Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1990, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1990, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 28. JÚLf 1990. 15 Palli var einn í heiminum Maður á kannski ekki að hlæja á svona alvörustundum. Nær væri að gera eins og allir hinir sem axla ábyrgðina og áhyggjurnar. Stynja þungan og varpa mæðinni. Við sjáum ráðherrana ganga áhúðar- mikla til funda, við sjáum Pál Hall- dórsson takast sviphrigðalaust á við ofureflið og við horfum á hrúnaþunga talsmenn vinnuveit- enda og verkaiýðs lýsa raunum sínum. Ég hef satt að segja stund- um haft áhyggjur af Þórarni hjá Vinnuveitendasambandinu þegar hann lýsir arfavitleysunni í kjara- málunum og verð meira að segja dauöhræddur við augnsvipinn á þeim málafylgjumanni þegar hann sést á skerminum. Svo mikiil er alvöruþungínn. Það eru sem sagt flestir að fara á taugum í orrahríðinni um háskóla- menntuðu ríkisstarfsmennina og varla viðeigandi að brosa svo aðrir sjái. En maður lifandi. Getur nokkur maður með heilbrigða skynsemi eða snefil af kímnigáfu komist hjá því að sjá broslegu hliðamar á því ástandi sem skapast hefur með úr- skurði Félagsdóms um samning BHMR og ríkisvaldsins? Sjá menn ekki kómíkina í aðdragandanum, málatilhúnaðinum, öfugmælunum og viðbrögðunum? Aðalpersónurn- ar í þessum farsa eru einkum tvær. Annars vegar er þaö fjármálaráð- herrann, Ólafur Ragnar Grímsson, og svo hins vegar Páll Halldórsson, formaður háskólamenntaðra ríkis- starfsmanna. Báðir ætlast til aö þeir séu teknir alvarlega. Báðir eru þeir menntaðir menn og sjáifsagt sæmilega gefnir, ef það telst til gáfna að koma fyrir sig orði. Tímasprengjan Á hðnum vetri efndi BHMR til langvinns verkfaUs. í sex vikur stóðu háskólamenn verkfallsvörð. Kröfumar voru lengst af í þeim himinhæðum að láglaunastéttim- ar dreymdi ekki einu sinni um að setja slíkt á blað. Á endanum fór ríkisstjómin á taugum og skrifaði undir Kjarasamning sem nú er orð- inn frægur af endemum. Hér verð- ur ekki farið ofan í saumana á þeim samningi en ákvæðið, sem deilan hefur snúist um, var á þá leið að háskólamenn skyldu fá 4,5% hækkun 1. júh síðasthðinn, um- fram það sem aðrir launamenn höfðu samið um. Jafnframt skyldu þeir sjálfkrafa fá sömu hækkun aftur ef og þegar laun á hinum al- menna vinnumark.aði hækkuðu tíi jafns við hækkunina. Af þessu thefni lét Ólafur Ragnar þau orð faha að hér væri um tíma- mótasamning að ræða og hældist um. Hann sagði aö þessi samningúr byggði hrú mhh samningsaðha og skapaöi jákvætt trúnaðarsamband á mhli ríkisvaidsins og háskóla- manna. Eitthvað var formaður Vinnu- veitendasambandsins að malda í móinn og tala um tímasprengju. Það var þá sem Ólafur Ragnar sagði: „Það er ljóst að Einar Oddur Kristjánsson hefur ekki lesið vel yfir kjarasamning Bandalags há- skólamanna hjá ríkinu þegar hann kahaði hann tímasprengju sem þyrfti að aftengja. Það hefur engin tímasprengja verið tengd.“ Nokkrum vikum og mánuðum síðar var þjóðarsáttin margfræga undirrituð. Þar var farið hóhega í sakirnar og gengið út frá því að launaþróun annarra yrði sú sama og um var samið í þjóðarsáttinni. Að öðrum kosti áttu launamenn rétt á samsvarandi hækkun. Þessari þjóðarsátt fagnaði fjár- málaráðherra eins og aðrir og aftur var kynntur tímamótasamningur. Ballið byrjar En svo leið að þeim tímamótum að efna þurfti samningana. Fyrsti júh nálgaðist og þá rann það aht í einu upp fyrir ríkisstjórninni og fjármálaráðherra að útilokað væri að standa við launahækkunina sem háskólamenn áttu að fá í upp- hafi þessa mánaðar. Henni var kippt th baka. Þeirri einhliða ákvörðun ríkisins mótmælti Páh Halldórsson og háskólamenn og á endanum var máhnu skotið th Fé- lagsdóms sem kvað upp þann dóm að launin skyldu greidd. Það var þá sem ballið byijaði. Það var þá sem vopnin snerust skyndhega í höndum bardagamannanna. Það var þá sem tímamótin breyttust í ragnarök. Ölafur Ragnar var fljótur að finna sökudólginn. Félagsdómur bjó 1 glerhúsi, „í efnahagslegu tómarúmi“, sagði ráðherrann. Fé- lagsdómur var að hrinda af stað „vítisvél óðaverðbólgu". Það voru sem sagt ekki mennirnir, sem gengu frá samningunum, sem báru á honum ábyrgð. Það var dómstóh- inn sem bar sökina. Það voru dóm- aramir sem kölluðu yfir þjóðina nýja óðaverðbólgu. Þetta sagði ráð- herrann sem hafði skrifað undir samningana um sjálfvirku hækk- unina. Fiármálaráðherra hafði sjálfur tekiö þá póhtísku ákvörðun að háskólamenntaðir ríkisstarfs- menn ættu að fá 4,5% launahækk- un umfram aðra og hafði svo skrif- að undir þjóðarsáttina um að þorri launafólks ætti rétt á samsvarandi launahækkun og aðrir fengju. Hann hafði sjálfur samið, viður- kennt og skrifað upp á sjálfvirkn- ina sem nú var allt í einu Félags- dómi að kenna! Jaröarmen ráöherrans Þegar hér var komið sögu varð ríkisstjórnin að grípa th aðgerða til að koma í veg fyrir aö hún gæti Laugardags- pistQI Ellert B. Schram staðið við sína eigin samninga. Þjóðarsáttin hrundi til grunna við það eitt að Félagsdómur hafði kveðið upp dóm um þaö að ríkis- stjórninni bæri aö standa við gerð- an samning! Líth þúfa hafði velt þungu hlassi. Eitt litið stéttarfélag var búið að gera allsherjarsamn- ingana að engu. Og af öllum mönn- um þurfti fjármálaráðherra að ganga undir þaö jarðarmen að kaha Pál Halldórsson á sinn fund og spyrja hann hvort háskólamenn vhdu ekki falla frá geröum samn- ingi vegna þess aö ríkisstjórnin gæti ekki staðið við hann. Hafa menn áður orðið vitni að slíkri kúvendingu? Það er svo af Páli Halldórssyni að segja að hann þakkaði pent fyrir sig og hafði htið við ráðherrann að tala. Páll þessi hfir í sínum eigin heimi. Hann er Palli einn í heimin- um og hann varðar ekki um þjóðar- sátt eða efnahagslegt umhverfi og hann skilur ekki að aðrir þurfi hækkun þótt hans fólk fái hækkun. Hinn langskólamenntaði foringi öreiganna á ríkisstofnunum sér ekkert samhengi í launum háskóla- manna og launum hins óbreytta launamanns þótt fram að þessu hafi aðalröksemdir þessa sama Páls verið einmitt þær að háskóla- menn ættu að njóta sambærilegra kjara og sambærhega menntað fólk. Hann varðar heldur ekkert um samninga annarra, vexti og verðbólgu og það er eins og há- skólamenntað ríkisstarfsfólk sé ekki í neinum tengslum við þjóð- félagiö, fyrir utan það að heimta sömu laun fyrir sömu menntun. Svo er verið að halda þvi fram að menntun sé máttur og upplýst þjóð sé lykillinn að skynsamlegri hagstjóm! Langskólafólkið á ríkis- jötunni hefur komist á spjöld sög- unnar fyrir það að skorast undan sameiginlegu þjóðfélagsátaki eins og hver annar skæmliðahópur. Úrfelum Atburðarásin hafði leitt eftirfar- andi í ljós: Háskólamenntað ríkis- starfsfólk tekur ekki þátt í þjóðar- sátt. Ríkisstjórnin treystir sér ekki th að standa við sína eigin samn- inga. Félagsdómur er orðinn undir- rót efnahagsöngþveitis. Dómstól- arnir skhja ekki pólitík og næstu kosningar munu sjálfsagt snúast um að koma böndum á Félagsdóm th að ráða við verðbólguna. Þessu til viðbótar er auðvitað uppi fótur og fit hjá verkalýðs- hreyfingunni sem telur það stofna kjömm launafólks í hættu að ein stétt manna fái meira en aðrir. Forystumenn Alþýðusambands ís- lands og Bandalags opinberra starfsmanna koma úr felum og segjast ekki höa þær hækkanir sem háskólamenn eigi rétt á. Þeir viður- kenna að hafa sett fram þær hótan- ir við ríkisstjórnina strax í upphafi þessa máls aö hækkun til BHMR kostaði hækkanir th annarra. Verkalýðshreyfingin er með öðr- um orðum miður sín af reiði og sorg út í BHMR vegna þess að launahækkanir á þeim bæ eyöi- leggja fyrir þeim launaleysið í þjóð- arsáttinni. Sameiginlega hafa for- ystumenn verkalýðshreyfingar- innar og ráðherrarnir, og svo auð- vitað vinnuveitendur, setið með sveittan skallann til að fmna leið út úr þeim ógöngum sem launa- hækkanirnar hafa í fór með sér. Öfugmælin sönnust Það besta eða versta við þetta aht saman er að það er eins og ráð- herramir hafi ahs ekki vitað um þá samninga sem þeir skrifuðu undir og það er rétt eins og fyrsti júh hafi fallið af himnum ofan. Samt er fyrsti júh á almanakinu og samningamir á vel skiljanlegu máh fyrir framan þá. Undirritaðir af þeim sjálfum. Eftir þjóðarsátt og lygnan sjó í efnahagsmálum vakna menn upp við þann vonda draum að Félags- dómur segir að það standi sem skrifað stendur! Og aht springur í loft upp. Þjóðarsáttin, tímamóta- samningarnir við háskólahðið og Ólafur Ragnar. Fjármálaráðherr- ann veit ekki sitt rjúkandi ráð og hefur Félagsdóm sem blóraböggul. Ráðherrann og Alþýðubandaiags- formaðurinn Olafur Ragnar hefur haft það fyrir sið að skamma vinnuveitendur fyrir það sem mið- ur fer. En nú er ekki við vinnuveit- endur að sakast. Og það er rétt. Ekki nema þá þann eina vinnuveit- anda sem snýr að Ólafi sjálfum. Hann sjálfur. Hann var vinnuveit- andinn sem samdi við skæruliðana og Pál, hann var maðurinn sem skrifaöi upp á sjálfvirku vítisvélina og það var Ólafur Ragnar sem fjár- málaráðherra sem þurfti að snúa sér í hring th að biðja viðsemjendur sína um að hlífa sér við áð efna samninginn sem hann hafði skrifað undir. Lái mér hver sem vih þótt mér verði það á að brosa. Nú mundi öll þjóðin hlæja væri hún ekki dauð. Ónnur eirís hringavitleysa hefur sjaldan eða aldrei áður farið fram. Eða man einhver þann tíma að full- trúar þeirra flokka, sem kenna sig við alþýðu í ríkisstjóm, talsmenn verkalýðshreyfingarinnar og launafólk almennt hafi orðið skelf- ingu lostið við að heyra að launa- hækkanir væra yfirvofandi? Er það ekki tímanna tákn að menntað- asta fólkið í ríkisgeiranum klifri upp á bakið á Sóknarkonunni? Hefur það áður gerst að ríkisstjóm þurfi að setja lög th að banna sjálfri sér að standa við eigin samning? Hver er að segja að Palli sé einn í heiminum? Stundum eru öfugmælin sönnust, stundum er andhverfan rétta hhð- in, stundum er brosið besta ráðið við alvörunni. EUert B. Schram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.