Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1990. Útlönd Kuwaitmenn biðja um hjálp Talsmaður bandaríska utanríkis- ráðuneytisins kvaðst í morgun ekki hafa neinar upplýsingar varðandi frétt bandarísku sjónvarpsstöðvar- innar CBS frá þvi í gærkvöldi um að íraskar hersveitir í Kuwait nálguð- ust landamæri Saudi-Arabíu. Sjón- varpsstöðin vitnaði í heimildarmenn í olíuiðnaðinum. Fréttir hafa einnig borist af því að íraskir hermenn séu á leið suður frá höfuðborginni til ol- íusvæöa í Kuwait. í morgun mátti enn heyra skot- drunur og sprengingar í Kuwaithórg. í nótt barst hjálparbeiðni frá einu útvarpsstöðinni í Kuwait sem enn útvarpaði um sólarhring eftir innrás íraka. í fréttum útvarpsstöðvarinnar sagði að hermenn í Kuwait verðust enn af öllum mætti. Emírinn af Kuwait, Jaber al- Ahmed al-Sabah, flúði til Saudi- Arabíu áður en íraskir hermenn hertóku höll hans í gærmorgun. Mörgum úr fjölskyldu emírsins tókst einnig að flýja land í gær en bróðir hans var myrtur er hann reyndi að verja höllina. Óljóst er hversu marg- ir féllu í bardögunum en talið er aö þeir séu nokkur hundruð. írösk yflrvöld tilkynntu í gær- kvöldi að stjórn sú sem þau hefðu komið á í Kuwait myndi gera upp- tæka alla sjóði emírsins og nokkurra ráðherra hans, bæði heima fyrir og erlendis. í íraska ríkisútvarpinu var vitnað í yflrlýsingu leppstjórnarinn- ar í Kuwait þar sem sagði að tími væri kominn til að afhenda féð rétt- mætum eigendum þess, þjóðinni í Kuwait. Yfirvöld í Bandaríkjunum, Frakk- landi, Belgíu og Bretlandi hafa fryst eigur Kuwaitmanna til að koma í veg fyrir að þær komist í hendur íraka. Yfirvöld í Sviss fóru þess á leit við banka þar í landi að þeir sem ætluðu að taka út fé af reikningum Kuwait- manna yrðu látnir sýna skilríki. Reuter Iraskir hermenn leita skjóls bak við skriðdreka tii að verjast skothríð hermanna í Kuwait. Símamynd Reuter Innrásin fordæmd - leiðtogar Arabaríkja koma saman til neyðarfundar Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, risaveldin, aðildarríki Evrópubanda- lagsins og mörg önnur ríki heims fordæmdu innrás íraka í Kuwait að- faranótt fimmtudags og munu risa- veldin síðar í dag gefa út sameigin- lega yfirlýsingu þar sem innrásin er fordæmd. Leiðtogar Arabaríkja munu líklega koma saman til fundar um helgina til að ræöa ástand mála. Viðbrögð við innrásinni voru snögg og hafa til að mynda Sovétmenn stöðvað aliar vopnasendingar til íraks. Fordæma innrásina Innrásin olh hneykslan og reiði á Vesturlöndum og í Arabaheiminum. Engin Arabaríki hafa þó enn opin- berlega fordæmt hana. Yfirvöld í Bandaríkjunum, Frakklandi og Bret- landi hafa þegar fryst allar eigur Kuwait í löndum sínum til að koma í veg fyrir að þær falli í hendur íraskra stjómvalda. Stjómarerind- rekar meta eigur Kuwait í erlendum ríkjum á 55 milljarða dollara. Bretar íhuga nú að stöðva öll olíu- viðskipti við írak dragi írakar herhð sitt í Kuwait ekki til baka, sagði breskur embættismaður í gær. Bush Bandaríkjaforseti hefur harðlega fordæmt árásina sem og leiðtogar annarra vestrænna ríkja. Bush, sem hefur sent fleiri herskip til Persaflóa og skipað herafla Bandaríkjanna þar í viðbragðsstöðu, sagði þó að hann væri ekki að íhuga hemaðaríhlutun. Bandarísk stjórnvöld hafa bannað öll viðskipti við írak og fryst eigur þjóðarinnar í bandarískum bönkum, þar af milljónir dollara sem fengust fyrir viðskipti. Til sama ráðs hafa Frakkar gripið. Viðbrögð íraka vom þau að tilkynna að þeir myndu stöðva þegar í stað allar endur- greiðslur á lánum sem Bandaríkin hafa veitt írak. Thatcher, forsætisráöherra Bret- lands, og Bush Bandaríkjaforseti, hafa bæöi fordæmt innrás íraks í Kuwait aðfaranótt fimmtudags. Simamynd Reuter Vestur-þýskur embættismaður sagði að hætta væri á að stríð brytist út þar sem kjarnorku- og efnavopn- um yrði beitt. Bretar vom einnig harðorðir í garð íraka og sögðu inn- rásina ógnun við friðinn í þessum heimshluta. Frakkland, sem er nán- asta viðskiptaþjóð íraks í Evrópu, fordæmdi einnig harðlega árásina og krafðist þess að írakar drægju herhð sitt tafarlaust og skhyrðislaust th baka. Ríkisstjómir aðildarríkja Evr- ópubandalagsins hafa fordæmt inn- rásina og munu utanríkisráðherrar þeirra koma saman til neyðarfundar. ísraelska stjórnin kvaðst fylgjast með ástandinu í þessum heimshluta náið og sakaði Saddam Hussein íraksforseta um að ógna friði í Mið- austurlöndum. ísraelskir hemaðar- sérfræðingar kváöust þó ekki búast við að Bandaríkin eða Arabaríki myndu hlutast í átökin. Neyðarfundur boðaður Leiðtogar Arabaþjóða munu koma saman th neyðarfundar á næstunni, líklega um helgina, th að ræða ástandið fyrir botni Persaflóa í kjöl- far innrásar íraka í Kuwait aðfara- nótt fimmtudags. Utanríkisráöherr- ar aðildarríkja Arababandalagsins, sem ræddust við í Kaíró í gær, sam- þykktu að efna th þessa leiðtogafund- ar og segja heimhdarmenn aö hann muni fara fram í Kaíró. Hafez al-Assad, forseti Sýrlands og erkióvinur Husseins íraksforseta, Gert er ráð fyrir að Eduard Sévardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, og James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gefi út sameiginlega yfirlýsingu í Moskvu í dag vegna innrásar íraka í Kuwait. Simamynd Reuter Risaveldin: Sameinast gegn írak James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kvað í morgun fyrir- hugaða sameiginlega yfirlýsingu risaveldanna vegna innrásarinnar í Kuwait einstaka. Bciker flýtti fór sinni frá Mongólíu til Moskvu til fundar við Eduard Sévardnadze, ut- anríkisráðherra Sovétríkjanna, vegna ástandsins fyrir botni Persa- flóa. Með sameiginlegri yflrlýsingu yrði hrint í framkvæmd nýrri stefnu stór- veldanna tveggja um að hætta gagn- kvæmum ógnunum og taka í staðinn upp samvinnu nú þegar kalda stríð- inu er lokið. Baker sagði að líklega væru um flmmtíu þúsund th hundrað þúsund íraskir hermenn i Kuwait. Enn hefði ekki verið gerð innrás í sendiráð Bandaríkjanna og Bretlands sem umkringd eru af íröskum hermönn- um. Að sögn Bakers íhuga Bandaríkin nú til hvaða ráða eigi að grípa vegna innrásarinnar. Hann neitaði hins vegar að segja hvort bandarísk yfir- völd íhuguðu hernaðaríhlutun. Bandaríkin hafa þegar fryst eigur Kuwaita og íraka og hafa sett bann við viðskiptum við írösk yfirvöld. Sovétríkin hafa stöðvað vopnasölu til íraks og hafa bandarískir embætt- ismenn lýst yflr ánægju sinni með þá ákvörðun. Gert er ráð fyrir að Baker og Sé- vardnadze gefi út sameiginlega yfir- lýsingu í Moskvu í dag. Að sögn heimildarmanna meðal stjórnarer- indreka verður innrás íraka for- dæmd í yfirlýsingunni auk þess sem hvatt verður til tafarlauss brottflutn- ings íraskra hermanna frá Kuwait. Bæði sovésk og bándarísk yfirvöld hafa þegar hvort í sínu lagi fordæmt innrásina en sameiginleg yfirlýsing gæti orðið áhrifaríkari, að sögn sér- fræðinga i utanríkispólitík. Opinberlega eru bandarísk yfir- völd bandamaður írösku stjómar- innar þó svo að þau gagnrýni brot Husseins íraksforseta á mannrétt- indum og beitingu efnavopna. Sovét- menn eru einnig bandamenn íraka og hafa selt þeim vopn í þrjá áratugi. Reuter Leiðtogar Arabaríkja munu líklega koma saman til fundar í Kaíró í Egypta- landi um helgina til að ræða innrás íraka í Kuwait. Ekki er vitað um við- brögð Saddams Hussein, forseta íraks, sem hér sést, við þessu fundarboði. Símamynd Reuter forseta í gær til að ræða viðbrögö Arabaríkja við innrásinni. Bush Bandaríkjaforseti kvaðst í gær hafa rætt við leiðtoga Arabaríkja, þar á meðal Mubarak og Hussein Jórdan- íukonung. Arabaþjóðir vilja nú ráða ráðum sínum og reyna aö miðla málum til að finna friösamlega og réttláta lausn á þessari deilu. Ráðamenn í íran, sem háði átta ára styrjöld við írak, sögðust í gær ekki geta látið sem ekkert væri þegar íraskir hermenn hefðu hernumið Kuwait. Reuter var fyrstur Arabaleiðtoga til að hvetja til leiðtogafundar. Skýrt var frá því í gær að Assad heföi skipað herafla sínum í viðbragðsstöðu í kjöl- far árásar íraka á Kuwait. Háttsettur íraskur embættismaður sagði aftur í gær að fundur utanríkis- ráðherra Arababandalagsins væri gagnslaus og og ynni gegn hagsmun- um Arabaríkja. Ekki er ljóst hver verða viðbrögð Saddams Hussein íraksforseta við fundarboði leiðtog- anna. Hussein Jórdaníukonungur fór til viöræðna við Mubarak Egyptalands-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.