Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1989, Blaðsíða 5
Barber teppi
MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1989.
Fréttir
Islensk kona í Miinchen með hálsbólgu:
Apótekarinn mælti með
„íslenskupn mosatöflum“
lála-Moos
rein pflaníiich „,
<> 'v <- 'x' V< < < f ^<5
V'<í;.í>'>,* >,,í>'
r>'.<•»•■■• &','V-..Cx:a>, í'v: ,<
Það viðist vera hægt að selja ýmis lyf ef Island er sagt tengjast þeim á
einn eða annan hátt. Kona í Miinchen fékk hálsbólgu og i apótekinu var
mælt með „islenskum mosatöflum" sem þurfa ekki að vera íslenskari erí
hvað annað. DV-mynd Brynjar Gauti
„Dóttir mín fór í apótek í Míinchen,
þar sem hún býr. Hún var með háls-
bólgu og þurfti eitthvað til að mýkja
hálsinn. Afgreiðslumaðurinn fór í
hilluna og kom aftur með töflur sem
hann sagði að væru unnar úr ís-
lenskum mosa. Mælti hann með töfl-
unum í alla staði. Dóttir mín varð
forvitin og keypti einn pakka af þess-
um mosatöflum," sagði móðir um-
ræddrar konu í samtali við DV.
Konan sendi blaðinu pakkann utan
af töflunum með fjórum mosatöflum.
Pakkinn er eins og lyfjapakkar eru
flestir og töflurnar eins og venjulegar
ópaltöflur, bara aðeins stærri. Á
pakkanum stendur vöruheitið Isla-
Moos - hrein náttúruafurð. Segir að
hið virka efni sé safi úr íslenskum
mosa eða „Islandisch Moos Ex-
trakt“. Er mælt með töflunum við
sárum hósta, hæsi, hálsbólgu og
áreynslu á raddböndin.
DV heimsótti apótek til að forvitn-
ast um mosalyf og þar kannaðist
lyfjafræðingur ekki við það. Var flett
upp í þykkum lyfjadoðröntum þar
sem ekkert fannst um lyfið. Lyfja-
fræðingurinn tjáði blaðamanni hins
vegar að þessar töflur væru senni-
lega alveg jafngóðar og aðrar töflur
sem seldar væru við hálsbólgu og
slíku. Þegar fólk þjáðist af hálsbólgu
væri mikilvægast að hafa alltaf eitt-
hvað upp í sér til að geta rennt sem
oftast niður og mýkt þannig hálsinn.
Til að ráða bug á bólgunni þyrfti fólk
að taka fúkkalyf. Gæti verið um lodd-
ara að ræða sem ekki þyrftu að
standa við neitt er viðkæmi virkni
taflnanna.
Jón Einarsson, sonur Ástu Erlings-
dóttur grasalækningakonu með
meiru, sagði að þessar töflur væru
að öllum líkindum unnar úr lyfja-
grösum sem Þjóðveijar kölluöu
moos, eða mosa. Vissi hann til þess
að Þjóðverjar og fleiri, sem hingað
koma, tíndu lyfjagrös til að taka með
sér heim. Hins vegar væri fullt af
loddurum í Evrópu sem gætu tekið
upp á að nota ísland til selja hvað
sem væri. Væri ísland gjaman tákn
alls hins hreina. Á íslandi væru
mosi og lyfjagrös alla vega ekki
„geislavirk" eða menguð með súru
regni.
Blaðamaður reyndi tölfumar og
fannst þær heldur bragðhtlar og vildi
ekkert gefa út á ágæti þeirra.
-hlh
Kaupleiguíbúðirnar í byggingu á Djúpavogi.
DV-mynd SÆ
Djúpivogur:
14 sóttu um fjórar
kaupleiguíbúðir
Sgurður Ægissan, DV, Djúpavogú
Bygging fjögurra kaupleiguíbúða hér
á Djúpavogi er nú í fullum gangi og
verða þær væntanlega fokheldar um
miðjan nóvember. Ráðgert er aö þær
verði tilbúnar til afhendingar í júlí á
næsta ári. Hver íbúð er um 100 fer-
metrar að stærð. Ámi Kjartansson,
arkitekt á Höfn í Hornafirði, teikn-
aði.
Búlandshreppi var úthlutað þess-
um fjórum íbúðum 1988 og þann 27.
nóvember voru þær auglýstar til
sölu. Alls sóttu fjórtán um þessar
íbúðir, ýmist heimafólk eða utanað-
komandi, og í sumum tilfellum hurt-
fluttir Djúpavogsbúar sem vildu
flytjast hingað aftur.
Jólaglaðnmgur
0 stgrafsl.
af ollum teppum nema
sértilboóum til jóla.
BYGRINGAMARKAÐUR
VESTURBÆJAR
Hringbraut 120,
sími 28600.
Teppadeild, s. 28605.
. ,
e •
á ódýran hátt
Innbyggðir og utanáliggjandi diskar
frá CMS fyrir Macintosh Plus, SE
og Mac II í úrvali. Stærðir frá 20 Mb
til 600 Mb. Bjóðum einnig
segulbandsstöðvar og geisla-
diska (WORM).
Tilboð: 60 Mb utanáliggjandi harður diskur
aðeins 76.500,- kr. staðgreitt.
Hringdu í síma 24120 og kynntu
þér kjörin.
Enhancements, Inc.
KRISTJÁN Ó
SKAGFJÖRD HF
Holmaslóö 4. 101 Reykjavík s. 24120