Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1990, Síða 13
I
.0861 8HAM ,3S HUOAaUMÁM
MÁNUDAGUR 26. MARS 1990.
pv Lesendur
Svar til fóst-
urforeldra
Foreldri skrifar:
Mig langar til að leggja nokkur orð
í belg út af skrifum fósturforeldra í
lesendadálk DV undir yfirskriftinni
„Börn i geymslu“, og segir reynsluna
aðra en okkar foreldranna af félags-
málastofnunum og barnaverndar-
yfirvöldum. Svo talar hún, eða hann,
fyrir munn íjöldans! - Ég spyr þá:
Er talað fyrir hönd fósturforeldra?
Ég vildi gjarnan sem foreldri, eftir
að hafa misst barnið mitt til vanda-
lausra, heyra eitthvað frá fósturfor-
eldri um það hvað fósturforeldrum
er sagt áður en þeir taka að sér börn
annarra. - Mér finnst, eftir lestur
greinar þinnar, að þú sért að segja
okkur foreldrum að yfirvöld segi þér
annað en okkur er sagt.
Ég hef persónulega og yndislega
gott samband við fósturforeldra
barns míns. Ég hef talað mikið við
þá, og komst m.a. að því að þeim
hafði verið sagt allt annað en mér
þegar þau tóku að sér barnið mitt. -
Þau héldu, rétt eins og þú, fósturfor-
eldri gott, að þau væru með vel feng-
ið barn. En raunin er önnur.
Þú talar um fáfræði og líka fyrir-
höfn við að taka að þér barn. Hvað
kynntirðu þér fyrirfram? Mér finnst
þú sem fósturforeldri vera með mikla
dómhörku. Er ekki of djúpt í árinni
tekið að tala um taugaveiklun og
vanrækslu á börnum?
Ég þekki konu sem misst hefur
börn sín vegna þess að upp komst
um kynferðisáreitni á barnið af
hendi föður eða fósturfóður. Þegar
konur í dag komast að þvílíku leita
þær sér hjálpar fyrir sig og börnin -
oft með skelfilegum afleiðingum.
Veit um konu sem dæmd voru af tvö
börn vegna þess að sagt var að hún
gæti ekki passað þau fyrir áreitni af
hendi fósturfóður barnanna!
Mér fmnst meira en tími til kominn
að stjórnvöld taki í taumana og komi
á stofnun fyrir fjölskyldur sem erfitt
eiga, þar sem við getum unnið með
okkar mál og barna okkar. - Eða eig-
um við kannski að flytja út fyrir
landsteinana til þess að fá aðstoð? -
Við foreldrarnir erum jafnvarnar-
lausir fyrir barnaverndaryfirvöldum
og félagsmálastofnunum og náttúru-
hamförum.
Handknattleikslið
og kröfuharka
Grímur Norðdahl skrifar:
Það er með ólíkindum hvað við ís-
lendingar eru kröfuharðir við
íþróttafólk okkar. Síðasta dæmið var
hin harða gagnrýni sem handknatt-
leikslið okkar fékk eftir heimsmeist-
arakeppnina í Tékkóslóvakíu.
Við verðum að gera okkur grein
fyrir því að strákarnir voru að etja
kappi við stórþjóðir. - 10. sætið er
alls ekki slæmur árangur.
Velkomnir heim:
Vor stórlynda þjóð
bjóst við stórum höppum,
hjá stæltum og þrautreyndum
handboltaköppum.
En fámennið íslenska
fagnar með kæti,
að fá meðal stórþjóða
tíunda sæti.
Sí
13
HAFP
DRÆTTI
SLYSAVARNAFÉLAGS
ISLANDS
HEILDARVERÐMÆTI VINNINGA KR. 18.000.000.
DREGIÐ VERÐUR FÖSTUDAGINN 6. APRÍL 1990.
CiNTRflnCGISTIR
STÓRFLUTIMINGAR
- SERHÆFÐIR STÓRFLUTIM-
IIMGAR OG LAUSFARMA-
FLUTNINGAR, TIL DÆMIS
Á FISKIMJÖLI, FOÐUR-
BÆTI, TIMBRI, STEYPU-
JARNI, SALTI, SALTSÍLD
O.FL. ÞARFTU Á SLÍKU
AÐ HALDA?
HAFÐU SAMBAND.
SKIPADEILD
f&kSAMBANDSINS
» SAMBANDSHÚSINU KIRKJUSANDI
105 REYKJAVlK Sl'MI 91-698300
VERÐUGUR VALKOSTUR
ú-V^Ö/ÚVA'výr:;..:.:
■