Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1990, Side 8
8
MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 1990.
Hvemig
lmilljón
varðað
4,5 miiljónum.
Sá sem keypti KJARABRÉF fyrir 5 árum
fyrir eina miUjón króna á nú tæpar4,5 milljónir.
Á verðlagi dagsins í dag hefur hann fengið
tæplega2.100.000kr.ívaxtatekjuraukverðbóta!
Með öðrum orðum, raungildið hefur nær
tvöfaldast á þessum tíma!
KJARABRÉF-19% ársávöxtun. *
KJARABRÉF—8,1% raunávöxtun.*
KJARABRÉF- 5 ára örugg reynsla.
* Miöað viö 6 fyrstu mánuði ársins.
<a>
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF
- Löggilt verðbréfafyrirtæki -
*
HAFNARSTRÆTI28566 • KRINGLUNNI689700 • AKUREYR111100
Utlönd
Ráðherrann
enn gísl
Robinson, forsætisráöherra Tri-
nidads og Tobago í Karíbahafi, var
enn í morgun fangi uppreisnar-
manna en þeir bundu hann fastan
við sprengjuefni á föstudaginn. Fleiri
ráöherrar eru einnig í haldi upp-
reisnarmanna.
Starfsmenn aðalsjúkrahússins í
Port of Spain, höfuðborginni, segja
að að ihinnsta kosti þrjú hundruð
manns hafi látið lífið og særst í öng-
þveitinu sem ríkt hefur síðan yfir tvö
hundruð róttækir múhameðstrúar-
menn gerðu tilraun til valdaráns á
föstudaginn. Múhameðstrúarmenn-
irnir segjast vilja binda enda á spill-
ingu stjórnarinnar og skortinn á sið-
ferði í landinu.
Yfirmaður öryggismála á Trinidad
og Tobago vísaði á bug í sjónvarps-
viðtali í gær fullyrðingu uppreisnar-
manna um að samkomulag væri í
nánd eða að Robinson hefði sam-
þykkt að segja af sér. Samkvæmt
meintu samkomulagi átti Robinson
að útnefna bráðabirgðaráðherra og
boða kosningar innan níutíu daga.
Robinson hefur verið forsætisráð-
herra frá 1986 og kosningar eru ekki
ráðgerðar fyrr en í lok ársins 1991.
Öryggi hefur verið hert á Trinidad
og Tobagó í kjölfar valdaránstilraun-
arinnar og ríkir nú útgöngubann í
átján klukkustundir á sólarhring.
Umhverfis þinghúsið og sjónvarps-
húsið, þar sem uppreisnarmenn haf-
ast við, ríkir útgöngubann allan sól-
arhringinn. Hermenn og lögreglu-
menn hafa hafið sameiginlegt eftirht.
Hefur lögreglan fengið fyrirskipun
um að skjóta þá sem láta greipar
sópa í miðborg Port of Spain en þar
hefur nær hver einasta verslun verið
tæmd í kjölfar ringulreiðarinnar sem
fylgdi í kjölfar valdaránstilraunar-
innar á föstudaginn.
Uppreisnarmenn hafa neitað frétt-
um um að þeir hafi farið fram á að
flogið yrði með leiðtoga þeirra og
stuðningsmenn hans til Líbýu. Fyrr
á þessu ári fann lögreglan fjölda
vopna í fórum róttækra múhameðs-
trúarmanna. í desémber eru þrír
Líbýumenn sagðir hafa komið til
Trinidad til að þjálfa múhameðstrú-
armennina. Stjórnvöld gripu hins
vegar ekki til neinna aðgerða, að því
er lögreglumaður nokkur sagði..
Reuter
Robinson, forsætisráðherra Trinidads og Tobago. Hann er nú fangi upp-
reisnarmanna, bundinn við sprengju. Simamynd Reuter
The New York Times:
Fréttafölsun í ísrael
ísraelska utanríkisráðuneytið hef-
ur borgað fréttamönnum við út-
varpsstöð í Jerúsalem fyrir að falsa
fréttir. Þetta er fullyrt í bandaríska
dagblaðinu The New York Times í
morgun.
Samkvæmt blaðinu hefur þessi
fréttafólsun staðið yfir í fjögur ár og
veitti ísraelska utanríkisráöuneytið
fé til launagreiðslna fréttamann-
anna. í utanríkisráðuneytinu var
þeim sagt hvaða fréttir þeir ættu að
flytja, að því er blaðið hefur bæði
eftir fréttamönnum og embættis-
mönnum.
Blaðið greinir frá því að tugir út-
varpsstöðva í Bandaríkjunum, Evr-
ópu, Afríku, Asíu og Suður-Ameríku
hafi flutt fréttir frá fyrrnefndum
fréttamönnum sem sagðir eru hafa
verið í lausamennsku.
ísraelska utanríkisráðuneytið hef-
ur staðfest samskipti við fréttamenn-
ina og útvarpsstöðina en neitar að
hafa borgað fréttamönnunum, að því
er The New York Times skrifar. í
blaðinu segir 'að tólf af sextíu út-
varpsfréttamönnum í ísrael hafi tek-
ið þátt í fréttafolsuninni. Eiga frétta-
mennirnir að hafa verið kallaðir til
utanríkisráðuneytisins einu sinni í
viku. Þar hafi þeim verið tjáð hvað
ráöuneytið vildi að yrði aðalinntak
fréttanna og hugmyndum var gauk-
að að þeim um við hverja ætti að
taka viðtal.
ísraelska utanríkisráðuneytið
greip til þessa ráðs til þess að vega
upp á móti því sem þaö taldi óréttlát-
an og ófullnægjandi fréttaflutning af
deilum araba og ísraela, skrifar The
NewYorkTimes. Reuter
I
c
1