Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1990, Qupperneq 13
LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1990.
13
Uppáhalds matur
Óneitanlega myndarlegur, þessi lax sem Lýður Friðjónsson veiddi í Laxá í Aðaldal á dögunum. „Bragðið
verður alft annað þegar maður veiðir hann sjálfur.“ DV-mynd JAK
„Þessi réttur verður bestur ef
maöur veiöirfiskiun sjálfur, bragð-
ið verður allt annaðsegir Lýður
PriQjónsson, framkvæmdastjóri
Vífilfells, sem að þessu sinni gefur
lesendum uppskrift að uppáhalds-
matnum.
Og auðvitaö er það lax sem er á
boðstólum því Lýður vciddi mynd-
arlega laxa í Laxá í Aöaldal á dög-
unum. Lýður gaf ekki mikið út á
þaö þegar hann var spurður hvort
hann væri mikill veiðimaður en
sagðist bregða sér í laxveiði svona
tvisvar á sumri.
„Við eldamennskuna nota ég sér-
stakan, langan fiskipott sem nær
yfir tvær hellur á eldavéhnni. En
ég byija á þvi aö hreinsa laxínn og
taka huian úr honum. f pottinn set
ég % hluta vatn og % hluta hvít-
vín. Ég hita blönduna alveg upp að
suðu en passa að láta hana aldrei
sjóða. í þessu er fiskurinn látinn
malla. Áöur en ég set fiskinn ofan
í læt ég hann standa á kviðnum í
pottinum og þannig mæli ég hæö-
ina á honum.
Hann er svo látinn malla í pottin-
um í 10 mínútur fyrir hveija
tommu sem hann reynist langur. i
þessu tilfelli voru þaö 3,5 tommur
eða 35 mínútna suöa.
í pottinn set ég sérstaka krydd-
blöndu sem ég kaupi tilbúna í
kryddpoka. Sú blanda samanstend-
ur af oregon, majoran, timian og
lárberjaiaufi. Einnig kreisti ég
tvær sítrónur yfir og blanda einni
matskeiö af matarolíu samari viö.
En ég iæt vökvann ekki ná aJveg
yfir fiskbm, skil eftir 2-3 cm.“
Lýður segir fiskinn verða mjög
Ijúffengan eftir þessa matreiðslu
og undirstrikar hann að vökvinn
megi aldrei sjóða. Uppski-iftbia seg-
ir hann ættaða frá tengdamóður
sinni. Með þessu ber Lýður fram
soðnai- kartöflur, agúrkusaiat, app-
elsínusneiðar og brætt smjör.
„Mér finnst Jika gott að grilla lax
en aðalatriði er að breyta stundum
til viö matreiösluna."
Þegar hann var spurður hvort
hann eldaði mikið kvað hann svo
ekki vera en sagðist þó vera grill-
meistari fiölskyldunnar.
„Ég hef nú samt gaman af því að
elda góðan mat þegar maöur gefur
sértíma. En égvareitt sinnkokkur
úti á sjó hluta af sumri og síðan
vil ég helst ekki elda nema fá borg-
aö fyrb* það.“
-RóG.
Sviðsljós
Steffi
undir álagi
Eins og íþróttaáhugamenn muna
þá sigraði hin unga tenniskona,
Monica Seles, Steffi Graf eftir-
minnilega í opna franska meistara-
mótinu í tennis á dögunum. Stefii
Graf hefur ekki sýnt sína bestu
takta í sumar.
Tennisstjarnan komst ekki einu
sinni í úrslit á nýafstöðnu Wimble-
donmóti en hún tapaði í undanúr-
slitum fyrir Zinu Garrison. Steffi
er sögð hafa tekið þann ósigur
meira en lítið nærri sér. Og hefur
hún lýst því yfir eftir mótið að tenn-
is sé nú ekki það eina í lífinu. Hvað
hún á við er ekki alveg vitað en
grunnr leikur á að hún hafi miklar
áhyggjur af föður sínum sem stend-
ur í stríði þessa dagana við konu
nokkra. Sú segir Peter, föður Steffi,
eiga með sér barn sem hann vilji
ekki viöurkenna. Sagan segir að
feðginin hafi greitt konunni hefi-
mikla peningaupphæð svo að hún
gerði ekki meira úr málinu.
Vitanlega hafa þessi átök haft
mikil áhrif á Peter gamla en hann
og Steffi eru mjög samrýnd og seg-
ist hún eiga frama sinn að miklu
leyti föður sínum að þakka.
Steffi hefur gert mikið að því á
undanförnum mánuðum að koma
fram í alls kyns viðtölum og fyrir
skömmu birtust af henni tísku-
myndir í Vogue þar sem hún kem-
ur fáklædd fram. Þótt hún sé reiðu-
búin að notfæra sér stöðu sína og
græða fé þá fellur hún ekki fyrir
hverju sem er.
Tímaritið Playboy hefur gengið
með grasið í skónum á eftir henni
upp á síðkastið. Henni hafa verið
boðnar 50 milljónir íslenskra króna
fyrir það að sitja fyrir á nektar-
myndum. En Steífi hefur ítrekað
afþakkað boðið pent.
Steffi Graf er ekki tilbúin að sitja fyrir hjá Playboy þótt 50 milljónir króna
séu í boði.