Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1990, Qupperneq 6
6
MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 1990.
Fréttir________________________________________________________
Harðar deilur 1 stjóm Sambandsins um tilboð Landsbankans:
SIS samþykkti tilboðið
með naumum meirihluta
- ég er ekki að hætta, segir Guðjón B. Ólafsson
Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambands íslenskra samvinnufélaga, að lokn-
um stjórnarfundinum í gær. Þar var ákveðið með naumum meirihluta að
ganga að tilboði Landsbankans um kaup á meirihluta Samvinnubankans.
DV-mynd KAE
Stjóm Sambandsins samþykkti
kauptilboð Landsbankans í 52 pró-
senta hlut Sambandsins í Samvinnu-
bankanum eftir harðar deilur með
fimm atkvæöum gegn fjórum. Það
munaði því aðeins einu atkvæði að
stjóm Sambandsins felldi kauptil-
boðið. Guðjón B. Ólafsson, forstióri
Sambandsins, sagði eftir stjórnar-
fund Sambandsins í gær að það hefði
valdið sér og öðrum Sambands-
mönnum vonbrigðum að bankaráð
Landsbanka skyldi breyta svo út af
því samkomulagi sem gert hafði ver-
ið í góðri trú fyrr í haust. Um það
hvort rétt væri að hann hefði hótað
því að hætta hjá Sambandinu yrði
kauptilboði Landsbankans ekki tekið
sagði Guðjón að það væri algerlega
úr lausu lofti gripið.
„Kauptilboðiö hlaut mikla umræðu
í stjórn Sambandsins og það kom
fram mikil óánægja varðandi vinnu-
brögð bankaráðs Landsbankans. Við
töldum okkur hafa náð samkomulagi
við Landsbankann. Síðan það var
gert hafa viðræðunefndir beggja að-
ila talað saman. Við tókum þátt í
þessum viðræðum í góðri trú og töld-
um að samkomulagið væri báðum
aöilum hagkvæmt eins og mál stóðu.
Þess vegna voru það okkur mikil
vonbrigði hvemig bankaráð Lands-
banka stóð að málinu í lokin,“ sagði
Guðjón B. Ólafsson við DV að ný-
loknum stjómarfundi Sambandsins
í gær. Guðjón hélt þegar ásamt fleiri
starfsmönnum Sambandsins til út-
landa seinni partinn í gær.
- Er þaö rétt aö þú hafir hótað því
að hætta sem forstjóri Sambandsins
samþykkti stjómin ekki kauptilboð
Landsbankans?
„Þetta er ekki rétt og algerlega úr
lausu lofti gripiö."
- Nú hefur komið fram í fjölmiðlum
að erlendir bankar hafi hótað því að
gjaldfella öll erlend lán Sambandsins
ef kauptilboðið yrði ekki samþykkt.
Er þetta rétt?
„Allt tal um að erlendir bankar
hafi ætlað að gjaldfella lán Sam-
bandsins er ekki aðeins varhugavert
heldur veldur það mikilh óvissu
gagnvart íslenskum fyrirtækjum. Ég
tel að erlendir bankar geti orðið óró-
legir af svona gáleysislegu tali. Máhð
er þannig vaxið að Sambandið er
skuldsett fyrirtæki og það hefur ver-
ið eitt helsta markmið okkar að
lækka skuldir með sölu eigna. Ég
minni líka á að skuldir Sambandsins
sem hlutfall af veltu eru ekki meiri
en hjá mörgum öðrum íslenskum
fyrirtækjum en velta Sambandsins
var á síðasta ári um 21 mfiljarður
króna. Ég vil líka ítreka að Samband-
ið hefur verið og er með umfangs-
mikil bankaviðskipti og það hefur
ætíð staðið í skilum. Og mun gera
það áfram.“
- En er fyrirtækið ekki enn rekið
með tapi?
„Sambandið var rekið með tapi á
síðasta ári en ég á von á betri afkomu
á þessu ári. Að sjálfsögðu byggist
afkoma félagsins ekki síst á því að
verðlagsmál og gengismál komist í
jafnvægi. Ég get sagt að um leið og
það tekst að koma verðbólgunni nið-
ur hérlendis verður rekstrargrund-
vöUur Sambandsins góður.“
- Nú hefur veriö greint frá því að
þú sért með atvinnutilboð frá er-
lendu fyrirtæki og sért að íhuga að
hætta sem forstjóri Sambandsins.
Hvað er til í þessu?
„Ég hef lesið um það í fjölmiðlum
að ég sé að hætta. En svo er ekki.
Ég er ekki að hætta hjá Sambandinu.
Um það hvort ég sé með atvinnutil-
boð frá erlendu fyrirtæki vil ég ekk-
ert tjá mig um enda er það mitt
einkamál."
-JGH
Þrettándinn var rólegur um allt land. Ungir sem aldnir skemmtu sér við
álfabrennur og álfadans. Þessi ungi Akureyringur kvaddi jólin með stjörnu-
Ijósum. DV-mynd gk
Rólegt þrettándakvöld:
Fólk hefur ekki efni á
að kaupa vímuefnin
- segir varðstjóri hjá lögreglunni
„Eg held að fólk hafi eytt svo miklu
um jól og áramót að það hafi ekki
efni á að halda skemmtuninni áfram
um þrettándann og kaupa þau vímu-
efni sem áður mátti rekja ólætin til,“
sagði Friðrik Hermannsson, varð-
stjóri hjá lögreglunni í Reykjavík, til
skýringar á því hve borgarbúar
kvöddu jólin með miklum friði.
Undanfarin ár hefur oft komið til
óláta að kvöldi þrettándans en nú brá
svo við að allt fór friðsamlega fram.
í miðbæ Reykjavíkur voru fáir á ferli
aðfaranótt sunnudagsins og síst
meira þar um að vera en um venju-
legar helgar.
„Menningin er bara orðin svona
mikil,“ sagði Friðrik. „Ástandið hef-
ur farið batnandi undanfarin ár. Við
erum hættir að sjá þessi hörðu slags-
mál, sem oft voru áður, þótt tilvikum
þar sem eggvopnum er beitt hafi því
miður fiölgað."
í Hafnarfirði talar lögreglan um aö
kynslóðaskipti hafi orðið frá því þeg-
ar ólæti og sprengingar voru þar fast-
ur liður um áramót. Þeir sem nú eru
á aldrinum 14 til 16 ára virðast ekki
hafa lært ósiðina af þeim sem voru
á þeim aldri fyrir fimm árum eða svo.
Frá Selfossi er sömu sögu að segja
en þar voru ólæti á þrettándanum
árviss fyrir nokkrum árum. Lögregl-
an þar taldi síðustu helgi með þeim
rólegustu enda hafi hópurinn, sem
áður stóð fyrir óspektum, nú dregið
sig í hlé en ný kynslóð tamið sér
betri siði.
-GK
Akranes:
47 útskrifaðir á haustönn
- þar af 34 stúdentar
Garðar Guðjánsaan, DV, Akranesú
Fjörutíu og sjö nemendur útskrifuð-
ust frá Fjölbrautaskóla Vesturlands
á haustönn, þar af 34 stúdentar. Tíu
nemendur fengu viðurkenningu fyr-
ir ágætan námsárangur en bestum
árangri náðu þeir Einar Gunnar Ein-
arsson, Ingi Steinar Ingason og Jón
Tryggvi Njarðarson, allir af eðhs-
fræðibraut.
Á áttunda hundrað nemendur
stunduðu nám við skólann á síðustu
önn á fiórum stöðum á Vesturlandi
en skólinn er rekinn af 33 sveitarfé-
lögum í kjördæminu. Um það bil 200
aðkomunemendur eru við nám á
Akranesi.
Þau útskrifuðust frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á dögunum.
DV-mynd Garðar
Sandkom
Þrotlaus bar-
áttaslökkvi-
liðsstjóransá
Akurey n fyrir
þvíaðfákörfu-
bíltilmnráða
fyrírsigogsína
mennhefuráð-
ur veriðgerðað umræðuefni j þess-
um dálki. Slökkviliðsstjórimi situr í
byggingarnefhd bæjarins og jafnan,
þegar bygging húsa sem ná 10 metra
hæð hefur verið samþy kkt í nefnd-
inni, hefur slökkviliðssfiórinn vakið
athygli á körfubílaley si sinna manna
og etfiðleikimiþeiiTa áð eiga viðeid ■
í meiri hæð en 10 metrum. Hafi ein-
hverjir efast um aö slökkviiiðsstjór-
inn færí með rétt mál hlj óta þeir
sömu að hafa sannfærst þegar eldur
iogaði í Krossanesverksmíðjunni fyr-
irnokkrumdögum. Slökkviliðsmenn
komust ekki upp á þak by ggingarínn-
ar og enn síöur náðu þeir að fást við
eld sem logaðí efst í 26 metra háum
turru vcrksmiðiunnar.
Þaöfcrekki
hjáþvi aðmcnn
séuíárnirað
ræöafyrirhug-
aðarbæjar-
stjórnarkosn-
ingar á Akur-
_______ eyribggæti
dregiðtiltíðinda á næstu vikum. Eitt
semrættererhvort „Þörþarar“, éða :
þeir sem búa utan Glerár, mvmi fara
frammeð lista i kosningunum, en
heyrst hefur um áhuga á slíku. Marg-
ir íbúar Glerárþorps telja að bæjar-
hluti þeirra hafi verið afskiputr hvað :
varðar framk væmdir iKnjarins, enda
búi ílestir wða allír núverandí bæjar-
túlltrúar annars staðar i bænutn og
því þuxft að fara fram með lista til
aðgæta hagsmuna þeirra sem búa i
utan Glerár. Aðrir láta sér fátt um ; ;
framboðsem „hagsmunasamtök um
gang.stcttalagniri Þorpinu". :
Mýttfólkíbæjarstjóm
Hvaðvarðar
„gömlu“flokk-
ana viröist ljósi
aðnokkrirnýir
tulltrúar þeirra
munutakasæti
íbæjarstjórn
.............. Akureyrarað
ioknum kosningimum i vor. Tveir
fulltrúar krata af þremur ætla að
efstasæti listans i síöustukosningum
og Áslaug Einarsdóttb- sem var í 3.
sa;ti. Gísli Bragi Hjartarson, sem var
Í2. sæti,mun sennilcgaskipa 1. sæt-
ið. Sigurður Jóhannesson, forustu-
maður framsóknarmanna, ætlar að
hætta og voru framsóknarmenn tneð
forval hjásér um helgina. Af þeim
vigstöðvum hefur heyrst að tveir
ungir menn hafi bankað á dyr 1. sæt-
isins.þeirBragi Bergmannritstjóri
og Guðmundur Stefánsson fram-
kvæmdastjóri. Talið er aö Úlfhildur
Rögnvaldsdóttir bæjarfulltrúi láti
það sæti ekki afhendibaráttuiaust,
enþessimálmunu væntaulegaiiafa
skýrst um helgina. Tv'eir bæjarfull-
trúar Alþýðubandalags, Sigríöut-
Stefánsdóttír og Heimir Ingimarsson,
hafa ekki sagt af eða á um hvort þeir
gefikostá sór áfram, en tafið er lík-
legt að fiótlr fulltrúar Sjálfstæðis-
fiokks gefi allir kost á sér.
Umræðan hafin
Það er árvisst
aðeftirkjör
íþróttamanns
ársinsferaf
staðumræöaí
þjóðfélaginu
umhvemigtil
hafitekisthjá
íþróttafréttamönnum og tekur þessi
umræöa jafnan viö afumræðunni um
hvemig mönnum hafi jrótt áramóta-
skaup Sjónvarpsins. Sennilega eru
ekki margir ósammála því að Alíreð
Gislíison hafi verið vel aðþessum titli
kominnnúsem „samnefnari“lands-
fiðsins okkar i handknattleik. Hinu
furða sig margir á að þrír handbolta-
menn skuli hafa skipað þtjú eístu
sætin í kjörinu, því þótt árangur
handboltalandsliðs okkar á síðasta
ári hafi verið glæsilegur þá varð liðið
ekkí heimsmeistari, það vann „bara"
þó aldrei vera að þar hafi verið um
samantekin ráð íþróttafréttamanna
aðræða?
UmBión: Gylti Krlstiánsaon