Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1989, Qupperneq 6
6
FÖSTUDÁÖUR 2Í OKTÖBER 1989.
Viðskipti__________________________________________________________________________dv
Dýrustu landbúnaöarvörumar í Reykjavík:
Verdkönnunin lítið marktæk
- segir framkvæmdastjóri Stéttarsambands bænda
„Ég tel að verðkönnun, sem mælir
ekkert annað en verð á landbúnaðar-
vörum út úr smásöluverslunum, sé
litið marktæk. Slík könnun segir
ekki hvemig rekstrarumhverfi land-
búnaðar í viðkomandi landi er en það
skiptir auðvitað miklu máli,“ segir
Hákon Sigurgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Stéttarsambands
bænda, um könmm Verðlagsstofn-
unar á verði matvara í höfuðborgum
nökkurra landa.
Af þeim löndum, sem tekin voru
fyrir í könnuninni, voru landbúnað-
arvörur langdýrastar í Reykjavík en
langódýrastar í Færeyjum. Formað-
ur Neytendasamtakanna, Jóhannes
Gunnarsson, sagði við DV í gær að
þessi könnun sýndi að landbúnaðar-
vörur á íslandi væru dýrastar í
heimi. Jafnframt sagði hann að verð
á landbúnaðarvörum í Færeyjum
væri svo lágt vegna þess að þeir nýttu
sér heimsmarkaðsverð á landbúnaö-
arvörum.
Hákon segir að nauðsynlegt sé að
skoða rekstrarumhverfi landbúnað-
ur í mismunandi löndum. Þannig búi
bændur í mörgum nágrannalöndum
okkar, eins og í Noregi og Englandi,
við beina styrki sem kemur á engan
hátt inn í verðmyndunina, það er
verðið út úr búö. Þá búa þessi lönd
ekki við söluskatt á matvæli en hér-
lendis er hann 25 prósent.
„Sé ekki tekið tillit til svona atriða,
þegar verðkannanir eru gerðar og
ályktanir dregnar af niðurstöðum
þeirra, þá fær fólk ekki rétta mynd
af stöðunni."
- Landbúnaðarvörum eru ódýrastar
út úr búð í Færeyjum í könnuninni
en þeir flytja inn flestallar land-
búnaðarvörur sínar. Telur þú ekki
rétt að leyfa núna innflutning á land-
búnaðarvörum?
Hákon Sigurgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Stéttarsambands
bænda. „Frekar þarf að létta álög-
um af íslenskum landbúnaði en
leyfa frjálsan innflutning land-
búnaðarvara."
„Nei. Ég tel frekar að lækka eigi
álögur á íslenskan landbúnað fremur
en að leyfa innflutning."
- Hvaða álögur eru á íslenska land-
búnaðinum?
„Það er hægt að nefna aðstöðugjald
sveitarfélaga, kjamfóðurgjaldið og
loks 25 prósent matarskatt. Þetta tel
ég helstu álögumar."
Hákon segir ennfremur að inn-
flutningur á landbúnaðarvörum sé
einnig af ýmsum ástæðum óskyn-
samlegur. Ég nefni öryggissjónar-
mið, þá atvinnu sem íslenskur land-
búnaður skapar og loks að innflutn-
ingur á hráu kjöti opnar fyrir sjúk-
dóma sem landbúnaður í öðrum
löndu býr við.
- En kom niðurstaða könnunarinn-
ar þér á óvart?
„Nei, hún gerði það ekki.“
-JGH
Georg Ólafsson verðlagsstjóri.
„Stofnunin treystir því að sam-
keppnislögin séu virt af öllum á gos-
drykkjamarkaðnum."
Georg Ólafsson verðlagsstjóri:
Treysti því að Kók fari að
fyrirmælum verðlagsyfirvalda
GeorgÓlafsson verölagsstjóri segir
aö niðurstaðan í kærumáli Pepsí á
hendur Kók sé sú að eftir mikla
vinnu Verðlagsstofnunar í málinu
og fundahöld með forráðamönnum
Vífilfells hafi stofnunin ástæðu til að
treysta því að fyrirtækið fari eftir
fyrirmælum hennar um framkvæmd
afsláttartilboða. Því sjái Verðlags-
stofnun ekki ástæðu til frekari að-
gerða í málinu.
- Þýða þessi fyrirmæli ykkar til
fyrirtækisins að þið teljið að það hafi
brotið lögin um samkeppnishömlur
og óréttmæta viðskiptahætti?
„í þessu máli gengu ásakanir á víxl.
Við leituðum lausna. Forráðamenn
Vífilfells neituðu að hafa brotið lögin.
Við töldum okkur hafa vísbendingu
um að í einstökum tilvikum hefðu
söluaðferðir gengið of langt. Við telj-
um hins vegar tryggt að hvaða sölu-
aðferðum sem kann að hafa verið
beitt áöur séu þær ekki til staðar í
dag. Það er fyrir mestu í þessu máli.“
- Nú kærði Kók raunar Pepsí á
móti fyrir að bijóta samkeppnislög-
in. Hvað kom út úr þeirri rannsókn
ykkar?
„Því máli er ekki lokið. Þar er eins
og í fyrri kærunni staðhæfing Sanit-
as á móti staðhæfingu Vífilfells. Ég
árétti hins vegar að ég tel að það
skipti mestu máli að stofnunin
treystir þvi að samkeppnislögin séu
virt af öllum á gosdrykkjamarkaðn-
um.“ Georg segir aö lögin geri ráð
fyrir því að Verðlagsstofnun leiti
fyrst og fremst lausna í deilumálum
tveggja fyrirtækja, eins og var í þessu
tilviki, og gangi úr skugga um að
meint brot séu ekki viðhöfð áfram.
En auðvitað geti stofnunin gripið til
harðra aðgerða gegn ítrekuðum brot-
um.
„Ef menn eru ekki ánægðir með
niðurstöðu okkar geta þeir hins veg-
ar leitað til dómstólanna," segir
Georg ennfremur.
-JGH
Vaxandi framleiðsla
í smásölupakkningar
- verðmætaaukningin að meðaltali um 40 prósent
Skrautlegar og dýrar pakkningar þarf fyrir fisk sem fer á smásölumarkað-
inn. Hér á myndinni er sýnishorn af nokkrum pakkningum frá íslandi.
Nýju kerin við Hraunakrók.
DV-mynd Þórhallur
Miklilax í
miklum fram-
kvæmdum
Þórhallur Asmundssan, DV, Sauöárkróki;
Nýlega var seinni áfangi mat-
fiskeldisstöðvar Miklalax við
Hraunakrók í Fljótum tekinn í notk-
un. Þá var fiskur settur í sex ker sem
komið var upp í sumar. Stöðin, sem
að mestu er fullbúin, miðast við
800-1000 tonna framleiðslu.
„Miðað við stærð er þetta ekki dýr
framkvæmd og ég er bjartsýnn á
framhaldið. Ef vel er á málum haldið
eiga þessar fjárfestingar, sem hér
hefur verið ráðist í, að skila góðum
arði. Fyrir samfélagið hér eru þær
ómetanlegar," sagði Reynir Pálsson
framkvæmdastjóri.
Þessa dagana er að hefiast undir-
búningur að byggingu aðstöðuhúss
til slátrunar og viðhalds. Verður það
um 500 fermetrar að stærð. Fyrsta
eldislaxinum úr Miklalaxstöðinni
verður líklega slátrað upp úr næstu
áramótum og hefur fiskurinn vaxið
mjög hratt.
Tvö frystihús hér á landi eru í
auknum mæli að fara út í fram-
leiðslu á svonefndum smásölu-
pakkningum. Þar er um að ræða nið-
urskorin flök, að einhverju leyti
krydduð, og eiga þau að vera tilbúin
til eldunar.
Verðmætaaukning frá dýrustu
pakkningum í hefðbundinni vinnslu
er um 40 prósent aö meðaltali, að því
er fram hefur komið hjá Jóhanrú
Antonssyni viðskiptafræðingi. Á
móti kemur svo að allar pakkningar
eru dýrari og frystihúsin verða að
leggja út í kostnað við vélakaup og
vinnan við þessar pakkningar er
meiri.
„Það er staðreynd að þær pakkn-
ingar sem við erum með gefa hærra
vinnsluverð. En á móti kemur miklu
hærri umbúðakostnaður og meiri
vinnulaunakostnaður en við hinar
hefðbundnu pakkningar. Ég held að
þessi markaður sé takmarkaður og
hann getur aldrei komið í stað hins
hefðbundna markaöar sem við ís-
lendingar höfum, bæði í Evrópu og
Bandaríkjunum. En varðandi þenn-
an smásölumarkað er honum að
stærstum hluta sinnt af heimamönn-
um í hveiju landi. En svo er lítið
hom af markaðniun, sem er niður-
skorin flök, sem eru fryst mjög fersk.
Þar höfum við veriö aö smeygja okk-
ur inn,“ sagði Jón Friðjónsson, for-
stjóri Hvaleyrar hf. í Hafnarfirði.
Hann sagði þennan markað vera í
hærri endanum hvað verð snerti,
hann væri takmarkaður en þó vax-
andi. Jón sagðist eiga von á að þessi
markaður myndi þróast hægt og bít-
andi en yrði aldrei nein allsheijar
lausn fyrir okkur.
Sölumiðstöö hraðfrystihúsanna
sér um sölumálin á þessum mark-
aði. í síðustu viku tók SH þátt í mat-
vælasýningunni Anuga í Köln í
Þýskalandi. Gylfi Þór Magnússon,
framkvæmdasfióri söludeildar, sagði
að þátttaka í svona sýningum treysti
mjög samböndin á milli kaupenda
fisks frá íslandi og SH. Að því leyti
væri gott að taka þátt í svona mat-
vælasýningum. Markaöurinn væri
fyrir hendi og nauðsynlegt að treysta
vel þau sambönd sem fyrir væru.
„Það sem allt veltur á varðandi
markaðinn er verðið. Það er ekki
rétt sem sagt hefur verið að SH þafi
sofið á verðinum í markaðsmálum.
Það sem hins vegar hefur heft okkur
mjög er hvað við höfum orðiö að fá
hátt verð fyrir afurðimar. Við vær-
um komnir miklu lengra á þessum
markaði ef svo hefði ekki verið,“
sagði Gylfi Þór Magnússon.
Fyrirhugað er að eitt til tvö frysti-
hús til viöbótar hefii framleiðslu á
fiski í smásölupakkningum á næsta
ári.
-S.dór
Jóhannes Gunnarsson:
Færeyingar
nýta heims-
markaðsverðið
Jóhannes Gunnarsson, formaöuri
Neytendasamtakanna, segir aö niö- (
urstööur könnunnar Verölagsstofn-
unar á veröi matvara í höfuöborgum
nokkurra landa sýni þaö sem Neyt-
endasamtökin hafi haldiö fram aö i
verð á landbúnaöarvörum sé hæst í i
heimi á íslandi. Jafnfcamt aö verð á I
landbúnaðarvörum í Færeyjum sé’
svo lágt vegna þess aö þeir nýti sér
heimsmarkaösverö á landbúnaöar-
vörum og flytji inn allflestar land-
búnaöarvörur sínar.
„Þaö sjá þaö allir aö þetta kerfi
okkar í landbúnaöi gengur ekki leng-
ur óbreytt. Þess vegna er krafa Neyt-
endasamtakanna núna alger upp-
stokkun í landbúnaöi, uppstokkun
sem gerir fólki kleift aö kaupa land-
búnaöarvörur á sama veröi og í ná-
grannalöndunum."
Um skv
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 8-11 Úb.V- b.S- b.Ab.Sp
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 8-13 Ub.Vb
6 mán. uppsögn 9-15 Vb
12 mán. uppsögn 9-13 Úb.Ab
18mán.uppsögn 25 Ib
Tékkareikningar, alm. 2-5 Sp
Sértékkareikningar 4-11 Vb.Sb,- Sp
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3jamán.uppsögn 0,75-2 Vb
6mán. uppsögn 2,5-3,5 lb
Innlánmeðsérkjörum 21,5 Lb
Innlán gengístryggð
Bandaríkjadalir 7,25-8 Ab.Sb
Sterlingspund 12,5-13 Sb,
Vestur-þýsk mörk 5,75-6,25 Ib.Ab
Danskarkrónur 8-8,75 Bb.lb,- Ab
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir vixlar(forv.) 26-29 Ib.V- b.Sb.Ab
Viöskiptavíxlar(forv-) (1) kaupgengi
Almennskuldabréf - 28-32,25 Vb
Viöskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(vfirdr.) 30-35 Sp
Utlán verðtryggð
Skuldabréf 7,25-8,25 lb,V-
b.Ab
Utlántilframleiðslu
Isl. krónur 25-31,75 Vb
SDR 10,25 Allir
Bandaríkjadalir 10,5-10,75 Úb
Steriingspund 15,5 Allir
Vestur-þýsk mörk 8,25-8,75 Úb.S- b.Sp
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 38,4
MEÐALVEXTIR
överðtr. okt 89 27,5
Verðtr. okt. 89 7,4
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala okt. 2640 stig
Byggingavísitala okt. 492 stig
Byggingavisitala okt. 153,7 stig
Húsaleiguvísitala 3.5% hækkaði 1. okt.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabróf 1 4,345
Einingabréf 2 2,400
Einingabréf 3 2,852
Skammtímabréf 1,490
Lifeyrisbréf 2.184
Gengisbréf 1,929
Kjarabréf 4,309
Markbréf 2,280
Tekjubréf 1,826
Skyndibréf 1,296
Fjölþjóðabréf 1.268
Sjóðsbréf 1 2,090
Sjóðsbréf 2 1,640
Sjóðsbréf 3 1,467
Sjóösbréf 4 1,232
Vaxtasjóðsbréf 1.4770
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv •
Sjóvá-Almennar hf. 318 kr.
Eimskip 388 kr.
Flugleiöir 170 kr.
Hampiðjan 168 kr.
Hlutabréfasjóöur 158 kr.
Iðnaðarbankinn 170 kr.
Skagstrendingur hf. 228 kr.
Útvegsbankinn hf. 146 kr.
Verslunarbankinn 148 kr.
Tollvörugeymslan hf. 110 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb =
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. '
Nánari upplýsingar um peningamarkaö-
inn birtast í DV á fimmtudögum.