Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Blaðsíða 32
44 FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1990. Fréttir________________________^___________________dv Eru ríki og borg búin að jafna aðstöðumun einstæðra foreldra: Haf a 80 þúsund krónum meira á ári en hjón - þrátt fyrir að hjónin hafi í upphafi helmingi meiri tekjur Getur hugsast að bætur til ein- stæðra foreldra í gegnum almennar tryggingar og skattakerfið og for- gangur þeirra gagnvart dagvistun barna geri meira en að bæta upp þær fjárhagsbyrðar sem felast í því að vera einstætt foreldri? Lausleg athugun DV bendir til að svo sé. Ef tekið er dæmi af tveggja barna fjölskyldum virðist einstætt foreldri hafa um 6 prósent meira af- lögu á ári hverju en hjón meö tvo börn. Ef miðað er við meðallaun jafn- gildir þetta um 80 þúsund krónum á ári í aukið ráðstöfunarfé. Ef hjónin skrá lögheimili sitt á tveimur stöðum geta þau hins vegar haft allt að 25 prósent betri afkomu en hjón sem hafa sama lögheimilið. Ef aftur er gengið út frá meðallaun- um jafngildir þetta um 450 þúsund krónum á ári í eyðslufé umfram það sem hjón með lögheimili á sama stað hafa úr að moða. Lítum nánar á hvemig bætur ríkis og sveitarfélaga til einstæðra foreldr- a eru í dag. Um 20 þúsund frá Tryggingastofnun Tökum dæmi af tveimur fjölskyld- um. Annars vegar er einstætt for- eldri með tvö böm, þar af annað yngra en sjö ára. Hins vegar hjón með tvö böm, einnig annað yngra en sjö ára. Við gefum okkur að einstæða for- eldrið hafi meöallaun samkvæmt út- reikningum kjararannsóknarnefnd- ar, eða 93.589 krónur á mánuði. Eftir staðgreiðslu skatta em 78.511 krónur eftir af þeirri fjárhæð til ráðstöfunar. Hjónin hafa bæði sömu laun, eða 93.589 krónur á mánuði. Eftir stað- greiðslu skatta em því 157.022 krón- ur eftir til ráðstöfunar. Áður en kemur að bótakerfinu hafa hjónin þvi helmingi meira til ráðstöf- unar, eða 73.511 krónur. Þar sem börn era ekki eingetin fær einstæða foreldrið meðlag frá Trygg- ingastofnun sem er 6.848 krónur á mánuði með einu barni eða 13.696 krónur með tveimur hömum. Með- lag er skattftjálst og því hækkar ráð- stöfunarfé einstæða foreldrisins í 87.480 krónur. Hjónin hafa því ekki 100 prósent meira til ráðstöfunar en einstæða foreldrið heldur tæplega 80 prósent meira. Einstæðir foreldrar fá einnig mæðra- eða feðralaun. Með tveimur börnum er greitt 11.244 krónur. Þessi laun eru hins vegar skattskyld og því fær einstæða foreldrið ekki nema 6.778 krónur útborgaðar frá Trygg- ingastofnun. Ráðstöfunarfé einstæða foreldris- ins er því 94.258 krónur þegar það hefur fengið meðlag og mæðra- eða feðralaun með bömum sínum. Hjón- in hafa hins vegar 157.022 krónur á mánuði til ráðstöfunar eða um 67 prósent meira. Tryggingastofnun lækkar því 100 prósent tekjumun niður í 67 prósent mun, eða um þriðjung. Tæplega 16.000 krónum dýrari dagvistun Næst kemur að sveitarfélögunum og dagvistun bama. Eins og áður sagði var annað bamið í báðum fjöl- skyldum yngra en sjö ára og þarf því dagvistun ef foreldrar þess vinna úti. Hjá dagvistun barha í Reykjavík greiða einstæðir foreldrar 7.900 krónur á mánuði fyrir eitt bam. Ráð- stöfunarfé einstæða foreldrisins okk- ar lækkar sem því nemur og verður þvi 86.358 krónur. Dagvistun barna tekur hins vegar ekki við börnum hjónafólks. Hjónin okkar verða því að finna dagmömmu fyrir bamið. Samkvæmt upplýsing- um frá dagvistun barna taka dag- mömmur um 23.500 krónur fyrir gæslu á einu barni. Hjón fá enga nið- urgreiðslu í borgarkerfinu og því lækkar ráðstöfunarfé hjónanna sem þessu nemur. Það verður því 133.522 krónur. Eftir almennar tryggingar og dag- vistun barna er því mismunur á ráð- stöfunarfé þessara tveggja fjöl- skyldna kominn niður í 47.164 krón- ur eða 55 prósent. Barnabætur og barnabótaauki Þá kemur að skattkerfinu. Fyrst koma bamabætur. Einstætt foreldri með tvö böm, þar af annað yngra en sjö ára, fær árlega 187.124 krónur í bamabætur. Það gerir um 15.594 krónur á mánuði. Eftir bamabætur er ráðstöfunarfé einstæða foreldris- ins þá 101.952 krónur. Hjón með jafngömul börn fá minni bætur, eða 66.828 krónur á ári. Það gerir 5.569 krónur á mánuði. Ráðstöf- unarfé hjónanna hækkar við þetta í Fréttaljós Gunnar Smári Egilsson 139.091 krónu. Eftir bamabætur er mismunur á ráðstöfunarfé þessara tveggja íjöl- skylda kominn niður í 37.139 eða 36 prósent. Þessu til viðbótar greiðir skattur- inn út barnabótaauka sem miðast við tekjur fyrra árs. Við miðum við að bæði einstæða foreldrið og hjónin hafi haft sambærilegar tekjur í fyrra og í ár, það er meðallaun samkvæmt kjararannsóknamefnd. Árstekjur einstæða foreldrisins voru þá um 1.132 þúsund krónur að mæðralaunum meðtöldum. Barna- bótaauki þess í ár verður því 59.500 krónur. Það eru um 4.958 krónur á mánuði. Ráðstöfunarfé einstæða for- eldrisins hækkar sem þessu nemur og verður því 106.910 krónur. Hjónin í þessu dæmi fá hins vegar engan barnabótaauka þar sem tekjur þeirra eru yfir lágmörkum. Mismunurinn á ráðstöfunarfé þessara íjölskyldna er því kominn niður í 32.181 krónji eða rétt um 30 prósent. 100 prósent munur færður niður í 23 prósent En skatturinn greiöir einstæðum foreldrum líka bætur í gegnum vaxtabætur. Ef reiknað er með að báðar fjöl- skyldumar séu að kaupa íbúð sem kostar um 5 milljónir og skuldi þar af um 3,5 milljónir á um 6 prósent vöxtum nema vaxtagreiðslur beggja um 210 þúsund krónum á ári. Við útreikning vaxtabóta koma laun fyrra árs aftur við sögu. Bætur til einstæða foreldrisins verða 142 þúsund á ári, eða 11.840 krónur á mánuði. Bætur hjónanna eru hins vegar tæplega 88 þúsund krónur, eða 7.304 krónur á mánuði. Eftir þessar bætur er ráðstöfunarfé einstæða foreldrisins orðið 118.750 krónur á mánuði en hjónanna 146.395 krónur. Mismunurinn er 27.645 krónur eða 23 prósent. Þar með líkur ýmsum bótagreiðsl- um frá ríki og borg. 100 prósent tekjumismunur er kominn niður í 23 prósent. Einstæða foreldrið með 80 þúsundum meira á ári En allt þarf þetta fólk að borða og klæða sig og það kostar sitt. Til er alþjóðlegur stuðull um framfærslu fjölskyldna. Samkvæmt honum er einstaklingur 1,15 neyslueining, hjón 1,90 og hvert bam 0,65 neyslueining- ar. Þessi stuðull er notaður við ýmiss konar mat á framfærslu og tahnn vel nothæfur við slíkt. Samkvæmt þeim stuðli er fjöl- skylda einstæða foreldrisins 2,45 neyslueiningar en fjölskylda hjón- anna 3,20 einingar. Eftir bætur frá ríki og borg er ráð- stöfunarfé fjölskyldu einstæða for- eldrisins samkvæmt þessu um 48.469 krónur á hverja einingu. Ráðstöfun- arfé hjónanna er hins vegar 45.748 krónur á hverja einingu. Samkvæmt þessu hefur ríki og borg tekist að bæta einstæðum for- eldrum upp aðstöðumuninn og gott betur. I raun hefur einstæða foreldr- ið það um 6 prósent betra en hjónin. Sé miðað við ráðstöfunarfé hjónanna á hverja neyslueiningu ætti einstæða foreldrið að hafa um 112 þúsund króna ráðstöfunarfé á mánuði til að hafa það jafngott. Það hefur hins vegar 6.667 krónum meira á mánuði, eða um 80 þúsund krónur á ári. Miðað við þetta dæmi, sem rakið hefur verið hér, hafa stjórnvöld því bætt aðstöðumun einstæðra foreldra og gott betur. Þau styrkja einstætt foreldri með tvö börn um 80 þúsund á ári til viðbótar. 440 þúsund á ári fyrir skilnað Eins og gefur að skilja svindla margir á þessum bótum til einstæðra foreldra enda er um umtalsverðar fjárhæðir að ræða. Gerum ráð fyrir að hjónin okkar skilji til að auka tekjur sínar. Heim- ilsfaðirinn flytur lögheimili sitt til foreldra sinna og tekur að greiða meðlag með börnum sínum. Eftir ofangreint dæmi er ráðstöfunarfé móðurinnar 118.750 krónur eins og einstæða foreldrisins í dæminu. Fað- irinn fær hins vegar 93.589 krónur á mánuði, eða 64.815 eftir skatta og meðlag. Þetta leggst viö ráðstöfun- arfé móðurinnar og því verður ráð- stöfunarfé íjölskyldunnar 183.565 krónur á mánuði. Það er 37.170 krón- um meira en þau höfðu áður en þau skildu. Það jafngildir 446 þúsund krónum á ári. Eins og sjá má af ofangreindu dæmi eru bætur til einstæðra foreldra orðnar töluverðar. Það er jafnvel spurning hvort ekki sé þegar búið að jafna aðstöðumun einstæðra for- eldra og hjóna og jafnvel gott betur. Þetta er athyglisvert þar sem Ólafur Ragnar Grímsson ijármálaráðherra hefur lýst þeirri skoðun sinni að nota eigi skattakerfið til enn frekari tekju- jöfnunar og þar með auka enn á bætur til einstæðra foreldra. í ljósi dæmisins virðist slik yfirlýsing frek- ar vera tilraun stjórnmálamanns til að auka fylgi sitt en að hún sé sprott- in af einhverri efnahagslegri þörf í þjóöfélaginu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.