Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1990, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1990, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 26. MARS 1990. Útlönd_________________________ Ástralía: Verkamannaflokknum spáð sigri Möguleikar Bob Hawkes og Verkamannaflokks hans til að halda völdum í Ástralíu eftir sjö ára stjórn ráðast aö hluta til af nið- urstöðum kosninga þrjú þúsund kjósenda í afskekktustu héruðum Ástralíu sem ganga að kjörborðinu í dag. Talningu í þeim hlutum Ástr- alíu, þar sem þegar hefur verið kosið, er að mestu lokið og benda niðurstöður til að Verkamanna- flokkurinn sigri, naumlega þó. Verkamannaflokkurinn og Banda- lag Frjálslynda flokksins og Þjóð- arflokksins voru nær jöfn í skoð- anakönnunum. Verkamannaflokknum er spáð tveimur þingsætum meira en Bandalaginu þegar búið er að telja utankjörstaðaatkvæði og skipta at- kvæðum eftir hinu flókna kosning- akerfi Ástralíu. Talið er að Verka- mannaflokkurinn fái 71 sæti á móti 67 sætum Bandalagsins. Fréttaský- rendur vilja þó ekki útiloka jafna skiptingu þingsæta, það er að hvor fái 73 sæti. Það þýðir að þá hafl sjálfstæðir frambjóðendur, sem komast á þing, úrslitavaldið um stjórnarmyndun. Verkamanna- flokkurinn hélt 22 sæta þingmeiri- hluta áður en boðað var til kosn- inga. Urslitin í Kennedy-kjördæminu, sem er einmenningskjördæmi, sem og nokkrum öðrum liggja ekki fyr- ir fyrr en síðar í vikunni. Reuter VITALITET 'JIJ9 ROGOTF. Hvitlok tabletter$^ ILJA ROGOFF HVÍTLAUKURINN Lífskraftur sjálfrar náttúrunnar. Ræktaður við bestu skilyröi. Alveg lyktar- og bragð- laus. Mikilvægasta heilsuefnið. I góðum hvltlauk er allicinið sem meira er af i ILJA ROGOFF hvítlauknum en nokkrum öðrum hvitlauk á markaðnum. Það er tryggt aö t hverjum 100 g séu 440 MCG af allicini. I hvitlauknum eru vítamín, steinefni og frumefnið germanium. Prófessor dr. Jerzy Lutomski álítur þennan hvitlauk bestan því hann er unninn með frystiþurrkun sem varð- veitir allicinið í hvitlauksfrumunum. Töflurn- ar eru húðaðar með magnesíum, kíslil, bý- flugnavaxi o.fl. Upphitun og langvarandi kaldgerjun eyðir allicininu og öðrum mikil- vægum efnum. Fáðu þér kröftugan hvítlauk til heilsubótar. Fæst i heilsubúðum, mörgum apótekum og mörkuöum. 12 stk. 9x12 cm myndaprufur frá kr. 9.800,- 12 stk. 9x12 cm myndaprufur + 2 stk. 20x25 cm fullunnar stækkanir frá kr. 13.500,- 13stk. 13x18 cmmyndaprufur frákr. 12.000,- LIÓSMYNDASTQFA REYKlAVfKUR HVERFISGÖTU 105,2. HÆÐ, RÉTT VIÐ HLEMM. SÍMI 621166. Nýjustu kosningaspár í Ungverjalandi: Stefnir í stórsigur stjórnarandstödu Vettvangsins, Andreas Gergely, sagði að samkvæmt úrslitum sem embættismenn flokksins vissu um hefði Vettvangurinn, hægri miðju- flokkur, forystu yfir Bandalaginu, frjálslyndum jafnaðarmannaflokki. Talsmenn Bandalagsins sögðu aftur á móti að enn væri of snemmt að segja til um úrslitin. Bandalaginu gekk vel í Búdapest og í vesturhluta Ungverjalands sam- kvæmt fyrstu ópinberu tölunum sem birst hafa. Smábændaflokknum, sem spáö var sextán prósent fylgi, viröist ekki hafa gengiö eins vel og við var búist. En eitt virðist á hreinu, að Ungverski jafnaðarmannaflokkur- inn, sem reistur var á rústum gamla kommúnistaflokksins, er sá flokkur sem tapar stærst í þessum kosning- um. Spár setja flokkinn í fimmta sæti yfir heildina á eftir Vettvangn- um, Bandalaginu, Bændaflokknum og Bandalagi ungra demókrata. Nokkur úrslit liggja fyrir í þessum kosningum og má þar á meðal nefna aö fráfarandi forsætisráðherra, Mik- los Nemeth, hefur tryggt sér sæti á þingi með rúmlega fimmtiu prósent fylgi í sínu kjördæmi. En líkur benda til að Imre Pozsgay, fyrrum komm- únisti og einn þeirra sem komu bylt- ingunni af stað í Ungverjalandi, þurfi að sætta sig við ósigur í sínu kjör- dæmi. í ljósi kosningakerfisins í Ung- verjalandi er ekki útilokaö aö hann fái þrátt fyrir allt sæti á þingi. Alls buðu 27 flokkar fram í þessum kosn- ingum þar sem 1.600 frambjóðendur kepptust um 386 sæti. Gergely sagði í samtali við Reuter- fréttastofuna í gær að þegar mætti sjá votta fyrir tveggja flokka stjórn- arkerfi og að samningar gætu náðst milli flokka áður en síðari umferð kosninganna fer fram, þann 8. næsta mánaðar. í þeim kjördæmum þar sem enginn frambjóðandi fær fimm- tíu prósent atkvæða verður að kjósa á ný 8. apríl. Samsteypustjórn af ein- hverju tagi er talin líklegasta lausn- in. Flestir flokkar hafa útilokaö að taka þátt í stjórn meö fyrrum komm- únistum. Reuter og NTB Lýðræðislegur vettvangur og Bandalag frjálsra demókrata veröa að öllum líkindum stærstu flokkarn- ir á hinu nýja ungverska þingi. Fyrri umferð þingkosninga fór fram í Ung- verjalandi í gær en þaö voru fyrstu frjálsu kosningamar þar í landi síð- an árið 1945. Þessar kosningar setja endapunktinn á breytingar í Ung- verjalandi frá áratuga einræði kommúnista til lýðræðis að vest- rænni mynd. Kosningaþátttaka var að mati embættismanna milli sextíu og sjötíu prósent. Lýðræðislegur vettvangur lýsti því yfir snemma í morgun að frambjóð- endur hans hefðu nauma forystu í þessum kosningum en vegna tíðra bilana í tölvum (alls tíu sinnum), slæms símasambands og banns á skoðanakönnunum á kjördag liggja niðurstöður ekki fyrir. En talsmaður Ungverjar gengu til kosninga í gær og voru það fyrstu frjálsu kosningarnar þar í landi í fjörutiu og fimm ár. Símamynd Reuter Áttatíu og sjö létust í eldsvoða: Meintur brennuvarqur handtekinn Lögreglan í New York hefur hand- tekið mann grunaðan um að hafa kveikt í ólöglegum næturklúbbi í fá- tækrahverfl New York-borgar. Eldur kom upp í klúbbnum aðfaranótt sunnudagsins og létust áttatíu og sjö manns. Konan í fatageymslunni og plötusnúðurinn voru þau einu sem komust lífs af úr eldsvoöanum í klúbbnum, að því er vitaö er. Að sögn lögreglunnar hafði hinn handtekni rifist við konuna sem tók á móti yfirhöfnunum. Hann er sagð- ur hafa yfirgefið klúbbinn, snúið aft- ur með eldsprengju og kveikt í. Björgunarmenn sögðu að mörg fórnarlambanna hefðu fundist í hrúgu í þröngum tréstiga. Flestir lét- ust af völdum reykeitrunar. Bruninn í næturklúbbnum var sá stærsti í Bandarikjunum síöan 1977 er hundrað sextíu og fimm manns létust í eldsvoöa á veitingahúsi í Cin- cinnati. Borgarstjórinn í New York, David Dinkins, sagði á fundi með frétta- mönnum í gær að 1988 hefði klúbbur- inn fengið skipun um að loka þar sem brunavörnum væri áfátt en sú skip- un verið höfð að engu. Borgarstjór- inn tilkynnti að hafm yrði herferð gegn ólöglegum klúbbum. Reuter Slökkviliðsmenn fjarlægja lík eins hinna áttatíu og sjö sem létu lífið í elds- voða í ólöglegum næturklúbb í fátækrahverfi í New York. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.