Þetta er eins og að kaupa heila þjóðfélagsstofnun. Þaö er ekki hrist fram úr erminni," sagði Sverrir Hermannsson, bankastjóri ifi Landsbankans, í gær en Sverrir hef- ur stýrt viðræðunum við Sambandið fyrir hönd Landsbankans. -JGH Þórshöfn: Stakfellið kyrrsett Togarinn Stakfell frá Þórshöfn hef- ur verið innsiglaður við bryggjuna á Þórshöfn vegna skulda á stað- greiðslu skatta. Togarinn er í eigu Útgerðarfélags Norður-Þingeyinga sem er hlutafélag. Ekki er vitað hve há staögreiðsluskuldin er. -hlh Samvinnuferðir í flugrekstur Gengið var frá samningi milh Sam- vinnuferða/Landsýnar og fjármála- ráðuneytisins um leigu á Arnarflugs- þotu þeirri sem ríkið kyrrsetti í vet- ur. Leigir ferðaskrifstofan þotuna 111 haustsins. Fyrsta flug þotunnar var í morgun. Amarflug mun sjá um að reka og fljúga þotunni. -hlh Benedikt Bogason er látinn Benedikt Bogason alþingismaður er látinn, 55 ára að aldri. Benedikt tók sæti á Alþingi í apríl síðasthðn- um eftir að Albert Guðmundsson sagði af sér þingmennsku. Benedikt starfaði sem fuhtrúi forstjóra Byggðastofnunar frá 1980. Hann rak eigin verkfræðistofú frá 1971 en starfaði áður hjá borgarverkfræð- ingi. Asgeir Hannes Eiríksson verslun- armaöur tekur sæti Benedikts á Al- þingi. -gse LOKI Og ég sem hélt að framhaldsviðræðurn- ar væru eftir. Lokanir á sjúkrahúsunum: A | I ■ ■ x m m verio w® mww raiw jciiii miklar og í sumar - slæm nýting á fláifestingu, segir Davíð Á. Gnnnarsson, forstjóri Ríkisspítalanna „Ef verið er að velta þvi fyrir sér hvemig sjúkrarúm héma á höfúð- borgarsvæðinu em notuð liggur það Ijóst fyrir að það er afar slæmt að á hveijum spítala sé ár eftir ár ein og ein deild lokuð. Það er afar slæm nýting á fjárfestingu, því miö- ur,“ sagði Davíö Á. Gunnarsson, forstjóri Rfldsspítalanna, en iokanir spítalapna haía aldrei verið jafh- miklar og nú. Sérstaklega hefur verið kvartað yfir lokunum á öld- runardeildum sem er nýmæh í hef- bundnum lokunum Landspítalans. Davíð sagði að spítahnn hefði neyðst út í þessar lokanir á undan- fómum árum vegna skorts á hjúkr- unarfólki. Því til viðbótar hefði bæst niðurskurður í ár vegna al- menns sparnaðar í heilbrigðiskerf- inu. Þess vegna hefði t.d. verið reynt að draga úr afleysingum eins og hægt er. í kjölíar þess hljóta að vakna spumingar um nýtingu þeirrar fjárfestingar sem hefði átt sér staö á' sjúkrahúsunum en á síöustu árum hefur rúmanýting falhð. Davíð sagöi að engin leið væri að æOast til 100% nýtingar á spítala en hann benti þó á að hafa mætti meira samræmi í uppbyggingu heilbrigöisstofhana, menntun hjúkrunarfólks og fjölda þess hjúkrunarfólks sem kemur út á vinnumarkaöinn á hveiju ári. í heilbrigöismálum eru miklar flárfestingar og þvi brýnt aö nýting þess húsnæðis sé góð. Á árunum 1978 til 1987 var fjárfest fyrir 12 milljarða króna í byggingum fyrir heilbrigðismál á núghdandi verð- lagi. 16%. vannýting á þeim bygg- ingum gerir hvorki meira né minna en 1,9 mihjarð. Þó að gert sé ráð fyrir því aö fuh nýting á spítala sé varla mögulega þá er Ijóst að hvert prósentustig í nýtingu býður upp á mitónn spamað. í sumar verður lokun á meðaldeild bjá Landspítal- anum í sem nemur 59 vikum. Á meðaldeild eru 20 rúm og því verð- ur lokunin, ef miöað er við eitt rúm, í 8260 daga. -SMJ Þegar settum áfanga er náð þarf að festa það á filmu. Það fannst varaþingmanni Kvennalistans í Vesturlandskjör- dæmi, Ingibjörgu Daníelsdóttur, þegar þingkonurnar Kristín Einarsdóttir og Danfríður Skarphéðinsdóttir voru komn- ar á tind Snæfellsjökuls i snjóbíl en fyrir skömmu hófust skipulagðar skoðunarferðir upp á Jökul. Sjá nánar bls. 4. -DV-mynd GVA Veöur á sunnudag og mánudag: Kaldi og skúrir á suðvestur- horninu Veðurspáin fyrir sunnudag og mánudag segir að suðvestan kaldi og skúrir verði á vestanverðu landinu en gola og bjart veður um landið austanvert. Júllus Sólnes: Erum ekki í viðræðum við ríkisstjórnina í yfirlýsingu sem Júhus Sólnes, formaður Borgaraflokksins, hefur sent frá sér tekur hann fram að eng- ar formlegar stjórnarmyndunarvið- ræður hafi verið í gangi síðan í jan- úar. Júlíus tekur þó fram að það sé stefna Borgaraflokksins að ganga th samstarfs við alla flokka: „... sem hafa áhuga á því að taka á vandamál- um á raunhæfan hátt og standa að efnahagsaðgerðum, sem duga.“ Því hafi Júlíus fyrir nokkru gert fuhtrú- um stjórnarflokkanna grein fyrir því hveijar væru forsendur þess að Borgaraflokkurinn kæmi til við- ræðna um hugsanlegt stjórnarsam- starf. Júhus tekur fram að engar við- ræður hafi farið fram síðan og muni ekki fara fram að óbreyttu. Því til áréttingar má bæta við að Júlíus, sem eðh málsins samkvæmt myndi leiða stjórnarmyndunarvið- ræður fyrir Borgaraflokkinn, er nú farinn af landi brott og dvelst erlend- is næstu þrjár vikur. -SMJ GÆÐI - GLÆSILEIKI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.