Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1990, Blaðsíða 8
MÁNUDAGUR 26. MARS 1990.
Útlönd dv
Sovéskir hermenn taka
byggingar herskildi
segja forystumenn hins nýstofnaða lýðveldis Litháen
Landsbergis, forseti Litháen, leggur að löndum sínum að sýna stillingu.
Símamynd Reuler
Forystumenn Litháen segja aö so-
véskir hermenn og kommúnistar
hliöhollir Moskvustjórninni hafi lagt
undir sig tvær byggingar í eigu
kommúnistaflokks hins nýstofnaða
lýðveldis. Romualdas Ozolas, vara-
forsætisráðherra Litháen og einn
helsti forystumaður Sajudis-þjóðern-
ishreyfmgarinnar, kvaðst í gær ótt-
ast að hermenn kynnu einnig að taka
á sitt vald byggingar þær sem hýsa
þingið, sjónvarpsstöð lýðveldisins
sem og aðrar mikilvægar byggingar.
Sovéska skriðdreka og fallhlífar-
hermenn má nú sjá á götum Vilníus,
höfuðborgar Litháen en spenna milli
leiðtoga lýðveldisins og Moskvu-
stjórnarinnar hefur magnast mjög
síðustu daga. Litháar segjast óttast
að sovéski herinn sé að undirbúa
valdbeitingu gegn Liháen og íbúum
þess en Sovétstjórn hefur ítrekað
sagt að til þess muni ekki koma.
Forysta Litháen hefur fordæmt
yfirtöku bygginganna og sagt hana
ólöglega. Hún sakar sovésk stjórn-
völd um að beita valdi til að grafa
undan yfirlýsingu Litháen um full-
veldi en þing lýðveldisins lýsti því
yfir fyrr í mánuðinum að það segði
sig úr ríkjasambandi við Sovétríkin.
í yflrlýsingunni sagði forysta Lithá-
en að lýðveldið hefði endurheimt
fullveldi það og sjálfstæði er það naut
á árunum milli stríða. Öll Eystra-
salstríkin þrjú, Litháen, Eistland og
Lettland, voru sjálfstæö ríki á milli-
stríðsárunum en voru innlimuð í
Sovétríkin árið 1940. Sovétforseti og
þing Sovétríkjanna hafa lýst fullveld-
isyfirlýsingu Litháa ómerka.
„Gripið til gömlu ráðanna“
Forseti Litháen, Vytautas Lands-
bergis, gagnrýndi mjög þá ákvörðun
Sovétyfirvalda að taka á sitt vald
byggingarnar og sagði þau hafa á ný
gripið til gömlu ráðanna, að beita
hernum og hervaldi. Forsetinn kvað
Sovétríkin áður hafa sent „hernáms-
lið“ til erlendra ríkja eins og Ung-
verjalands og Tékkóslóvakíu. „Ef til
vill er þetta það sem koma skal í Lit-
háen,“ sagði Landsbergis. Sovét-
stjórnin hefur takmarkað mjög ferðir
blaðamanna og stjórnarerindreka í
Litháen og vísað tveimur bandarísk-
um stjórnarerindrekum á brott.
Eftir að sovéski herinn tók á sitt
vald umræddar byggingar í Vilníu
fundaði Landsbergis með háttsettum
sovéskum herforingjum. Hann
kvaðst ekki hafa fengið fullvissu fyr-
ir því að aðrar fasteignir, þar á með-
al þinghúsið, yrðu ekki teknar her-
skildi. Á fundi með blaðamönnum
seint í gær sagði Landsbergis að so-
véski herforinginn Valentín Varenn-
ikov hefði sagt að vera skriðdreka
og hermanna í Litháen væri efn-
vörðungu í æfmgaskyni. Rúmlega
eitt hundrað skriðdrekar og her-
ílutningabifreiðar komu til Vilníus á
laugardag.
Ekki aftur snúið
Landsbergis, sem var nýlega kjör-
inn forseti Litháen, lagði að íbúum
lýðveldisins að sýna stillingu og
skjóta ekki að skriðdrekunum sem
ekið hafa um götur Vilníus. Hann
lýsti því einnig yflr að forysta Litháa
myndi ekki draga til baka fullveldis-
yfirlýsingu sína.
„Þeir há sálfræðilegt stríð gegn
okkur,“ sagði forsetinn í viðtali við
vestur-þýska blaðið Bild og átti þar
við stjórnvöld í Sovétríkjunum.
„Moskva getur tortímt okkur, sett
hér á laggirnar leppríki en þeir geta
ekki kæft frelsislöngun okkar,“ sagði
forsetinn. Hann sagði að sovésk
stjórnvöld hefðu ekki bara sent
skriðdreka til Vilníus heldur stæðu
þau einnig fyrir handtökum á ungum
mönnum sem neituðu að gegna her-
þjónustu í sovéska hernum. Hann
sagði ekki hversu margir hefðu verið
handteknir.
Vara Moskvu við
Bandaríkin hafa varað Sovétríkin
við að valdbeiting í Litháen myndi
hafa „verulega neikvæð" áhrif á
samskipti stórveldanna. Það var
varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, Dick Cheney, sem sagði þetta
í sjónvarpi í Bandaríkjunum í gær.
En Cheney vildi ekki tjá sig um hvort
Bush Bandaríkjaforseti myndi aflýsa
fyrirhuguðum leiðtogafundi sínum
með Gorbatsjov Sovétforseta en
áætlað er að leiðtogarnir hittist í
Bandaríkjunum í sumar.
Varnarmálaráðherrann vildi held-
ur ekki tjá sig um hvernig Banda-
ríkjastjórn myndi bregðast við ef
Sovétstjórnin beitti vopnavaldi í Lit-
háen. Bandarísk stjórnvöld hafa þeg-
ar látið í ljósi áhyggjur sínar vegna
liðsflutninga Sovétmanna í Litháen
og varaöi Bandaríkjaforseti við því
að valdbeiting myndi hafa þveröfug
áhrif.
Reuter
Kommúnistar í Eistlandi
slíta tengslin við Moskvu
Eistlenskir kommúnistar greiddu
í gær atkvæði með því að slíta tengsl-
in við sovéska kommúnistaflokkinn
og mynda eigin flokk. Á þetta að ger-
ast á sex mánaða tímabili og taka
kommúnistar í Eistlandi þar með til-
lit til yflrvalda í Kreml um leið og
þeir fara aö dæmi Litháa.
Lög sovéska kommúnistaflokksins
munu því gilda á þessu hálfa ári á
meðan allir eistneskir kommúnistar
gera það upp við sig hvort þeir vilji
vera í sjálfstæðum flokki eða vera
áfram í sovéska kommúnistaflokkn-
um. Eistlenskir kommúnistar reyna
á þennan hátt að komast hjá því
ástandi sem skapaðist í sambandi viö
sams konar ákvörðun Litháa um
jólaleytið. Þá ályktaði miðstjórn so-
véska kommúnistaflokksins að
ákvörðun Litháa væri ólögmæt.
Eistlendingar eru hlynntir því að
semja við yfirvöld í Moskvu um sjálf-
stæði og forðast því allar yfirlýsing-
ar. Samþykkt var á flokksþingi
kommúnista í Eistlandi að lagalegur
réttur til sjálfstæðis væri ekki nóg.
Eistlendingar þurfi að koma undir
sig fótunum efnahagslega og félags-
lega áður en sjálfstæðið getur orðið
raunverulegt.
Þrátt fyrir að baráttuaðferðir eist-
lenskra kommúnista séu frábrugðn-
ar aðferðum Litháa var samþykkt á
flokksþinginu að senda Litháum
stuðningsyfirlýsingu. Þegar lesa átti
skeytið fyrir þingheim tókst það ekki
vegna framíkalla þingfulltrúa sem
ekki voru eistneskir. Fregnir, sem
bárust til Moskvu, herma að heitar
umræður hafi átt sér stað og að mik-
il spenna ríki í Tallinn.
Af 690 fulltrúum, sem viðstaddir
voru á flokksþingi kommúnista,
greiddu 432 atkvæði með úrsögn úr
sovéska kommúnistaflokknum, 3
greiddu atkvæði gegn tillögunni og
sex sátu hjá. Aörir, sem margir eru
af rússneskum uppruna, neituðu að
taka þátt í atkvæðagreiðslunni. Búist
er við að þeir verði áfram í sovéska
kommúnistaflokknum.
Reuter og FNB
Kommúnistar í Eistlandi hafa farið að dæmi kommúnista í Litháen og sagt
skilið við sovéska kommúnistaflokkinn.
SOVÉTRÍKIN
EISTLAND
LETTLAND
LITHÁEN
HVÍTA - RÚSSLAND
mesta úrval af keramSkvörnm
Stór lager og góð, fagleg þjónusta er okkar stolt.
Ustasmidjau, ISíorðurbraut 41,
IlaiiiarilrtM, $ímí 052105