Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1990, Page 27
FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 1990.
35
Slysavamir
Átak Slysavamafélagsins:
Pabbi kemur
í loftköstum
Slysvarnafélag íslandser
með sérstakt átak í gangi í sum-
ar. Þetta er gert til að vara fólk
við hættum sem geta fylgt
ferðalögum innanlands. Átakið
hefurfengið nafnið „Komum
heil heim”.
Fjölskyldan er farin að undirbúa kvöldmatinn. Foreldrarnir eru úti en strákurinn að rannsaka gastækið nánar.
Eldurinn gýs upp og breiðist út á svipstundu um tjaldið. Pabbi kemur i loftköstum og bjargar stráknum á
síðustu stundu.
Tjaldið brennur til kaldra kola og allt sem í því er. Ferðin verður öðruvisi en ætlað var. Þetta hefði getað
farið enn verr. Förum gætilega með eld. Gastæki eru hættuleg og tjöld og viðlegubúnaður eru búin til úr
eldfimum efnum. örlítil gætni getur skipt sköpum og skilið milli lífs og dauða.
Fréttir
Þátttakendur á námskeiðunum á Eskifirði um borð í Sæbjörgu.
DV-mynd Emil
Skólaskipið Sæbjörg á Eskifirði:
Tæplega fimm þúsund
manns haf a sótt námskeið
slysavarnaskólans
Emil Thorarensen, DV, Eskifirði;
Slysavamaskóli sjómanna hélt ný-
lega afar þarft námskeið á Eskifirði,
almennt grunnnámskeiö, sem tekur
4 daga og er einkum ætlað áhöfnum
á togurum, loðnubátum og stærri
skipum. Þá var kvöldnámskeið fyrst
og fremst fyrir smábátaeigendur.
Námskeiö þessi voru þó opin öllum
er áhuga höfðu.
Skólaskipið Sæbjörg var hér í eina
viku vegna námskeiðanna. Þátttaka
var góð, affs sóttu 46 almenna nám-
skeiðið en 26 smábátanámskeiðið.
Áhafnir aflaskipanna Hófmaness og
Jóns Kjartanssonar voru á einu máli
um ágæti og nauðsyn almenna nám-
skeiðsins. Mestöll kennslan fór fram
um borð í Sæbjörgu sem er vef úr
garði gerð til sfíks. Meðal þess sem
kennt var var reykköfun, hjáfp í við-
lögum og björgun nauðstaddra úr
sjó. í því tifviki var þyrla Landhelgis-
gæslunnar fengin hingaö tif aðstoðar
til þess að aflt væri sem eðlilegast.
Skólastjóri slysavarnaskólans er
Þórir Gunnarsson og kvaðst hann í
samtali við DV vera afar ánægður
með þátttökuna hér á Eskifirði. Þórir
sagði að skóhnn hefði tekið til starfa
29. maí 1985 en skólaskipið Sæbjörg
hefði komið til sögunnar 1. júlí 1986.
Fastir starfsmenn eru 5 en 9 manna
áhöfn á skipinu. Skólastarfinu mætti
skipta í þrennt.
1. Námskeiðshald fyrir almenna sjó-
menn sem byrjaði um áramót og
stæði fram í maí og færi jafnan
fram í Reykjavík.
2. Næstu 2 mánuðina færi skipið
kringum landið með námskeið
eins og hér var haldið.
3. Frá því í byijun september til ára-
móta eru námskeið fyrir nemend-
ur stýrimannaskólanna og vél-
stjóraskólanna alls staðar af
landinu. Það er krafa þessara
skóla aö nemendur sæki þessi
námskeið slysavamaskólans. f
Þórir kvað það stefnu SVFÍ að
halda áfram á þessari braut. Nám-
skeiðin eru miðuð við kröfur Al-
þjóða-siglingamálastofnunarinnar
IMO. Skírteinin sem þátttakendur á
námskeiðunum fá í hendur eru við-
urkennd af IMO og éru bæði á ís-
lensku og ensku og duga því til aö
framvísa í erlendri höfn.
Þórir sagði ennfremur að fram til
þessa hefði það einkum veriö krafist
af áhöfnum fraktskipa að hafa sótt
slík námskeiö en nú væru hafnar-
yfirvöld erlendis farin að ræða um '
að snúa sér að fiskiskipunum þannig
að skipstjórar þeirra verði að fram-
vísa skírteinum þess efnis að áhöfnin
hafi hlotið þessa ákveðnu fræðslu.
Og ef ekki þá veröi skipið hreinlega
kyrrsett þar til úr verði bætt.
„Þeir kalla þetta Port Kontrol,"
sagði Þórir, „eða hafnareftirlit". Til
þessa hafa hafnir í V-Evrópu aðal-
lega fylgt þessu eftir en nú berast
fréttir af því að austurblokkin sé að
ganga inn í þetta samkomulag. í þeim
löndum sem eru aðilar aö IMO fylgja
hafnaryfirvöld því strangt eftir að
öryggisbúnaöur skipa sé í samræmi
við kröfur þess (IMO). Aö lokum
sagði Þórir að fram til þessa hefðu
4.912 sótt námskeið skólans og stöð- <-
ugt fjölgaði þeim sem hefðu skírteini
upp á vasann frá þeim.
Þegar námskeiðahaldinu lauk hér
buðu slysavarnadeildirnar á Eski-
firði nemendum og kennurum í kaffi
og veitingar í hinu nýja húsnæði
slysavarnadeildanna. Voru þar flutt
ávörp og ámaðaróskir færðar þátt-
takendum. M.a. flutti gjaldkeri SVFÍ,
Garðar Eiríksson, ræðu en hann á
ættir að rekja til Eskifjarðar og kom
gagngert hingað til að vera viðstadd-
ur skólashtin og fylgjast með nám-
skeiðinu lokadaginn.
Fólk ferðaðist á ýmsan hátt í Skagafjörðinn i síðustu viku á landsmót hesta-
manna og það var glæsibragur á farartæki þessarar þýsku fjölskyldu. Hún
kom til Seyðisfjarðar með Norrænu, hélt norður í Skagafjörð á bilnum glæsi-
lega. Siðan aftur sömu leið til baka og þá hitti fréttamaður okkar á Egils-
stööum þau og smellti af. DV-mynd Sigrún Björgvinsdóttir