Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Síða 7
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1990.
7
Fréttir
Nýstárlegar innheimtuaðgerðir í Hveragerði:
„Svo skellur í tönnum
og þá er boðinn víxill“
„Ég er aö hræra í þeim sem hafa
slæma samvisku og vona að bréfiö
beri tilætlaðan árangur. Menn verða
náttúrulega að standa í skilum við
bæjarfélagið og 'innheimtan hér í
Hveragerði, sem er slæm, verður að
komast í lag. Bærinn verður að geta
staðið við skyldu sína gagnvart bæj-
arbúum,“ sagði Hallgrímur Guð-
mundsson, bæjarstjóri í Hveragerði,
en hann hefur sent frá sér umtalað
dreifibréf til bæjarbúa. Viðbrögð
þeirra eru annaðhvort forundran og
reiði eða hrifning.
í bréfinu auglýsir Hallgrímur út-
boð og byggingu félagslegra íbúða og
síðast en ekki síst minnir hann Hver-
gerðinga á að greiða gjöldin sín. Bréf
sem þessi teljast sosum ekki til tíð-
inda en bréfið er hins vegar afar
óvenjulegt þar sem bæjarstjórinn fer
allt annað en troðnar slóðir í skrifum
sínum í nafni embættisins.
Undir millifyrirsögninni „Ormar á
gulh?“ í lokakaíla bréfsins eru bæj-
arbúar minntir á gjöldin. Þar stend-
ur:
„Fjölmörgum Hvergerðingum eru
þakkaðar skilvísar greiðslur opin-
berra gjalda í bæjarsjóð og ríða þó
sumir ekki feitum hesti. An þeirra
gæti bæjarfélagið ekki þrifist.
Nokkrir skuldseigir gjaldendur
láta sér hins vegar fátt um finnast
og njóta lífsins eftir atvikum, eins og
aðbúnaður bæjarins fáist fyrir ekk-
ert. Tilkynningar um vanskii eru til-
gangslausar, ábendingar um dráttar-
vexti og innheimtukostnað hafa eng-
in áhrif og eins mætti skvetta vatni
á gæs en að tilkynna fyrirsjáanleg
lögtök og nauðungaruppboð.
Svo skellur í tönnum og þá er loks-
ins boðinn víxill!!
Skilvísir gjaidendur eiga þá kröfu
aö alhr bæjarbúar verði látnir sitja
við sama borð. Því er gjaldendum,
Málverkasýning
á Djúpuvík
Regína Thorarensen, DV, Gjögri:
Fyrsta málverkasýningin, sem
haldin hefur verið á Hótel Djúpuvík,
var opnuö í gær, fimmtudag. Það eru
hjónin Alfreð Björnsson og Hulda
Pétursdóttir, Útkoti Kjalarnesi, sem
sýna þar 20 málverk, allt olíumyndir.
Allar myndirnar eru tiisölu. Sýning-
in stendur fram yfir helgi og þarf
ekki að efa að margir munu leggja
leið sína á hótelið því að listafólk
hefur ekki áður ómakað sig í Árnes-
hrepp á Ströndum. Einnig mun
ferðafólk hafa þarna stans.
Alfreð er af þekktu listafólki kom-
inn, náskyldur Ríkarði Jónssyni.
Vesturlandsumdæmi:
Soffanías
skattakóngur
Soffanías Cechsson, útgerðarmað-
ur í Grundarfirði, er skattakóngur
Vesturlandsumdæmis með 5,2 millj-
ónir í heildargjöld. Bragi Þórðarson,
bókaútgefandi á Akranesi, er með 4,7
milljónir. Jón Þór Hallsson, endur-
skoðandi á Akranesi, 4,1 milljón.
Kristján Guðmundsson, útgerðar-
maður á Rifi, er með 4 mihjónir og
Runólfur Hallfreösson, útgerðar-
maður á Akranesi, 3,9 mhljónir í
álögð gjöld.
Sparisjóður Mýrarsýslu í Borgar-
nesi er skatthæsta fyrirtækið með 41
milljón í heildargjöld. Olíustöðin í
Hvalfirði er með 26 mihjónir. Kaup-
félag Borgfirðinga í Borgamesi 21
mhljón. Haraldur Böðvarsson & Co
á Akranesi 15 mihjónir og Hvalur
hf.íHvalfirðil4mihjónir. -pj
sem eiga í vanskhum, bent á að gera
tafarlaus skh.“
„Ég hef nú ekki fengið nein við-
brögð við þessu bréfi en á von á þeim
fyrr eða síðar. Ég er að gefa tóninn
um á hverju bæjarbúar mega eiga
von. Á Hornafirði birti ég einu sinni
auglýsingu þar sem ég lýsti eftir 43
gjaldendum. Þar urðu góð viöbrögð
þar sem menn komu unnvörpum og
borguðu. Hornfirðingar eru skilvís-
asta fólk eins og Hvergerðingar
verða.“
Sagan af bréfinu er ekki öll sögð
þar sem Hallgrímur klykkir út með
vísu eftir Tómas Guðmundsson:
Þá muntu aftur öðlast ró og frið,
sem endist fram að þínu dánarbeði.
Og sáttur skhstu veröldina við,
og vinir þínir jarða þig - með gleði.
-hlh
Hallgrímur Guðmundsson, bæjar-
stjóri í Hveragerði, fer ótroðnar
slóðir til að bæta innheimtu opin-
berra gjalda.
Cöhl T6SN
Vegna gífurlegrar eftirspurnar eftir miðum á risarokkið í Reiðhöllinni föstudaginn
7. september hefur verið bætt við öðrum hljómleikum kvöldið eftir.
Forsala aðgöngumiða
Reykjavík: Skifan, Kringlunni og Laugavegi 33; Hljóðfærahús Reykjavíkur, Laugavegi 96: Steinar, Austurstræti, Álfabakka 14, Glæsibæ, Laugavegi
24, Rauðarárstig 16 og Eiðistorgi; Myndbandaleigur Steina; Plötubúðin, Laugavegi 20. Hafnarfjörður: Steinar, Strandgötu 37. Akranes: Bóka-
skemman. Borgarnes: Kaupfélag Borgfirðinga. ísafjórður: Hljómborg. Sauðárkrókur: Kaupfélag Skagfirðinga. Akureyrl: KEA. Neskaupstað-
ur: Tónspil. Höfn: KASK. Vestmannaeyjar: Adam og Eva. Selfoss: Ösp. Keflavík: Hljómval.
Elnnlg er hægt að panta mlöa í síma 91-667 556. Þeir sem hrlngdu í síðustu viku og hafa enn ekki fenglð sendan gíró-
seðll eru beðnlr að hafa samband strax. Töfln stafar af of miklu álagl á símsvara.
Munið:
Flugleiðir velta 35% afslátt af verði flugferða
gegn framvísun aðgöngumlða að risarokktónleikunum. ^
Beint þotuflug til Akureyrar nóttina eftir risarokkið.
Miðaverð kr. 3.500.