Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Síða 34
46 FÖSTUDÁGUR 3. ÁGÚST 1990. Afmæli Kristján R. Ólafsson Kristján R. Ólafsson, baövörður í íþróttahúsinu á Akranesi, Prest- húsabraut 34, Akranesi, er sextugur í dag. Kristján fæddist á Suðureyri við Súgandafjörð og bjó þar fyrstu árin en fluttist svo til Akraness. Kristján kvæntist 29. mars 1969 Fjólu Runólfsdóttur, f. 31. október 1930. Foreldrar Fjólu voru Runólfur Guðmundsson, Gröf, Skilmanna- hreppi, Borgarfirði, og Þórunn Markúsdóttir og eru þau bæði látin. Synir Kristjáns og Fjólu eru tveir; Heimir f. 9. janúar 1969, vélvirki, og Eyþór, f. 22. september 1970, mat- reiðslunemi. Systkini Kristjáns eru tvö; Arnór, f. 13. maí 1929, múrara- meistari, en hann var giftur Maríu Ágústsdóttur, f. 9. janúar 1930, d. 10. júh 1977, og eiga þau fimm börn, og Erna Gréta, f. 10. ágúst 1938, gift Jóni Skafta Kristjánssyni vélstjóra, f. 16. ágúst 1937, og eiga þau þrjú börn. Foreldrar Kristjáns voru Ólafur Jónsson vélstjóri, f. 3. nóvember 1906, d. 19. september 1976, og Sigríö- ur Örnólfsdóttir, f. 18. ágúst 1907, d. 21. janúar 1988. Ólafur var sonur Jóns, b. á Gelti í Súgandaflrði, Guð- mundssonar, b. á Gelti, Ásgríms- sonar, skipstjóra á ísafirði, Guð- mundssonar, b. í Minnihlíð, Ás- grímssonar, b. í Arnardal, Bárðar-' sonar, b. í Amardal, Illugasonar, ættfóður Arnardalsættarinnar. Móðir Guðmundar á Gelti var Guð- rún Einarsdóttir, b. í Tungu, Ás- grímssonar, bróöur Guðmundar í Minnihlíð. Móðir Jóns var Guðrún Ólafsdóttir, b. í Bæ, Lárentíusarson- ar, b. á Gelti, Hallgrímssonar, b. á Gelti, Lárentíusarsonar, b. á Hóli í Bolungarvík, Erlendssonar, sýslu- manns á Hóli, Ólafssonar, bróður Jóns Grunnvíkings. Móðir Ólafs var Arnfríður Guömundsdóttir, b. á Laugum, Guðmundssonar. Móðir Guðmundar var Herdís Árnadóttir, b. í Dalshúsum, Bárðarsonar, bróð- urÁsgríms. Sigríður var dóttir Örnólfs, verka- manns og sjómanns á Suðureyri í Súgandafirði, Jóhannessonar, sjó- manns á Suðureyri, Albertssonar, b. og sjómanns á Gilsbrekku í Súg- andafirði, Jónssonar, b. á Kaldá í Önundarfirði, Ólafssonar, b. á Eyri, Magnússonar, bróður Jóns, langafa Friðriks, afa Hannesar Hlífars Stef- ánssonar skákmeistara. Móðir Al- berts var Elín, systir Halldórs, lang- afa skáldanna Guðmundar Inga, Halldórs og Ólafs Þ., skólastjóra, Kristjánssona. Elín var dóttir Ei- ríks, prests á Stað í Súgandafirði, Vigfússonar og konu hans, Ragn- heiðar Halldórsdóttur. Móðir Jó- hannesar var Guðfinna, systir 111- uga, langafa Páls Halldórssonar organista. Guðfinna var dóttir Þor- leifs ríka, b. á Suðureyri, Þorkels- sonar og konu hans, Valdísar, syst- ur Guðrúnar, langömmu Sveins, afa Benedikts Gröndal sendiherra. Valdís var dóttir Örnólfs ríka, b. á Suðureyri, Snæbjömssonar og konu hans, Elínar Illugadóttur, b. á Laug- um í Súgandafirði, Jónssonar, bróö- ur Bárðar Illugasonar, ættfóður Arnardalsættarinnar. Móðir Örn- ólfs Jóhannessonar var Sigríður Jónsdóttir, systir Guðnýjar, ömmu Jónu, ömmu Ólafs Þórðarsonar al- þingismanns og Kjartans Ólafsson- ar, fyrrv. alþingismanns. Önnur systir Sigríðar var Guðmundína, amma Gils Guðmundssonar, fyrrv. alþingismanns. Móðir Sigríðar var Margrét Guðnadóttir, sjómanns á ísafirði, Jónassonar, formanns á ísafirði, Jónssonar, b. á Eyri í Seyð- isflrði, Sveinssonar. Móðir Guðna var Svanfríður Jónsdóttir, vinnu- manns í Vatnsfirði, Sigurðssonar og konu hans, Guörúnar Sigurðardótt- ur. Móöir Margrétar var Helga Pét- ursdóttir, b. á Kvíanesi í Súganda- firði, Borgarssonar og konu hans, Agnesar Aradóttur, b. á Kvíanesi í Súgandafirði, Þorkelssonar, b. á Hjöllum í Gufudalssveit, Bjamason- ar, b. á Kollabúðum í Þorskafirði, Jónssonar, b. í Múlakoti, Björnsson- ar, b. í Gröf á Höfðaströnd, Jónsson- ar, b. í Gröf, Stígssonar, prests i Miklabæ, Björnssonar. Móðir Þor- kels var Guðlaug Brandsdóttir, b. í Kristján R. Ólafsson. Skáleyjum, Sveinssonar, bróður Brands, langafa Eggerts Ólafssonar skálds. Móðir Ara var Sigríður Guð- mundsdóttir, lögréttumanns á Hvoli í Saurbæjarhreppi, Lýössonar, og konu hans, Sigríðar Loftsdóttur. Móðir Agnesar var Guðný Páls- dóttir, systir Guðrúnar, langömmu Halldóru, ömmu Halldóru Ingólfs- dóttur, ekkju Kristjáns Eldjám for- seta. Kristján tekur á móti vinum og vandamönnum á heimili sínu milli klukkan 15.00 og 19.00 á af- mælisdaginn. Jóhannes Gilbert Leoson Jóhannes Gilbert Leoson, fyrrver- andi vélstjóri, Njarðvíkurbraut 21, Innri-Njarðvík, verður sjötíu og fimm ára sunnudaginn 5. ágúst. Jóhannes fæddist í Famien í Fær- eyjum og ólst þar upp. Hann stund- aði bamaskólanám þar og var auk þess tvo vetur í kvöldskóla og nam dönsku, ensku, skrift og reikning. Jóhannes lærði járnsmíði í þrjá vet- ur hjá Jörgen Mortensen í Tvör- oyre. Þrettán ára gamall byijaði hann sjómennsku, fyrst sem háseti á skútu en svo tvö ár á skonnortu. Eftir það starfaði hann ætíð sem vélstjóri þegar hann fór á sjó. Þegar stríðið skall á var Jóhannes á skútu er Elín hét og keyptu þeir fisk á ís- landi og sigldu með til Englands. í þessum ferðum komust þeir oft í hann krappan og í einni feröinni lést kokkurinn af skotsámm. Oft þurftu þeir að þræða kortalögð tundurduflasvæði til að komast leið- ar sinnar. Eftir stríö hóf Jóhannes vinnu í landi, ók leigubifreið og vörubifreið í þijú ár og vann við húsasmíðar í sjö ár í Þórshöfn. Síð- an hefur hann stundað sjómennsku og verið vélstjóri á vertíöarbátum við ísland. Árið 1966 fluttist Jóhann- es með fjölskyldu sína til íslands. Fyrsta árið bjuggu þau í Grindavík en eftir það í Njarðvík. Jóhannes hetur verið vélstjóri á ýmsum bát- um en hætti sjómannsstörfum um sjötugt og starfaöi þá eitt ár á lager hjá Herði hf. í Ytri-Njarðvík og tvö ár í Hraðfrystihúsi Keflavíkur. Jó- hann hætti alfarið störfum 1985. Jóhannes kvæntist þann 7. des- ember 1950 Birthe Helenu Leoson, verkakonu oghúsmóður, f. 9. októb- er 1923. Foreldrar Birthe eru Niclas Pauli Hansen og Sigrid Hansen frá Færeyjum sem bæði eru látin. Börn Jóhannesar og Birthe eru: Jensína Leó, verkakona í Keflavík, f. 8. október 1952, gift Þór Magnús- syni og eiga þau tvö börn; Nikulás Leó, sjómaður, f. 11. mars 1954, en hann á tvö börn; Jóhann Leó, hús- vörður, Danmörku, f. 23. júlí 1957, sambýliskona hans er Anna Kjart- ansdóttir og eiga þau tvö börn; og Jóhannes Leó, sjómaður í Innri- Njarðvík, f. 6. desember 1962. Birthe átti einn son fyrir hjóna- band, Eyvind Hansen, f. 23. október 1946, d. 1966, en hann ólst aö mestu upp hjá foreldrum hennar. Systkini Jóhannesar em: Anna Malena en hún er látin, fyrrverandi verkakona í Færeyjum, fyrri maður hennar var Klemens Jóhannesen og áttu þau átta börn, síðari maður hennar var Björgvin Pálsson, Sand- gerði; Karolina, verkakona og mat- reiðslukona í Færeyjum, gift Al- binns Jóhannesen og eiga þau níu böm; Jens Mikael en hann er lát- inn, fyrrverandi sjómaður í Færeyj- Jóhannes Gilbert Leoson. um, giftur Önnu Godtfred og eiga þau þrjú börn; Sofus, sjómaður í Færeyjum, fyrri kona hans var Anna en hún er látin og síðari kona hans er Ella; Júiía, húsmóöir og verkakona í Færeyjum, fyrri maður Solberg Fornagard og áttu þau fjög- ur börn, núverandi sambýlismaður er Lennard Jacobsen. Foreldrar Jóhannesar eru Johann Ludvig Marins Leo sjómaður og Elsebet Maria húsmóðir, bæði frá Famien í Færeyjum. Jóhannes tekur á móti gestum í safnaðarheimilinu í Innri-Njarðvík á afmælisdaginn milh klukkan 17 og21. Agúst Arnason. hálfbróðir, f. 23. október 1949, stafs- maður tæknideildar Rafmagnsveitu ríkisins á Hvolsvelli, maki hans er Dorothea Antonsdóttir; Helga Mar- teinsdóttir, stjúpsystir, f. 15. ágúst 1945, klínikdama á Seltjarnarnesi, maki hennar er Dagnýr M. Marinós- son vélstjóri og eiga þau þrjár dæt- ur. Faöir Ágústs er Ámi Jónsson, f. 17. júní 1896, fyrrverandi bóndi í Holtsmúla, Landi, Rangárvalla- sýslu, nú búsettur á Selfossi. Móðir Ágústs var Ingiríöur Oddsdóttir, f. 13. maí 1887, d. 24. febrúar 1937. Ágúst verður að heiman á af- mælisdaginn. Ágúst Ámason Ágúst Árnason skógarvörður, Hvammi, Skorradal, er sextugur i dag. Agúst fæddist í Holtsmúla, Land- hreppi, Rangárvallasýslu, og ólst þar upp. Hann var í námi í Skóga- skóla 1949-1951, Tarna Folkhög- skola, Svíþjóð, 1951-1952 og Malma Plantskola, Svíþjóð, 1952. Agúst hóf störf hjá Skógrækt ríkisins að Tumastöðum í Fljótshlíð áriö 1953 en var við skóla Skógræktar ríkisins 1953-1955. Árið 1958 starfaði hann hjá bandarísku skógaþjónustunni á Forest Genetic Labaratory Placer- ville. Frá 1959 hefur Ágúst starfað fyrir Skógrækt ríkisins að Hvammi í Skorradal. Ágúst kvæntist 3. desember 1960 Ólöfu Svövu Halldórsdóttur, f. 8. febrúar 1941, matráðskonu. Foreldr- ar hennar eru Ágústa Gísladóttir og Halldór Jónsson á Drangnesi en síð- ar húsvörður í Kópavogsskóla. Böm Ágústs og Olafar era: Friðrik Ingi, f. 24. júní 1961, vélstjóri; Halld- óra, f. 30. mars 1963, myndmennta- kennari í Kópayogi, maki hennar er Sigurður Orri Steinþórsson sem er í tæknifræðinámi og eiga þau einn son; Björk f. 1. mars 1965, gift Ingimundi E. Grétarssyni, verk- stjóra í Hvammi, Skorradal, og eiga þau þijú börn; og Edda Lind, f. 21. febrúar 1971, menntaskólanemi. Alsystkini Ágústs voru sjö, einn hálfbróöir samfeðra og ein stjúp- systir. Öll era þau á lífi nema einn bróöir sem lést ungur. Systkinin eru: Oddur, f. 29. júní 1921, heila- skurðlæknir í Gautaborg, kona hans er Hulda Ágústsdóttir og eiga þau þijú böm; Jóna Gíslunn, f. 2. ágúst 1922, maki hennar er Sveinn Ólafsson, myndskeri í Reykjavík, og eiga þau þrjú börn; Inga Guðrún, f. 3. september 1923, maki hennar er Einar S. Bergþórsson, smiður í Reykjavík, og eiga þau fimm börn; Guðmunda, f. 29. ágúst 1924, maki hennar er Oddur Guðmundsson, bhkksmiður í Reykjavík, og eiga þau sex böm; Ingibjörg, f. 26. ágúst 1925, maki hennar er Olgeir Sigurðs- son, vaktmaður í Reykjavík, og eiga þau fjögur börn; Lilja, f. 16. ágúst 1926, maki hennar er Loftur Jó- hannsson, vélstjóri á Ljósafossi, og eiga þau flmm börn; Ágúst, f. 13. ágúst 1927, dó ungur; Þorsteinn, Til hamingju med afmaelið 3. ágúst 95 ára 50 ára Kristín Jónsdóttir, Hrafnistu við Kleppsveg, Reykja- vík. Eiríkur Jónmundsson, Hraunbæ 180, Reykjavik. Hann verðuraðheiman. ÖlverSkúlason, Mánagötu 15, Grindavík. Lilja Lárusdóttir, 85 ára Sigurbjörg Þorláksdóttir, Lönguhhð 3, Reykjavík. Skarðsbraut 11, Akranesi. 40ára Páll Guðmundsson, 80 ára Ingibjörg Indriðadóttir, Heiðarvegi 10, Selfossi. Ljósheimum 22, Reykjavík. Eggert Eggertsson, Brú, Suðurgötu, Reykjavík. 75 ára Þórir Lúðvíksson, Flúðaseh 89, Reykjavík. Guðfinna Steinunn Svavarsdótt- ir, Stangarholti 5, Reykjavík. Elin Richardsdóttir, Vallhólma 2, Kópavogi. Marta Oddsdóttir, Kvisthagal4, Reykjavík. Jónas Lúðvíksson, Aðalbjörn Aðalbjörnsson, Skólavörðustíg24A, Reykjavík. Jón Pétursson, Þórunnarstræti 87, Akureyri. 60 ára Brynleifur Jóhannesson, Baugholti20, Keflavik. Ægisgrund 14, Garðabæ. Til hamingju með afmælið 5. ágúst 90 ára 50ára Björn Guttormsson, Laugarási 17 A, Egilstöðum. Kristjana Jónsdóttir, Hrafnistu við Kleppsveg, Reykja- vík. Guðrún Kristjánsdóttir, Boðagerði 11, Kópaskeri. Ingvar Anton Antonsson, Hhðarvegi24, ísafirði. Guðbj örg Svala Guðnadóttir, Tjarnargötu 10, Sandgerði. Guðmundur B. Guðbjarnason, Dalseli5,Reykjavík. Kristinn Jónsson, Þvervegi 8, Stykkishólmi. 85ára S vava Sigurðardóttir, Hringbraut50, Reykjavík, Garðar Vilhjábnsson, Austurbyggö 17, AkureyrL 40ára Stefán Sveinbjörnsson, Bergi, Grímseyjarhreppi. Manus Saifah, Kjarrhólma 26, Kópavogi. 75 ára Guðlaugur Eyj ólfsson, Álftahólum 2, Reykjavík. Oddsteinn Pálsson, Bústaöabraut 9, Vestmannaeyjum. Sólveig Adamsdóttir, Lerkilundi 5, Akureyri. Sigurlaug Jónsdóttir, Hrólfsskálavör 9, Seltjarnar- nesi. Oddur H. Fjalldal, Bakkaseh 24, Reykjavík. Nanna Sæmundsdóttir, Reykási 9, Reykjavik. Steingrímur Haraldsson, Fífumýri 12, Garðabæ. Hafsteinn Grétar Guðfinnsson, Brimhólabraut 34, Vestmannaeyj- 70 ára Hans P. L. Andrésson, Ölduslóð 32, Hafnarfirði. Hann verður að heiman. óskar Bjarnason, Hásteinsvegi38, Stokkseyri Hörður Bjarnason, Skagabraut 37, Akranesi. Ólína Helga Friðriksdóttir, Gautlandi21, Reykjavík. 60 ára Richard Ásgrímsson, Efstahjaha 19, Kópavogi. Kristín Albertsdóttir, Eiðsvallagötu 28, Akureyri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.