Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1990, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1990, Blaðsíða 28
36 FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1990. Andlát Óskar Gíslason ljósmyndari lést 24. júlí. Jenný Guðmundsdóttir lést 24. juli á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund. Þorsteinn Þorsteinsson frá Háholti, Mánagötu 21, andaðist á Hvítaband- inu 24. júlí. Svanfríður Sveinsdóttir lést 22. júlí. Guðbjörg Eyjólfsdóttir, Hraunbæ 50, Reykjavík, andaðist á Landspítalan- um 24. júlí. Halldóra S. Backmann Jónsdóttir, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Tómas- arhaga 42, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum mánudaginn 23. júlí. Tarðarfarir Margrét Steingrimsdóttir lést 18. júlí. Hún fæddist í Reykjavík 13. október 1920, dóttir hjónanna Eggrúnar Am- órsdóttur og Steingríms Guömunds- sonar. Masrgrét tók próf í félagsráð- gjöf við háskólann í Southampton. Hún starfaði sem bamavemdarfull- trúi í Hampshire í nokkur ár og var síðan félagsráðgjafi í Edinborg um skeið. Árið 1963 réðst hún til Félags- málastofnunar Reykjavíkurborgar og starfaði þar meðan heilsan leyfði, fram til 1970. Hún gjftist Allan L. Merson en þau skildu eftir 16 ára hjónaband. Þau vom bamlaus. Útfor Margrétar verður gerð frá Fossvogs- kapellu í dag kl. 15. Útför Sigríðar Eyjólfsdóttur kaup- konu, Suðurbraut 6, Hafnarfirði, fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstu- daginn 27. júlí kl. 10.30. Guðlaug Margrét Guðmundsdóttir, er andaðist á Hrafnistu laugardaginn 14. þ.m., verður jarðsungin frá Ás- kirkju þriðjudaginn 31. þ.m. kl. 10.30 f.h. Útfor Ingólfs Hannessonar, Sunnu- braut 48, Kópavogi, fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 27. júlí kl. 15. Jón Þorkelsson, Grenimel 8, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík fóstudaginn 27. júlí kl. 13.30. Kristinn Jóel Magnússon verktaki, Álfaskeiöi 14, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafn- arfirði föstudaginn 27. júlí kl. 13.30. Alfred Georg Alfredsson fram- kvæmdastjóri, Vesturgötu 71, Reykjavík, verður jarösunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju fóstudaginn 27. júlí kl. 14. Kveðjuathöfn um Guðbjörgu Guð- mundsdóttur, frá Hámundarstöðum í Vopnafirði, síðast til heimilis á Digranesvegi 97, Kópavogi, fer fram í Kópavogskirkju fóstudaginn 27. júlí kl. 13.30. Jarðsett verður frá Hofs- kirkju í Vopnafiröi fimmtudaginn 2. ágúst kl. 13.30. Sæbjörg Sigurðardóttir verður jarð- sungin frá Fossvogskapellu föstu- daginn 27. júlí kl. 10.30. Þórir Ásdal Ólafsson hagfræðingur, Glaðheimum 22, Reykjavík, veröur jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 27. júlí kl. 13.30. TiUcyimingar Frá Félagi eldri borgara Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, í dag. Kl. 14 frjáls spilamennska, kl. 19.30 félags- vist, kl. 20 dansað. Gönguhrólfar hittast nk. laugardag í Nóatúni 17 kl. 10. Opið hús í Norræna húsinu í dag, 26. júli, kl. 20.30 verður opið hús í Norræna húsinu. Á opnu húsi eru haldn- ir fyrirlestrar um land og þjóð og er þessi dagskrá einkum ætluð Norðurlandabú- um. Fyrirlestrarnir eru því fluttir á ein- hveiju Norðurlandamálanna. Að þessu sinni heldur Ingibjörg Hafstað fyrirlestur um konurnar í íslensku samfélagi. Fyrir- lesturinn er á norsku. Að loknu kaffihléi verður sýnd kvikmyndin Eldur í Heima- ey (á norsku). Fimmtudaginn 2. ágúst talar Sigurður Blöndal, fyrrverandi skóg- ræktarstjóri, um íslenska skóga og skóg- rækt á íslandi. Fyrirlesturinn verður fluttur á norsku. Að loknu kaffihléi verð- ur sýnd kvikmyndin Þijár ásjónur ís- lands (norskt tal). Aðgangur er ókeypis að opnu húsi. Sýning í Odda nýja hugvisindahúsinu er opin daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90 verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri listamenn þjóðarinnar. Að- gangur að safninu er ókeypis. Tapað-fundið Armband Gullarmband tapaðist 12.-13. júlí. Finnandi vinsamlegast hafi samband í síma 675575. Fundarlaun. Gullhringur tapaðist á leiðinni frá Laugarvatni til Reykjavík- ur. Finnandi er vmsamiegast beðinn að hafa samband í síma 40854. Fundarlaun. t Útför eiginmanns míns, fööurokkar, tengdaföður og afa, Ingólfs Hannessonar, Sunnubraut48, Kópavogi, fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 27. júlí kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð, Kópavogi. Sigríður Runólfsdóttir börn, tengdabörn og barnabörn t Innilegar þakkir flytjum við öllum sem sýndu okkur samúð og hiýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa oglangafa, Kristins Sigurvinssonar, Stykkishólmi. Sérstakar þakkir til alls hjúkrunar- og starfsfólks á St. Fransiskusspitalanum í Stykkishólmi. Magnús Kristinsson Hólmfriður Einarsdóttir Elínborg Kristinsdóttir Guöni Sigurjónsson börn og barnabarnabörn Fréttir Hlyimr Þór Magnússon, DV, ísafirði; Guðmundur Fylkisson, lögregluþjónn á ísafirði, keppti á lögreglubilnum og varð í öðru sæti í karlaflokki. Guðmundur var ekkert feiminn við að vera með og leyfa bæjarbúum á ísafiröi að sjá að lögreglumenn eru mannlegir og geta gert mistök rétt eins og annað fólk. ísafjörður: Mjög góð þátt- taka í ökuleikninni Umferðardagur Bindindisfélags ökumanna (BFÖ) var á ísafirði á mánudaginn. Hin árlega keppni í ökuleikni hefur nú að undanfömu verið haldin víða um land en hvergi hafa þátttakendur verið eins marg- ir og á ísafirði, hvort heldur er í keppni á reiðhjólum eða bílum. Fyrstu þátttakendurnir í öku- leikninni voru þeir yngstu og fóru brautina á þríhjólum og htlum reiðhjólum. Nokkrir voru á hjóla- brettum. í reiðhjólakeppni 6-8 ára urðu í efstu sætunum þau Eydís Ósk Eyþórsdóttir, Árni Bjöm Ól- afsson og Valdís María Össurar- dóttir. í landskeppninni á reiðhjólum er keppt í tveimur flokkum, yngri flokki, 9-11 ára, og eldri flokki, 12 ára og eldri. Úrsht í yngri flokki urðu þau að í fyrsta sæti varð Jó- hann Haukur Hafstein með 67 refsistig, í öðm sæti Stefán Þór Ólafsson með 72 stig og í þriðja sæti Eva Dögg Pétursdóttir með 74 stig. í flokki 12 ára og eldri varð í fyrsta sæti Viðar Þorláksson með 51 refsistig, í öðra sæti Sæþór Harð- arson með 55 stig og í þriðja sæti Bjarki Egilsson með 62 stig. Viðar hlaut besta brautartíma yfir landið Jóhanna H. Bjarnadóttir keppti á Pajero og varð í efsta sæti í kvenna- flokki. enn sem komið er en hann var með of margar villur í brautinni. í ökuleikni á bílum í karlaflokki sigraði Ragnar Ingólfsson með 151 refsistig (metið er 125). Ragnar setti hraðamet í brautinni, fór hana á aðeins 86 sekúndum. í öðru sæti varð Guðmundur Fylkisson með 177 stig og í þriðja sæti Jón Þór Birgisson með 201 stig. í kvennaflokki sigraði Jóhanna H. Bjamadóttir með 214 refsistig (metið er 150). Guðrún S. Matthías- dóttir varð önnur með 230 stig og Svanfríður G. Bjamadóttir þriðja með 248 stig. Ökumenn með 12 mánaða bráða- birgðaskírteini kepptu í sérstökum flokki. Efstur varð Ehas Kristjáns- son úr Bolungarvík með 211 refsi- stig, annar varð Gunnar Ingi Haf- steinsson með 288 og í þriðja sæti varð Laufey Eyþórsdóttir með 320 refsistig. Athygh vakti að þau þrjú skiluðu spurningum sínum öhum réttum. Gefandi verðlauna var Lands- banki fslands á ísafirði. í forsvari fyrir ísaljarðardeUd BFÖ var eins og endranær Reynir Ingason hjá Djúpbátnum, umboðsmaður Ábyrgðar. Fjölmiðlar Karlmennskuraunir Eins og vænta mátti voru PáU Halldórsson og Ólafur Ragnar höf- uðpersónur fréttatímanna i gær- kvöld. Þeir hjá ríkinuhöföu viðtal við þá báða í beinni útsendingu. Án þess að maður kryfji þá uppákomu tU mergjar má segja aðofthafi mað- ur séð Olaf Ragnar keikari og kjafta- gleiöari þar sem hann hefur beinlin- is valtað fram og aftur yfir „and- stæöingjnn" - með öUum ráðum. En það vora önnur viðtöl en þetta sem vöktu athy glí mina og ekki að ástæðulausu. Eyjamenn eru byijað- ir í lundanum. Maður Stöðvar tvö i Eyjum fiaUaöi um þessa þjóðar- íþrótt Eyjamanna og rabbaöi þar að auki við tvo unga krakka sem vora aö stíga sín fyrstu spor í lundaveið- um. Það getur verið að fyrsta lunda- ferðin sé gífurleg manndómsraun og sé öðra fremur merki þess aö ungir strákar séu nú loksins orðnir sannir íslenskir - vestmannaeyskir, afsakið-karlmenn. Spyrjandi reyndi aUt hvað hann gat að veiða áUt stráks á þessari upplifun upp úr honum en tilburðimir vora slíkir að strákurinn og meginþorri sjón- varpsglápara voru við það aö hverfa ofan í jöröína. Eyjamenn era ágæt- isfólk en stundum getur sjálfsán- ægja þeirra veriö meiri en góöu hófu gegnir. Annar Uðsmaöur Stöðvarinnar, á Austfjörðum, var heldur sterkari á sveUinu i samtalslistinni enda var viðmælandinn af aUt öðra kahberi, orginal eins og þeir gerast bestir. Slíklr menn eru eitt besta sjón- varpsefhi sem völ er á ef rétt er á spUunum haldið. Viðtal við shka dásemdarmenn er erfiöur línudans fyrlr spyrla. Þetta eru jú manneskj- ur, ekki einhver frik. Sá seyðfirski stóð sig vel. Inngangurinn að þessu viðtali hjá einum lóðsi nítján nítján var hins vegar á mörkunum. Haukur Lárus Hauksson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.