Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1990, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1990, Qupperneq 37
LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1990. 49 . DV Til sölu Nissan 200 SX ef viðunandi tilboð fæst. Bíllinn er rauður, árg. ’89, 170 hö., intercooler, turbo, twin-cam, 16 ventla, ABS bremsur, afturdrifinn og rafmagn í rúðum og speglum o.fl. Uppl. í síma 641467. Volvo turbo, árg. '84, til sölu, ekinn 131 þús. km, 155 hö., svartur, upptekin túrbína. Lítur vel út. Verð 850 þús. eða skipti á ódýrari. Uppl. í síma 671826. VW Golf GTi, 16 v., árg. '87, til sölu, dökkblár metallic, fallegur bíll, ekinn 48 þús., útvarp/segulband, skipti á ódýrari. Uppl. í síma 96-27598 (96-22112) eftir kl. 16. BMW 318i '86 til sölu, ekinn 80 þús., splittað drif, blásans., útvarp/kass- ettutæki, góður bíll, góð kjör. Uppl. í síma 91-625322 (98-34587). Ragnar. Trans Am, árg. '77, til sölu, svartur, með 400 vél, krómfelgur og ný dekk, skipti athugandi, til greina kemur að taka nýlegan bílasíma upp í. Uppl. í síma 98-21616. Mazda 626 2000 LX, árg. 1988, til sölu, ekinn aðeins 23.000, skipti á ódýrari. Uppl. gefúr B.G. Bílasalan í síma 92-14690 eða í hs. 92-16083. Toyota Corolla GTi 1,6, árg. '88, til sölu, ekinn 24 þús. km, svartur, 5 gíra. Verð 1.090.000. Skipti á ódýrari. Uppl. í síma 78370 e.kl. 19. Subaru station GLE 1800 '82 til sölu, 4x4, útvarp/segulband, nýleg sumar- dekk. Verð 200.000. Greiðslukjör. Uppl. í síma 656119. Toyota Corolla twin cam '87 til sölu, ekin 58 þús., topplúga, álfelgur, skipti á ódýrari koma til greina. Uppl. i síma 91-651089. Smáauglýsingar Chrysler Cordoba '76, 2ja dyra, 400 cub., 4ra hólfa blöndungur, original topplúga, nýskoðaður, verð 190 þús., 150 þús. staðgr. Uppl. í hs. 91-667553 og vs. 91-11246. MMC L 300 4WD minibus, árg. '88, grá- sans. og dökkgrár, 5 gíra, bensín, sæti fyrir 8, útvarp, kassettut., ný 30" dekk, aukaljóskastarar, grjótgrind, ekinn 64.000 km, einn eigandí. Fallegur og góður bíll, í ábyrgð, góðir lánamögu- leikar, ath. skipti á nýl. 300 -600.000 kr. bíl. Heimasími 38773, 985-27817, Lárus/Hannes. Chevrolet Monza '86 til sölu, sjálfskipt- ur, ekinn 52 þús., verð 480 þús. Uppl. í síma 91-44870. ■ Líkamsrækt Ódýrir tímar i allt sumar, squash-rac- ketball. Opið í sumar: mánudaga 12-21, þrið/mið/fim. 16-21, fös. 12-21 og laugar/sunnud. 10-14. Prófaðu bestu aðstöðuna í bænum. Squash- klúbburinn, Stórhöfða 17, sími 674333. + MINNINGARKORT Sími: 694100 FLÚMJORMRSVlífl Andlát Sigurður Sveinn Sigurjónsson frá Hellissandi lést á Hrafnistu 26. júlí. Guðlaug Þóra Friðriksdóttir, Völl- um, Saurbæjarhreppi, lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu Akureyri fimmtu- daginn 26. júh. Kristín Þ. Ásgeirsdóttir frá Fróðá, áður til heimilis að Samtúni 2, andað- ist að Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 26. júlí. Fyrirlestrar Fyrirlestur í Norræna húsinu Um þessar mundir er staddur hér á landi dr. Kristof Glaman, forstjóri Carlsberg- sjóðsins og stjórnarformaöur Carlsberg- verksmiðjanna. Hann er hingað kominn í boði forseta íslands, forsætisráðherra, Háskóla íslands og Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hf. og mun kynna sér rannsóknir þær á Mývatni og Þingvalla- vatni sem unnið hefur verið að sl. 20 ár undir stjórn dr. Péturs M. Jónassonar, prófessors við Kaupmannahafnarhá- skóla. Carlsbergsjóðurinn á og rekur Carlsbergverksmiðjurnar og er ágóða af rekstri þeirra varið til að styrkja ýmiss konar vísindastarfsemi og listir. Kristof Glaman var prófessor í hagsögu við Kaupmannahafnarháskóla. Hann hefur skrifað margar bækur um atvinnulíf og iðnað í Danmörku, m.a. tvær bækur um Carlsberg-samsteypuna. Hann mun halda fyrirlestur um Carlsbergverk- smiðjurnar og Carlsbergsjóöinn í Nor- ræna húsinu sunnudaginn 29. júlí kl. 16. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Tilkyimingar Ættarmót Niðjar Guðmundar Einarssonar og Margrétar Benediktsdóttur frá Saurum í Skagahreppi, A-Hún., halda ættarmót í Bændaskólanum að Hvanneyri helgina 18. og 19. ágúst. Dagskráin hefst kl. 14. Þeir sem áhuga hafa á að gista inni þurfa að panta herbergi sem allra fyrst. Vin- samlegast tilkynnið þátttöku í síma 95-35710, Jóna, 91-30347, Margrét, 92-27350, Imba, og 98-22031, Adda. Húsdýragarðurinn í Laugardal Dagskrá laugardaginn 28. júlí og sunnu- daginn 29. júlí: Kl. 10 opnað. Kl. 11 selum gefið. Kl. 11.30 hreindýr teymd um svæð- iö. Kl. 13 hestar teymdir um svæðið. Kl. 14 selum gefið. Kl. 14.30 hreindýr teymd um svæðið. Kl. 15 hestar teymdir um svæðið. Kl. 16 ungar sýndir í smádýra- húsi. Kl. 16.15 selum gefið. Kl. 16.30 nauta- gripir reknir í fjós. Kl. 16.45 kindur, geit- ur og hestar tekin í hús. Kl. 17 hænur og kjúklingar tekin í hús. Kl. 17.15 mink- ar og refir fóðraðir. KI. 17.30 kýr mjólkað- ar. Lokað kl. 18. Verð kr. 100 fyrir böm, kr. 200 fyrir fullorðna. Frá Vestfirðingafélaginu í Reykjavík Eins og undanfarin ár verða i ágúst veitt- ir styrkir úr Menningarsjóði vestflrskrar æsku til vestfirskra ungmenna til fram- haldsnáms sem þau geta ekki stundað í heimabyggð sinni. Forgang um styrk úr sjóðnum, að öðru jöfnu, hafa: 1. Ungmenni sem misst hafa fyrirvinnu sína (foður eða móður) og einstæðar mæður. 2. Konur, meðan ekki er fullt jafnrétti launa. Ef ekki berast umsóknir frá Vestfjörð- um koma, eftir sömu reglum, umsóknir frá Vestfirðingum búsettum annars stað- ar. Félagssvæði Vestfirðingafélagsins em Vestfirðir allir (ísafjörður, ísafjarðar- sýslur, Barðastrandar- og Strandasýsla). Umsóknir þarf aö senda fyrir lok júlí og þurfa meðmæli að fylgja umsókn, frá skólastjóra eða öðmm sem þekkja um- sækjandann, efni hans og aðstæður. Umsóknir skal senda til Menningarsjóðs Vestfirskrar æsku, b.t. Sigríðar Valde- marsdóttur, Njálsgötu 20, jarðh., 101 Reykjavík. Á síðasta ári voru veittir styrkir að upphæð samtals 225 þúsund krónurfil fimm ungmenna. Þolreiðarkeppni Á sunnudag kl. 10 verður lagt upp í þol- reið frá Laxnesi í Mosfellsdal. Riðið verð- ur yfir að Skeggjastööum og Hrafnhólum að Köldukvísl og farið undir brúna þar og riðið út meö Leirvognum fram hjá Korpúlfsstöðum, Keldnaholti og Keldum, upp að Rauðavatni og þar yfir í hesthúsa- hverfi í Víðidal. Leiðin er 37 km löng og áætlað er að keppendur fari hana á um tveimur klukkustundum. Að keppninni standa Hestaleigan í Laxnesi, Stöð 2, Hestamannafélagið Hörður og Flugleiðir sem gefa jafnframt vinninga. Þetta er í þriðja skipti sem þessi keppni er haldin en áður var riðið í Skógarhlíð. Þessi reið- leið býður upp á að hægt sé að fylgjast„ með keppnisfólki alla leiðina. Félag eldri borgara Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, á morg- un, sunnudag. Kl. 14, frjálst spil og tafl, kl. 20, dansað. Lokað verður í Goðheim- um vegna sumarleyfa frá og með 2. ágúst til 2. september. Farin verður ferð um Fjallabak nyrðra og syðra 18.-21. ágúst nk. Upplýsingar á skrífstofunni. Messur Guðsþjónustur Árbæjarprestakall: Guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Organleikari Jón Mýrdal. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. Ásprestakall: Lagt upp frá Áskirkju kl. 8.30 sunnudag í árlega safnaðarferð. Messa í Skarðskirkju, Landsveit, kl. 11. Sjá nánar í dagbók. Arni Bergur Sigur- björnsson. Bústaðakirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Fermdur verður Egill Karlsson, Urðar- stekk 4. Organisti Guðni Þ. Guömunds- son. Guðrún Jónsdóttir syngur einsöng. Sr. Pálmi Matthíasson. Dómkirkjan: Messa með altarisgöngu kl. 11. Organleikari Marteinn Hunger Friðriksson. Sr. Jakob Ágúst Hjálmars- son. Viðeyjarkirkja: Guðsþjónusta kl. 14. Organleikari Marteinn Hunger Friðriks- son. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson. Báts- ferð verður úr Sundahöfn kl. 13.30. Elliheimilið Grund: Messa kl. 10. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta með léttum söng kl. 20.30. Prestur sr. Guð- mundur Karl Ágústsson. Þorvaldur Hall- dórsson og félagar sjá um tónlist og söng. Hallgrímskirkja: Messa kl. 11. Sr. Ragn- ar Fjalar Lárusson. Jóna Hrönn Bolla- dóttir guðfræðinemi prédikar. Hers- heykórinn frá Pennsylvaniu syngur í messunni, stjórnandi James Hoffmann. Þriðjudagur: Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Miðvikudagur: Samveia Indlandsvina í safnaðarsal kl. 20.30. Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Bragi Skúlason Háteigskirkja: Hámessa kl. 11. Sr. Arn- grímur Jónsson. Kvöldbænir og fyrir- bænir eru í kirkjunni á miðvikudögum kl. 18. Prestamir. Kópavogskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Guðmundur Gilsson. Ægir Fr. Sigurgeirsson. Langholtskirkja, kirkja Guðbrands biskups: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Sigurður Haukur Guðjónsson. Kór Lang- holtskirkju syngur. Örganisti Jón Stef- ánsson. Molakaffi að lokinni athöfn. Sóknarnefnd. Laugarneskirkja: Laugardagur 28. júlí: Messa í Hátúni 10B, 9. hæð, kl. 11. Sókn- arprestur. Neskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Guö- mundur Óskar Ólafsson. Organisti Reyn- ir Jónasson. Miðvikudagur: Fyrirbæna- messa kl. 18.20. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Seljakirkja: Kvöldgúðsþjónusta er í kirkjunni kl. 20. Síðasta guðsþjónusta fyrir sumarleyfi starfsfólks. Marta Hall:-' dórsdóttir syngur einsöng. Altarisganga. Kaffisopi eftir guðsþjónustu. Sóknar- prestur. Seltjarnarneskirkja: Guðsþjónusta kl. 11 í umsjá Þorvaldar HaÚdórssonar. Sóknarnefndin. Safnkirkjan Árbæ: Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson. Keflavíkurkirkja: Guðsþjónusta kl. 9.30 árd. Ræðuefni: Andlegir straumar í sam- tímanum. Kór Keflavíkurkirkju syngur. Organisti Örn Falkner. Athugið breyttan messutíma. Sóknarprestur. Innri-Njarðvíkurkirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Ræðuefni: Andlegir straumar í samtímanum. Kór Keflavíkurkirkjú' syngur. Organisti Örn Falkner. Ólafur Oddur Jónsson. Þingvallakirkja: Guðsþjónusta á sunnu- dag kl. 14. Sr. Ingólfur Guðmundsson prédikar og þjónar fyrir altari. Ræðu- efni: Réttlæti manna og réttlæti guðs. Organleikari Einar Sigurðsson. Sóknar- prestur. Tapaðfundið Seðlaveski tapaðist Gult seðlaveski tapaðist sl. fimmtudag. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 623249. Angóraköttur í óskilum Svartur og grár angóraköttur fannst W Norðurmýri. Upplýsingar í síma 625521. t Innilegar þakkir tilykkar allra nær og fjærsem sýnduð okkur samúð og hlýhug við andlát og útför Jóhannesar Kristinssonar skipstjóra Bröttugötu 9, Vestmannaeyjum. Þökkum jafnframt alla aðstoð í veikindum hans. Geirrún Tómasdóttir börn og tengdadóttir Dagný Ingimundardóttir Heiga Jóhannesdóttir Tómas Geirsson og systkini hins látna BÚSÁHÖLD OG GJAFAVÖRUR STORUTSALA A BUSAHOLDUM leirtau hnífapör gerviblóm pottar gjafavörur og margt fleira Góðar vörur - gjafverð MARKAÐSTORG KRINGLUNNAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.