Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1990, Qupperneq 28
36
MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 1990.
Andlát
Jóhannes Björnsson veggfóðrara-
meistari, Bólstaðarhlíö 45, áður
Skarphéðinsgötu 14, lést í Borgar-
spítalanum 4. janúar.
Guðmundur Elías Bjarnason jám-
smiður frá Túni, Bólstaðarhhð 68,
lést 4. janúar í Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur.
Jóhanna Jóhannesdóttir, Langholts-
vegi 122, lést 5. janúar.
Jaröarfarir
Rebekka Sverrisdóttir bygginga-
verkfræðingur, fædd 19. október
1954, lést í Kaupmannahöfn 30. des-
ember 1989. Jarðarförin fer fram í
Kaupmannahöfn.
Gunnar Bogason, Týsgötu 6, Reykja-
vík, sem andaðist þann 29. desember,
verður jarðsunginn frá Dómkirkj-
unni 9. janúar kl. 15.
Kristmundur S. Snæbjörnsson,
Nökkvavogi 48, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 9.
janúar kl. 13.30.
Gísli Guðmundsson leiðsögumaður
og kennari frá Tröð, verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni þriðju-
daginn 9. janúar kl. 10.30.
Hjálmar Eyjólfsson frá Brúsastöðum,
Tjöm við Herjólfsgötu, verður jarð-
sunginn frá Víðistaöakirkju í dag, 8.
janúar kl. 15.
Útför Sigriðar Láru Jóhannsdóttur,
Kleppsvegi 6, fer fram frá Dómkirkj-
unni þriöjudaginn 9. janúar kl. 13.30.
Jarðarfor Ólafíu Guðnadóttur, Njáls-
götu 11, Reykjavík, fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag, 8. janúar, kl. 15.
Sveinbjörn Helgason vélstjóri frá
Húsavík, Keldulandi 13, er andaðist
í Vífilsstaðaspítala 26. desember,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju þriðjudaginn 9. janúar kl. 15.
Antona Gunnarstein lést 17. desemb-
er. Hún hét fullu nafni Ehzabet An-
tona Vilhelmína Gunnarstein. Hún
fæddist 29. júní 1918 í Vaagi í Færeyj-
. um. Hún fluttist til íslands árið 1946
og settist að á Fáskrúðsfirði. Hún
giftist Einari Guðna Sigurðssyni, en
hann lést árið 1965. Þau hjónin eign-
uðust tvö höm. Þau fluttust til
Reykjavíkur 1958 og vann Antona
lengst af á veitingahúsinu Gildaskál-
,anum. Útfor hennar verður gerð frá
Fossvogskapellu 1 dag kl. 13.30.
Leikhús
Nemendaleikhúsiö
æfir Oþelló
Þessa dagana vinnur Nemendaleikhúsiö
í Lindarbæ leikritiö Óþelló eftir Wiliiam
Shakespeare. Þetta er annað verkefni
Nemendaleikhússins af þremur á yfir-
standandi leikári. Óþelló er eitt afþunga-
vigtarleikritum Shakespeares og þar af
leiðandi leikhstarsögunnar og fjallar í
stuttu máli um ást og afbrýði, hatur og
bráðan bana. Leikstjóri er Guðjón Ped-
ersen og leikmynd gerði Grétar Reynis-
son. Dramaturg er Hafliði Amgrímsson.
Leikarar í sýningunni eru níu, nemendur
í fjórða bekk Leiklistarskóla ísiands.
Tórúeikar
Ljóðatónleikar I Gerðubergi
Þriðju tónleikar í ljóðatónleikaröð
Gerðubergs verða mánudaginn 8. janúar
kl. 20.30. John Speight, barítón, syngur
við undirleik Jónasar Ingimundarsonar.
Á þessum tónleikum verður fluttur laga-
flokkur eftir B. Britten svo og sönglög
eftir Purcell, H. Wolf, F. Schubert, R.
Schumann, C. Ives o.fl.
Tilkyimingar
Nýrgítarskóli
Nú um áramótin tók til starfa Nýi gítar-
skólinn. Stofnendur skólans eru Bjöm
Thoroddsen og Friðrik Karlsson. Kennd-
ar verða hinar ýmsu stíltegundir raf- og
þjóðlagagítarleiks, t.d. blús, rokk, jass,
heavy metal og dægurlagatónhst. Nýi
gítarskólinn verður í samstarfi við Tón-
Ustarskóla FÍH sem er til húsa að Rauða-
gerði 27, Reykjavík.
Sögusjóður stúdenta
í Kaupmannahöfn
í febrúarmánuöi verður veittur árlegur
styrkur úr Sögusjóði Stúdenta í Kaup-
mannahöfn að upphæð 7.000 Dkr. Sjóður-
inn veitir styrki til: a) verkefna er tengj-
ast sögu íslenskra námsmanna í Kaup-
mannahöfn. B) Verkefna er að einhverju
leyti tengjast sögu íslendinga í Kaup-
mannahöfn. C) í sérstökum tilfellum til
annarra verkefna, sem tengjast dvöl ís-
lendinga í Danmörku, er stjóm sjóðsins
telur ástæðu til að styrkja. Umsóknir um
styrkinn skulu hafa borist stjórn sjóðsins
fyrir 17. febrúar 1990.
Heimilisfang: Sögusjóður stúdenta,
Östervoldgade 12,
1350 Kaupmannahöfn K,
Danmörk.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsgana Hana nú í Kópa-
vogi verður á morgun, laugardaginn 6.
janúar. Lagt af stað frá Digranesvegi 12
kl. 10. Nú hefst nýtt gönguár. Á síðasta
ári tóku á annað þúsund Kópavogsbúar
þátt í bæjarrölti Hana nú. Við minnum á
þetta einfalda trimm sem er ætlað öUum,
ungiun sem eldri. Markmiðið er: sam-
vera, súrefni og hreyfing. Nýlágað mola-
kaffl alla laugardagsmorgna í upphafi
göngunnar.
Happdrætti
Happdrætti styrktarfélags
vangefinna.
Dregið 24. desember 1989.1. Bifreið Volvo
740 GLI, nr. 75096. 2. Bifreiö, Suzuki Fox
Samurai, nr. 33404.3.-10. Bifreið að eigin
vaU, hver vinningur kr. 700.000: nr. 1906,
14582, 19881, 37019, 43848, 60766, 75455,
99410.
Happdrætti heyrnarlausra
Dregið var í Hausthappdrætti heymar-
lausra þann 22. desember sl. og vom
vinningsnúmer eftirfarandi: 1. 7996, 2.
1219, 3. 2263, 4. 10390, 5. 12609, 6. 3522, 7.
7421, 8. 12755, 9. 8750, 10. 2157, 11. 12110,
12. 1105, 13. 12186, 14. 11165, 15. 8133, 16.
6028, 17. 8585, 18. 1883, 19. 9192, 20. 7877,
21. 10006, 22. 2159. Vinninga má vitja á
skrifstofu Félags heymarlausra, Klapp-
arstíg 28, alla virka daga, sími 91-13560.
Happdrætti Golfklúbbsins
Keilis
Dregið var í happdrætti Golfklúbbsins
KeiUs 28. desember sl. og komu vinningar
á eftirtalin númer. 1. 1605, 2. 1914, 3. 257,
4. 2767, 5. 1053, 6. 2124, 7. 1177, 8. 2872, 9.
2858, 10. 238, 11. 2551, 12. 965.
Fundir
JC Nes og
JC Breiðholt
halda sameiginlega 5. félagsfund starfs-
ársins í kvöld kl. 20.30 að Laugavegi 178.
Gestur fundarins verður Gunnlaugur
Guðmundsson stjömuspekingur. Fund-
urinn er öllum opinn.
JC Reykjavíkur
heldur félagsfund þriðjudaginn 9. janúar
M. 20 að Laugavegi 178. Gestur: íflynur
Ámason, viðtakandi landsforseti. Allir
velkomnir.
Menning
m l 'f i
Sinfóníuhljómsveit Æskunnar ásamt stjórnendanum Paul Zukofsky.
Ævintýri
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar æskunnar voru
haldnir í Háskólabíói í gærdag. Aöeins eitt tónverk
var flutt á tónleikunum, en þaö var Pelleas og Meli-
sande eftir Amold Schönberg og var það flutt tvisvar,
eða bæði fyrir og eftir hlé tónleikanna.
Tonlist
Áskell Másson
Leikrit
Margir tónhöfundar hafa orðið til þess að skrifa tón-
list út frá ævintýraleikritinu Pelleas og Melisande sem
var samiö skömmu fyrir síðustu aldamót af franska
rithöfundinum Maurice Maeterlinck. Má þar nefna
m.a. Debussy, Fauré og Sibehus, sem allir sömdu tón:
hst í ólíkri formgerð: ópem, leikhústónlist og hljóm-
sveitarsvítu, en verk Schönbergs er sinfónískt ljóð.
Umfjöllunarefni leikritsins er ást og afbrýði sem
endar í sorg og dauða. Leikurinn gerist í og við kastala
í Frakklandi á miðöldum. Golaud, sonur Arkels kon-
ungs af Allemonde, finnur Melisande í sorg vegna ein-
hvers sem hún vill ekki láta uppi. Golaud og Meh-
sande kvænast. Peheas, hálfbróðir Golauds kemur til
kastalans og feha þau Mehsande hugi saman. Afbrýði
Golauds verður shk, að hann banar Pelleasi. Meh-
sande er með bami, en veikist og deyr. Á banabeöi
hennar biöur Golaud hana að fyrirgefa sér.
Uppsetning hljómsveitarinnar var óvenjuleg. Fyrstu
fiðlur á vinstri hönd, aðrar fiðlur á hægri hönd, með
víólur fyrir aftan og selló fyrir miðju á upphækkun-
um, með kontrabassa fyrir aftan og stóra skerma fyr-
ir endurkast. Tréblásarar með slagverkiö fyrir aftan
vom yst í vinstra homi og málmblásarar yst í því
hægra. Verður að segjast að uppsetning þessi hafi gef-
ist vel, því fremur fáhðuð strengjasveitin virtist oftast
hafa í fuhu tré við óhemjufjölmenna blásarasveitina.
Frumflutningur
Schönberg stjórnaði sjálfur frumflutningi þessa
verks í Vínarborg árið 1905, en flutningur þess í Há-
skólabíói í gær var sá fyrsti á íslandi. Þessi geysistóra
hljómsveit, sem var skipuð kornungu tónhstarfólki
að mestu, lék af miklum eldmóð þetta vandmeðfama
verk. Margt er um efnhegan tónhstarmanninn í þess-
ari glæsilegu sveit. Meðal þeirra sem athygli vöktu
voru konsertmeistari, enskt hom (IV. óbó), Es-klari-
nett, fyrsta fagott og fyrsti pákuleikari, svo eitthvað
sé nefnt.
Verkið var leikið bæði fyrir og eftir hlé og þrátt fyr-
ir að betur hafi verið farið af stað í fyrra skiptið, þá
var síðari flutningurinn nákvæmari á heildina. Þrot-
laust starf stjómandans og aðal-driffiaðrar þessa átaks
alls, Pauls Zukofsky, leyndi sér ekki og skilaði sér í
þróttmiklum og vel útfærðum flutningi þessa verks,
sem hlýtur að teljast ævintýri líkast.
Fréttir
Akureyri:
Dagsprent yfir-
tekur rekstur Dags
greiddan með hlutabréfum í Dags-
prenti.
Samkvæmt 9 mánaða uppgjöri
fyrirtækjanna frá síðasta ári hefur
aíkoma þeirra batnað veralega.
Eftir sem áður verður reynt að
selja hluta fasteigna þeirra við
Strandgötu sem hafa verið tíl sölu
í nokkurn tíma án þess að tekist
hafi að selja.
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Þegar greiðslustöðvun dagblaðsins
Dags og Dagsprents á Akureyri
lauk nú um helgina var tilkynnt
að hlutafé í Dagsprenti yrði aukið
verulega og að fyrirtækið mundi
yfirtaka rekstur Dags. Hlutahafa-
fundur í Dagsprenti mun taka end-
anlega afstöðu til málsins.
Kaupfélag Eyfirðinga er stærsti
hluthafi í Dagsprenti og KEA ætlar
að leggja fram viðbótarhlutafé.
Öðmm hluthöfum verður gefinn
kostur á að auka hlutafé sitt og
einnig verður hluti boðinn til sölu
á almennum markaði. Framsókn-
arfélag Akureyrar og Framsóknar-
félag Eyjafjaröar, sem eru eigendur
Dags, munu fá sinn hlut í blaðinu
ER SMÁAUGLÝSINGA
BLADID
SÍMINNER