Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1989, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUB 6. NÖVEMBER 1989.
Utlönd
Borgarstjórakosningar 1 New York á morgun:
Atkvæði blökkumanna
geta ráðið úrslitum
Borgarstjórakosningar í New York
fara fram á morgun. Rudolph Giul-
iani, frambjóðandi repúblikana, hef-
ur undanfarið náð að minnka forskot
blökkumannsins Davids Dinkins,
frambjóðanda demókrata, úr 20 til
30 prósentum í 10 prósent samkvæmt
skoðanákönnunum. En það forskot
er ótryggt þar sem margir kjósendur
eru enn hálfvolgir í afstöðu sinni.
Úrsbtin geta því oltið á því hveijir
skba sér helst á kjörstað, einkum
hversu vel blökkumenn skila sér
þann 7. nóvember.
Fjármál Dinkins hafa einkum orðið
honum að fótakefb. Hann skilaði
ekki framtab í fjögur ár um 1970 en
kjósendur virtust taka þá skýringu
hans gilda að endurskoðanda hans
væri um að kenna.
En Giubani fékk aftur höggstað á
honum vegna hlutabréfa í útvarps-
stöð sem Dinkins fékk syni sínum
1985. Hann sagði fyrst aö þau væru
gjöf en síðan að hann hefði selt syni
sínum þau fyrir jafnvirði um þriggja
og háífrar mbljónar króna. Þau
munu þó ekki greiðast fyrr en í byij-
un næsta áratugar. En sá hængur er
á að hlutabréfin höfðu tveimur árum
áður verið metin á jafnvirði rúmlega
sextíu mibjóna króna. Giubani sakar
því Dinkins um skattsvik í þessu efni.
Guiliani biðlar til gyðinga
Slæm sambúð hvítra og blökku-
manna í borginni veldur Dinkins
einnig nokkrum vandræðum. Einn
helsti styrkleiki Dinkins hefur verið
að fólk hefur tabð hann einna bkleg-
astan til að vera mannasættir. Nokk-
uð skyggði á þegar í ljós kom að
Dinkins hafði ráðið til starfa í próf-
kjörinu blökkumann, dæmdan
mannræningja, sem skömmu áður
hafði staðið fyrir mótmælaaðgerðum
blökkumanna gegn meintum kyn-
þáttamismuni í borginni. Orðrómur
var um að manninum hafði verið
mútað með ráðningunni til að hann
hefði hægt um sig fram yfir kosning-
David Dinkins, frambjóðandi demókrata i New York, hefur fengið framá-
menn Demókrataflokksins sér til aðstoðar. Simamynd Reuter
ar. Ekki bætti úr skák þegar maður-
inn neitaði ásökunum um gyðinga-
hatur meö þeim orðum að hann hat-
aöi aba hvíta menn jafnt.
Þetta varð til aö endurvekja tor-
tryggni gyðinga í garð Dinkins sem
ver blökkumannaleiðtogann Jesse
Jackson sem hefur unnið sér það tb
ófylgis meðal gyðinga að taka mál-
stað Palestínumanna í deilum þeirra
við ísrael. Giuliani gekk á lagið og
Rudolph Guiliani, frambjóðandi repúblikana í New York, hefur undanfarið
náð aö minnka forskot andstæðings sins, David Dinkins, samkvæmt niður-
stöðum skoðanakannana. Símamynd Reuter
hefur óspart biðlað til gyðinga með
góðum árangri. Níu af hveijum tíu
þeirra, sem hafa gert upp hug sinn
síðustu vikuna, hafa snúist tU bðs
við Giubani.
Dinkins hefur brugðist við með því
að fá framámenn Demókrataflokks-
ins tU bðs við sig, Edward Kennedy
öldungadeildarþingmann, Mario Cu-
omo, fylkisstjóra New York, og Ed
Koch, fráfarandi borgarstjóra. Meira
að segja Michael Dukakis, fyrrum
forsetaframbjóðandi, sem demó-
kratar hafa þó helst vUjað gleyma,
hefur veriö fenginn tU að mæla með
Dinkins við grískættaöa borgarbúa.
En Jesse Jackson hefur hins vegar
látið lítið fara fyrir sér.
Óvíst með kappræður
Óvíst er hvort Dinkins og Giubani
hittast í kappræðum fyrir kosning-
amar. Giuliani vUl aðeins mæta
Dinkins einum en Dinkins hefur
neitað að mæta nema frambjóðendur
smáflokka fái líka aö koma.
Gengur Dinkins það til að hann
veit að frambjóðandi andstæðinga
fóstureyðinga muni gera harða hríð
að Giuhani fyrir að hafa heykst á
andstöðunni við * fóstureyðingar.
Giuhani dró í land með afstöðu sína
þegar útbt var fyrir að það væri pólí-
tiskt sjálfsmorð i New.York þar sem
kjósendur em mun fijálslyndari en
í Bandaríkjunum almennt.
Málefnaleg umræða útundan
Kosningabaráttan hefur borið svip
af því að aðalbaráttutækið vestra er
nú orðið sjónvarpsauglýsingar. Ann-
ars vegar eru úthugsaðar glans-
myndir af frambjóðendunum en hins
vegar skítkastsauglýsingar sem níða
andstæðinginn niður. Hefur það far-
ið mjög vaxandi undanfarið og er að
margra ábti að verða aö landplágu.
En menn halda áfram að nota þær
vegna þess að hingað tb hefur níðið
skbað árangri.
Fyrir vikið hefur málefnaleg um-
ræða orðið útundan. Enginn skortur
er þó á alvarlegum vandamálum.
New York-borg stendur frammi fyrir
fjárhagskreppu sem er sögð verða
mun alvarlegri en á síðasta áratug
þegar borgin varð næstum því gjald-
þrota. Þá er heilbrigðiskerfi borgar-
innar að sbgast undan þunga fíkni-
efna og eyðnifaraldursins.
STÓRKOSTLEGT GRIP FRÁBÆR ENDING
O^TOPPURINN í DAG, MICHELIN. 'fK
MICHELIN
VISA
MICHELIN
mmmmiJí iif
SKEIFUNNI5.SIMAR 687517 OG 689660
mimmm/nf h/f
MEIRIHÁTTAR MICHELIN MARKAÐUR
LAUSNARORÐIÐ
S-200.
□LL MICHELIN
ERU RADlAL.
HUÓÐLÁT OG
RÁSFÖST.
HALLANDI GRIPSKURÐIR.
BOLIR MEÐ MYNDUM
VEL STAÐSETTIR SNJÚ-
NAGLAR. ,
MJÚKAR HLIOAR, MEIRI
SVEIGJA.
AKVEÐIN snúningsátt.
OPNARA GRIP.
BOB MARLEY
DONJOHNSON
A-HA
RAMBO
DIEGO MARADONNA
KISS
EUROPE
AC-DC
BATMAN
TINA TURNER
WHITNEY HOUSTON
MADONNA
IRON MAIDEN
MICHAEL JACKSON
PRINCE
PHIL COLLINS
UB 40
Nr. 6-8, 10-12, 14-16 kr. 945.
Nr. S-M-L, kr. 1.450.
SVARTAR GALLABUXUR
NR. 28-36 fcr. 4.725.
elle
Skólavörðustíg 42, sími 11506.
FLESTAR STÆRÐIR
FYRIRLIGGJANOI.
MERKIÐ TRYGGIR GÆÐIN.
MICHELIN.
TVÖFÖLD ENDING.
KLIPPINGAR
NÝJAR LÍNUR
OPIÐ LAUGARDAGA
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
ÓÐINSGÖTU 2.
Sími 22138,