Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1990, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Rítstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simt 27022
MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 1990.
Stórhættulegur vegarkafli:
Jeppi enda-
stakkst
í fjörunni
Nýlegur jeppi með ökumanni og
tveimur farþegum í endastakkst og
valt eftir að hafa runnið út af vegin-
um við Arnarnes í Skutulsfirði i
gær. Endaði jeppinn niðri í fjöru.
Hálka var á veginum. Einn farþeginn
slapp með minniháttar meiðsl en
hinir meiddust ekki. Jeppinn er hins
vegar talinn ónýtur.
Slysið átti sér stað á hættulegum
beygjukafla á leiðinni frá ísafiröi til
Súðavíkur. Er þetta annað slysið á
skömmum tíma þar sem bíll endar
niðri í fjöru. í haust varð dauðaslys
á sama stað þegar ökumaöur jeppa-
bíls missti stjórn á honum í mikilli
hálku og lenti í flörunni.
Að sögn lögreglunnar á ísafirði er
hér um að ræða langa og lúmska
beygju. Er mjög erfitt fyrir ökumenn
að hafa stjórn á ökutækjum sínum á
þessum stað enda myndast gjarnan
glerhálka á þessum kafla. -ÓTT
Hellisheiði:
Tvennt á
slysadeild eftir
árekstur
Tvennt var flutt á slysadeild eftir
árekstur í Kömbunum eftir hádegið
á laugardaginn. Fólkið fékk að fara
heim eftir rannsókn.
í árekstrinum skemmdust þrír bíl-
ar og er einn talinn nær ónýtur. Slys-
ið bar að með þeim hætti að ökumað-
ur bíls, sem var á leið niður Kamb-
ana, missti stjórn á bílnum svo að
hann rakst á tvo bíla sem komu úr
gagnstæðri átt. Orsök slyssins er
rakin til mikillar hálku á veginum.
Síöar þennan sama dag valt bíll í
Ölfusinu, nærri Ingólfshvoli. Fernt
var í bílnum en það slapp án teljandi
meiðsla. Það óhapp varð einnig
vegna mikillar hálku. -GK
Töp og sigrar
hja Margeiri
Margeir Pétursson tapaði skák
sinni við heimsmeistarann fyrrver-
andi Anatoli Karpov í næst síðustu
umferð skákmótsins á Ítalíu í gær.
Á laugardaginn vann Margeir hins
vegar ungverska stórmeistarann
Lajos Portisch. Margeir er með 4
vinninga úr 9 skákum. í síðustu
umferð, á morgun, teflir hann við
ungverjann Ribli.
Ivantsjúk er einn efstúr með 6,5
■Ánnninga, meðal annars einum vinn-
ingi á undan Karpov. -SM J
LOKI
Má ekki bara banka
með gamla laginu?
Vatnsendapen
ingarmr
leið
inn í Stöð
Þorvarður Elíasson, varafor-
maður Eignarhaldsfélags Verslun-
arbankans hf., sagði i morgun að
fyrrum aðaleigendur Stöðvar 2,
þeir Jón Óttar Ragnarsson, Hans
Kristján Árnason og Ólafur H.
Jónsson, hefðu tilkynnt sér á föstu-
daginn að þeir væru tilbúnir að
ganga frá 150 milljóna króna hlut-
afjárframlagi sínu en Eignarhalds-
félagið gaf þeim frest til 6. janúar
til aö koma sínum málum á hreint.
Þorvarður sagði að gengið yröi frá
málum við þá þremenninga á allra
næstu dögum, þess vegna í dag.
Þorvarður vildi ekkert tjá sig um
það hvort peningar þremenníng-
anna væru Vatnsendapeningarnir
svonefndu, peningamir sem fást
með sölu jarðarinnar Vatnsenda
sem Reykjavíkurborg keypti á 172
milljónir síðastliðinn föstudag af
Magnúsi Hjaltested fjárbónda.
Magnús er kvæntur systur. Ólafs
H. Jónssonar, Kristrúnu Jónsdótt-
ur. Þeir þremenningar höfðu sam-
band við Þorvarð á föstudaginn,
skömmu eftir að Reykjavíkurborg
kevpti landið.
Samkvæmt heimildum DV í
morgun er fullyrt að það séu Vatns-
endapeningarnir sem þremenning-
arnir 1 samvinnu við Magnús
Hjaltsted og Kristrúnu eru að koma
inn í Stöð 2 sem 150 milljóna króna
hlutafjárframlagi.
Þá hefur DV eftir áreiöanlegum
heimildum að þremenningarnir,
Jón Óttar, Hans og Ólafur, vinni
að því af fullum krafti að finna
kaupendur að 250 milljóna króna
hlut Eingarhaldsfélags Verslunar-
bankans. Eru 10 fyrirtæki nefnd til
sögunnar sem hvert og eitt kæmi
með þetta um 25 milljónir króna.
Þorvarður Elíasson, varaformað-
ur Eignarhaldsfélags Verslunar-
bankans hf., sagði í morgun að það
stæðu yfir viðræður við nokkur
fyrirtæki um sölu á hlutafé Eignar-
haldsfélagsins í Stöð 2. Hann vildi
ekki tjá sig um það hvaða fyrirtæki
væru þarna á ferðinni.
Eins og DV hefur áður greint frá
hefur Stöð 2 gert 3 ára starfssamn-
ingur við Magnús Hjaltested, Qár-
hónda á Vatnsenda, og Kristrúnu
Jónsdóttur, konu hans. Kristrún
mun verða þjónustusijóri á Stöð 2
en Magnús verður í öðrum störf-
um
-JGH
Ölvuð kona olli miklu tjóni í Kópavogi og Reykjavík í gær eftir sögulega ökuferð. Fyrst keyrði hún utan í tvo kyrr-
stæða bíla á bílastæði við Engihjalla. Þaðan stakk hún af og hófst við það mikil leit lögreglunnar. Nokkru síðar
missti konan aftur stjórn á bílnum við Elliðaárvog og lenti afturendi bílsins á húsi. Billinn endaði við annað hús og
sat þar fastur. Reyndi konan þá enn að stinga af en var handtekin af iögreglunni. -ÓTT/DV-mynd S
Veörið á morgun:
Éljagangur
sunnan-
lands
Á morgun verður. suðvestlæg
átt, víða nokkuð hvöss. Éljagang-
ur um sunnan- og vestanvert
landið enn léttir til norðaustan-
lands. Hitinn verður víðast hvar
við frostmark en ætti að vera yfir
frostmarki á Austfjörðum.
Tékkneskir
landsliðs-
menn
í bílveltu
Aðstoðarþjálfari landsliðs Tékka í
handknattleik,' læknir hðsins, tveir
tékkneskir blaðamenn og karl og
kona frá tékkneska sendiráðinu í
Reykjavík sluppu ómeidd úr bílveltu
í Biskupstungum, nærri Aratungu,
skömmu eftir hádegið i gær.
Fólkið var að koma frá því að skoða
Gullfoss og Geysi. Mikil hálka var á
veginum og valt bíllinn á toppinn.
Bíllinn, sem er Range Rover, er frá
tékkneska sendiráðinu og var ekið
af . öðrum sendiráðsmanninum.
Tékkarnir komu til Reykjavíkur síð-
degis í gær. _GK
Þyrla náði
í skipverja á
Beskytteren
Skipverji á danska skipinu Be-
skytteren varð fyrir slysi þegar skip-
ið var statt á Dohrnbanka um tvöley-
tið í gærdag. Hann slasaðist illa á
hendi. Þyrla er um borð í Beskytter-
en hún var biluð. Var því þyrla Land-
helgisgæslunnar beðin um aðstoð og
hún send á móti skipinu. Var Be-
skytteren kominn á móts við Breiða-
fjörð þegar þyrlan lenti á þyrlupalli
skipsins. Kom hún síðan með þann
slasaða á Borgarspítalann í Reykja-
vík á áttunda tímanum í gærkvöldi.
Beskytteren hélt síðan aftur á
Dohrnbanka. .ó'p'p
Öxnadalsheiði:
Skátar til að-
stoðar í nótt
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Þetta gekk aht vel og það voru
allir komnir í bæinn um kl. 6 í morg-
un,“ sagði Þengill Ásgrímsson hjá
Hjáiparsveit skáta á Akureyri í
morgun en sveitin var kölluð út kl. 2
í nótt til aðstoðar fólki á Öxnadals-
heiði.
Að sögn Þengils var fólk þar á
tveimur bifreiðum sem komust ekki
leiðar sinnar. Samkvæmt upplýsing-
um DV var veður á heiðinni ekki
mjög slæmt en skafrenningur og
færð mjög slæm. Ekkert amaði að
fólkinu sem eins og fyrr sagði var
komið til Akureyrar í morgunsárið.
NÝJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
68-5000
GÓÐIR BÍLAR
ÁGÆTIR BÍLSTJÓRAR
BÍLALEIGA
v/Flugvallarveg
91-61-44-00