Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1989, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1989, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUK 27, OKTÖBEK 1689. : 3 Fréttir Útgerðarfélag Akureyringa: Aðeins 1900 tonnerueftir af kvótanum - hætt við að reksturinn stöðvist 1 desember Gylfi Krisjánsson, DV, Akureyii: „Við reynum að berjast eins og við getum fyrir því að hafa vinnslu hér í fyrirtækinu eins lengi og hægt verður,“ sagði Vilhelm Þorsteins- son, annar framkvæmdastjóra Út- gerðarfélags Akureyringa hf„ er DV ræddi við hann um kvótastöðu fyrirtækisins og úthtið varðandi það að halda uppi atvinnu hjá fyr- irtækinu það sem eftir liflr árs- ins. Á síðasta ári entist kvóti togara félagsins fram undir jól og þá var hægt að halda uppi nokkuð sam- felldri vinnu. Vilhelm sagði að til þess að það yrði hægt nú þyrfti fé- lagið að komast yfir viðbótarkvóta en það hefði ekki tekist þrátt fyrir að mikið hefði verið reynt. Ástandið væri verra nú en á síð- • asta ári því að vegna takmörkunar á veiðiheimildum hefði ÚA misst um 1500 tonn sem þýddi um mán- aðarvinnu. Samkvæmt því myndu þau 1900 tonn, sem 6 togarar félagsins eiga eftir að veiða, endast út nóvember- mánuð. „Ég treysti mér ekki til að segja fyrir um það nákvæmlega. Það er svo erfitt að segja fyrir um veður og aflabrögð en við reynum að beijast eins og við getum fyrir því að hafa vinnslu í gangi hér eins lengi og hægt er,“ sagði Vilhelm. Þessa dagana er verið að ganga frá kaupum Útgerðarfélags Akur- eyringa hf. á togbátnum Baldri frá Keflavík. Honum fylgir rúmlega 500 tonna kvóti en ÚA getur ekki nýtt þann kvóta fyrr en á næsta ári. Vilhelm sagöi að allt hefði ver- ið reynt sem hægt væri að kaupa viðbótarkvóta nú svo hægt væri að tryggja vinnslu út árið.en það hefði ekki borið árangur. Eins og staðan er í dag virðist því fátt benda til annars en að kvóti félagsins verði búinn í lok nóvemb- er eða byijun desember og þá muni starfsemi fyrirtækisins leggjast niður. I nýja einbýlishúsinu við Logafold, sem er fyrsti vinningur á sprengimiðann. F.v. Örlygur Hálfdanarson, ritari Slysa- varnafélags íslands, Einar Gunnarsson, formaður Landssambands flugbjörgunarsveita, og Arnfinnur Jónsson, varaformaður Landssambands hjálparsveita skáta. DV-mynd Brynjar Gauti íbúðarhús á skafmiða - eintak af DV 1 vinning á sjöunda hvem miða í Lukkutríói „Arangur samstarfs þessara þriggja aðila er með ólíkindum. Hér er um að ræða starfsemi til upp- byggingar tækja og þjálfunar 3200 sjálfboðaliða í 126 björgunarsveitúm á landinu," sagði Örlygur Hálfdanar- son, ritari Slysavamafélags íslands, er hann kynnti stærsta vinning á skafmiða hérlendis frá upphafi, ein- býlishús við Logafold 209, að verð- mæti 15 milljónir króna. Landssambönd flugbjörgunar- sveita og hjálparsveita skáta standa einnig að nýja Lukkutríósmiðanum ásamt Slysavarnafélaginu - skaf- miðinn nefnist sprengimiði. Verð- mæti vinninga er 56 milljónir króna af 100 milljóna króna tekjustofni. Einbýhshúsið við Logafold verður sýnt almenningi í fyrsta skipti á laug- ardaginn. Opið verður kl. 10-18 um helgar og frá 17-22 á virkum dögum. Eintak af DV er í vinning á sjöunda hvern sprengimiöa eöa samtals 150 þúsund eintök á hveija milljón miða. Auk einbýlishússins eru fjórir bílar í vinning, tveir vélsleðar, 44 utan- landsferðir fyrir 2-4, 40 sjónvarps- tæki, tölvur, húsgögn, matvörur og fleiri hlutir. Einnig er hægt að fá ýmsa vinninga með því að safna mið- um með tilteknum fjölda af stjörn- um. Allir vinningar að undanskyldu DV afhendast á skrifstofu Lukkutrí- ós í Borgartúni 18. DV afhendist strax á öllum sölustöðum Lukkutrí- ós. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.