Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1989, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1989, Blaðsíða 6
ésli ííí^U«V3m ;) ii jíiaíiH/ik.i MÁNUDAGUR 6, NÓVEMBER-1989. Fréttir Aka suður með undan- rennu í borgarbúa Gylfi Knstjánsson, DV, Akureyii: „Það fór einn bíll héðan frá okkur með 22 þúsund lítra af undanrennu. Það fóru 24 tonn frá Sauðárkróki í síðustu viku og þetta er það eina sem liggur fyrir í biíi að ílutt verði suð- ur,“ sagði Þórarinn Sveinsson, mjólkursamlagsstjóri Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri, um flutninga á undanrennu til höfuðborgarinnar sem átt hafa sér stað að undanfornu. Þórarinn sagði að ástæðan fyrir þessum mjólkurskorti á höfuðborg- arsvæðinu væri fyrst og fremst sú að hey hefðu verið léleg í sumar og Guðbjörn Frímannson bilstjóri hjá Mjólkurbúi Flóamanna við bíl sinn er hann var að sækja 22 þúsund lítra af undanrennu til Akureyrar. DV-mynd gk það væri fljótt að segja til sín, 1% minnkun í innvigtun á mjólk væri fljót að segja til sín. „Teygjan hjá okkur er í ostunum," sagði Þórarinn, þegar hann var spurður að því hvort Mjólkursamlag KEA væri aflögufært með mjólkuraf- urðir. „Ostarnir eru ekki söluhæfir fyrr en eftir 3-5 mánuði þannig að við hggjum alltaf með einhvern lager af þeim. En ef þetta ástand varir áfram kemur til með að vanta smjörva og osta. Við getum þó látið ostinn þroskast fyrr á lager með því að hafa hærra hitastig þar,“ sagði Þórarinn. Bæjarfulltrúi á Akranesi: Vill að fólk drepi á kyrrstæðum bflum Garðar Guðjónsson, DV, Akranesi: „Við eigum að venja okkur á að drepa á bönum þegar hann er kyrr- stæður. Það dregur úr mengun, en auk þess er alltaf hætta á að bönum verði stolið ef hann er skilinn eftir í gangi,“ sagði Gísh Einarsson, bæjar- fuhtrúi Alþýðuflokksins á Akranesi, í samtali við DV. Gísli hefur lagt tö í bæjarstjórn að þeim tömælum verði beint til bæjarbúa að þeir láti ekki vélar kyrrstæðra bíla ganga. Gísh lagöi einnig tö að sett yrði upp skilti með þessum tömælum á viss- um stöðum í bænum, m.a. við dag- heimili. Tillagan hefur ekki verið endanlega afgreidd. Umræðan um þetta hófst með grein Kristínar.Steinsdóttur rithöfundar í Skagablaðinu fyrir nokkru. Þar skammaði Kristín bæjarbúa fyrir að sköja kyrrstæða böa eftir í gangi og benti á mengun af þeim sökum. Þess má geta að þess eru dæmi erlendis, t.d. í Svíþjóð, aö fólki sé skylt að drepa á vélum kyrrstæðra böa. Nú er orðið hátt upp í melinn þar sem mest hefur brotnað úr kambinum. DV-myndir Páll Mikið landbrot í Mýrdal Páll Péturssan, DV, Vflc í Mýrdal: í fjörunni sunnan við þorpið í Vík í Mýrdal hefur átt sér stað mikil breyting undanfama mánuði af völd- um sjávarins. Fjörukamburinn hef- ur lækkað og brotnað niður frá út- falh Víkurár og vestur að Reynis- fjalli og koma þá í ljós steinar sem elstu menn hafa ekki séð í tugi ára, en voru í sjó fyrr á öldinni. Þar má nefna stein sem heitir Seila- steinn og er hann nú nokkuð úti í sjó en hægt var að ganga fram fyrir hann áður. Þaö er orðið meira en mannahæðar hátt upp í melinn þar sem mest hefur brotnað úr kambin- um. Áður en melurinn náði að festa rætur í sandinum voru sandstormar algengir í Vík og sandskaflar oft á götunum eftir mikil hvassviðri. Ef svo heldur áfram sem horfir, getur farið aö skapast hætta á sand- foki í Vík á ný. Margir velta því fyr- ir sér hvernig standi á þessu og sennilegasta skýringin er sú að straumar hafi breyst hér við strönd- í Ijós hafa komið steinar í fjörunni sem ekki hafa sést í tugi ára. ina að undanförnu vegna ríkjandi sótt um fiármagn tö ríkisins vegna vindáttar. Þá hleðst einnig upp sand- sjóvarnargarðs sunnan Víkur og er rif við Reynisdranga. tahð að það geti stöðvað þessa eyð- Sveitarstjórn Mýrdalshrepps hefur ingu fiörunnar. Talsvert um likams- meiðingar í miðbænum Ólæti voru í miðbæ Reykjavík- ur aðfaranótt laugardagsins og mödð um líkarnsmeiðingar. Tennur voru lamdar úr ungum pilti en þar sem lögreglumenn voru nærstaddir náðu þrjótnum. Að sögn varðstjóra hjá lögregl- unni gerist það nú æ tíðara að áflog eigi sér stað í miðbænum. Sem betur fer var ekki um alvar- leg meiðsl að ræða en líkams- meiðingar eru að verða stór- vandamál meðal ungmenna. Ekki getur lögreglan gefið skýr- ingar á þessu aukna ofbeldi en telur að uppeldi bama og mynd- bandaæðið geti átt þar stóran hlut að máli. í stöku tilfellum er um fíkniefnaneyslu að ræða. „Þetta er orðinn harður heimur hjá okkur og þetta er óhugnan- legt,“ sagði varðstjóri lögregl- unnar. Þjóðkirkjan: Tæplega 1500 hafa gengið út Frá árinu 1986 hafa 1.445 gengið í þjóðkirkjuna. Hins vegar hafa 1.479 gengið úr þjóðkirkjunni. Á sama tíma hafa 769 gengið í fríkiijusöfnuði en 1.278 gengið úr þeim. Það sem af er þessu ári hafa þannig 252 gengið úr Frí- kirkjusöfnuðinum í Reykjavík en einungis 24 gengið í hann. Frá 1986 hafa 109 gengið í ka- þólska söfnuðinn en 78 gengið úr honum. Það sem af er þessu ári gekk 21 í söfnuðinn en 13 sögðu sig úr honum. Frá 1986 hafa 307 skráð sig utan trúfélaga. -gse Óskilgetnum fer fjölgandi Af þeim 1.661 frumburði sem fæddist í fyrra voru ekki nema 312 skögetnir. 1.041 fæddist í óvígða sambúð en foreldrar 308 voru ekki í sambúð. Á síöari hluta sjöunda áratug- arins voru 548 frumburðir af 1.463 skögetnir. Af ööum fæddum var rétt tæp- lega helmingur skögetinn í fyrra eða 2.241 af 4.673 fæðingum. Á sjöunda áratugnum fæddust 3.035 af 4.313 íslendingum í hjóna- bandi. -gse Sandkom Endurskipulagning Fyrirtæki víðsvegar um landiðerunúí óöaqnnaðend- urskipuleggja i-ekstursinnoa fersúendur- skipulagningfram með ýmsu móti. Algengaster, svonaútá viða.m.k., ófáír sem fengið hafa uppsagnarbréf síðustu dagana. Fyrirtækið Sanitas hf. fór þessa leiö í síðustu vilcu og sagði upp 15-20 starfsmönnum. For- stjórinn sagði að fara yrði þessa leið til að endurskipuleggja afgreiðsluna og útkeyrsluna en tók þaö jafnframt flram að allir þessir menn yrðu end- urráönir. Það er varla von aö við leik- mennirmr skiljum þessa aðferö bis- nessmannanna viö endurskipulagn- ingu, nema ef fara á þá leiö að ráða þessa menn aftur á lægri launum en þeir hafa halttil þessa. Endurskipu-. lagxtingin getur ekki falist í þvi einu að segja mönnum upp og ráða þá svo straxaftur. Gúlliver „Stúra spurn- ingin" heitir spurninga- keppni sem rás 2ermeöádag- skrásimiiá ■________hvetjumvirk- umdegien í þei m keppm rejma fttll- trúar vinnustaða með sér. Ekki er neitt nemagott eitt um þessa keppni; að segjaþví svo virðist sem þetta sé vinsæltútvarpsefni meðal almenn- ings. Stjórnandi „Stóru spurningar- innar“ er stórskeamtöegur en virð- ist stundum vera dáhtið „stressaður'* oggengurþáá ýmsu. Þannig var það i síðustu viku þegarskipverji af Gúlliver (sem mun vera bátur eða togari) koppti ft'rir hönd áhafnarinn- ; ar. íhita leiksins kallaði stjórnand- r inn skipiö Gúlliverogskömmu siðar var hann búinn aö bæta einkenn- isstöfunum sf. aítan við nafn skips- ins. Skipvetjinn á Gúlliver hafði að sjálfsögðu gaman af þessu öhu sam- an, enda ekki ástæða til annars. Stígaútreikningur vefst einnig citt- hvaö fýrir sfiómandanmn og þá hef- ur hann fengið tötal i „Meinhorni“ rásarinnar vegna málfars og verið bent á að iáta málfarsráðunaut Rikis- útvarpsins serpja texta sinn. Þaö er ekkí tekið út með sældinni að vera útvarpsmaðurídag. MáSað fyrir Sjöfn? Þegarþeir scm.iga leiðtii Akureyraraka inníbæirmað norðanverðuer eittþaðíyrsta sembertyrir augu þeirra stórt og mikiö hús á hægri hönd. Þetta em höfúðstððvar Efnaverksmiðjunnar Sj aíhar sem m.a. tramleiðir málningu af miklum kraftí. Svo viröist sem þeir hjá Sjöfn hafi ekki undan við aö framleiöa málningufyriraðra, a.tn.k. hafa þeir ekkí enn getaö málaö þetta tnikla mannvirki sitt, enda þarf nokkra lítra Öl að þekja þetta möda bákn. Sú saga gengur nú á Akureyii að fyrirtækiö Máining hf., sem er í samkeppni við Sjöfn á málningarmarkaðnum, hafi boðist til þess að mála Sjafnarhúsið, að sjálfsögðu með sinni eigin máin- ingu, en ekki befur heyrst hvort þeir Sjafnarmenn ætli að taka þessu til- boði. Er þetta smitandi? Þaðeruekki bararáðherrar ogaðrirhátt- settirmenní þjóðfélaginu sememá _______ferðalögum -j meö maka sína á kostnaö hins opin- bera ef roarka má frétt Víkurblaösins „veitunefndarmanna“ bæjarins á ráðstefim í Reykjavík. Venjan er sú að veitustjóri hefur sótt þessar ráð- stefnur ásamt einum neihdarmanni en nú fékk veitustjórinn þijá menn með sér ogaöir höföu þeir máka sína með. Húsa víkurbær greiddi flugfar og hótelkostnað fyrir allan hópinn og dagpeninga fyrirfiórmenningana. Mörgum Hús víkingum ílnnst sem þania sé verið að bruðla með al- mannafé og athugasemdir eru gerðar viö það að bæjarstjóm var ekki kynnt töhögun ferðarinnar og fi öldi ferða- langa áður en hún hófst. UmBjón: Oytti KrlstjánBSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.