Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1990, Page 4
18
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ199Ö.
Akureyri
Gylfi Knstjánsson, DV, Akureyri:
Þórarinn Kristjánsson hafði lengi
haft áhuga á ýmiss konar endur-
vinnslu og á miðju ári 1983 var stofn-
að fyrirtæki á Akureyri um hug-
mynd hans á endurvinnslu á
gúmmíi. Fyrirtaekið hóf síðan starf-
semi í janúar árið eftir og hlaut nafn-
ið Gúmmívinnslan hf.
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar og at-
vinnumálanefnd Akureyrarbæjar
aðstoðuðu við að koma fyrirtækinu
á laggimar og Iðnþróunarfélagið
kom inn í fyrirtækiö sem hluthafi.
Af öðrum hluthöfum má nefna fyrir-
tækin Möl og sand og Dreka á Akur-
eyri og sænska fyrirtækið JLP
Produckt sem íagði til tæknikunn-
áttu. Er Þórarinn aðaleigandi og
stjómar rekstri fyrirtækisins. Svo
geröist þaö nýlega að á aðalfundi fyr-
irtækisins var ákveðið aö opna þaö
almenningi sem getur eignast hlut í
fyrirtækinu.
„Ég var búinn að hugsa mikið um
endurvinnslu og endurnýtingu
ýmiss konar og velta þessum hlutum
fyrir mér. Ég tel hjólbarðasólun vera
endurnýtingu. Við sólum hjólbarða,
aðallega stóra hjólbarða, og með því
er hægt að endumýta sama hjólbarð-
aim 5-6 sinnum."
í byijun var starfsemi Gúmmí-
vinnslunnar einnig endurvinnsla á
hjólbörðum og voru m.a. búnir til
Það er einn og einn hjólbarðinn á
lagernum.
Þórarinn með gangstéttarmottu en þær njóta vaxandi vinsælda.
DV-myndir gk
,,Almenningur hefur
áhuga á endurvinnslu''
- segir Þórarinn Kristjánsson, framkvæmdastjóri Gúmmívinnslunnar hf.
bobbingar fyrir sjávarútveginn. í dag
eru framleiðsluvörumar úr úrgang-
inum frá hjólbarðasóluninni einnig
vinnustaðamottur, básamottur sem
m.a. em notaðar í hesthús og fjós,
gúmmíhlutir sem notaðir em á um-
ferðarskilti og gangstéttarmottur.
Að sögn Þórarins sólar fyrirtækið
um 3 þúsund dekk á hveiju ári og
gúmmíkurliö, sem þá myndast, er
notað í þessa hluti en einnig fær fyr-
irtækið hráefni frá sólningarfyrir-
tækjum fyrir sunnan.
„Það unnu fjórir hjá fyrirtækinu í
fyrstu en í dag em fastráðnir starfs-
menn 10 talsins. Ég vona að innan
fárra ára geti fyrirtækið veitt um 20
manns atvinnu og þá er ég að vona
að aukning geti orðið á endurvinnsl-
unni, að við getum aukið það að
skapa verömæta vöm úr úrgangi.
Það er minn skilningur að almenn-
ingur hafi áhuga á endurvinnslu og
endumýtingu og stjómmálamenn-
imir hafa lýst áhuga sínum þótt ég
sjái þá aldrei héma.
Fyrir utan höfuðstöðvarnar.
Þetta fyrirtæki hefur ekki fengið
aðstoð hjá þeim sem stjórna þjóð-
félaginu. Ég hef látið stjórnmála-
mennina vita af mér en þeir hafa
ekki sýnt þessu neinn áhuga í verki.
Það væri hægt að vinna stórvirki á
sviði endurvinnslu ef vilji þeirra sem
stjórna væri fyrir hendi.“
- Er Gúmmívinnslan eitt af fáum
fyrirtækjum sem ganga vel í rekstri?
„Það er erfitt að svara svona spurn-
ingu. Fyrirtækið gengur vel og hefur
verið rekið með hagnaði frá upphafi.
Það má e.t.v. segja að það sé eitt af
fáum fyrirtækjum sem ganga vel
nema að það sé álltaf þagað yfir þeim
fyrirtækjum sem skila hagnaði en
erfiðleikar hinna blásnir upp. Nú er
á döfinni hjá okkur að auka vélakost
fyrirtækisins og samhliða því aö
fjölga framleiðsluvörunum,‘‘ sagði
Þórarinn. Á síðasta ári framleiddi
Gúmmívinnslan úr um 50 tonnum
af úrgangi og Þórarinn sagði að ef
vel ætti að vera þyrfti að koma þeirri
tölu upp í um 200 tonn.